Morgunblaðið - 27.05.1961, Síða 9
Laugardagur 27. maí 1961
MORGl'NBLAÐIÐ
9
Vaxandi starfsemi
rœktarfél. Hafnarfjarðar
35 þús. plöntur gróðursettar
HAFNARFIRÐI. — Aðalfundur
Skógræktarfélagsins var haldinn
4. maí s.l. þar fl- .ti formaðurinn,
séra Garðar Þorsteinsson, skýrslu
um ársstarfið, sem verið hafði
míeð miklúm blóma. Á árinu voru
35 þusi trjáplöntur gröðursettar
Og var öll gróðursetningin unnin
af unglingavinnuflokkum bæjar-
ins, starfsmanni félagsins og
Góðtemplurum, sém gróðursettu
í sjálfboðavinnu.
í Stóra-Skógarhvammi í Undir
hlíðum voru gróðursettar rúm-
lega 27 þús. plöntur og hafa þá
verið gróðursettar úm 40 þús.
plöntur % þeim stað. í Hvaleyrar-
vatnsgirðingunni voru setttar
niður tæplega 8 þús. plöntur, en
líka var þar unnið að öðrum
ræktúnarumbótum. Lýsi & Mjöl
gaf félaginu fiskimjöl til áburðar
Til ísSendingabyggða á Grænlandi
KORT það, sem hér birtist er
af Suður-Grænlandi og ís-
lendingabyggðum þar og eru
íslenzku nöfnin með beinu
letri, en þau grænlenzku með
skáletri. Punktarnir sýna
hvar rústir frá byggð ís-
lenzku víkinganna á Græn-
landi eru, en hringirnir þorp-
in eins og þau eru nú og kross
arnir kirkjurústir.
Kort þetta er í bæklingi,
sem Ferðaskrifstofan og Flug-
félag íslands hafa gefið út í
sambandi við fyrirhugaðar
ferðir, sem þessir aðilar gang-
ast fyrir í sumar til Græn-
lands. Ráðgert er að farnar
verði þrjár þriggja daga ferð-
ir til Narssarssuaq, og mun
þá þátttakendum gefast kost-
ur á að heimsækja hinar fornu
íslendingabyggðir í Eiríksfirði
og Einarsfirði og njóta um
leið hins hrikalega og sér-
kennilega landslags Græn-
lands. Sú fyrsta þessara ferða
verður farin 19. júlí.
Einnig eru ráðgerðar þrjár
eins dags ferðir til Meistara-
víkur og verður sú fyrsta 25.
júní.
Fyrsta hópferð íslenzkra
aðilja til íslendingabyggða á
Grænlandi síðan 1410 var far-
in í fyrrasumar á vegum
Ferðaskrifstofu ríkisins. Tókst
hún mjög vel og vakti mikla
athygli.
Bæklingurinn, sem um var
• getið, er á ensku og mun hann
liggja frammi á skrifstofum
Flugfélagsins Og Ferðaskrif-
stofunnar bæði hér á landi og
erlendis, einnig eru farmiðar í
ferðirnar seldir þar. Þriggja
daga ferðin kostar 4.480.—■ kr.
og eins dags ferðin 2.350,— kr.
allt innifalið.
Áhugi á Grænlandsferðum
hefur vaknað víðar en hér á
landi og t. d. kom hingað full
trúi frá American Express í
Ziirich í vetur til að kynna
sér möguleika slíkra ferða þ.
e. a. s. fyrst til íslands og svo
héðan til Grænlands.
Einnig hefur félagið Tour-
ing Club of France í hyggju
að senda hingað mann til að
afla efnis , grein um ísland og
Grænlands, sem birtast á í árs
riti félagsins á næsta ári.
Talið er mjög eðlilegt að
erlendir ferðamenn, sem til
íslands koma fái tækifæri til
að heimsækja Grænland um
leið og feta þá í fótspor vík-
inganna. Einnig er Reykjavík
eins og sjá má af litla kort-
inu í horninu efst til hægri
sjálfsögð miðstöð slíkra ferða.
Kortið er teiknað af Hall-
dóri Péturssyni, í samráði við
Þórhall Vilmundarson, en
hann var hvatamaður Græn-
landsferðarinnar í fyrra og
tók saman fyrrnefndan bæk-
ling.
f»
Staðn er dauáur"
og þá klappa áhorfendur að nýrri
rússneskri kvikmynd
FEÉTTARITARI brezka
blaðsins Observer skýrir ný-
lega frá því, að sýningar séu
að hefjast í Moskvu á nýrri
kvikmynd þar sem lýst er
ógnarstjórn Stalins á eftir-
stríðsárunum.
Segist fréttaritarinn bafa
verið viðstaddur frumsýn-
ingu á kvikmyndinni. — í
myndinni eru þáttaskil, þeg-
»r sendiboði kemur fram og
tilkynnir: „Stalin er dauð-
lir.“ Þá klöppuðu allir áhorf-
endurnir í kvikmyndahús-
inu, segir fréttaritarinn.
Fangl snýr heim
MeS kvikmynd þessari eru síð
ustu leifarnar af Stalin-dýrkun-
inni þurrkaðir út, segir Observer.
Kvikmyndin lýsir lífi rússnesks
orustuflugmanns Alexei Astak-
hov, sem vinnur miklar hetju-
dáðir en er loksins skotinn niður
og tekinn til fanga af Þjóðverj-
um.
Eftir stríðið er hann frelsaður
úr þýzku fangabúðunum en verð
ur að ganga x gegnum ægilegan
hreinsunareld og sálarkvalir
þegar kemur heim til Rússlands.
Hann er tortryggður og einangr-
aður af því að hann hafði setið
í þýzkum fangabúðum.
Ógnaratriði með styttu Stalins
Kvikmyndin rís hæst, þegar
hann hrópar: — Hver er sök
mín? — að ég var skotinn niður
yfir þýzku landssvæði, að ég
dó ekki úr hungri, að mér var
ekki eytt í fangabúðum nazista?
Alexei Astakhov fer til flokks-
nefndarinnar og biður um upp-
reisn æru sinnar. Nefndarmenn-
irnir eru svartir, ómannlegir,
ópersulegir vélmenn sem sitja
undir risastórri styttu af Stalin.
Ógnaratriði kemur fram á kvik-
myndatjaldinu, ljósin leika um
styttu Stalins og hún varpar
skugga yfir nefndarmennina. í
hryllingssenu, sem á eftir fylgir
fer Alexei jafnvel sjálfur að
efast um sakleysi sitt.
Þá kemur ungur byltingarsinn-
aður maður fram, bendir á stytt-
una af „hinum mikla föður mann
kynsins“ og hrópar í fyrirlitn-
ingu og andúð: •— Það var ekki
hann sem bjargaði okkur undan
fasismanum. Það var faðir minn
sem missti lífið á vígvellinum,
það varst þú Alexei og milljónir
annarra hermanna.
Vorleysing
Ungi maðurinn kemur til að
tilkynna Alexei „Stalin er dauð-
ur“. Þegar það gerist heyrist
mikið Og hávært lófatak í öllu
kvikmyndahúsinu.
Alexei lítur út um gluggann
og áér niður á stórfljót. ísinn
hefur þakið fljótið, en nú er
hann byrjaður að brotna. ísinn
bráðnar og rennur með ár-
straumnum. Og himinninn er
heiðskír og blár.
Observer-fréttamaðurinn segir
að enginn vafi sé á því, að kvik-
mynd þessi hafi verið rædd á
æðstu stöðum í Rússlandi og hafi
hún fengið þar samþykki. Hann
telur að það sé framar öllu rúss-
neski kvenráðherrahn Ekaterina
Furtseva sem hefur ráðið töku
þessarar kvikmyndar.
Féll af bíl og
slasaðist iíla
HAFNARFIRÐI — Á þriðjudags-
morguninn núna í vikunni slas-
aðist 16 ára piltur, Jóhannes
Reykdal, mjög illa þegar hann
féil af vörubíl við Lýsi & Mjöl
hér við Hvaleyrarbrautina. Var
verið að skipa út mjölpokum
þennan dag. Mun Jóhannes hafa
hrasað ofan af bílnum við það
að fest annan fótinn í neti, sem
pokarnir eru hífðir í.
Kom hann mjög illa niður og
slasaðist einkum á enni, kjálka
og öxl, einnig kvartaði hann um
þrautir í baki. Var farið með
hann í Landakotsspítalann í
Reykjavík, þar sem gert var að
sárum hans.
Tveir bátar fengu
sfld
gær
KLUKKAN tæpt 22 í gærkvöldi
hafði blaðið samband við síldar-
leitarskipið Fanneyju og spurð-
ist fyrir um síldveiðarnar á
Faxaflóa. Þá hafði ekki frétzt til
annarar veiði en þeirra tveggja
báta, sem í gær- lönduðu á Akra
nesi, Sveinn Guðmundsson 200
tunnum og Höfrungur II 100
tunnum. Eitthvað voru bátarnir
þó að kasta í gærkvöldi. Lóðað
hafði á talsverðri síld frá bauj-
unum og suður eftir Bollasviði,
en straumur var stríður og síld-
in stygg. Veður var allgott.
eins og undanfarin ár og hefir
verið mikill stuðningu. að því.
Þá skýrði formaður frá því að
únnið yæri að því að fá. meira
land til friðunar og ræktunar,
bæði í- Undir-hlíðum og að
stækka Hvaleyrarvatnsgirðing-
una.
Allmiklar umræður urðu um
málefni félagsins og ríkti áhugi
á vaxandi starfsemi þess.
í lok fundarins sýndi Hákon
Bjarnason skógræktarstj. skugga
myndir og flutti erindi um skóg-
rækt.
Núverandi stjórn skipa: Séra
Garðar Þorsteinsson form, Hauk-
ur Helgason, Irigvar Gunnarsson,
Jón Magnússon, f innbogi Jóns-
son, Ólafur Vilhjálmsson og Páll
V. Daníelsson.
Ný
ýr flugstjóri á
Skymaster
NÝLEGA hlaut Magnús Guð-
brandsson flugstjóri réttindi til
þess að stjórna Skymasterflug-
vél.
Magnús, sem er sonur hjón-
anna Matthilöar og Guðbrandar
Magnússonar hóf snemma flug-
nám. Gerðist virkur þátttakandi
í Svifflugfélagi Islands aðeíns tíu
ára gamall og tók þar, er fram
liðu stundir A, B og C próf í
sviffugi.
Magnús lauk prófi atvinnu-
flugmanna í Bandaríkjunum árið
1948 og blindflugsprófi- 1950.
Hann varð fastráðinn flugmaður
» ' Hl
hjá Flugfélagi íslands árið 1952,
fyrst sem aðstoðarflugmaður á
innanlandsleiðum og síðar flug-
stjóri.
Þegar Flugfélag íslands keypti
Viscount skrúfuþoturnar Gull-
faxa og Hrímfaxa árið 1957, var
Magnús í hópi þeirra flugmanna
félagsins, sem stundaði nám hjá
framleiðendum flugvélanna í
Bretlandi og lauk prófi frá Loft-
ferðaeftirlitinu brezka.
Magnús fór fyrir nokkrum dög
um í sína fyrstu ferð sem flug-
stjóri á Skymasterflugvélinni Sól
faxa til Narssarssuaq, en þar er
flugvélin staðsett við ísleitarflug
o. fl.
I.O.G.T.
Barnastúkan Díana nr. 54.
Síðasti fundur á morgun.
Þetta er eitt af málverk- Morgunblaðsins um þess-
um þeim er Magnús Þór- ar mundir. Myndin er af
arinsson sýnir í glugga Snæfellsjökli.