Morgunblaðið - 27.05.1961, Síða 13

Morgunblaðið - 27.05.1961, Síða 13
Laugardagur 27. maí 1961 MORGVISBLAÐtÐ 13 Ingi R. Jóhannsson hugleiðir einvigið Felldi sigurvissan Tal f UM það bil 8 vikur hefur barátta þeirra Botvinniks og Tals varað. Að þessu sinni geklk Botvinnik sem sigurveg- ari ai hólmi, og voru yfirburð ir hans öllu greinilegri, en Tals 1960. Aður en ég ræði frekar um keppnina sjálfa vil ég drepa örfáum orðum á æviferil 'kepp enda. Botvinnik er fæddur í St. Pétursborg nú Leningrad 17. ágúst 1911, og verður því 50 ára á þessu ári. Árið 1932 út- skrifiaðist hann sem vélaverk- fræðingur, en vegna sjón- depru var hann ekiki í her- þjóustu í seinni heimsstyrjöld inni, en starfaði sem verk- fræðingur í Perm og hlaut mikið lof fyrir frábært starf. Botvlnnik byrjaði að tefla skák á 13. ári og hafði fljót- lega framgang á því sviði. Árið 1933 varð hann skák- meistari Sovétríkjanna. Bot- vinnik tók þótt í stórmótinu í Notthinghaim 1936 og varð 1—2 ásamit J. R. Capablanca á undan Lasiker, Aljechin, Buwe, Fine og Reshewsky. í AVRO mótinu 1938 varð hann 3. á eftir Keres og Fine, en á undan Euwe, Aljechin, Capa- blanca, Reshewsky og Flöhr. Svo kom stóra árið 1948, þeg- ar alþjóðlega skáksamibandið F. I. D. E. hélt heimsmeistara- keppni sína. Botvinnik sigr- aði með miiklum yfirburðum og hlaut 14% vinning af 20, næstur kom Smyslof, þá Ker- es og Reshewsky, en Dr. Euwe rak lestina. Við dáuða dr. Aljechins hafði F. I. D. E. fengið ÖH iwnráð yfir heirns- meistaratigninni í skák, og var Botvinniik fyrsti heirns- meistari sambandsins. Aftur á móti varð David Bronsitein fyrsti ásikorandi Botvinniks 1951, eftir að hafa þrætt hinn torrataða krákustíg að fót- stalli titiilsins. Einvíginu lauk með jafnfefli 12—12, og hélt því Botvinnik titlinum. Nú kom Smyslof fram á sjónar- sviðið í annað sinn og háði sitt fyrsta einvígi við Bot- vinnik 1954, sem einnig iauik með jafntefli 12—12 þótt merkilegt mætti teljast, því eftir ca. 6 skákir hafði Smysl- of einungis hlotið tvö jafn- tefli. Öðru sinní fékk Smyslof að reyna sig við Botvinnik 1957, og þá tókst honum að leggja þennan traiusta og mik- il'hæfa meistara að velii 12% — 9V2. En strax órið eftir kom Botvinnik og endurheiimti tit- i-1 sinn með 12% — 8%. Þá erum við komin að fyrra ein- vígi þeirra Botvinniks og Tals, gem eins og allir vita lauk með sigri Tals 12% — 8%. Það voru margir af fylg- ismönnum Botvinnifcs, sem ekki vildu sætita sig við að Tal væri betri eítir einvígið, og vildu meina að Botvinnik hafi ekki verið nægilega þjálf aður fyrir þá keppni. Það er enginn vafi á því að Botvinn- ik hafði látið undir höfuð leggjast að taka þótt í alvar- legri Skákkeppni frá því í Múnchen 1958, þótt hann rann safcaði skákir Tals mjög gaum gæfilega fyrir einvígið, enda kom á diaginn, að hann lemti oft í alvarlegri tímaþröng, og að margra dómi tap>aði hann einvíginu í 17 skákinni, þar sem hann átti tiltölulega auð- unna skák, en lék af sér í slæmri tímaeklu. Tal er fæddur 9. nóvember 1936 í Riga. Bann byrjaði að tefla 7 ára gamall. Tail vann sér fljótlega til frægðar á skáksviðinu m. a. sigraði hann á skákþingi Sovétríkjanna 1957 og 1958, en varð annar 1959 á eftir Petrosjan. Hann sigraði á svæðamótinu í Port- oros 1958 og á mótinu í Zúr- ioh 1959 ásarnt kandidatakepn inni sama ár. Þessi „sería“ ætti að fæna mönnum heim sanninn um að Tal var verðug ur aðili að heimsmeistaraein- víginu 1960. Skákstíll þeirra Batvinnifcs og Tals, þessara tveggja skák- jöfra, er næsta ólífcur. Tal er fyrst og fremst „taktiskur“ sóknarmaður, sem kann bezt við sig þegar fléttumöguleik- ar eru smarasti þátturinn í stöðunmi. Hiann hefur yfir- gripsmikla þekkingu á skák- byrjunum, sem hann beitir af nákvæmni, en hefur þó til- hneigingu til að leika „næsit bezta“ leiknum til þess að auka sem mest á flækjurnar. Það er aliþekkt aðferð, sem Dr. Emamuel Lasfcer beitti á sínum beztu árum, og að flestra dómi hefur harnn verið sá sem lengst máði á því sviði. í mörgum titfellum hefur „næst bezti" leikurinn ekki hvað sízt orðið Tal að fóta- kefli í nýafstöðnu einvígi. Þeir sem ’hafa fcynnt sér skák ir Botvinniks hafa sjálfsagt komizt að raun um að gífur- leg nákvæmni, og djúpur s'kilningur í mjög erfiðri stöðubaráttu, hefur verið vörumerkið á skákstíl hans í gegmum árin, og því hefur hann notfært sér hversu auð- veldlega Tal gín við öllum tækifærum sem bjóðast til þess að skapa flækjur með „næst bezta“ leiknum. Vita- skuld er þetta ekki eina or- sökin fyrir ósigri Tals. Eins og ég hef drepið á áður hér í þættinum, þá virðist sem Botvinnik hafi komið til leiks í betra formi bæði skáklega séð og líkamlega heldur en Tal. Það er athyglisvert að lesa frásagnir af gangi ein- vígisins, því þar kemur fram að Botvinnik hafi ekki verið sá sem ávallt var í Vmaþröng, heldur hafi Tal o t.ð fyrir barðinu á tímaeklunni. í fyrra einvíginu var Tal mjög fljótur að Iéika, og lagði þá gjarnan í gönguferðir um salinn, en hafði þann hátt á að koma oft að borðinu þar sem Botvinnik var niðursokkinn í hugsanir sínar. Þó að erfitt sé að flokka þetta undir truflun, þá leikur enginn vafi á því að Botvinn- ifc hefur hlotið að truflazt við þessar síendurteknu heim- sóknir Tals, og þess vegna hafi hann lagt áherzlu á að Tal gengur um gólf. vera örlítið fljótari að leika en Tal, til þess að fækka þess- um gönguferðum þessa leift- ursnögga Lettlendings. Marg- ur kann að segja að þetta séu aðeins smámunir, en því er til að svara að á meðan á kandidatakeppninni í Júgó- slavíu stóð, þá náði Tal góð- um árangri í að fara í taug- arnar á andstæðingum sínum með þessum leiftursnöggu gönguferðum sínum. Ef til vill hefur sigurvissan einnig átt sinn þátt í ósigri Tals. Þá á ég við hinn hrapal lega árangur sem Tal fær gegn Karo-Kann vörn Bot- vinniks. Allt bendir til þess að Tal hafi ekki lagt þá rækt við undirbúning sinn sem skyldi. Það er einnig athyglis- vert að hann skuli ávallt leika e2-e4 með hvítu, í stað þess að reyna við og við hvort andstæðingur hans hefði ekki snögga bletti í drottningar- peðsbyrjunum. Því hefur ver- ið fleygt að Tal hafi haldið sig allvel, á einu af stærsta hóteli Moskvuborgar, á meðan á einvíginu stóð, og verið um- kringdur stórum kunningja- hóp, því Tal er mikill gleði- maður. Aftur á móti er Bot- vinnik í mótsetningu við Tal, mjög hæglátur og sækist eftir kyrrð og næði. Hann hefur aldrei reyfct, né neytt áfengis um ævina. og leggur mikið upp úr líkamsrækt, og nákvæmni Botvinniks við alla þjálfun er viðbrugðið. En hvað svo sem öllum orsökum líður, þá er það vist, að Bot- vinnik tefldi af mikilli snilli þetta einvígi, og þótt merki- legt kunni að virðast, þá hef- ur skákstyrkleiki hans aukizt frá 1948, ef eitthvað er. Ég fyrir mitt leyti er þegar far- inn að fyllast eftirvæntingu, vegna næsta kandidatamóts, því Tal fær við ramman reip að draga þar sem er Kortsnoj, Geller, Petrosjan, Keres og að mínum dómi er næsta erf- itt að sjá fyrir, hver af þess- um mönnum verður næsti áskorandi Botvinniks. eða Karo Kann vörnin VETTVANGUR Ragnar Jónsson skrifar Vettvanginn í dag. — Hann nefnist: Pólitík eða bók- menntir og fjallar um verðlaunaveitingu og viðbrögð ákveðinna manna, sem rugla saman staðreyndum og eigin óskhyggju, pólitík og bókmenntum. Á SJÖTUGS afmæli Gunnars Gunnaresonar. 18. maí 1959, leiit- aði ég til ýmsna vina okkar í þvi Bkyni að fé þá til að benda mér á eitthvað er orðið gæti trl að minna, *á skemmtilegan hátt, á skáldið á afmælisdegi þess. Svo ved tel ég mig þefckja Gunnar Gunnarsson eftir áraituga sam- Btarf, að ég áleif þýðingarlaust nð freisba að gleðja hann með persónulegum gjöfumt þó ég ifyndi til þesis að ég stóð í mifcilli (beinnl og óbeinni skuld við hann, efcki aðeins fyrir dreng- sfcaparbrögð og órjúfandi vin- áttu, heldur hafði ég einnig haft drjúgan hagnað af bókum hans, Bem ég gjarna vildi skila honum að elnhverju leyti. Var mér bent 6 að stofna sjóð til að verðlauna ung dkáld fyrir mifcilsvert fram- lag til bófcmennta ofcfcar, er bæri uafn hans. Er ég sagði skáldinu frá þessu fanm ég að honum hitn- aði um hjartarætur, og báðir vor um við svo bamalegir að trúa því að þetta mundi lífca geta glatt unga höfunda. Um hitt þarf ég efcki að fjölyrða, sem allir vita, að Gunnar á enga ósk heitari en að fá í hendur bók, er sanni hon- um, að enn séu að koma fram mieð þjóð hans mikil skáld og skapandi fcraftur h»nnar sé óbug aður. Ekfci varð ég þess var að þessi ákvörðun mín vekti neina tortryggni né heldur val mann- anna er síðar skyldu taka ákvörð un um hvaða höfundum yrðu veitt verðiaunin, enda lágu hér í fyllstu einlægni talað, engir bak þanfcar í leynum. Nefndin hefir öðru hverju und anfarna mánuði rætt um það sem komið hefir fram í bókmenntum á tímabilinu, sem verðlaiunin gilda umt og reynt að átta sig á því eftir föngum. Fyrir alllöngu skrifaði hún sameiginlega álits- gerð, og engin athugasemd frá neinum oikkar, um að veita Hann- esi Péturssyni skáldi verðlaun- in í þetta sinn. Persónulega bar ég þessa ákvörðun undir fjölda manna, er vel kunna að meta skáldskiap, sem undantekningar- laust studdu hana eindregið. Frá þessu var sagt á almennum blaða mannafundi, eins og venja er, og engin sérstök viðhöfn önnurt og flest sögðu dagblöðin frá því sem fram fór rétt og skilmerkilega. Nú hefur hinsvegar komið í ljós að hagkvæmt virðist fyrir vissa menn að rugla hér saman staðreyndum og eigin óskhyggju, pólitík og bókmenntum, gera dómnefndina ábyrga fyrir stjóm málaskoðunum H. P., sem otok- ur hafði sjálfum láðst að grensl- ast eftir sérstaklega. Og nú æða fram á ritvöllinn galvasfcir á- róðursmenn og heimta að verð- launin séu greiðsla fyrir pólitískt afrek eins og tíðkast í föðurlandi þeirra og Pasternafcs. Jafnvel ábyrgur rithöfundur eins og Thor Vilihjálmsson getur ekki stillt sig um að gera þetta að póli'tísku tækifæri. Ekki bendir þó neinn þessara manna á annan höfund, er fremur hefði átrt að ifá verðlaunin en H. P., heldur er hirt um það eitt að fá fólk sann- fært um að þau séu veitt gegn betri vitund sakir pólitísks of- stækis. Svo vill til að það er undirrit- aður, sem greiðir þessi verðlaun, og velur nefndina er úrskurðar hver skuli hiljóta þau hverju sinnd. Þeim ummælum, að verð- launin séu borgu-n fyrir pólitísfca þægð, er því beint til mín fyrst og fremst. Það getur vel verið að eintoverj ir fáráðlingar, sem þó toafa rétt til að skila atkvæðaseðli við fcosn ingar, trúi því að ég stundi þá iðju að panta árásir á þann mann, sem öðrum fremur hefir sýnt mér gestrisni og velvildt og ég met meira flestum mönnum, sem ég þekki, sem vísindamann, skáld og roann, en þeir menn sem nú hafa látið í slfkt skína, viita á- reiðanlega allir betur. Og ekkert er ég viss um að Jón Helgason telji sig skulda þeim mönnum meiri þakkir, sem sí og æ eru að nugga sér utaní hann af takmark aðri smekkvísi, en hinum, sena höggva til hans. Vel má vera að einhver ung skáld telji sig hafa þá reynslu af viðskiptum við mig, að ég sé líklegur til að bjóða fram borg- un fyrir að skrifa vel um Nató Framh. á bls. 21.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.