Morgunblaðið - 27.05.1961, Side 20

Morgunblaðið - 27.05.1961, Side 20
20 MORGVNBLAÐIÐ Laugardagur 27. maí 1961 -Mary Howard: - lygahúsið - ... > 9 1 (Skdldsaga) Stephanie lyfti brúnum, eins og hún væri í einhverjum vafa um þetta og Karólína hló aftur. Já, ég veit.. en hann er alveg meinlaus og svo er hann svo mik ill vinur minn. En hitt er mér alvara, að hann ér hrifinn af þér. Hún tók upp vindling og kveikti í honum. — Og hvað finnst þér svo um Bill Powell? Stephanie gat ekki að því gert, að roðinn kom upp í kinnar henn ar. — Mér finnst hann ágætur, sagði hún. —Laglegur? Stephanie sneri sér undan, því að hún þoldi illa svona þráspurn ingai', og þá var Karólína fljót að snúa við blaðinu. í»ér finnst ég vera hnýsin. Kannske er ég það líka. En þú skilur, Stevie, að þú ert nú bara nítján ára og ég ber ábyrgð á þér. Hún gerði nú leikaraþögn og svipurinn varð hreinskilnislegur og blátt áfram. — Ég býst við, Stevie, að þú hafir séð minnzt á okkur hr. Jerome í blöðunum? Við ætlum að fara að gifta okk- ur en þar hafa verið ýmsir erfið leikar í veginum. Konan hans.. jæja, kannske hafa fæst orð minnsta ábyrgð um það hvað hún hefur komið skammarlega fram við hann. Ég vona bara, að þú hafir ekki trúað öllum kjaftasög- unum um mig.. að við Charles séum nokkuð meira en vinir. — Æ, vertu ekki að þessu, Karólína frænka, mótmælti Step- hanie. — Það þýðir ekkert að vera að tala um þitt einkalíf við mig. Mér gæti aldrei dottið í hug að fara að áfellast þig. — Það veit ég, að þú mundir aldrei gera, flýtti Karólína sér að s-egja. — Ég vildi bara vera viss um, að þú teljir mig alls trausts verða. Nú getum við ver ið vinir. Og þá ættum við að sleppa þessu frænku ávarpi. Lít ég kannske út eins og einhver gömul frænka? Stephanie brosti til hinnar, sem var svo grannvaxin og gullin- hærð. — Nei ekki finnst mér það, svaraði hún. — Jæja, þá skulum við heldur hafa það Karó. Æ, hringdu í Carter, elskan. Hún er víst að kjafta frammi í eldhúsi. Ég ætla að fara að hátta. Þegar hún var komin upp í miðjan stigann. sneri hún sér við og.augun ljómuðu: — Og, Stevie, sagði hún glað- lega, — þú skalt ekki taka alltof mikið mark á Bill Powell. Stevie stirðnaði upp með fing- urinn á bjölluhnappnum. — Okkar á milli sagt, þá er hann óþarflega mikið upp á kven höndina, sagði Karólina. — Hann lét aldrei einkaritarann hans Charles í New York í friði. — Hvað er athugavert við það? svaraði Stephanie og reyndi að vera sem rólegust. •— Já og svo er stúlka í Þýzka landi og önnur í Ítalíu eða ein- hversstaðar. Þessvegna er þessi þeytingur á honum, trúði hann mér fyrir. En eins og þú sérð, hefur hann ekki stanzað lengi neinsstaðar. Hann tollir hvergi til lengdar. Stevie kinkaði kolli dauflega. Var það þessvegna sem hann varðist allra frétta um sjálfan sig og sérstaklega um þessa Berlín- arför sína? — Ég átti sjálf fullt í fangi með hann í London, sagði Karólína. Ég skal segja þér betur frá því einhverntíma seinna. O, það var hreinasta ævintýri: Hún geisp- aði. — Æ, ég er svo syfjuð Góða nótt, elskan, góða nótt! Hún sendi sviplausu andlitinu á Stephanie enn eitt augnatillit,, sem var örvandi og rannsakandi í senn og hélt síðan áfram upp stigann og til herbergis síns. Allt í einu kom Carter utan úr eldhúsi. Stephanie ságði henni að húsmóðir hennar þyrfti á henni að halda. og fór síðan upp í sitt herbergi. Þar settist hún á rúmið sitt og tók að hugleiða um mæli frænku sinnar, en svo varð henni hugsað til Bills og minnt- ist kossa hans, blíðu hans og hreinskilninnnar í rödd hans. Það var rétt eins og Karólína hefði verið að tala um einhvern allt annan mann. En hvor þeirra var sá rétti Bill? Stephanie afklæddist og fór í rúmið. Bill hafði sagt, að á morg un yrði allt öðruvísi. Já, kannske yrði hann sannspár. Kannske myndi hún vakna við það, að hún væri alls ekki ástfangin leng ur? Einn góðveðursmorgun, fjórum dögum seinna, renndj Bill hjól- inu sínu framhjá vinnustofu Faurés, og fór að elta bílinn, sem þá var nýlega farinn frá húsi Karólínu. Hann hafði alls ekki séð Step- hanie síðan um kvöldið þegar hann hafði kysst hana og heldur ekki heyrt orð frá henni og hann gat ekki að sér gert að setja það í samband við heimkomu Karó- línu, sem varð svo skjótt og ó- vænt. En að því ætlaði hann að minnsta kosti að komast, og nú hafði Bertram sagt honum, að Stephanie ætlaði að aka Francine til Nice, í verzlunarerindum, og þá ætlaði hann að nota tækifær- ið og komast að sannleikanum í málinu. Þegar til Nice kom, stöðvaði Stephanie bílinn við fisktorgið, og Francine steig út og kjagaði af stað með tvær körfur, og hvarf brátt í mannþröngina. Bill steig af hjólinu, gekk að bílnum og horfði á rjótt andlitið á Stephanie gegn um rúðuna. — Hvar hefurðu verið? spurði hann. Stephanie fann hjartað í sér taka sprett. — Ég hef haft svo óskaplega mikið að gera. stamaði hún. — Karólína kom heim.... hún var komin þarna um kvöld- ið . .og nú roðnaði hún enn meir — þegar ég kom inn. Fyrirgefðu mér Bill; ég ætlaði að koma nið- ur í fjöruna, en ég hef bara alls ekki komizt neitt út. Þarna hafa verið gestir til hádegisverðar og kvöldverðar upp á hvern dag, og svo kokteilgilldin þess á milli. Þú tryðir því ekki, að ein mann- eskja gæti þekkt svona margt fólk! Bill hallaði sér að bílnum og stakk höfðinu inn um opinn gluggann. —Hvað er að? spurði hann. Stephanie stirðnaði upp, en reyndi að leiða svona mikla ná- lægð hans hjá sér eins og ekkert væri. — Hefur einhver verið að róg- bera mig? Verið að segja þér sög ur af fortíð minni? spurði hann, í tilraunaskyni. Og þegar hún leit upp, eins og henni yrði hverft við, kom glampi í augu hans, og er hann hélt áfram: — Góða Stevie mín .. fortíð mína á ég sjálfur. Og allt, sem henni tilheyrir, skeði áður en ég hitti þig. Ekki er ég neitt að grennsl- ast eftir fortíð þinni, eða hvað? — Ég á enga.. þaut hún upp, en þegar hún horfði í glettin augu hans, leit hún niður reiði- lega, og fann, að brynjan hennar stóðst ekki töffra hans. Hann horfði á fagra andlitið, sem laut niður, og svörtu löngu augna brýnnar sem hún hafði látið síga — Nei, þú átt enga fortíð, sagði hann blíðlega. — Það þarftu ekki að segja mér. Þú ert gagnsæ eins og gler. Hversvegna hefurðu aldrei komið niður í fjöruna? Hvað gengur að, Stevie? — Þú.. þú fórst út með Karó- línu í London, hreytti hún út úr sér, eins og reiður krakki, en skammaði um leið sjálfa sig fyrir svona vitleysu. Vitanlega varð- aði hana ekkert um, hvað hann kynni að hafa gert, áður en þau hittust. Henni hefði líka verið alveg sama um það allt að undan teknu þessu, sem Karólína hafði lauslega gefið í skyn en svo ekki minnzt á frekar, en einmitt það hafði stsekkað í huga hennar, og fyllt hann efasemdum. — Nú, var það það? sagði Bill og skildi nú loks, hvað hún var að fara. — Jú, það held ég mað- ur hafi farið út með henni. Og hvernig leit það út í hennar út- gáfu? Stephanie leit upp og augu hennar voru óvenju blá, í sól- Meanwhile BUT, OEORG6, THIS GUV TRAIL HAS A POINT f SO HAVE I...LOOK AT THE GOODV-GOO SALES CHART...AFTER TRAIL'S ‘ATTACK" IT WILLGOEVEN HIGHER, YOU’LL SEE f í aðalstöðvum náttúruverndar iélagsins: — Já, Markús, við höfum smá sjóð, sem einmitt er ætlaður til að nota í svona máli . . . Hann er ekki stór! — Það er allt í lagi ef við notum hann rétt . . . Má ég vinna hérna hjá þér í nokkra daga? — Vissulega! Á meðan. ■— En Georg, þessi Markús heí ur nú sitthvað fyrir sér! — Það hef ég líka . . . Littu á söluskýrslu Goody-goo . . . Eft ir árás Markúsar lítur hún enn betur út ,sjáðu bara til! skininu. — Hún sagðist hafa lent í vandræðum með þig. — Hverskonar vandræðum? — Það nefndi hún ekkert nán» ar. Það þyrfti hún annars að gera, ef hún vill gera almennilega sögu úr engu. — Engu? Bill hleypti brúnum, er hann minntist ákafans í augun. Karó- línu og á vörum hennar. Við borð uðum saman og dönsuðum. Hún er náttúrlega mjög fögur kona, en hitt er bezt að segja eins og það er að hún alls ekki ung lengur — og svo er hún auk þess trúlofuð manni, sem ég dáist að og virði. Hann leit á hana glettn- islega. — Var það svo nokkuð fleira? — Til hvers getur hún þá ver- ið að segja mér þetta? Viðbjóður hans og reiði færð- ist í aukana. Jú, hann hafði góða hugmynd um, til hvers hún var að segja það. En hann svaraði I léttum tón: — Hún er nú í sér- flokki. Heimsfræg fegurðardís.« og vill láta karlmenn dást að sér. Stephanie þagði. Hún hafði ekki þurft nema viku til að gera sér ljósa hina takmarkalausu hé- gómagirnd frænku sinnar. — Þú hélzt, að þetta um kvöld ið hefði bara verið eitthvert flangs hjá mér, sagði hann. — Það er gott, að þú vitir það strax, að slíkt er algjör misskiln ingur. Þú vissir það þá þegar, var ekki svo? Jú, hún hafði vitað það. og alla vikuna hafði hún átt í stríðii við sjálfa sig að telja sér trú um, að honum hefði verið alvara. Hún hafði hugsað sér, að bezt væri að gleyma öllu saman og gefa ekki neitt færi á sér. — Ó, Stevie, sagði hann í bæn- arrómi. — Efastu um allt, sem þú vilt, en bara ekki um tilfinn- ingar mínar til þín. Hann sá, að hún linaðist upp og öll þvermóðskuleg mótstaða hvarf. Hún brosti og rétti honum höndina. Hann greip hana föstu taki. — Þetta var betra. — Ég sagði þér, að ég væri hrædd sagði hún hálfkjökrandi. — Ég er svoddan gunga, Bill. Ég gríp um andlitið áður en ég fæ höggið. Fyrirgefðu mér. — Ég hefði verið hræddur um þig ef ég hefði ekki heyrt hjá Bertram og Francine, að þú vær ir lifandi og önnum kafin. Ég veit, að ég er ekki í simasam- bandi í tjaldinu, en þú hefðir getað sent mér boð með öðru hvoru þeirra. — Já, það hefði ég getað, svar aði hún hreinskilnislega. — Það var ónærgætnislegt af mér að gera það ekki. Mér fannst, þegar Karólína talaði við mig, að þú hefðir réttinn þín megin, en vissi ekki hvernig ég gæti svarað henni. Ég hef líklega viljað særa þig. Fyrirgefðu mér. — Ég er feginn að þér hefur þó ekki verið alveg sama. Nú hækkaði hann röddina: — Og skilaðu til frænku þinnar, að hún verði að finna upp á einhverju sniðugra en þessu, ef hún vill ryðja mér úr vegi. — Ég veit nú ekki, hvort það hefur verið tilgangur hennar, syaraði Stephanie vesældarlega. — Nú ekki það? Hvaða annart tilgang gat hún hafa haft með öðru eins og þessu? — Ja, ég býst við.. byrjaði ajlltvarpiö Laugardagur 27. maí. 8:00 Morgunútvarp. (Bæn. — 8:0S Morgunleikfimi. — 8:15 Tónleikar — 8:30 Fréttir. — 8:35 Tónleikar, «— 10:10 Veðurfregnir). 12:00 Hádegisútvarp. (Tónl. — 12:21 Fréttir, tilk. og tónl.). 12:55 Öskalög sjúklinga (Bryndís Sig urjónsdóttir). 14:30 Laugardagslögin. — (15:00 Frett ir). 16:00 Fréttir og tilkynningar. Framhald laugardagslaganna. 16:30 Veðurfregnir. 18:30 Tómstundaþáttur barna og ungl. (Jón Pálsson). 18:55 Tilkynningar. — 10 20 Veðurfr. 19:30 Fréttir. 20:00 Leikrit: „Einkalíf mömmu gant anleikur eftir Victor Ruiz Iriarto. Þýðandi: Sonja Diego. — Leik* stjóri: Baldvin Halldórsson. 22:00 Fréttir og veðurfregntr. 22:10 Danslög. — 24:00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.