Morgunblaðið - 27.05.1961, Side 23

Morgunblaðið - 27.05.1961, Side 23
Laugardagur 27. maí 196i MORCVNBLAÐIÐ 23 Meðfylgjandi mynd er af bandariskum skátum, sem voru við veiðar á vatninu er aburðar- dreifingin fór fram, en urðu að skunda í Iand á meðan. Skátar þessir eru synir starfsmanna og yfirmanna á flugvellinum. Varnarliðsmenn dreifa áburði i veiðivötn NÝLEGA beittu varnarliðs- menn sér fyrir því að bera áburð í veiðivötn og var það að nokkru gert með flugvél og er það í fyrsta sinn sem slík áburðardreifing fer fram hér á landi. Forsaga þessa máls er að sú Prinsessan vœnfir sín LONDON, 25. maí. (Reuter). — Gefin var 'út opinber til- kynning síðdegis í dag frá Kensington-höll, heimili Mar- grétar prinsessu og manns hennar, Armstrong-Jones ljós myndara, um það, að prins- essan eigi von á barni „með haustinu“. Mun hún því ekki sinna neinum opinberum „skyldustörfum" næstu mán- uðina. Ungu hjónin hafa verið gift rétt um það bil ár. Er nú mik- il hamingja ríkjandi á heim- ili þeirra — og um gervallar Rretlandseyjar, að því er fregnir herma. deild varnarliðsins sem sér um menntun, skemmtapir og íþróttir hermanna og önnur tómstunda- störf, „Personal Services“, hef- ir tekið á leigu veiðivötnin Geita- bergs- og Þórisstaðavatn í Svína- dal. Til gagns og gamans og að nokkru til endurgjalds hófust leigutakarnir handa um að bera áburð í vatnið, en slíkt er mjög títt í erlendum veiðivötnum. Að þessu tilefni leituðu her- mennirnir til veiðimálastjóra og leituðu ráða hans. Áburðurinn var af Daníel Ólafsson og Co, útvegaður frá ísafirði, en hann er rækjuskeljar og úrgangur, sem til fellur við hreinsun rækj- únnar. Áburðurinn var síðan fluttur hingað til Reykjavíkur og síðan til Keflavíkur og settur í flugvél, sem flaug með hann yfir vötnin og dreifði honum í þau. Áburðarmagnið var 3 tonn og varð því að fara með það í tveimur ferðum, en áður en seinni farmurin varð fluttur gerði ofært veður. Með bíl og bátum Varð því að flytja afgang- inn með bílum eftir nokkrar mis heppnaðar tilraunir til flugs, og dreifa honum úr bátum. Verk þetta var framkvæmt fyrir tæp- um hálfum mánuði og tókst í alla — /þ róttir Framhald af bls 22. ur, að hann gæti með góðum ár angri leikið hvaða stöðu sem er á vellinum. Valsliðið átti nokkra góða Ikáfla og það sem herzlumuninn gerði var að liðsmenn eru ekki feimnir að berjast — ekki feimn ir að reyna að skora. Hins veg- ar er styrkur liðsins sem heildar einhvern veginn ekki öruggur. Það getur losnað óeðlilega um alla samstöðu — allt í einu splundrast í 11 einstaklinga sem berjast hver fyrir sig. Bezti maður liðsins og sá sem sigurinn skapaði var Björgvin í markinu. Hann varði á köflum mjög vel — einkum voru stað- setningar hans góðar. Það er kostur sem aðeins reynsla skap- ar. Björgvin hefur hana, þó hann nu og hafi ekki skyldi. eins góða A.St. æfingu Eldur í báti Akureyri, 26. maí. KLUKKAN 6,20 var slökkviliðið kallað niður á Torfunefsbryggju, en þar var eldur uppi í vélbátn- um Verði frá Grenivík. Hafði kviknað í út frá rafsuðutækj- um, sem verið var að vinna með í vélarúmi. Fljótlega tókst að ráða niðurlögum eldsins en skemmdir urðu þar niðri í bátn- um. — St. E. Sig. staði ágætlega þótt nokkrar taf- ir yrðu á. Flugstjóri á vélinni, sem með áburðinn fór var capt. James K. Carvey og aðstoðarflugstjóri capt, Harold C. Gloeckler jr. Með þeim voru þrír hermenn til þess að kasta út áburðinum. Áburður þessi er til þess að auka hinn lífræna gróður vatn- anna, sem síðan er fæða fisksins, og er áburðurinn sjálfur því ekki beint ætlaður sem fiskifæða. Negri forseti innan 30 — 40 ára Washington, 26. maí. ROBERT Kennedy, dóms- málaráðherra Bandaríkj- anna, ræddi í útvarpi í dag um kynþáttaóeirðirnar, sem verið hafa í Suður- ríkjum Bandaríkjanna síð- ustu daga. Hann sagði, að flestir Bandaríkjamenn hörmuðu innilega þá at- burði, en þeim væri líka ljóst að kynþáttahleypi- dómar væru á undanhaldi. Robert Kennedy minnt- ist ennfremur á, að afi hans sjálfs hefði komið til Boston fyrir fimmtíu ár- um. Hann hefði komið frá Irlandi á þeim tímum, er menn í Bandaríkjunum voru andvígir Irum og kærðu sig ekkert um þá til lands síns. Nú væri John F. Kennedy, bróðir hans, sem væri bæði írsk- ur og kaþólskur, orðinn forseti Bandaríkjanna og mætti af því draga þá ályktun, að innan 30—40 ára yrði ekkert því til fyrirstöðu, að negri gerð- ist forseti Bandaríkjanna. Verzluiiarmannafélag Reykjavíkur efnir til félagsfundar í Iðnó í dag kl. 2 e.h. Fundarefni: Samningarnir Stjórn V.R. Skáld í sorgum Dijon, Frakklandi. . ÞAÐ gerðist þriðjudaginn 23. maí við Rocheport, á aðal- vegi nr. 6 milli Parísar og Lyon, að tveir synir franska rithöfundarins André Mal- raux, sem nú er menntamála- ráðherra í stjórn Debres, fór- ust í bifreiðaslysi. Það var eldri bróðirinn, Pierre Malraux (tvítugur), sem sat undir stýri, er slysið varð. Bifreiðin var á mikilli ferð, og virtist ökumaðurinn skyndilega missa stjórn á henni — hún slöngvaðist til á veginum og rakst af miklu afli á stórt tré við vegbrún- ina. Bæði ökumaðurinn og I hinn 17 ára gamli bróðir hans, Vincent, létust skömmu eftir áreksturinn. André Malraux átti aðeins þessa tvo syni, og fékk fregn- in um hið sviplega fráfall þeirra að vonum mjög á hann. Kom bændum í opna skjöldu Breiðdal, 26. maí. ÞEGAR norðan óveðrið gekk yfir á dögunum með snjókomu og allt að fimm stiga frosti á fimmtu- dagsnótt, hafði verið spáð bjart- viðri hér eystra. Þrátt fyrir að veðrið kæmi bændum í opna skjöldu, mun ekki hafa orðið verulegur lambdauði af völdum hins harða veðurs. Enn er kalt hér og munu tvílembdar ær vafa laust geldast til stórtjóns. Margir árekstrar í mikilli umferð MJÖG mikil umferð var á götun- um í gær. Lögreglan hafði líka í allmörg horn að líta, því víða urðu bílaárekstrar. Milli klukk- an 1 Og 5,30 urðu sex árekstrar á götum bæjarins. Inn við gatna- mót Snorrabrautar og Laugavegs vaið árekstur og rifnaði benzín geymir annars bílsins. Fióði benzín yfir götuna. Var slökkvi- liðið kallað á vettvang og skol- aði það benzíninu niður í holræsi götunnar, því eldhætta gat staí- að af því. Nemendatónleikar á Akureyri AKUREYRI, 23/5 ’61. — Hinir árlegu nemendatónleikar Tón- listarskóla Akureyrar fóru fram í Lóni nú um hvítasunnuna. Á laugardag komu fram yngstu nemendurnir, en á annan hvíta- sunnudag léku 6f af þeim nem- endum, sem lengra eru á veg komnir. Hafa þeir komið fram áður, og sumir nokkrum sinnum. — Fjölmenni var- á tónleikunum, og var gerður góður rómur að túlkun nemendanna á verkum þeim sem til meðferðar voru, en það voru einkum píanóverk. Léku nemendur, auk einleiks fjórhent og átthent á píanó, þá var einnig einleikur á fiðlu. Er gleðilegt til þess að vita að ungir Akureyringar leggja stund á fiðluleik, en þeir eru þó of fáir, því sannarlega vant- ar okkur fleiri strokhljóðfæra- leikara. Þeir sem komu fram á þess- um tónleikum voru í eldri fl.: Aðalbjörg Jónsdóttir,, Dýrleif Bjamadóttir, Herdís H. Odds- dóttir, Jóhannes Vigfússon og Þorvaldur V. Magnússon, en þau léku öll á píanó, og Magnús Kristinsson, sem lék á fiðlu við undirleik Herdísar H. Odds- óttur. St. E. Sig. Félagslíf Reykjavíkurmót 1. flokks á Melavelli í dag kl. 2. KR — Fram. Kl. 3 15. Valur — Þróttur. Mótanefndin Samkomur Kveðjusamkoma. Kveðjusamkoma fyrir hjónin Kristínu Guðlaugsdóttur og Gísla Arnkelsson kristniboða, sem eru á förum til Konso, verður í húsi K. F. U. M. og K. annað kvöld kl. 8.30. Jafnframt verður Halla Bachman boðin velkomin heim í hvíldarleyfi frá kristniboðs- starfi sínu á Fílabeinsströndinni. Gjöfum til kristniboðsins verður veitt móttaka í lok samkomunn- ar. Kristniboðssambandið. Til sölu er 10—11 tonna nýr báfur Hagstætt verð. Ýmiskonar skipti komma til greina. Uppl. í síma 14990. Innilegar þakkir til allra þeirra sem glöddu mig með gjöfum, blómum og skeytum á 80 ára afmæli mínu. Haligerður Nikulásdóttir. MAGNÚS MAGNÚSSON Álfhólum sem andaðist 18. þ.m. verður jarðsunginn þriðjudaginn 30. maí að Voðmúlastöðum kl. 2 síðdegis. Vandamenn Maðurinn minn BBAGI BRYNJÓLFSSON bóksali, lézt að heimili sínu Kjartansgötu 2 25. þ.m. Dóra Thoroddsen. RAGNHEIÐUB JAKOBSDÓTTIR Garðastræti 13, andaðist í Landakotsspítala föstudaginn 26. maí. Jarðar- förin auglýst síðar. Margrét Helgadóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.