Morgunblaðið - 28.05.1961, Side 20

Morgunblaðið - 28.05.1961, Side 20
20 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 28. maí 1961 Mary Howard: Lygahúsiö “►10 (Skdldsaga) þagnaði hún, beit á vörina, og sagði. — Já, en hún þekkir þig nú. — Jú jú, ekki vantar það. Við höfum hitzt nákvæmlega þrisv- ar. Einu sinni í skrifstofunni hjá Jerome, einu sinni í flugvélinni og einu sinn í London. í flugvél- inni svaf ég lengst af. Harkan í málrómi hans varð þess valdandi, að hún fór að taka svarj frænku sinnar. — I>ú skil- ur, Bill, að henni finnst hún bera ábyrgð á mér. Ef út í það er far- ið, þá veit hún, að ég var ekki annað en skólastelpa þangað til fyrir einum mánuði. Hún getur vel hafa haft rangt fyrir sér, en vel getur nú hugsast, að hún hafi bara viljað láta mig vera vara um mig. Og svo var það skrifstofustúlkan hjá Jerome. liðsinnt mér mikið og vel sagði hann önugur. — Og ég þekkti þig heldur ekki þá. En ef ég hefði vitað, að ég ætti að hitta þig, hefði ég auðvitað gefið Karólínu alla ævisögu mína, allt frá vöggu, ennfremur eignaframtal og heil- brigðisvottorð.... — Bill! Hann leit á hana, er hann varð var við verulega áhyggju í rödd hennar, og þrýsti hönd hennar blíðlega. — Æ, vertu nú ekki svona viðkvæm, Stevie. Taktu þetta þér ekki svona nærri.. Ég veit alveg, hvernig þér líður.. við vorum svo fljót á okkur. Vit- anlega hefurðu á réttu að standa en þú ættir samt. elskan mín, að gefa okkur nægilegan tíma til að kynnast betur. Þá lagði hún kinnina á arm hans, svo blíðlega, að straumur viðkvæmni fór um hann allan. — Fyrirgefðu sagði hún aftur. Hönd hans strauk henni um svarta hárið. Hann sagði, alvarlegur í bragði: — Stevie, mig langar ein hverntíma að segja þér margt um sjálfan mig.. en við skulum bara fara okkur hægt. Eins og þú sagð ir, er ég bundinn hér í bili.. ég get ekki útskýrt það núna.... Hann þagnaði, en Stephanie fann, að hann átti margt eftir ó- sagt. — Ég sagði_ að ég vildi ekki reka ofmmikið á eftir þér, og það ætla ég heldur ekki að gera. En hvernig getum við kynnst betur en með því, að hitt- ast sem oftast? f>au brostu hvort til annars og Stephanie fann á ný til ör- yggis og trausts. — Ég er svoddan kjáni, sagði hún afsakandi og fitjaði upp á nefið. — Þú ert indæl, svaraði hann og kyssti hana. Hún snerti varir hans með fing urgómunum. — Nú verð ég að fara. Ég þarf að safna saman fjöldamörgum smáhlutum, og ég á að hitta Francine hér aftur inn an klukkustundar. — Hvenær kemurðu aftur hérna niður í fjöruna? — Ekki í dag. Það er stóreflis- kvöldverðarboð hjá okkur, og ég á eftir að ná í einn mann þang- að. Hvernig þætti þér að hlaupa í skarðið? —Ekki aldeilis. Ég er ekki hingað kominn til að lifa í ssellífi. Öðru nær. Hún andvarpaði. — Þá er víst ekki annað að gera en leita til Faurés, rétt einu sinni. — Er það þessi heimsmaður, sem hefur vinnustofuna þarna uppfrá? — Jú, jú. Mér skilst helst_ að hann sé eitt af gömlu skotunum hennar Karólínu. —Kanntu vel við hann? Stephanie hikaði með svarið. — Hann hefur verið mjög al- mennilegur við mig og hjálpsam ur.... æ, ég veit ekki. Ekki sérlega, kannske. — Gott. Hann er ekki þannig maður, að ég vildi láta þig verða hrifna af honum. Hann er óþarf- lega mikið upp á kvenhöndina, eða það segir mér að minnsta kosti aðstoðarmaðurinn hans, Ricardo. Þessi kofi hans uppi í fjalli hefur ekki sem allra bezt orð á sér. — Þú ættir ekki að vera að hlaupa með slúðursögur, og Ric- ardo er argasta kjaftakind. Step hanie leit á úrið sitt. — Bill, elsk an ég verð að fara. Það er ekki frídagur hjá mér skilurðu? — Þú kallaðir mig elskuna þína, sagði hann. —Já, það gerði ég. Hann hreyfði sig ekki, þar sem hann hallaði sér upp að gluggan- um ,en horfði á hana, þangað til roðinn kom upp í kinnar hennar. —Á morgun, sagði hann ein- beittlega. — Já, og ég lofa að koma boð- um til þín ef eitthvað óvænt kemur til að hindra, að ég geti komið. Þetta varð hann að gera sér að góðu, og hann dró sig í hlé brosandi, en Stephanie ók áfram inn á yfirfullt torgið. Síðdegis daginn eftir, hafði Bill fataskipti og flýtti sér niður í litla klettagirta vikið, sem ekki var hægt að komast að nema gegn um olífulundana. Þennan stað höfðu þau Stephanie gert að stefnumótastað sínum. Hann gekk út eftir klettanefinu, sem lá út í tæran sjóinn og lagðist þar niður til að bíða hennar. Sólin skein brennheit á breiðar axlir hans, og hann féll í hálfgert mók og lét sig dreyma um Step- hanie. Hann var svo viss um, að hún myndi koma að jafnskjótt sem hann heyrði glamra í steini, þaut hann upp og á fætur. En þá sá hann Karólínu tilsýndar og gat ekki að sér gert að bölva í hljóði yfir þessum vonbrigðum. Þegar Karólína var komin næst um niður af klettinum, kallaði hún til hans: — Bill, komdu og hjálpaðu mér. Hann hikaði snöggvast, en síðan stakk hann sér í sjóinn og synti yfir víkina. Hún horfði á hann ganga upp fjöruna, áleiðis til sín, og gljáði á berar herðarnar. Hann tók und — Loksins höfum við fengið sjónvarpstæki, sem er stærra en tæki Jensens, nágranna okkar. Til leígu Neðarlega við Laugaveg lagerpláss og skrifstofuher- bergi ca. 150 ferm. Tilboð leggist inn til blaðsins fyrir 29/5 merkt: „L /48 — 104“. L a r k ú á MEANWHILE, ON AN OCEAN LINER APPROACHINS NEW YORK... THESE RELEASES GO TO ALL OUTDOOR COLUMNISTS ON OUR PAILY NEWSPAPERS... ANO HERE ARE MATS V FOR THE PICTURES/ , r THERE'S NOT MUCH TO TELL, CAPTAIN... I'M A WIPOW WITH TWO TEENAGE BOYS TO SUPPORT, ANP I'M A CANPY MANUFACTURER WELL, MRS. WOOPALL, * TELL ME ABOUT YOURSELF/ USINS THE FACILITIES OF THE AMERICAN CONSERVATION LEAGUE, MARK WORKS ALMOST AROUND THE CLOCK IN HIS CAMPAISN TO STOP THE DESECRATION OF OUR NATIONAL BEAUTY SPOTS Markús vinnur svo til hvíld- arlaust í aðalstöðvum náttúru- vemdunarfélagsins að því að koma í veg fyrir frekari eyði- leggingu náttúrufegurðarinnar. — Það á að senda þessar greinar til allra útilífs-frétta- ritara dagblaðanna......Og hér eru myndamót með gréinun- um! Á meðan, um borð í farþega- skipi á leið til New York....... — Jæja, frú Woodall, segið mér eitthvað um sjálfa yður! — Það er ekki mikið að segja, skipstjóri...... Ég er ekkja, sem hefur fyrir tveim unglingsdrengjum að sjá, og ég á sælgætisverksmiðju. ir arm hennar og hjálpaði henni yfir síðustu klettana. Hún leit á hann. — Þú ert í illu skapi af því að Stevie kom ekki? — Ég er bara vonsvikinn, svar aði hann kuldalega og einbeitt- lega. — Það sagði ég henni líka, að þú yrðir sagði hún og kinkaði kolli. — Svo að hún kemur þá ekki? — Nei, Claude Fauré vildi endi lega fá hana með sér til St Remo til að líta á eitthvert ítalskt postu lín. Hún fór svo með honum og bað mig að segja þér það. — Ég skil. T’ ailltvarpiö’ SunnudaguT 28. maí. 'V 8:30 Fjörleg músík að morgnf dags, 9:00 Fréttir. — 9:10 Vikan framundaa 9:25 Morguntónleikar: a) Konsert í d-moll fyrir fiðlu, óbó og hljómsveit eftir Bach (Ruth Posselt, Ralp Gom« berg og Sinfóníuhljómsveit Bostonar leika; Charles Munch stjórnar). b) Nan Merriman syngur frönsk lög; Gerald Moore leikur undir á píanó. c) Sellókonsert í h-moll op. 104 eftir Dvorák (André Navarra og Nýja sinfóníuhljómsveitin í Lundúnum leika; Rudolf Schwarz stjórnar). 11:00 Messa í barnaskóla Kópavogs (Prestur: Séra Gunnar Arnason, Organleikari; Guðmundur Matt« híasson). 12:15 Hádegisútvarp. 14:00 Miðdegistónleikar* a) Samleikur á víólu og píanój Karen Tuttle og Nina Lugo- voy leika Adagio og fúgu eft ir Mondanville og DivertU menti efti Haydn. b) Atriði úr óperunnl „Ötelló** eftir Verdi (Eleanor Steber, Ramon Vinay og Frank Guarrera syngja). c) Sinfónía nr. 2 í C-dúr op. 61 eftir Schumann (Stadium Concerts sinfóníuhljómsveit-* in leikur; Leonard Bernsteia stjórnar). 15:30 Sunnudagslögin. — (16:30 Veður fregnir). 17:30 Barnatíml (Helga og Hulda Va| týsdætur): a) Framhaldsleikritið „Leynl* garðurinn“ eftir Frances Burnett; V. kafli. Leikstjórij Hildur Kalman. b) Halla Bachmann segir fr4 afrísku börnunum. c) Höfundur „KardimommubæJ arins“, Thorbjörn Egner, staddur í Þjóðleikhúsinu. 18:30 Miðaftantónleikar: Valsar eftir Strauss, Waldteufel og Ivanovici. 18:55 Tilkynnningar. — 19:30 Veðurfr, 19:30 Fréttir og íþróttaspjall. 20:00 Erindi: Samband norskra og ís« lenzkra bókmennta (Vilhjálmur P. Gíslason útvarpsstjóri). 20:25 Gestur í útvarpssal: Pólskl píanósnillingurinn Tadeusss Zmudzinski leikur verk eftir Fréderic Chopin, Karol Szymaa owski og Witold Lutoslawski. i 21:00 Gettu betur!, spurninga- og skemmtiþáttur undir stjóm Svavars Gests. u, 22:00 Fréttir og veðurfregnir. £ 22:05 Danslög. — 23:30 Dagsrárlok. ™ J Mánudagur 29. maí. 8:00 Morgunútvarp (Bæn: Séra Jón Þorvarðsson. — 8:05 Tónleikar, 8:30 Fréttir. — 8:35 Tónleikar, 10:10 Veðurfregnir). 12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. 12:25 Fréttir og tilkynningar). , 12:55 „Við vinnuna": Tónleikar. 15:00 Miðdegisútvarp (Fréttir. — 15 05 Tónleikar. — 16:00 Fréttir og til kynningar. — 16:05 Tónleikar, 16:30 Veðurfregnir). 18:30 Tónleik:ar Lög úr kvikmyndum, 18:55 Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr, 19:30 Fréttir. 20:00 Um daginn og veginn (Páll Kolka læknir). 20:20 Einsöngur: Gunnar Kristinsson syngur; Fritz Weisshappel leik ur undir á píanó: a) „Rökkurljóð“ eftir Árna Björnsson. b) „Kvöldsöngur'* eftir Markúa Kristjánsson. c) Fjögur lög eftir Hugo Wolfs „Gesan Weylas", „Verborgen heit“, tíber Nacht" og „Heim wah". 20:40 Úr heimi myndlistarinnar (Hjöí leifur Sigurðsson listmálari). 21:00 Gítartónleikar: Andrés Ségovia leikur: a) Sonathina Meridonal eftip Ponce. b) Konsert fyrir gítar og hljóm* sveit eftir Castelnuovo-Ted^ esco (með Ségovia leikup Nýja Lundúnahljómsveitin; Alec Sherman stjórnar). 21:30 Útvarpssagan: „Vítahringur" eft ir Sigurd Hoel; VI. (Arnheiður Sigurðardóttir). 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Um fiskinn (Stefán Jónsson fréttamaður). 22:30 Kemmertónleikar: Tríó í d-moll op. 49 eftir Mend- elssohn (Artur Rubinstein leik ur á píanó, Jascha Heifetz á fiðlu og Gregor Piatigorsky á selló). 23:00 Dagskrárlolc.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.