Morgunblaðið - 03.06.1961, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 03.06.1961, Blaðsíða 5
Laugardagur 3. júní 1961 MORGJJNBLAÐIÐ 5 MENN 06 = MALEFN!= í GÆR átti blaðið tal af hjón uirnim Björgu Magnúsdóttur og Kristjáni V. Guðmundssyni en í dag eiga þau 50 ára hjú- skaparafmæli. Við börðum að dyrum á Seljavegi 19, Miðseli. Frú Björg Magnúsdóttir kom til dyra og bauð mér að ganga inn. Er maðurinn yðar ekki heima? — Ekki í bili — hann fór niður í Reykjavík. — Þið hjónin eigið 50 ára hjúskaparafmæli á morgun? — Það er rétt. — Hafa ekki 50 ár verið lengi að líða? — Ekki finnst okkur hjón um þáð. Þetta er eins og ein dagstund, þegar litið er yfir liðniu árin. — Þá hefur heilsan verið góð? — Já og nei. Ég væri farin héðan fyrir löngu, ef okkar góðu læknar væru ekki komn ir á söguspjöldin. Ég er fædd í þessu húsi fyrir 83 árum, ég, maðurinn og húsið erum merkt elli og æsku eins og þér hijótið að sjá. — Það er nú vart komandi hingað vestur móts við það sem var í æsku minni. Selin öll í miðju túni ilmandi af góðgresi, kartöflmgarðar, fiska reitir og saltfiskslykt sló stundum fyrir vitin, þaragróð urinn, lifrarkaggarnir á kamb inum og bátarnir í fjörunni. Svo útsýnið til hafs og lands. Nú er þetta breytt. „Þróunin“ kom og lagði þetta allt í rúst. Tómas hafði fengið hugboð um hvað væri í vændum vest ur í bæ og kom á kyrrlátri kvöldstiund hingað vestur að hafinu, settist á stein í tún- fætinum á Miðseli og kvað. Og hann kvað: f Vesturbænum — mitt eftirlætiskvæði. Ég hygg að skáldið Tómas Guðmunds- son hafi aldrei fengið eitt glas af Gvendarbrunnavatni fyrir sitt Ijóð. Þannig mælti hús- móðirin — í einni striklotu. Nú kemur húsbóndinn, Kristján V. Guðmundsson neð an úr Reykjavík. — Þér kominn hingað að hitta okkur hjónin. Ég hefi fátt að segja. Ég er sekur fyrir vorspá mína á sumardaginn fyrsta. Bændur íslands hljóta að líta mig illu auga. — Regnskýið yfir Kömbum og austan vind urinn bar mér töðuilm að vit um frá Auðhumlu í Árnessýslu svo að ég gleymdi Norðra. Hefði ég þó átt að muna hvern ig hann lék okkur á Vestfjörð um fyrir og eftir árið 1900. En þá var 26 vikna innistöðu- gjöf fyrir allan búpening venjulega. Við hjónin höfum lifað í 50 ár með batnandi þjóð, daglegt líf getur ekki orðið annað en „andóf og barningur“ eins og Guðmundur Iandlæknir orð aði það. Ég neita því að mann lífið sé „eldhaf“ enda þótt frægur rithöfundur orði það svo. Frændfólk og vinir konunn ar minnar hafa boðið okkur hjónum til veizlufagnaðar í einu samkomuhúsi bæjarins í dag. — Finnst yður það undar legt þótt ég látist vera ungur yfir því að hafa fengið að lifa svo langan dag? — Eg skíri skipið — nei, 70% alkóhól! — Eg verð ekki nema eitt augna- blik að ryksuga — og svo er það bara þessi hræðilega nektardans- í dag verða gefin saman í hjónaband, í Kapellu háskólans, af prófessor Birni Magnússyni, ungfrú Ragnhildur Guðmunds- dóttir, ritari í utanríkisráðuneyt- inu og Guðlaugur Sæmundsson, hagfræðingur. Heimili ungu hjón anna verður fyrst um sinn að Seljavegi 15. í dag verða gefin saman í hjónaband af séra Óskari J. Þor- lákssyni, ungfrú Sigríður Sigurð- ardóttir, Hávallagötu 7 og Krist- ján Friðrik Jónsson, bankamaður, Réttarholtsvegi 61. Heimili brúð hjónanna verður á Hávallagötu 7. I dag verða gefin saman í hjónaband í Dómkirkjunni kl. 6, ungfrú Erla Rut Sandholt, hár- greiðslumær og Tómas Sigurðs- son, verzlunarmaður. Heimili þeirra verður að Stóragerði 38. Sl. laugardag voru gefin sam- an í hjónaband af séra Jóni Þör- varðssyni, ungfrú Eygló K. Celin og Reynir Ásgeirsson, matsveinn. Heimili þeirra er að Hrauni í Tálknafirði. mær sem er að sýna sig í sjón- varpinu. ★ Forstjórinn var í sjúkrahúsi og sölustjórinn kom í heimsókn. — Þér skulið ekki hafa neinar áhyggjur af verzluninni, herra forstjóri, sagði sölustjórinn, það hefur ekki nokkur maður látið sjá sig meðan þér hafið verið í burtu. Á hvítasunnudag voru gefin saman í hjónaband í Neskirkju af séra Jóni Thorarensen, ungfrú Margrét Sigurðardóttir, Nönnu- stíg 13, Hafnarfirði og Sigmund- ur Eiríksson, sama stað. Sl. laugardag voru gefin sam an í hjónaband af sr. Þorsteini B. Gíslasyni, prófasti í Steins- nesi, ungfrú Magdalena Sæmund sen, Blönduósi. og Þormóður Sig urgeirsson, Blönduósi. í dag verða gefin saman í hjóna band af séra Óskari J. Þorláks- syui ungfrú Helga Stefánsdóttir hárgreiðslumær og Hrafnkell Þórðarson bifreiðasmiður. Heim- ili þeirra verður að Njarðargötu 4S._ í dag verða gefin saman í hjóna band af séra Jóni Thorarensen í Neskirkju, ungfrú Helga Emils- dóttir, Fálkagötu 32, Reykjaví'k og Halldór Ingvarsson, Blómst- urvöllum, Grindavík. Heimiii brúðhjónanna verður á Fálka- götu 32. Guð er á himnum, gras á jörðu. Svo linna tregar sem tíðir, allir dag ar eiga kvöld um síðir. Sjaldan geispar einn, þegar tveir eru, nema feigur sé eða fátt á milli. Sjaldan er á botninum betra, nema hunang í heitum graut. Sjaldan er geispi af góðu hjarta, né hixti af huga góðum. Læknar fjarveiandi Arinbjörn Kolbeinsson, til 27. júní. (Staðg.: Bjarni Konráðsson). Bogason LaUgavegsapóteki kl. 4—4,30. sími 19690). Ezra Pétursson til 13. júní (Halldór Arinbjarnar). Friðrik Einarsson fjarv. til 1. júlí. Gísli Ólafsson um óákv. tíma (Stefán Bogason). Grímur Magnússon um óákv tíma (Björn Þ. Þórðarson). Gunnar Guðmundsson um óákv. tíma (Magnús Þorsteinsson). Haraldur Guðjónsson óákv. tíma Karl Jónasson). Jón Þorsteinsson fjarv. frá 28. maí í 4—6 vikur. — Staðg.: Ölafur Jóns- son, Hverfisgötu 106A. Jónas Sveinssori í tvo mán. frá 9. maí (Gunnar Benjamínsson). Karl Jónsson til 8. jún£ (Jón Hj. Gunnlaugsson). Kristinn Björnsson til 2. júlí (Eggert Steinþórsson). Ófeigur J. Ófeigsson fram í júlí. (Kristján Þorvarðarson). Sigurður S. Magnússon óákv. tíma — (Tryggvi Þorsteinsson). Skúli Thoroddsen til 30. sept. (Heim- ilisl. Guðm. Benediktsson, augnlækn. Pétur Traustason). Víkingur Arnórsson um óákv. tíma. — (Ölafur Jónsson, Hverfisgötu 106). • Gengið • Sölugengl 1 Sterlingspund ..... Kr. 106,42 1 Bandaríkjadollar ... — 38,10 1 Kanadadollar ....... — 38,58 100 Danskar krónur......... — 549,80 100 Sænskar krónur ....... — 738,35 100 Finnsk mörk ........... — 11,88 100 Norskar krónur ........ — 533,00 100 Franskir frankar ..... — 776,44 Áfram þjóta árin sem óðfluga ský. Og tíðin verður tvenn og þrenn, og tíðin verður ný. En það kemur ekki mál við mig, ég man þig fyrir því . . . Jóhann Jónsson: Vísa. IVIýnæmi fyrir Furtsvu ? Fyrir nokkrum dögum átti Helgi Sæmundsson, formaður menntamálaráðs m.m. erindi í Stjórnarráðið. Kom hann þar að, sem nokkrir stjórnarráSs- fulltrúar sátu önnum kafnir við að semja dagskrá fyrir heimsókn menntamálaráð- herra Sovétríkjanna E. A. Furtsevu. Þeir höfðu setið og brotið heilan um það, hvað hægt væri að sýna henni, sem hún hefði ekki séð í Sovét- ríkjunum. Helgi, sem jafnan hefur spaugsyrði á hraðbergi, sagði þá: „Því sýnið þið henni ekki verkfall?“ Dömureiðhjól Til sölu Snittivél. Uppl. í síma 22547. Vantar íbúð helzt 2 herbergi og eldhús. Þrennt í heimili. Uppl. í síma 37111 eftir kl. 6. Aðstoðarstúlka óskast á tannlæknastofu. Umsókn, er greini mennt- un og fyrri störf; sendist Mbl., merkt: -,,1676“. Tjald 17. júní tjald ásamt pulsu suðutækjum til sölu. Sími 37231. Garðeigendur Tek að mér að úða tré og runna, fljót afgr. — sann- gjamt verð. Tekið á móti pöntunum í síma 23627 og 34238. A T H U G I Ð að borið saman '5 útbreiðslu er lan'gtum ódýrara að auglýsa i Morgunblaðinu, en öðium blöðum. — fallegt og lítið notað txl sölu á Bárugötu 6. Stúlka með barn á 4. ári óskar eftir ráðskonustöðu. Uppl. í síma 33250. Til leigu nú þegar 1—2 herb. með aðgangi að eldhúsi og baði fyrir eina eða tvær stúlk- ur. Uppl. í síma 38243. Telpa óskast til barnagæzlu, helzt úr Vesturbænum. Uppl. í síma 11667. Til leigu 80 ferm. ný íbúðarhæð við Miðbæinn fyrir reglusamt barnlaust fólk. Sér hita- veita. Tilboð sendist afgr. Mbl., merkt. „Sér hús- næði — 1547“. Smurt brauð Snittur, brauðtertur. Af- greiðum með litlum fyrir- vara. Smurbrauðstofa Vesturbæjar Hjarðarhaga 47 Sími 16311 Ensk skrifstofus’.úlka sem gerir ráð fyrir að dvelja hér á landi um 2ja ára skeið, óskar eftir sérherbergi með húsgögnum, aðgang að eldhúsi, baði og síma, sem næst Miðbæn- um. Tilboð óskast send £ifgreiðslu blaðsins fyrir næsta laugardag merkt: „Ensk skrifstofustúlka — 1947“. Niðursuðuvélar Til sölu, nýlegar vélar til niðursuðu of fiskiðnaðar. Kjarakaup. Upplýsingar í síma 1 57 73 Reykjavík. Nauðungaruppboð verður haldið í tollskýlinu á hafnarbakkanum, hér í bænum, eftir kröfu Guðjóns Hólm hdl. o. fl. mánu- daginn 5. júní n.k. kl. 1,30 e.h. Seldar verða ýms- ar verzlunarvörur, húsgögn, grammófónplötur, terra sóvélar, skófatnaður o. fl. Greiðsla fari fram við hamshögg. Borgarfógetiim í Reykjavík, 25. maí 1961. Heildverzlun sem selur vefnaðarvöru og ýmiss konar tilbúinn fatnað, óskar að ráða sölumann eða konu. Þau, sem hefðu áhuga fyrir slíku starfi gjöri svo vel og sendi nafn og heimilisfang ásamt afriti af meðmælum ef til eru, til Mbl. merkt: „Gott minni — 1675“. VILKAUPA Einbýlishús eða lóð IREYKJAVÍK Tilboð merkt: „Strax — 1368“ sendist afgr. Mbl. fyrir þriðjudagskvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.