Morgunblaðið - 03.06.1961, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.06.1961, Blaðsíða 14
14 MORCVNbLAÐlÐ Laugardagur 3. júní 1961 Málverkasýnin<| Finns Jónssonar í Listamannaskálanum er opin frá kl. 2—10 daglega. Síðasti dagur sýningarinnar er sunnudagur 4. júní. Fjórða hœðin á Skólavörðustíg 16 200 ferm að stærð er til leigu. ÁSBJÖRN ÓLAFSSON Sími 24440. Dagskrá 24. Sjómannadagsins sunnudaginn 4. júní 1961. Kl. 08.00 — Fánar dregnir að hún á skipum í höfninni. 09.00 — Sala á merkjum Sjómannadagsins og Sjó- mannadagsblaðinu hefst. 10.00 — Hátíðamessa í Laugarásbíói. Prestur séra Árelius Níelsson. Söngkór Langholtssóknar. Söngstjóri Helgi Þórláksson. 13.30 — Lúðrasveit Reykjavíkur leikur sjómanna- og ættjarðarlög á Austurvelli. 13.45 — Mynduð fánaborg með sjómannáfélagafánum og ísl. fánum á Austurvelli. 14.00 — Úthátíðahöld Sjómannadagsins: (Ræður og ávörp fara fram af svölum Al- þingshússins). 1) — Minnigaráthöfn. a) Biskup fslands, herra Sigurbjörn Einarsson minnist drukknaðra sjómanna. b) Guðmundur Jónsson, óperusöngvari syngur. 2) — Ávörp. a) Emil Jónsson, sjávarútvegsmálaráðherra, full- trúi ríkjsstj. b) Sverri Júlíusson, form. L.Í.Ú., fulltrúi út- gerðarmanna. c) Karl Magnússon, skipstj., fulltrúi sjómanna. 3) — Afhending verðlauna: Formaður Fulltrúaráðs Sjómannadagsins, Einar Thoroddsen afhendir afreksbjörgunar- verðlaun Sjómannadagsins, Fjalarbikarinn Og heiðursmerki Sjómannadagsins. Guðmundur Jónsson óperusöngvari syngur. Lúðrasveit Reykjavíkur annast undirleik og leikur á milli dagskráratriða. 15.45 — Að loknum hátíðahöldunum við Austurvöll hefst kappróður við Reykjavíkurhöfn. — Verðlaun afhent. — Á meðan á róðrakeppni stendur mun Eyjólfur Jónsson, sundkappi og ef til vill flgiri þolsundsmenn synda Við- eyjar- eða Engeyjarsund Og taka land í róðrarvörinni. Að róðrunum lokum, og ef veður og aðrar aðstæður leyfa mun Landhelgisgæzlan sýna hvernig fleygt er niður úr flugvél báti eða öðru til skipa á sjónum. Sjómannakonur annast kaffiveitingar í Sjálfstæðishúsinu frá kl. 14.00. — Allur ágóði af kaffisölunni rennur til jóla- glaðnings vistfólks í Hrafnistu. Á Sjómannadaginn, sunnudaginn 4. júní verða kvöld- skemmtanir á vegum Sjómannadagsins á eftirtöldum stöðum: Breiðfirðingabúð — Gömlu dansarnir — Ingólfscafé — Gömlu dansarnir — Silfurtunglið — Gömlu dansarnir — Sjálfstæðishúsið — Dansleikur — skemmtiatriði Storkklúbburinn — Dansleikur — skemmtiatriði. Allar skemmtanir hefjast kl. 21.00 og standa yfir til kl. 02.00 eftir miðnætti. Tekið á móti pöntunum og aðgöngumiðar afhentir með- limum aðildarfélaga Sjómannadagsins í Aðalumboði Happdrættis DAS, Vesturveri, sími 17757 í dag kl. 16.00—• 19.00 og á morgun sunnudag kl. 14.00—17.00. Einnig í við- komandi skemmtistöðum eftir kl. 17.00. f Vesturveri verður jafnframt seld hin nýja hljómplata Stjáni blái, eftir Sigfús Halldórsson. Afgreiðsla á merkjum Sjómannadagsins og Sjómanna- dagsblaðinu verður á eftirtöldum stöðum: I dag, laugardag kl. 14.00—18.00 í Verkamannaskýlinu við höfnina og Skátaheimilinu við Snorrabraut jrg á morg- un, sunnudag frá kl. 09.00: Verkamannaskýlinu við höfn- ina — Skátaheimilinu við Snorrabraut— Turninum Réttar- holtsveg 1 — Melaturni við Hagamel — Sunnubúð við Mávahlíð — Söluturninum við Sunnutorg, Langholtsvegi — Matvörumiðstöðinni Laugalæk 2 — og Vogaskóla. Auk venjulegra sölulauna fá þau börn, sem selja merki og blöð fyrir 150 kr. eða meira aðgöngumiða að kvik- myndasýningu í Laugarásbíó. Munið eftir eftirmiðdagskaffinu í Sjálfstæðishúsinu. hjá sjómannskonum Halldóra Björnsdóttir húsfrú, Geithommm HINN 10. apríl sl. andaðist úr heilablóðfalli í Héraðsspítalanum á Blönduósi Halldóra Björns- dóttir, húsfreyja frá Geithömr- um í Svínadal. Hún var fædd á Marðarnúpi í Vatnsdal 24. marz 1878, dóttir hjónanna Þorbjargar Helgadóttur frá Gröf og Björns L. Jónssonar frá Síðu. Þau Marð- arnúþshjón eignuðust 15 börn, en sex néðu fullorðins aldri: Guð- mundur landlæknir, Jóhanna húsfreyja í Víðidalstungu, Ingi- björg húsfreyja á Torfalæk, Jón- as Bergmann, bóndi á Marðar- núpi og síðar smiður á Stóru- Giljá, Halldóra og tvíburasystir hennar Elísabet, sem gerðist ráðs kona hjá Guðmundi landlækni, bróður sínum, við fráfall fyrri konu hans, og dvaldist á heimili hans og ekkju hans, frú Margrét- ar, til æviloka. Marðarnúpsheimilið var á sinni tíð eitt mesta fyrirmyndarheim- ilið í Húnavatnssýslu, því að Björn bóndi var slíkur snyrti- maður og reglumaður með alla búskaparháttu, að víðfrægt var, en Þorbjörg kona hans var vin- sæl ljósmóðir, gáfuð kona og glaðvær. Halldóra giftist vorið 1906 Þorsteini Þorsteinssyni frá Grund í Svínadal, bræðrungi við Magnús Guðmundsson ráðherra, og bjuggu þau á Geithömrúm, sem upprunalega var hjáleiga frá Grund, þar til Þorsteinn dó 27. janúar 1944. Börn þeirra eru: Þorsteinn, bóndi á Geithömrum, Björn, trésmíðameistari í Reykja vík, Guðmundur bóndi í Holti í Svínadal, Jakob, bílstjóri' í Reykjavík og Þorbjörg, húsfreyja á Auðkúlu, gift Jónmundi Ei- ríkssyni frá Ljótshólum. Eftir lát manns síns átti Hall- dóra heimili hjá Þorsteini syni sínum á Geithömrum til dauða- dags, en dvaldist síðustu árin með köflum hjá hinum börnum sin- um 1 nágrenninu, Þorbjörgu og Guðmundi. Hún hélt góðri heilsu fram yfir áttrætt að undaníeknu því, að sjón hennar fór hrakandi, svo að hún var orðin blind að kalla. Þorsteinn bóndi hennar hafði byggt upp á Geithömrum skömmu eftir að þau giftust, en nú er Þorsteinn sonur hennar að flytja bæinn úr fjallshlíðinni nið- ur á nýræktargrund nær vegi. Hún gat farið allra sinna ferða um gamla bæinn sinn, þótt%sjón- in væri biluð, hálfkveið fyrir því að þurfa að flytja í nýja hús- ið og hafði reyndar spáð því, að sér myndi ekki endast aldur til þess, enda varð sú raun á. Halldóra á Geithömrum var hóglát kona, ljúf í allri um- gengni, virt Og vel látin í sveit sinni. Hún Var í rheðallagi á vöxt, rauðbirkin, kringluleit, svipurinn festuíegur og greindarlegur, trygg í skapi og ættrækin. Með henni er góð kona gengin og eru þá aðeins eftir þrjú á lífi af barnabörnum þeirra Síðuhjóna Guðmundar smiðs Guðmundsson ar frá Húki og Guðrúnar Sigfús- dóttur Bergmanns, en það eru Jóhanna, systir Halldóru heitinn ar og þó 10 árum eldri, Sigurður hálfbróðir þeirra, áður yfirbrúar smiður, og Elinborg Guðmunds- dóttir, húsfrú í Reyhjavík. Þetta var övenjulega sterkur ættstofn, obbbbbbbbbbbbttDbúbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb b Rúðulistar Gerekti Góiflistar E ggingavörur h.f. Simi 35697 Laugaveg 178 b b b b b b b b b b .b ALLT HEIMILIÐ SKÍNANDI FAGURT ÁIM IMÚNIIMGS MEÐ ÞESSUM JOHNSON’S FÆGILÖGUM Notið PRIDE fyrir húsffögnin Pride — þessi frábæri vax vökvi, setur spegilgljáa á húsgögnin og málaða fleti án nokkurs núnings. Og Pride gljái varir mánuðum saman, verndar húsgögnin gegn fingraförum, slettum, ryki og óhreinindum. Fáið yður Pride — og losn- ið við allt nudd er þér fægið húsgögnin. Notið Glo-Coat á gólfin. Glo-Coat setur varan. legan gljáa á öll gólf án nokkurs núnings - gler- harða húð, sem kemur í veg fyrir spor og er var- anleg. Gerir hreinsun auðveldari! Fljótari! Notið Glo-Coat í dag — það gljáir um leið og það þornar! .iohnsqn/s IWAX products MÁLARINN H. F. Sími 11498 — Reykjavík því að Síðusystkinin, sem . öll voru fædd fyrir 1840, komust flest um eða yfir nírætt og mörg af börnum þeirra náðu líka há- um aldri. Nú er þessi forni og trausti frændgarður . okkar að falla, jafnframt því sem völlur- inn færist út og elur nýjan gróð- ur. P.V.G.K. Missti trilluna sína PATREKSFIRÐI, 30. maí. — í nótt sigldi trillubátur upp í Kópavík og 19 ára piltur tapaði þar nýja bátn- um sínum — og svo til al- eigunni. Þetta var Garðar Gunnarsson úr Haukadal. Hann var nýbúinn að kaupa trilluna, þriggja tonna ágæt is skip. Þetta var önnur sjó- ferðin. Hann fór í róður kl. 5 í gærmorgun, lenti í svartaþoku og sigldi á fullri ferð upp í Kópavík. Komst pilturinn slysalaust í land og gekk til bæja. — Sjó- menn sem fóru þarna um sögðu, að trillan virtist óbrot in, en nú er hann að hvessa og sögðu þeir vafalítið, að hún mundi brotna í spón í brimgarðinum á næsta flóði. Ekki er hægt að taka trilluna á land þarna, þvl fjaran er mjög stórgrýtt og snarbratt fyrir ofan hana. — Trausti. Breytingar á alþjóða- siglingalögum Alþj óðaráðsfcefnan um öryggi mannslífa á hafinu, 1960, sam- þykkti allmargar breytingar á núverandi alþjóða-siglingaregl- uim, og eru helztu breytingarnar viðbót við siglingareglurnar, þar sem tillit er tekið til notkunar ratsjár í skipum í slaemu skyggnij og ennfremur var samþykktur viðauki við hinar endurskoðuðu siglingareglur, þar sem leiðbeint eru um rétta notkun ratsjár og þeirra upplýsinga, sem hún lætur í té, til þess að forðast árekstur á sjó. — Skipaskoðun ríkisins hei ur nú gefið út tilkynningu varð- andi þessar nýju leiðbeiningar, og verða tilkynningarnar sendar flestum útgerðarfélögum, auilc skipaskoðunarmanna og fjölda annara aðila. Sjófarendur og aðir ir, sem not hafa fyrir, geta feng- ið aukaeintök hjá Skipaskoðun ríkisins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.