Morgunblaðið - 03.06.1961, Blaðsíða 9
Laugardagur 3. júní 1961
MORGl’NBLAÐIB
9
*
Notiö
Sunsilk
ONE-LATHER
_ SHAMPOO_
SHÁMPOO
Tveir menn fang-
e'saðtr fyrir nauðgun
ingu í leikriti Sigurðar Nor-|
dals, prófessors, „Á Þingvelli
984“, sem sýirt var í fyrra-
kvöld. Leiktjöldin í baksýn,1
sem þykja mjög fögur og vel
úr garði gerð, eru eftir okk-
ar góðkunna leiktjaldamál-
ara Lárus Ingólfsson. Frá
vinstri talið sjást: Brynjólfur
Jóhannesson í hlutveTki
Skíða göngumanns, Cunnar
Eyjólfsson í hlutverki Élfars
skálds og Kristbjörg Kjeld,
sem leikur Ásgerði. Aðrir
leikendur eru: Þorsteinn Ö.
Stephensen (Þorkell máni),
Jón Aðils (Þorvaldur víð-
förli), Valur Gíslason (Eirík-
ur rauði), Róbert Amfinns-
son (Einar skálaglamm), Har
aldur Björnsson (Runólfur
Úlfsson), Rúrik Haraldsson
(Ólafur pá), Baldvin Hall-
dórsson (Snorri goði), Arn-
dís Björnsdóttir (Þórdís spá-
kona) og Bessi Bjarnason
(Þórhallur ölkofri).
Lárus Pálsson er leikstjóri,
Jóh. Pálsson sýningarstjóri,
Aðalsteinn Jónasson leiksviðs
stjóri og, eins og áður er
getið, Lárus Ingólfsson leik-
tjaldamálari.
Laxveiði
í net hafin
Netjaveiði bænda við Hvítá
í Borgarfirði hófst þriðjudag
inn 23. maí s.l. Leyfilegt er að
hefja netjaveiði 20. maí, en
að þessu sinni var sá dagur
um helgi, en svo sem kunnugt
er, má ekki leggja net um helg
ar. Enginn lax fékkst þó í net
in fyrr en föstudaginn 26.
maí, en þá veiddust fimm.
Bændum var veitt undanþága
um s.l. helgi til þess að leggja
net sín og veiða lax í veizluna
sem haldin var til heiðurs Ó1
afi Noregskonungi að Hótel
Borg á miðvlkud. Veiddust
þá um 80 kg af laxi, sem
send voru til Reykjavíkur til
að gleðja veizlugesti.
Alls hafa fengist um 60 lax
ar í net í Hvítá það sem af er,
að því er Kristján Fjeldsted í
Ferjukoti tjáði Mbl. í gær-
kvöldi.
Um Norðurá í Borgarfirði,
þar sem Ólafur konungur mun
e.t.v. kasta fyrir lax, er það
að segja, að í fyrradag sáust
nokkrir laxar í brotinu fyrir
neðan Laxfoss. Ætti það því
ekki að vera útilokað að kon
ungur fengi þar lax;.
FYRIR nokkru var í saka-
dómi Reykjavíkur kveðinn
upp dómur af Ármanni Krist
inssyni sakadómara, í máli,
Málflutningsskrifstofa
JON N. SIGURÐSSON
h æstaréttarlögmaSur
Laugavegx 10. — Sími: 14934
Ótti við verkfall olli
meiri áburbarú!!ekt
S V O sem kunnugt er, hafa
ýmsir bændur orðið afskipt-
ir varðandi afgreiðslu á
áburði frá Áburðarverk-
smiðjunni í Gufunesi, en
áburðarbirgðir verksmiðj-
unnar þraut nokkrum dög-
um áður en yfirstandandi
verkfall hófst 29. maí sl. —
Höfðu þá um 18,600 smálest-
ir verið afgreiddar af þeim
20 þúsundum smálesta, sem
pantaðar voru nú í vor.
Mbl. átti í gær tal við Hjálm-
ar Finnsson, framkvstj. Aburð-
arverksmiðjunnar, varðandi
þetta mál. Kvað Hjálmar rétt
að taka það fram í upphafi, að
í fyrra hefði tæplega 1000 smál.
af áburði verið afgreiddar eftir
15. júní, og með svipuðum af-
greiðsluhraða nú hefði átt að
vera búið að afgreiða um 19
þúsund tonn um miðjan þenn-
an mánuð.
Birgðir þraut
Nokkrum dögum áður en til
verkfalls kom, hefði birgðir
verksmiðjunnar þrotið, og hafði
verksmiðjan þá lókið afgreiðslu
á 18,600 smálestum.
1 upphafi verkfallsins skorti
því aðeins um 400 smálestir á
að sambærilegt magn hefði ver-
ið afgreitt miðað við heildar-
afgreiðslu um miðjan júní í
fyrra. Hins vegar hefði verk-
smiðjan gert ráð fyrir að hafa
til reiðu 500 smálestir af á-
burði aukalega fyrir 15. júní
til þess að mæta umframpönt-
unum, og hefði verið ráð fyrir
því gert ,að til væri þrefalt
meira magn af áburði en það,
sem óafgreitt var þegar verk-
fallið hófst.
Þá sagði Hjálmar, að ótti
manna við verkfallið hefði orð-
ið til þess, að meira var tekið
út af áburði síðustu dagana fyr
ir verkfall en gert hefði verið
undir venjulegum kringumstæð
um. Loks hefðu slæmir vegir
um ýmis héruð einnig valdið
því, að erfitt hefði verið að
dreifa áburðinum á ýmsa bæi,
sem búnaðarfélögin hefðu pant-
að áburð fyrir í vor.
Áburðarverksmiðjan í Gufu-
nesi er nú starfrækt með full-
um afköstum, og eru fram-
leiddar 70 smál. af áburði þar
daglega.
Skipti á
skágrcektar■
mönnum
N Ý L E G A komu hingað
til lands 53 norskir skógræktar-
menn á vegum Skógræktarfélags
íslands. Munu þeir dveljast hér
í hálfan mánuð og setja niður
trjáplöntur í Haukadal, Þjórsár-
dal, Eyjafirði og Þingeyjarsýslu.
Fararstjóri þeirra er séra Harald
Hope.
Á hádegi í dag fór hópur ís-
lenzkra skógræktarmanna (um
60 menn) til Noregs, en þar
munu þeir setja niður trjáplönt-
ur á Mæri. Fararstjóri er Jón
Helgáson stórkaupm.
★
George Bidault, þingmaður og
fyrrv. ráðherra í Frakklandi,
lagði nýlega efltirfarandi gVitu
fyrir nokkra þingmenn. — Hvaða
munur er á vali fegurðardrottn-
ingar og kosningu til þings? Og
þegar enginn gat svarað, sagði
hann: — Við val fegurðardrottn-
ingar eru frambjóðendur afhjúp-
aðir á undan, en í kosningum til
þings á eftir.
sem ákæruvaldið höfðaði
gegn , tveim mönnum í sam*
bandi við nauðgunarmál.
Annar þessara manna Pétur'
Hansson til heimilis í Grinda-
vík, var kærður fyrir að hafa
hreinlega rænt á götu hér í bæn
um rúmlega tvítugri stúlku, sem
hann þekkti lítillega. og flutt
hana nauðuga með sér suður trl
Grindavíkur. Hún hafði gert til-
raunir til þess að komast út úr
bílnum, jafnvel þó.hann væri á
fullri ferð. Bílnum var ekið a<
leigubílstjóra. í leigubílnum
gerði maðurinn tilraun til að
nauðga stúlkunni og einnig hafði
hann slegið hana í andlitið. Þeg-
ar til Grindavíkur kom. kom á-
rásarmaðurinn fram vilja sínum
við stúlkuna í geymsluhúsi einu.
Ákæruvaldið lét ekki við það
eitt sitja að kæra Grindvíking-
inn, heldur var leigubílstjórinn
og ákærður fyrir hlutdeild í
máli þessu.
Báðir voru mennirnir dæmdir.
Dómurinn dæmdi árásarmanninn
í 16 mánaða fangelsi fyrir nauðg-
un. Leigubílstjórinn — maður að
nafni Sigfús Sigurðsson var
dæmdur í 10 mánaða fangelsi.
Taldi dómurinn að við ákvörðun
refsingar hans, skyldi höfð að
því sérstök hliðsjón að
hann var í leiguakstri og alsgáð-
ur er þetta gerðist í bíl hans.
Með dómnum var hann og svipt-
ur ökuréttindum æfilangt Allur
málskostnaður í málinu var lagð-
ur á hina sakfelldu auk þess sem
þeir voru sviptir kosningarétti og
kjörgengi.
NÝJUNG
Sunsilk Tonic
Shampoo gefur hári
yðar líflegan blæ
og flösulausa mýkt.
því þá lítur helzt út fyrir,
að þér hafið eytt miklum tíma og pen-
ingum á hárgreiðslustofunni. Þvoið hár
yðar heima með Sunsilk Shampoo.
Sunsilk gerir hár yðar mjúkt — glans-
andi. — Aðeins ein umferð nauðsynleg.
X-GSH 39/IC-6445-50