Morgunblaðið - 03.06.1961, Blaðsíða 22
22
MORCVyBLAÐIÐ
Laugardagur 3. júní 1961
Árangurinn nú lofar góðu
í ýmsum greinum
E.Ó.P. mótib í fyrrakvöld
A N N A Ð frjálsíþróttamót
sumarsins, E.O.P.-mót KR
var haldið í fyrrakvöld og
gefur árangur í sumum
greinanna miklar vonir um
stórafrek síðar á sumrinu.
Keppt var í 10 greinum og
voru keppendur flestir af
beztu íþróttamönnum höfuð-
staðarins — og víðar að. —
Hins vegar var Iítil athygli
vakin á mótinu fyrirfram og
því færra af áhorfendum en
vera skyldi.
★ Unglingamót
Hinn ungi hástökkvari Jón
Þ. Ólafsson ÍR náði athyglis-
verðum árangri. Hann fór glæsi
lega yfir 1.96 m í annari til-
raun og setti þar með unglinga-
met. Við 2.01 m miðtókst hon-
um hins vegar og má þó ætla
að sú hæð búi þegar í honum.
Með hverju mótinu hækkar Jón
sig í stökkum og verður án
efa stutt til þess að hann sigr-
ar 2 metrana. Jón er ákaflega
aðlaðandi íþróttamaður og tek-
ur íþrótt sína alvarlega og
skemmtilega.
★ Gott langstökk
Langstökksafrek Vilhjálms
7.20 lofar sannarlega góðu.
Stokkið var á mottu vegna
þess hve atrennubrautin var
laus. Þetta ruglaði stökkmenn-
ina í ríminu og mörg stökkanna
urðu ógild* Þar á meðal átti
Vilhjálmur stökk sem voru mun
lengri. En sýnilegt er að Vil-
hjálmur verður í stökkformi í
sumar.
Köstin
Afrek
Her-
Guðmundar
mannssonar í kúluvarpi mun
vera „metárangur“ Islendinga
á þessum tima. Einhvern tíma
hefði líka 15.74 þótt gott en á
alþjóðamælikvarða er það nú
orðið tæplega meðalárangur. En
Guðmundur ætti að geta mun
betur og gerir það vonandi í
umar.
Valbjörn þeytti spjótinu
lengra en hann hefur áður gert
hér á landi 63.18 m. Það er
Tvö
heimsmet
í FYRRAKVÖLD setti ítalinn
Carlo Livore nýtt heimsmet í
spjótkasti. Kastaði hann því
86.71 m á móti sem haldið var
í Milano.
Fyrra heimsmetið átti Banda-
ríkjamaðurinn Cantello og var
það 86.04 m.
S.l. sunnudag hljóp Rússinn
Georgij Taran 3000 m hindrunar
hlaup á nýjum heimsmetstíma
8 31.2 mín. Bezti tími fram að
því var 8.31.4 og vann Pólverj-
inn Kryskowiak það afrek.
1 ekki orðin vanþörf á að
hressa upp á spjótkastið hér.
Jóel er ennþá ókrýndur kon-
ungur spótkastara og hefur ver-
ið um meira en 20 ára skeið.
if Aðrar greinar
Gaman er að því að KR-
ingar skuli halda svo vel sam
an í milli- og langvegahlaupum
sem raun er. Vonandi smitar
það út frá sér því stórleg vönt-
un er á hlaupurum.
Spretthlaup karla og kvenna
voru dauf — en vonandi aðeins
í þetta sinn. Mættum við muna
okkar fífil fegurri í þeim efn-
um.
Úrslit í einstökum greinum.
110 m grindahlaup: -TrSiguröur Lár
usson Á, 17.0.
100 m hlaup: Grétar Þorsteinsson A,
11.5, 2. Valbjörn Þorláksson ÍR 11.6
3. Guðm. Guðjónsson KR 11.9.
400 m hlaup: 1. Sigurður Björnsson
KR 52.3 2. Svavar Markússon KR 52.5
3. Guðm. Hallgrímsson IBK 53.7.
1500 m hlaup: Kristleifur Guðbjöms
son KR 4.05.9 2. Reynir Þorsteinsson
KR 4.17.4 3. Agnar Levy KR 4.17.4 4.
Hafsteinn Sveinsson Self. 4.18.7.
1000 m boðhlaup: Ármann 2.02.5
2. A-sveit KR 2.05.6.
lOOm hlaup kvenna: Rannveig I.ax
dai IR 14.1 2. Ásta Karlsdóttir USAH
15.6.
100 m hlaup: unglinga: Kristján Ey
jólfsson IR 12.0 Þórhallur Sigtryggs
son KR 12.1 Þorvarður Björnsson KR
12.3.
Frh. á bls. 23.
Mikil aðsólm að
leiknámskeiðum
UM síðustu helgi hófust íþrótta-
námskeið fyrir börn og unglinga
víðs vegar um bæinn og hefur
aðsókn að þeim verið mjög góð.
Sérstaklega hefur aðsókn verið
góð fyrir hádegi, og hafa börnin,
sem eru á aldrinum 5—9 ára,
verið um 100 á hverju svæði og
allt upp í 200.
Á svæðinu í Blesugróf var þó
aðsókn nær engin og börnum
þar bent á að snúa sér til Vík-
ingssvæðisins við Hæðargarð.
Ólafsson yfir 1,96 — unglingamet
Á þjáliaranámskeið
í Sviss
KARL GUÐMUNDSSON, knatt
spyrnuþjálfari, fór utan í gær-
kveldi til þess að sækja alþjóð
legt þjálfaranámskeið í Macolin
iþróttaskólanum við Bienne í
Rannveig Laxdal ÍR og Ásta Karlsdóttir setja svip á kvennaíþróttirnar: (Ljósm. Sv. Þorm.)
Sviss. Yfir 40 þjálfarar frá 20
Evrópulöndum sækja þetta nám
skeið, en þar munu kenna og
flytja fyrirlestra 9 fremstu knatt
spyrnuþjálfarar Evrópu, m.a.
Herberger frá Þýzkalandi,
ungverski landsliðsþjálfarinn
Gustav Sebes, Bretarnir Winter
bottom og Sir Stanley Rose o.fl.
— Það er Knattspyrnusamband
Evrópu, sem stendur fyrir þessu
námskeiði og KSÍ hefur annazt
milligöngu um för Karls. — Nám
skeiðið stendur í viku.
Leik- og íþrótta-
námskeið í Garða-
hreppi
Á VEGUM æskulýðsfélagsins
Stjarnan í Garðahreppi eru að
hefjast námskeið í leikum og
íþróttum fyrir börn og unglinga.
Kennarar verða Karl Guðmunds-
son. Sigurður og Birgir Birgis.
Námskeið fyrir börn 11 ára og
yngri verða á svæðinu við Silfur
tún þriðjudaga — fimmtudaga
og laugardaga kl. 9,30—11,30 f.h.,
en æfingar fyrir unglinga þefjast
á mánudag 5. júní kl. 8 e.h. fyrir
stúlkur og kl. 9 e.h. fyrir pilta.
Skotar unnu Skagamenn 7:0
f gærkvöldi var annar leikur
skozku knattspyrnugesta Vals
og mættu þeir íslandsmeist-
urum Akraness. Skotarnir
fóru með sigur, skoruðu 7
mörg gegn engu. Voru yfir-
burðir þeirra nú enn meiri en
gegn Val einkum er á leið leik
inn. Framan af var leikurinn
oft skemmtilegur og síðari
hluta fyrri hálfleiks sóttu
Skagamenn öllu meira þótt
þeim auðnaðist aldrei að nýta
tækifæri sín til marks.
Fyrri hluta fyrri hálfleiks
var svartur kafli hjá Skaga-
mönnum. Vörnin var einstak
lega sundurlaus og barðist
jafnvel ekki gegn ásókn Skot
anna. Þar við bættist að Helgi
átti mjög misheppnuð út-
hlaup.
Skoruðu Skotarnir 3 mörk
á fyrstu 16 mín. Hið fyrsta
skoraði Clunie miðherji á 9.
mín upp úr þvögu við Akra
nesmarkið. Á 15. mín. hafði
Helgi Hannesson varið á línu
og sparkað frá. Henderson
útherji fékk knöttinn við víta
teig og skallaði fallega yfir
alla mannþröngina við mark
ið og í fjarlægara horn marks
ins. Glæsilega gert. Mínútu
síðar hleypur McFazean inn
í langa sendingu á miðjunni
og spyrnir framhjá Helga sem
hljóp út.
★
Fleiri urðu mörki ekki í
fyrri hálfleik. Skagamenn
náðu tökum á leiknum, léku
oft laglega að marki Skotanna
en þar rann allt út í sandinn
fyrir klaufaskap þeirra eða
fyrir góða vörn Skotanna.
Brown markvörður fékk að
sýna öryggi sítt en ekki
reyndi alvarlega á hann.
Skagamenn fengu vítaspyrnu
en Þórður Jónsson spyrnti yf
ir.
Síðari hálfleikur var dauf
ur lengst af. Skagamenn höfðu
misst allan móð og Skotarnir
virtust ánægðir með þann ör
ugga sigur sem þeir höfðu þeg
ar unnið. Deyfð og drungi
var yfir leiknum.
En þetta löguðu Skotarnir
til. Á 28. mín. hleypur Gemm
el innh. inn í langa sendingu
og platar Helga sem hljóp út
og renndi knettinum í tómt
markið.
Og á síðustu níu mín. skora
Skotarnir þrívegis. Fyrst var
Miller útherji að verki. Hann
plataði Helga markvörð út við
vítateiginn og átti auðvelt með
að skora fram hjá bakvörð-
unum sem hlupu til marks-
ins.
Síðan gerði Kerrigan mið-
herji meistarastykki. Hann
sendi snúningsbolta að mark
inu af 18—20 m færi. Helgí
misreiknaði sendinguna sem
hafnaði í netinu. Fallegt mark
Henderson innh. rak enda
hnútinn á mörkin. Hann skall
aði örugglega í netið af stuttu
færi eftir góða og langa send
ingu frá vinstn kanti.
Sem fyrr höfðu Skotarnir
yfirburði í leikhraða og því
að hafa vald á knettinum,
vald á sendingum og vald á
móttöku knattarins. Oft voru
íslandsmeistararinr aðeins
eins og statistar eða menn til
að elta fótfráa Skotana. Bezt
ir Skota voru Gemmel, Wil-
son bakvörður og Brown í
marki. — Hjá Skagamönnum
Sveinn Teitsson.
i
^ >1 ■