Morgunblaðið - 03.06.1961, Blaðsíða 17
Laugardagur 3. júní 1961
MORGVWBL AfílD
17
— Konungurinn
Framh. af bls. S
gjöf málverk eftir Kjarval og
hafði Einar Farestveit, formað-
ur félagsins, orð fyrir þeim.
'Kjarval var meðal boðsgesta og
Italaði konungur góða stund við
ttxann. Einnig faerði stjórn félags-
in Noregur—ísland konungi
skrautritað ávarp, og hafði for-
imaður, Hákon Bjarnason orð fyr-
ir henni. Konungur þakkaði báð-
ar þessar gjafir með stuttum raeð
um.
h Konungur ók síðan niður að
Loftsbryggju og hélt út í kon-
ungsskipið. En í gserkvöldi bauð
ttiann forsetahjónunum, ríkis-
stjórn og fleiri gestum til kvöld-
verðarveizlu þar. Aðrar konur en
forsetafrúin og sendiherrafrú
Börde munu ekki hafa setið veizl
una.
J Þar með lauk hinni opinberu
Iheimsókn konungs á íslandi, en
S dag siglir hann með konungs-
skipinu upp í Hvalfjörð og ekur
til Reykholts. í kvöld kemur kon
ungsskipið á Reykjavíkurhöfn kl.
20,40 og siglir áleiðis til Noregs
kl. hálf tíu.
Dacfsskráin
í dag
í hádegisverðarkoði rikis- i
stjórnarinnar í gær. Lengst
til vinstri á myndinni er
félagsmálaráðherrafrú Guð-
finna Sigurðardóttir, þá
Ólafur Xhors forsætisráð-
herra, forsetafrú Dóra Þór-
hallsdóttir, Ólafur Noregs-
konungur, forsætisráðherra-
frú Ingibjörg Thors, forseti
íslands, utanríkisráðherra-
frú Rósa Ingólfsdóttir og
Lange utanríkisráðherra.
Við borðálmuna, sem er
fjær, sést fjármálaráðherra-
frú Vala Thoroddsen og
Börde sendiherra Noregs og
á móti þeim sitja Gizur
Bergsteinsson, forseti hæsta
réttar og frú Kristín Bl. Guð
mundsdóttir, kona forseta
efri deildar. Við borðálm-
una, sem nær er situr, frú
Dagmar Lúðvíksdóttir, kona
forseta hæstaréttar og gegnt
henni utanrikisráðherra.
— Ljósm. Ól. K. Mag.
Ólafur konungur kvaddi Reykjavík í gær. Er bátur hans sigldi úr höfn stóðu skipverjar á Bergen heiðurvörð á þilj-
að Bifröst.
Kl. 13:45 Komið í Bifröst. Hádegis-
verður.
Kl. 15:45 Brottför frá Bifröst. Ekið
áð Laxfossi. Laxveiði. Ekið að
veiðiskála Stangaveiðifélags Rvik-
ur.
Kl. 17:45 Brottför frá Norðurá.
Kl. 18:15 Ekið fram hjá Ferjukoti.
Kl. 19:15 Komið að Hvalveiðistöðinni.
Farið um borð í K.S. NORGE.
Siglt til Reykjavíkur.
Kl. 20:40 Komið á ytri höfnina í Rvík.
Konungur kveður um borð. Forseti
íslands og aðrir íslendingar, sem
í förinni voru, fara í land með MAGNA
Kl. 21:30 Konungsskipið NORGE og
tundurspillirinn BERGEN sigla
brott, og íslenzkt varðskip fylgir
þeim á leið.
Reykholtsferð.
Kl. 8:45 Brottför frá Loftsbryggju út
í K.S. NORGE.
Kl. "9:00 K.S. NORGE siglir frá Reykja
víkurhöfn inn Hvelfjörð, að skipa-
lægi Hvalfjarðarstöðvarinnar.
Kl. 10:30 Noregskonungur, forseti ís-
lands fylgdarlið og gestir stíga á
land á bryggju Hvalveiðistöðvar-
innar í Hvalfirði. Sýslumaður
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu tekur
á móti á bryggjunni.
Kl. 10:35 Brottför frá Hvalveiðistöð-
inni. (Ekið um Leirársveit, fram
hjá Hvítárvöllum, um Bæjarsveit,
fram hjá Hesti, í Reykholt).
Kl. 12:00 Komið að Reykholti. Staður
inn skoðaður undir leiðsögn Þóris
Steinþórssonar skólastjóra og séra
Einars Gunnarssonar.
Kl. 13:00 Brottför frá Reykholti. Ekið
um en konungur heilsaði.
Þörf á samníng um sam-
göngur til V-Rerhnar
segir Ulbricht, forseti A-Þýzkalands
Manníall
LEOPOLDVILLE, Kongó, 1. júní
(Reuter). —.
Talsmaður Sameinuðu þjóð-
anna upplýsti í dag, að meira en
eitt hundrað menn af Bashi ætt
— Minningarorb
Framh. af bls. 16
að gera sitt bezta fyrir land og
þjóð. öðruvísi menn gat hann
með engu móti skilið, þrátt fyrir
miklar gáfur. Hann dæmdi þar
eftir sjálfum sér.
í>að mætti skrifa langt mál um
Bjarna Bjarnason, án þess þó að
ég eigi þar við heila ævisögu.
Væri það gert, yrði ekki gengið
framhjá fræðimanninum, rækt-
tinarmanninum, tónlistarunnand
anum og ekki því, hvílíkur heim
ilisfaðir hann var. Hér verður
þó svo að Vera. Eg gat þess við
tipphaf, að ég hefði vænzt þess,
að einhver minntist Bjarna á út-
farardegi hans. Fyrir eigin van-
rækslu í því efni ætlaði ég að
bæta með þessum fáu minningar-
®rðum. Eg hefði viljað, að þau,
#vo langt sem þau ná, væru trú-
verðug heimild samtíma og sam-
Btarfsmanns um Bjarna Bjarna-
son. kennara.
Stefán Jónsson.
/ Kongó
flokknum í Kivu héraði hafi ver
ið felldir af kongóskum hermönn
um. Hafa hermennirnir einnig
brennt þorp í héraðinu Nuaghezi,
sem er suður af borginni Bukavo
— við landamæri Ruanda Ur-
undi.
Talsmaðurinn skýrði frá því að
atburðir þessir hefðu gerzt fyr
ir nokkrum dögum er hermenn
Sameinuðu þjóðanna hefðu skor
izt í leikinn og bætt ástandið í
héraðinu.
Fregnir berast jafnframt frá
Stanleyville um, að þrir læknar
sem starfa á vegum alþjóða heil
brigðismálastofnunarinnar hafi
verið handteknir af Lumumba-
sinnum. Voru þeir látnir lausir
fjórum klukkustundum eftir hand
tökuna, er hermenn Sameinuðu
þjóðanna höfðu skorizt í leikinn.
Hefur herstjóri Lumumba-hers
ins, Victor Lundula, hershöfð-
ingi beðizt formlega afsökunar á
handtöku læknanna.
Síðustu daga hafa borizt tíðar
fregnir af spjöllum og árekstr
um í Stanleyville, sem aðallega
eiga rót að rekja til fjárskorts
íbúanna og annarra skyldra erf
iðleika.
Aftökur í
Albaníu
BELGRAD, Júgóslavíu, 1. júní
(Reuter) —
Tilkynnt hefoir verið í Belgrad,
að fjórir Albanir hafi verið líf
látnir í gær í Albaníu, sakaðir
um tilraun til þess að kollvarpa
stjórn kommúnistaforingjans
Enver Hoxha. Meðal hinna líf-
látnu er fyrrverandi flotaforingi
sem fékk þjálfun sína og mennt
un í Sovétríkjunum. Heitir sá
Emo Seiku. Hinir þrír voru Tahir
Demi, fyrrum formaður einnar
héraðsnefndar kommúnistaflokks
ins; Avdul Resuli, sem sagðwr
er hafa verið opinber starfsmað
ur og Mahri Mane fyrrum liðs-
foringi.
Fyrir viku var felldur dauða
dómur yfir mönnum þessum fyr
ir rétti í Albaníu og þeim neitað
um áfrýjun. Var þeim gefið að
sök, að hafa staðið fyrir sam-
tökum fjandsamlegum stjórninni,
sem hefði það markmið að steypa
henni með aðstoð Grikkja, Ji'igó-
slava og Bandaríkjanna. Tíu aðr
ir menn voru dæmdir í fangelsi
frá 15 til 25 ára fyrir njósnir og
úróður.
AUSTUR-BERLÍN, 1. jún. —
(Reuter) —
Walter Ulbricht, forseti Aust-
ur-Þýzkalands sagði í dag, að
fyrirsjáanlegt væri, að andstæð
ingar Hitlers úr heimstyrjöld-
inni síðari myndu gera friðar
samning við Þýzkaland áður en
langt um liði. Ennfremur lýsti
hann því yfir, að tal manna á
vesturlöndum um að Austur-
Þjóðverjar hyggðust hindra flutn
inga til Vestur-Berlínar væri
með öllu ástæðulaust.
Það er aðalmálgagn kommún-
ista — Neuer Deutschland —,
sem hefur þetta eftir Ulbricht
í viðtali og það með, að hann
vænti þess, að þeir Krúsjeff for
sætisráðherra og Kennedy, for-
seti, muni ræða málið á fundin-
um í Vínarborg. Kvaðst hann
vona að þeir kæmust að sam-
komulagi.
Ulbricht sagði, að ekki væri
hætta á að flutningar til Vestur
Berlínar yrðu stöðvaðir ems og
gert var 1948 — væri ailt tal um
slíkt markleysa. Hinsvegar kvað
hann þörf á skýrum samning um
samgöngur til V-Berlýnar, jafnt
í lofti, láði sem legi. Kvað hann
það ekki ætti að vera útilokað
— en ekki gæti hann ímyndað
sér að alvarlega skærist í odda
varðandi Berlín í nánustu frau>
tíð.
Þjóðleikhús-
stjóri fer utan
ÞJ ÓÐLEXKHÚSSTJ ÓRI Guð.
liaugur Rósinkranz fór utan 1
morgun og mun hann sitja þing
Alþjóðamálaleikhússtofnananna i
Vín dagana 4.—11. þ.m., en hann
fer þangað fyrir hönd Þjóðleik-
hússins, sem er aðili í samtök-
unum. Eftir að þinginu lýkur
mun þjóðleikhússtjóri fara til
Prag og dvelja þar í 3 daga i
b o ð i Menntamálaráðuneytis
Tékkóslóvakíu.
(Frá Þjóðleikhúsinu).
Jóhannes Lárusson
héraðsdómslögmaður
lögfræðiskrifstofa-fasteignasala
Kirkjuhvoli — Sími 13842.