Morgunblaðið - 03.06.1961, Blaðsíða 6
6
MORGVN BL AÐ1Ð
Laugardagur 3. júni 1961
Skömmu eftir hádegið í
fyrradag kom upp eldur í
trésmíðaverkstæði Páls Frið
finnssonar á Oddeyrartanga á
Akureyri. Náði eldurinn að
læsa sig í geymsluhús, sem
stóð nærri verkstæðinu, en
bæði húsin eru járnklædd
timburhús. Vindur var hvass
á norðan, og magnaðist eld-
urinn skjótt, en engu að síður
tókst að bjarga flestum vél
um úr verkstæðinu. Tjónið
mun þó nema hundruðum þús
undum króna. Fréttaritari
Mbl. á Akureyri, St.E.Sig tók
þessa mynd af brunanum.
ömfangsmiklar mæfingar
á Vatnajökli
JÖKLARANNSÓKNARFÉLAG
íslands mun að venju gera út
rannsóknarleiðangur á þessu vori
og verður farið 9. eða 10. júní.
Auk áframhaldandi rannsókna
frá í fyrra og á undanförnum ár-
um, er nú ætlunin að mæla snið
af yfirborði jökulsins milli Gríms
vatna og Kverkfjalla með það
mikilli nákvæmni að samskonar
mælingar síðar geti skorið úr
um hvort hájökullinn er að
þykkna eða þynnast. Einnig er
ætlunin að framkvæma þyngdar
mælingar á sama sniði. Mun Stein
grímur Pálsson, landmælinga-
maður stjórna þeim fyrrnefndu,
en Örn Garðarsson eðlisfræðing
ur væntanlega annast þær síðar
nefndu.
í>ar eð mikill hluti af virkjan
legu vatnsafli á íslandi er í ám,
sem upptök sín eiga í Vatnajökli,
er það mjög þýðingarmikið að
kanna sem bezt „búskap“ þess
jökuls, hversu mikið snjóar þar
og hve mikil bráðnunin er. T.d.
er nauðsynlegt að vita hversu
mikið af núverandi rennsli jökul
Færeyingar kaupa
frönsk fiskiskip
ÞÓRSHÖFN, Færeyjum — Fær-
eyingar hafa pantað 9 nýtízku
fiskiskip úr stáli hjá frönsikum
skipasmíðastöðvum. Verða þau
öll afhent á þessu ári, hin fyrstu
mjög bráðlega. — Reuter
ánna er vegna rýrnunar jöklanna
á aðrennslissvæði þeirra.
í vorferðinni verður haldið á-
fram landmælingum á Gríms-
vatnasvæðinu, hitamælingar gerð
ar í borholum, allt að 30 m. djúp
um, og auk þess gerðar þyngdar
mælingar í Grímsvötnum og ná-
grenni þeirra. Sl. haust voru reist
há járnmöstur norður af Páls-
fjalli og á Grímsvatnasvæðinu
til að mæla snjókomu vetrarins
1960-’61. Verður nú mæld vetrar
ákoma á jöklinum, bæði á möstr
unum tveim og í gryfjum og
breytingar á Grímsvatnasvæðinu
kannaðar að vanda. Mun Sigurð
ur Þórarinsson dvelja við fimmta
mann í Grímsvötnum meðan hin
ir halda til Kverkfjalla. Alls
munu 10 eða 12 menn fara þessa
rannsóknarferð.
Póstur stimplaður á Grímsfjalli.
Tvö undanfarin ár hefur rann
sóknarleiðangurinn á Vatnajökul
flutt póst upp í Grímsvatnaskála
og rekið þar pósthús. Hafa verið
prentuð sérstök númeruð umslög
í því tilefni, og geta menn fengið
sín númer aftur með því að snúa
sér til Magnúsar Jóhannssonar,
útvarpsvirkjameistara á Óðins-
götu 2.
ifar um: KVIKMYNDIR
Hafnarf jarðarbíó:
TRÚ, VON OG TÖFRAR
Dönsk kvikmyndagerð hefur
tekið miklum framförum á síð-
ustu árum, bæði um tækni og
myndatöku, eins og þær mynd-
ir danskar, sem hér hafa sézt
undanfarið, bera augljóst vitni.
— Mynd sú, sem hér er um að
ræða, er tvímælalaust með
betri dönskum kvikmyndum,
ágætlega gerð, vel tekin og
prýðisvel leikin, enda fara þar
með aðalhlutverkin nokkrir af
beztu leikendum Dana, svo sem
frú Bodil Ipsen, Gunnar Laur-
ing, Poul Reichardt, Peter Mal-
berg o. fl. Myndin gerist í Fær-
eyjum og gefur það henni sér-
stakt gildi að þar getur að líta
mikla náttúrufegurð, sæbratta
kletta og gróðursælar og vin-
gjarnlegar eyjar auk þess, sem
áhorfandinn fær þó nokkra
hugmynd um þjóðlíf og háttu
fólksins, sem eyjarnar byggja.
Efni myndarinnar er einnig
skemmtilegt og fullt af góðri
kímni.
Myndin gerist aðallega á
eyju, sem Tröllaeyja nefnist, en
auk þess í Þórshöfn og víðar
þar um slóðir, en vegna eins
atriðis myndarinnar urðu Dan-
ir að „fá lánaða“ hvalveiðistöð-
ina hér í Hvalfirði. — Á Trölla
eyju er aðeins eitt bændabýli
og ræður þar ríkjum með
myndugleika og skörungsskap
Gunnhildur gamla (Bodil Ip-
sen), en aðrir á bænum eru
Jónas bróðir hennar (Gunnar
Lauring), Pétur rnógur hennar
(Peter Malberg), Jakob vinnu-
maður (Jakob Nielsen) og En-
ok sonarsonur gömlu konunnar
(Louis Mieche-Renard). Auk
þess koma þarna mjög við sögu
trésmiðurinn og trúboðinn Rúb-
anus (Poul Reichardt) og
dóttir hans Eva (Birte Bang).
Gunnhildur gamla á þá ósk
heitasta að Enok eignist góða
eiginkonu, sem geti orðið hon-
um stoð og stytta og alið hon-
um börn. En Enok er uppburð-
arlítill unglingur og því tekur
gamla konan þau ráð að fá þá
Jónas og Pétur til þess hvom
í sínu lagi að fara með Enok i
kvonbónarleiðangur. Þessar ferð
ir bera að vísu lítinn árangur,
en margt gerist þó sögulegt
með þeim leiðangursmönnum og
næsta broslegt, en ekki verður
það rakið hér. — Að lokum
leysist þó þetta mikla vanda-
mál öllum til ánægju, og á
Rúbanus trúboði og Eva dóttir
hans mikinn þátt í því....
Ég hafði mikla ánægju af að
sjá þessa ágætu mynd og mæli
því eindregið með henni.
NEW YORK, 1. júní — (Reuter
— NTB) — öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna kemur saman næst
komandi þriðjudag að tilhlutan
fjörutíu Asíu og Afríkuþjóða,
Júgóslavíu og Kýpur, — til að
ræða ástandið í portúgölsku ný-
lendtunni Angóla.
• Leiðinleg mistök
Hátíðasýningin í Þjóðleik-
húsinu tókst því miður ekki
vel. Enda þótt karlakórar, ein
söngvarar og hljómsveit, sem
komu þar fram hafi gert
margt vel varð þessi hljómlist
alltof langdregin og þyngsla-
leg við þetta tækifæri. Út yfir
tók þó hin sögulega sýning,
sem sett var á svið undir lok
athafnarinnar. Hún náði ekki
tökum á neinum. Fólkið sat
þreytt og undrandi undir hin-
um löngu ræðum, sem áttu að
að vena fluttar á Lögbergi.
Þetta voru leiðinleg mistök,
sem þó hefði mátt sjá fyrir.
Sýning óperu eftir Jóthann
Strauss hefði verið betur til
þess fallin að sýna hinum
tignu erlendu gestum, hvers
hið íslenzka þjóðleikhúss og
hljómlistarfól'k er megnugt.
• Lanffholtsvegur —
aðalbraut
Nokkuð oft má lesa í blöð-
unum um umferðarslys á
Langholtsveginum. Þetta er
orðin gífurleg umferðargata.
Hún er breið og greiðfær,
svo þar aka menn yfirleitt
nokkuð hratt. Langholtsveg-
urinn er ekki aðalbraut, en
ég 'hefi orðið var við að marg
ir álíta að svo sé, einfaldlega
af því hve hún er miklu greið
ari og umferð þar meiri en
á hliðargötunum við hana.
Þebta gerir umferðina auðvit-
að ennþá hættulegri. Er ekki
kominn tími til að gera Lang-
holtsveginn að aðalbraut?
• Tók stein úr
götu sinni
Maður nokkur kom að máli
við Velvakanda. Sagðisthann
hafa séð lítið atvik á göbu í
Reykjavík, sem væri til eftir-
breytni. Honum varð litið út
um gluggann hjá sér og sá
stóran stein á miðri götunni,
Bílamir reyndu að sleppa
fnam hjá, hver sem bezt hann
gat, og fóru margir hjá. Mað-
urinn hugsaði sér að skreppa
út og kippa burtu steininum,
þegar hann væri klæddur og
kominn á ról. En þá stanzaði
lítill Volkswagenbíll, bílstjór
inn kom út, velti steininum
úr götu sinni og hélt áfram,
og var ekki sjáanlegt að það
tefði hann að ráði.
Mikil atvinna
r n C’ A*
a ðeyoisriroi
Seyðisfirði, 31. maí.
MJÖG mikil atvinna hefur verið
hér hjá iðnaðarmönnum, sérstak-
lega vélsmiðum, sem unnið hafa
langt fram á kvöld alla daga vik-
unnar. Vélsmiðjan Stál hefur
fjölgað mönnum um nær því
helming, og vinna þar nú rúm-
lega tuttugu menn. Aðalverkefn-
in eru við undirbúning að síldar
móttöku hér og á Eskifirði, þar
sem verið er að endurbæta og
auka báðar þessar síldarverk-
smiðjur. Einnig er Stál að byggja
stóran olíugeymi fyrir Skeljung.
Vélsmiðja Seyðisfjarðar fæst
aðallega við bátaviðgerðir, eina
og undanfarin ár.