Morgunblaðið - 14.06.1961, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 14. júni 1961
MORGUIHBLAÐIÐ
5
Á LEIÐINNI Stykkishólmur -
Grafarnes, nánar tiltekið í
Berserkjahrauni, gefur að líta
einkenrnilegan kofa, hlaðnir
veggir úr hraungrýti og fiski-
gerðri þegar við komum
heim“.
„Hvernig farið þið að elda
ofan í ykkur eða hafið þið
smurt brauð með ykkur og
Hér eru stúlkurnar tvær
í greninu. Þær hcita Dag-
björt Höskuldsdöttir og
Árdís Sigurðardóttir og
eru báðar 14 ára.
trönur notaðar sem raftar en
svo þakið með hraunmosa. Við
nánari eftirgrenslan' kom í
ljós að tvær stúlkur úr skáta-
félaginu Væringjar í Stykkis-
hólmi höfðu byggt þetta greni,
eða Hikgreni eins og þær kalla
kofann.
„Til hvers er þetta greni?“
„Já, sko — félagsforinginn
okkar er svolítið strangur og
segir að við verðum að ljúka
24 tíma útilegu án tjalds og
prímus áður en við fáum að
vera fullgildir meðlimir skáta
félagsins. Hann skipuleggur
25 km leið fyrir okkur, yfir
fen, fúapytti og fjöll og á leið-
inni eigum við að gera hitt og
þetta eins og til dæmis taka
staðarákvörðun frá þessum
topp til hins, athuga dýralíf
og safna steintegundum, halda
síðan fullkomna dagbók yfir
ferðina og skila henni svo full
kaffi á kaffi á. geymi?“
„Nei, ekki aldeilis, matar-
pakkinn inniheldur 2 kartöfl-
ur á mann, 2 egg, einn stóran
kjötbita (hráann), tvo súkku-
laðisrenninga, eina appelsínu
eða epli og svo rúsínur til að
fylla upp í öskjuna“.
„Hvernig farið þið þá að
elda þegar þið hafið ekki
prímus?“
„Við kveikýum eld úr því
timbri sem við finnum, síð-
an látum við myndast glóð,
náum svo í dýjamosa, blautan
auðvitað og leggjum yfir alla
glóðina nema blátoppinn, síð-
an stingum við eggjunum og
kartöflunum innundir mos-
ann að glóðinni til suðu en
kjötið steikjum við annað
hvort á hellu sem við leggjum
á toppinn eða á berum glóð-
unum".
„Hverjir byggðu þá húsið,
var það tilbúið þegar þið
komuð að því?“
„Nei, við urðum að byggja I
það sjálfar. Þegar við vorum
búnar að ljúka 15 km göirgu og
liðið var á kvöldið komum
við á fyrirfram ákveðinn stað
en þar beið okkar trönubúnki.
Byggingin gekk prýðilega þó
að við hefðum aldrei gert
slíkt greni fyrr“.
„Svo ég spyrji ykkur einn-
ar spurningar enn, var ekki
kalt að sofa í þessum kofa
þegar einn vegginn vantaði?"
„Nei, ekki aldeilis. Við
byggðum skerm úr trönum
fyrir framan grenið sem kast
aði ylnum af eldinum inn til
okkar og var okkur funheitt
þó að úti hafi verið kalsi og
rigningarsuddi".
Það var reikningstími og
kennslukonan spurði drenginn:
— Hvað eru 8 plús 4?
— 15! var hið skjóta svar.
— En 12 plús 7?
— 28!
— Heyrðu, drengur minn,
sagði kennslukonan undrandi.
Hvað starfar faðir þinn eigin-
lega?
— Hann er þjónn, fröken!
Flækingur kom fyrir rétt og
dómarinn sagði við hann:
—.. Að þér skuluð ekki skamm
ast yðar! Þessi elskulega kona
gaf yður stóran kökubita — og
sv.o kastið þér steini í gegnum
gluggann hjá henni.
— Hr. dómari, útskýrði sá á-
kærði afsakandi, það var ekki
steinn. Það var kakan.
— Þér verðið að þvo yður og
skipta um föt, áður en þér
hreinsið reykháfinn hjá
okkur!
er buið að reisa hina nýju vöggustofu Thorvald-
pensfélagsins við Sunnutorg. Hún á að rúma 32 börn og hafa
Thorvaldsenskonurnar fullan hug á að reyna að hafa hana
«11 seinni hluta næsta vetrar.
Ea byggingin er dýr. Þær hafa efnt til happdrættis og
Lokkur leikur hinn dökki
laus, og hangir á vanga,
Gott á hinn göngulétti,
glaður í rósum baðar.
Jfappi eg hrósaði, ef leppur
haddar væri og þíns, kæra;
för þá eg marga færi
frjáls um kinnar og hálsinn.
Björn Halldórsson.
Níræð er í dag, Kristbjörg
Sveinsdóttir, Langholtsvegi 75.
Hún var fædd að Kárastöðum í
Þingvallasveit.
Trúin eignaðíst aldrei neinn óvin
meðal mannanna, ef hún væri ekki
óvinur lasta þeirra. — Massillon.
Vitur maður hugsar sig um, áður en
hann talar. Heimskinginn talar og velt-
ir því næst fyrir sér, livað hann hafi
sagt. — Franskt.
Himinhár turninn hófst með einni
moldarreku. Þúsund mílna ferð byrj-
aði með einu skrefi. — Lao Tze.
Múgnum er alls ekki nauðsynlegt að
vita, um hvað hann er að öskra.
ftkorað á bæjarbúa að duga nú vel og: kaupa happdrættis-
■niða. Vinningurinn er Volkswagenbifreið og verður dregið
á kvennadaginn, 19. júnL
— C. Dickens.
Til þess að geta ráðið yfir náttúr-
unni, verðum vér að hlýðnast henni.
— Bacon.
Barnastóll til sölu. — Uppl. í síma 19259. Gótt herbergi til leigu strax á Hagamel 23 (1. hæð). Uppl. þar og í síma 23805.
Ung hjón með 1 barn óska að komast á gott sveitaheimili. Tilboð send- ist blaðinu sem fyrst, merkt: „Vön — 1526“. 2ja—3ja herb. íbúð óskast. Reglusemi og góðri umgengni heitið. Fátt í heimili. Uppl. í síma 22546 kl. 4—7.
Sængur Endurnýjum gömulu sæng urnar. Eigum dún og fiður helt ver. Seljum æðardúns- og gæsadúns-sængur. Fiðurhreinsunin, Kirkju- teig 29. — Sími 33301. Stillansefni Til sölu stillansefni frá 3ja hæða húsi. Selst ódýrt. — Uppl. í síma 35050.
Smurt brauð Snittur, brauðtertur. Af- greiðum með litlum fyrir- vara. Smurbrauðstofa Vesturbæjar Hjarðarhaga 47 Sími 16311
Góð Rixe skellinaðra * ’55 til sölu að Hringbraut 84, 1. hæð til hægri.
Til sölu á tækifærisverði 2 sölu- tjöld ásam'. afgreiðsludisk- um og Kosangastækjum. — Uppl. frá 9—6 í síma 23964, á kvöldin 33727. Stúlka eða eldri kona óskast á rólegt heimili hjá eldri hjónum. Gotrt hús- pláss. Sér herbergi. Tilboð óskast sent blaðinu merkt: „Hlíðar — 1415“.
A T H U G I Ð að borið saman 'ð útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu, en öðrum blöðum. — 2 rafmagnshelluofnar óskast til kaups. Uppl. 1 síma 10615 kl. 9—6.
íbúð til sölu
Til sölu er mjög skemmtileg íbúð á 2. hæð í vestur
enda á, sambýlishúsi í Háaleitishverfi. Á hæðinni eru
4 herbergi, eldhús, bað o. fl. og aúk þess stórt horn-
herbergi í kjallara. Stærð íbúðarinnar er um 120
ferm. íbúðin er tilbúin undir tréverk. Sameign að
mestu fullgerð.
ÁRNI STEFÁNSSON, hrl.,
Málflutnlngur — Fasteignasala
Suðurgötu 4 — Sími: 14314.
Vana afgreiðslumenn
vantar
í matvörubúð. Umsóknir á^amt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist afgr. Mbl. fyrir 16.
þ.m. merkt: „1513“.
Verzlunarstjóra vantar
að matvörubúð. Umsóknir ásamt upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf sendist afgr. Mbl. fyrir
16. þ.m. merkt: „1524“.
Tilkynning
Viðskiptamenn okkar eru vinsamlegast beðnir að
athuga, að skrifstofan er flutt á Ránargötu 19,1. hæð.
F J ÖLRITUN ARSTOF A
DANlELS HALLDÓRSSONAR
Stúlku vantar
til framreiðslustarfa við veitingahúsið Hvol, Hvol-
svelli. — Upplýsingar í síma 44, Hvolsvelli.