Morgunblaðið - 25.06.1961, Side 6
6
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 25. jfiní 1961'
Suzie Wong —
Nancy Kwan
Metsölubók enska rithöfund
arins Riehard Masons um
Suzie Wong (sagan birtist
sem framhaldssaga í Morg-
unblaðinu árið 1958) hefur nú
verið kvikmynduð og kvik-
myndin „slegið í gegn“ þar
sem hún hefur verið sýnd.
Með kvikmyndinni fæddist
einnig ný stjarna — Nancy
Kwan, sem leikur titilhlut-
verkið.
Nancy Kwan er lýst þannig,
að hún sé lítil og grönn með
sítt hrafnsvart hár, og að aust
urlenzkt uppeldi hennar eigi
drjúgan þátt í persónutöfrum
hennar. í safnræðum hleypur
hún t. d. úr einu efninu í
annað án þess að bregða svip
eða minnstu raddbreytinga.
★
Nancy Kwan er hálf-ensk
og hálf-kínversk. Móðir henn-
ar var ensk og er látin fyrir
nokkrum árum. Faðir hennar
er arkitekt og giftur aftur.
Nancy ólst upp í Hongkong til
13 ára aldurs, en þá var hún
send í skóla í Englandi. Jafn-
framt hvatti móðir hennar
hana til að leggja stund á
ballett-dans. Eftir lát hennar
fór Nancy til New York, og
og þetta um nokkurt skeið var
eftir að hafa unnið við hitt
henni boðið að verða staðgeng
ill France Nuyen, sem þá lék
Suzie Wong á Broadway. En
Nancy Kwan fékk ekki oft að
koma fram á leiksviðinu. í>að
var fyrst, þegar France Nuyen
skrapp til Hongkong til að
Nancy Kwan sem Suzie.
leika í áður umtöluðu kvik-
mynd, að hún fékk tækifæri
til að sýna hvað í henni bjó.
Og skömmu seinna fékk hún
upphringingu frá Hongkong.
★
„Framleiðandi kvikmyndar-
innar „Heimur Suzie Wong“,
Ray Stark, bað mig um að
taka við hlutverki France
Nuyens," skýrði Nancy frá
síðar. „France varð skyndi-
lega veik, ekki var hægt að
fresta upptökunum og fleiri
milljón krónur voru í húfi.
Tilboðið var þess utan afar
freistandi, en ég tók öllu með
stakri ró. Ég hugsa nefniLega
aldrei fyrir morgundeginum."
Nancy Kwan talar ensku
með austurlenzkum hreim.
„Þegar ég kom til Englands
fór mér að förlast í kínversk-
unni,“ segir hún, ,,og ég hugsa
ekki lengur á því máli. Ég
skrifa eingöngu ensku, því
kínverskan er svo flókin. Og
ég geng alltaf í evrópskum föt
um; fötum; fólk glápir of mik
ið ef ég sýni mig opinberlega
í kínverskum klæðnaði, svo ég
nota hann bara heima við.“
★
Ray Stark hefur gert 7 ára
samning við Nancy Kwan.
Næsta kvikmynd verður
„Kowloon" og verður mótleik-
ari hennar Rock Hudson. Jean
Negulesco, sem stjómaði
„Heimur * Suzie Wong“ hefur
ságt um hina nýju leikkonu:
„Hún er sú tegund kvenna,
sem aðra stundina lítur út fyr
ir að vera ofsakát; nokkrum
mínútum síðar speglast í
augum hennar austurlenzkur
alvöruþungi og speki.“
Allir urðu agndofa, þegar
kvikmyndastjarnan Shirley
MacLain bar fram þá ósk, að
í næstu kvikmynd yrði hún
látin leika ófríðan og klunna-
legan kvenmann. ,,Ég vil fá úr
því skorið,“ segir hún, „hvort
ég á fótleggjum mínum eða
hæfileikum frægð mína að
þakka.“
Shirley var fyrst kunn fyrir
leik sinn í kvikmyndinni „The
Trouble with Harry“, en frægð
hlaut hún fyrir aðalhlutverk-
ið í TODD-AO myndinni „Can
Can“. Meðfylgjandi myndir
sýna Shirley í „Can-Can“ (til
hægri) og til vinstri í hlut-
verki ófríðu kennslukonunnar
í kvikmyndinni „Kvensniftin“
en upptaka þeirrar myndar
stendur nú yfir.
Norrænn
byggingadagur
NÆSTÁ ráðstefna samtakanna
Norrænn byggingardagur (NBD)
hefst í Kaupmannahöfn 18. sept.
n.k. Verkefni þeirrar ráðstefnu
verður „Byggeriets industrialiser
ing“, og mun prófessor, dr. B. J.
Ramböll halda fyrirlestur um
það efni, en prófessor Sune Lund
ström, arkitekt, mun halda fyrir
lestur um „Arkitektur og indu-
strialisering". Þetta verkefni ráð
stefnunnar verður tekið til um-
ræðu á fundum með þátttöku
atlra Norðurlandanna. Er verk-
efninu skipt niður í 7 þætti og
er mönnum frjáls þátttaka í
þeim. Seinni hluti dagana verður
notaður til kynningar á ýmsum
byggingarframkvæmdum, og þá
aðallega byggingum sem að ein-
hverju eða öllu leyti eru unnar í
verksmiðjum.
Ýmislegt verður og til skemmt
nnar fyrir þátttakendur mótsins,
svo sem sýning Konunglega leik-
hússins, heimsókn í ráðhús borg-
arinnar og kvöldsamkomur með
hinum ýmsu fagfélögum.
Gert er ráð fyrir að á mótinu
verði um 1800 manns, er skiptast
á Norðurlöndin öll, og takmark
aður fjöldi frá hverju þeirxa.
Vegna gistingar og hópferðalaga
eftir mótið, er þeim, sem áhuga
hafa, ráðlagt að kynna sér mögu
leika til þátttöku hið fyrsta og
eigi seinna en 10. júlí n.k.
• Með hvítan staf
og gult armbindi
Um daginn hitti ég á Snorra
brautinni mann með hvítan
starf og gult bindi með svört-
um deplum um handlegginn.
Þarna var á ferðinni Björn
Þorgrímsson, sonur Þorgríms
heitins Þórðarsonar, sem lengi
var héraðslæknir í Keflavík,
en Björn kannast margir Reyk
víkingar við síðan hann var
í 32 ár á skrifstofunni í bíla-
verzlun Páls Stefánssonar.
Fyrir 6 árum missti Björn
síðustu sjónarskímuna, en
nokkur aðdragandi var að því.
Þeim sem sjáandi eru, finnst
að það hljóti að vera nærri
óbærilegt að missa sjónina, og
þar sem ég sá Björn koma
þarna hressan í bragði og
svona sjálfbjarga, datt mér í
hug að spyrja hán-n:
* Hvernig er að hætta
jaiðjsjá?
Fyrst í stað fannst mér það
þungbært Og illbærilegt að
eiga aldrei framar að fá að
sjá neitt. En þegar ég fór að
bera mitt hlutskipti saman við
þeirra, sem aldrei höfðu haft
af sjóninni að segja, þá fór
ég að sætta mig við þetta. Ég
var örðinn 69 ára gamall, þeg-
ar ég missti alveg sjónina fyr-
ir 5 árum. Viðhorfið er annað
hjá gömlum mönnum. Maður
er fæddur í þessa tilveru, og
getur ekki búizt við öðru en
að eitthvað kunni að blása á
móti og þegar það kemur þýð-
ir ekki annað en að sætta sig
við það. Líffærin gefa sig á
langri ævi, eins og annað. Þau
eru reyndar aðeins fengin að
láni. Og einn góðan veðurdag
verður "maður hvort sem er
að segja „Takk fyrir lánið“!
Ef maður tryði því að þá væri
öllu lokið væri lífið ekki mik-
ils virði.
Ég fer auðvitað á mis við
ýmislegt. Verst þykir mér að
sjá ekki gróðurinn að vorinu,
því ég hefi alltaf frá barn-
æsku elskað allt líf. J!n ég
finn blómailminn og heyri
fuglasönginn, og þá kemst ég
í samband við náttúruna. Þá
er ómetanlegt að eiga myndir,
sem aldrei fara úr huganum,
eins Og ég á landslagið í Horna
firðinum, þar sem pabbi var
læknir í 20 ár og ég er alinn
upp. Þar er svipmikil og tign-
arleg náttúra sem hefur upp
á allt að bjóða jökla og blá
fjöllin, allar eyjarnar og þenn
an fallega fjörð. Þetta blasir
alltaf. við mér. Ég hefi alltaf
verið minnugur, og nú þegar
ég get ekki bætt við mig með
lestri, er gott að geta ryfjað
upp.
Satt að segja veit ég ekki
hvort ég vildi heldur missa
sjónina eða heyrnina, ef annað
þyrfti að fara. Ég hefi alltaf
notið þess að hlusta á tónlist,
helzt á verk eftir gömlu
klassísku höfundana, og ég
held að ég vildi sízt af öllu
fara á mis við það.
• Bjartsýni í myrkrinu
Annars bjarga ég mér ágæt
lega, sagði Björn. Ég dunda
við að skrifa á ritvél bréf til
kunningja Og vina hér og er-
lendis. Áður kunni ég aðein»
að nota þrjá fingur. En eftir
að ég varð blindur hjálpaði
frænka mín mér að læra
fingrasetninguna og nú eru
held ég ekki fleiri villur hjá
mér en öðrum vélriturum. Og
nú hefi ég nægan tima til a8
skrifa öllum mínum góðu viu
um. Ég hefi alltaf verið held-
ur glaðlyndur og nýt enn lífs-
ins.
Ég kemst um allt hjálpar-
laust innanhúss og í haust
hugsaði ég svo með mér: —«
Jæja, drengur minn, nú skaltu
fara að fara út einn! Og svo
lagði ég af stað með hvítan
staf. Nú skal ég segja þér
hvernig ég fer að. Ég fer út
úr húsinu heima hjá mér á
Grettisgötu 67. Ég byrja á því
að telja skrefin niður að næsta
símastaur og fylgi gangstétt.
arbrúninni með stafnum. Svo
tel ég staurana. Ég hefi gefið
þeim nöfn og tala til þessara
vina minna. Ég fer niður á
Snorrabrautina, út á Lauga.
veg, upp Barónsstíg og 38
skref niður að húsinu mínu
frá horninu, en ekki yfir götn
hjálparlaust. Á þessu svæði
fer ég í búðir og veit hva
mörg skref eru frá ákveðnum
staurum að búðardyrum, en
þá er um að gera að taka jöfn
skref. Ungir og gamlir á göt-
unni bjóða mér aðstoð og ég
finn hlýju frá fólkinu. Kraklc
arnir vara mig við bílum, sem
hefur verið lagt ólöglega upp
á gangstéttina, og þetja geng-
ur allt ágætlega og er hress-
andi Og uppörvandL
Ég á líka yndislega konu,
sem er mér allt í lífinu. Og
þegar svona er komið, er það
ómetanlegt að finna hlýju og
gott innræti allra sinna vina,
Mér þótti gaman að hitta
þennan hressa öldung með
bjartsýnar skoðanir á tilver-
unni, þrátt fyrir sjónleysið, og
datt í hug að aðrir hefðu
einnig gott og gaman af að
kynnast honum svolítið. -