Morgunblaðið - 25.06.1961, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 25. júni 1961 1
Skyndibrúðkaup
Renée Shann:
— Mér finnst líka sjálfri, að
þetta hljóti að vera einhver mis-
skilningur, svaraði Júlía.
— Því miður er það víst ekki,
sagði John. Og í hernum dugar
ekki annað en hlýðnast skipun-
um. Allar konurnar eru önnum
kafnar að ferðbúa sig.
— Ég get nú verið fljót að því,
svaraði Júlía dapurlega. Hún
sneri sér að Robin. — Hvað
finnst þér ég ætti að gera elsk-
an? Brúðarkjóllinn minn er í
sérstakri tösku, svo að það er
fljótleg. að ná honum upp. Eða
á ég að vera eins og ég stend?
Robin flýtti sér að svara:
— Nei, við skulum hafa þetta
eins og við vorum búin að á-
kveða, bæði hjónavígsluna og
boðið á eftir... .það verður ekki
svo fjölmennt, hvort sem er. Ég
sagði gestunum, að ég væri viss
um, að við breyttum engu frá því
sem ákveðið var.
Nan leit á úrið sitt.
— Ef Júlía ætlar að hafa fata-
skipti er bezt að bíða ekki með
það. Tíminn líður fljótt.
Þau fóru síðan í lyftunni og
upp í herbergið, sem 'Nan hafði
leigt. Júlía tók upp kjólinn sinn.
Hann var úr fínum kniplingum
og hún ætlaði að nota slæðuna,
sem bæði móðir hennar og amma
höfðu notað. Nan hristi kjólinn
úr brotunum og dáðist að hon-
um.
— Það er heppni, að hann skuli
vera úr kniplingum því að þá
þarf ekki að strauja hann. Hún
hristi höfuðið. — Það er verst
að þurfa að flýta þessu svona
mikið og þá getið þið ekki einu
sinni farið í brúðkaupsferð.
Júlía var að fara úr kjólnum
sínum. Henni fannst þetta vægt
til orða tekið. Sjálfri fannst
henni það vera örlagadómur.
— Er langt til kirkjunnar?
spurði hún.
— Nei, svo sem hálf míla. Og
John ætlar að verða svaramaður-
inn þinn. Hún leit á Júlíu. — Það
er leiðinlegt að þú skulir ekki
geta haft neitt af þínu fólki við-
statt.
— Fólkið mitt hefði víst gjarna
viljað koma, svaraði Júlía bros-
andi. — En svo finnst mér nú
vinir Robins vera mínir vinir.
Þú ert svo góð við mig.
— Það er ekki neitt. Ég hafði
ætlað mér að gera svo miklu
meira fyrir þig.
Júlía þvoði sér og snyrti á sér
andlitið. í þessu heita loftslagi
þurfti hún ekki mikla málningu.
Hún stóð og horfði á sjálfa sig í
speglinum, þegar hún var loks-
ins tilbúin og reyndi, þó ekki
væri nema snöggvast að gleyma
ástandinu eins og það var. Allt
gekk eins og þau höfðu áætlað.
Hjónavígslan mundi fara fram,
og boðið, og svo var að hafa fata-
skipti aftur og fara út í bílinn,
sem flytti þau í brúðkaupsferð-
ina þeirra. Hjartað sló örar og
hugmyndaflug hennar tók sprett.
Þau voru saman í gistihúsinu,
sem Robin hafði talað um í bréf-
unnum sínum. Úr herberginu var
útsýni yfir lygnt vatn Nílarfljóts
ins. Og allt kring um þau var
eyðimörkin. Nú var nótt og gull-
inn máninn skein á purpuralit-
um himninum. En svo heyrði
hún röddina í Nan: — Þú ert
eitthvað utan við þig!
— Já, ég er langt í burtu. Ég
er í brúðkaupsferðinni minni.
— Mér datt það í hug. Nan
lagði höndina blíðlega á arm
Júlíu, og alvara stundarinnar
fékk þær til að ímynda sér, að
þær hefðu þekkzt lengi, í stað
þess að þær voru að hittast í
fyrsta sinn á ævinni. — Þetta
verður ekki nema frestur, Júlía
mín.
— Ég veit. En það er nógu leið-
inlegt samt, finnst þér ekki?
— Jú hræðilega. Jæja, við
verðum víst að fara að koma
okkur af stað. Klukkan er rétt
að verða tólf.
Þær gengu svo saman niður
stigann. Robin var þegar farinn
til kirkjunnar með svaramanni
sínum. Nan hafði látið eina vin-
konu sína bíða eftir þeim og nú
fóru þær út í bílinn, ásamt John.
Júlía horfði á John Wentworth
við hlið sér og sagði feimnislega
— Ég var að segja konunni
þinni, hvað ég er hrifin af þess-
um vingjarnlegu móttökum hjá
ykkur.
— Vertu ekki með þessa vit-
leysu. Við höfum ekkert gert.
— Víst hafið þið það. Og ég
er ykkur afskaplega þakklát.
Bíllinn ók nú gegn um þétt-
skipaðar göturnar, og fólk gægð-
ist forvitnislega inn um. glugg-
ana til þeirra. í öllum löndum
vekur brúður á leið til hjóna-
vígslunnar eftirtekt, en í þessu
landi og á þessum tímum alveg
óvenjumikla eftirtekt. Allir
vissu, hvernig ástatt var í land-
inu. Hún gat ekki orðið brúður
nema fáar klukkustundir, ef hún
var að giftast hermanni. Bíllinn
stanzaði við kirkjuna og John
hjálpaði Júlíu út, og um leið
heyrðist í orgelinu inni í kirkj-
unni. Júlía sá ógreinilega mikinn
fjölda andlita, er hún gekk inn
kirkjugólfið við hliðina á John.
Og svo sá hún Robin, háan og
glæsilegan í hitabeltisbúningi er
hann sneri sér við og leit á hana.
Augu þeirra mættust er hún nálg
aðist hann. Hún settist við hlið
hans og fann hönd hans grípa
hennar hönd.
Síðan hófst athöfnin. Hún
heyrið prestinn hafa yfir hinn
hátíðlega hjónavígsluformála. Og
þegar þau svöruðu prestinum,
var rödd Robins skær og greini-
leg og hennar rödd skjálftalaus.
Og svo söng söfnuðurinn brúð-
kaupssálminn, og hjarta Júlíu
var svo uppfyllt af sælutilfinn-
ingu, að jafnvel meðvitundin
um hinn bráða skilnað þeirra gat
ekki spillt henni.
Og svo var athöfninni loksins
lokið. Allskonar fólk hópaðist
kring um þau og óskuðu þeim til
hamingju. Svo voru þau skrásett
í bækur kirkjunnar og brúð-
kaupsmarsinn glumdi um alla
kirkjuna er hún gekk við arm
Robins út í sólskinið.
Bílstjórinn hélt opinni hurð-
inni fyrir þau.
Þau settust hlið við hlið og
héldust í hendur, og voru nú aft-
ur ein um stundarkorn, á leið-
inni til gistihússins. Robin hafði
kysst hana í skrúðhúsnu, og
þrýst henni fast að sér, eins og
hann vildi aldrei sleppa henni.
Og hún þráði þetta sama nú. En
gluggarnir á bílnum voru stórir
og mannfjöldinn glápandi fyrir
utan. Þau voru tveir einstakling-
ar í mannhafi sem virtist ætla
að færa þau í kaf, og þau gátu
því ekki verið ein, hversu mjög
sem þau þráðu það.
— Ég vildi bara, að ég hefði
sleppt þessu boði, tautaði Robin.
— Æ, elskan mín, þegar við höf-
i^m ekki meiri tíma en þetta,
hversvegna þurfum við þá að
eyða honum með öðru fólki?
Hún brosti og þrýsti hönd hans
fastar. — Kannske er það nú
samt réttast. Við vorum búin að
ákveða þetta, og vinir þínir —
sem eru líka mínir vinir — vilja
óska okkur til hamingju.
Robin sneri sér að henni. —
Það er svo margt, sem mig lang-
aði til að segja þér. Og svo höf-
um við engan tíma til þess.
— Ég veit það, elskari mín. Ég
get varla til þess hugsað.
— En þetta er nú bara frestur.
— Þetta sagði Nan líka við
mig, þegar ég var að hafa fa-ta-
skipti.
— Mig langar að segja þér,
hvað þú ert falleg. Ég er feginn,
að þú skyldir nú nota brúðar-
kjólinn þinn, þrátt fyrir allt. Ég
er viss um, að engin brúður hef-
ur nokkurntíma verið eins falleg
og þú ert núna.
— Ó, Robin . . .
Þau horfðu hvort á annað án
þess að geta haft augun af and-
liti hvors annars. Það var rétt
eins og þau vildu leggja mynd-
ina á minnið, til að geyma hana
um alla eilífð. Júlía hugsaði með
sér: Þegar ég er komin heim aft-
ur, get ég alltaf munað, hvernig
hann lítur út. Augnatillitið hans
og röddina, þegar hann sagði . . .
— Ó, ég elska þig svo heitt,
Júlía, sagði hann.
— Og ég elska þig. Mig langaði
allt í einu svo mikið að segja þér
það, meðan við vorum í kirkj-
unni. Hvað heldurðu, að fólkið
Næsta dag fer Markús og hegg
ur nokkrar birkihrísliur Seinna í
verkismiðjunni:
— Ég kom með birkið Jessie.
Það er hér fyrir uban.
— Ágætt .... Allí er tilbúið
Seint næsta dag:
— Sælgæti^stengumar verða
tilbúnar strax og húðin þornar
.... Við getum bragðað þær
þegar þær eru orðnar þurrar.
— Ég vona það bezta!
hefði hugsað, hefði það komið
með svarinu mínu?
— O, það hefði auðvitað
hrærzt . . .
— Já, en þetta hefði nú samt
verið óviðeigandi.
ailltvarpiö
Sunnudagur 25. júní
9:30 Létt morgunmúsík. — 9:00 Frétt
ir. — 9:10 Morguntónleikar: —
(10:10 Veðurfregnir).
a) Konsert í emoll fyrir knéfiðlu
og strengjasveit eftir Vivaldl
(Pierre Fournier og Kammer
hljómsveitin í Stuttgart leika;
Karl Míinchinger stj.).
b) Fimm píanósónötur eftir
Scarlatti (Emil Gilels leikur).
c) Beniamino Gigli syngur ar-
íur frá 17. og 18. öld.
10:30 Prestvígsla í Dómkirkjunni:
Biskup íslands, herra Sigurbjörn
Einarsson, vígir Pórarinn í>órar
insson cand. theol. til Vatns-
endaprestakalls í Suður-Þingeyj
arprófastsdæmi. Séra Páll Þor-
leifsson prófastur á SkinnastaS
lýsir vígslu; séra Öskar J. t*or
láksson þjónar fyrir altari. —•
Vígsluvottar auk þeirra: Séra
Sveinn Víkingur og séra Friðrik
A. Friðriksson prófastur á Húsa
vík. Hinn nývígði prestur prédik
ar. Organisti: Dr. Páll ísólfsson.
12:15 Hádegisútvarp.
14:00 Miðdegistónleikar:
a) Fagottkonsert 1 B-dúr (K191)
eftir Mozart (Leo Carmak og
i Pro Musica hljómsveitin í
Vínarborg leika; Leopold
Emmer stjórnar).
b) Drengjakór Vínarborgar syng
ur; Kuhbancher stj.).
c) „Jónsmessunæturdraumur**
eftir Mendelssohn (Fílharm-
oníuhljómsveit Berlínar leik
ur; Rita Streich, Diana Eu-
strati og RIAS-kammerkórinn
syngja með; Ferenc Fricsay
^stjórnar).
15:30 Sunnudagslögin. — (16:30 Veður
fregnir).
17:00 Færeysk guðsþjónusta (Hljóðrit
uð í Þórshöfn).
17:30 Barnatími (Skeggi Asbjarnarson
kennari):
a) Hugrún flytur þátt barnanna
um daginn og vegirín og ræð-
ir við 8 ára dreng.
b) Oskar Halldórsson les kvæðið
„Fjallafálu" eftir Pétur Bein-
teinsson.
c) Svala Hannesdóttir les ævln-
týrið .Jónsmessunæturdraum*.
18:30 Miðaftantónleikar:
Tékkneskar hljómsveitir leika
vinsæl hljómsveitarlög.
19:00 Tilk. — 19:20 Veðurfr. — t
19:30 Fréttir.
20:00 Tónleikar f útvarpssal: Pavet
Serebrajakov frá Leningrad leik
ur á píanó:
a) ,,Vögguljóð“ eftir Nadeshdu
Simonjönu.
b) ,,Grímnaglettur“ eftir SergeJ
Prokofjeff.
e) „Saknaðarljóð* eftir SergeJ
Prokofjeff.
d) „Rómansa" op. 5 eftir Pjotr
Tjaikovsky.
e) Etýða op. 8 nr. 12 eftir Alex
ander Skrjabín.
20:20 Erindi: Lögfræðingar og bók-
menntir — ásamt lestri úr ljóða
bók Einars Ásmundssonar hæsta
réttalögmanns (Dr. Steingrímur
J. Þorsteinsson prófessor).
21:00 Kvöldtónleikar:
a) Erich Kunz syngur óperuarf
ur eftir Lortzing.
b) Balletttónlist úr óperunnl
„Faust" eftir Gounod (Fíl-
harmoníuhljómsveitin í Múa-
chen; Fritz Lehmann stj.).
21:35 Fuglar himinsins; fyrsta erindlj
Björn Guðbrandsson læknir tal
ar um örninn.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:05 Danslög. — 23:30 Dagskrárlok.
Mánudagur 26. júní
08:00 Morgunútvarp (Bæn: Séra Ing
ólfur Astmarsson. — 8:05 Tónleik
ar — 8:30 Fréttir 8:35 Tónleikar
10:10 Veðurfregnir).
12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. «■*
12:25 Fréttir og tilk.).
12:55 ,,Við vinnuna": Tónleikar.
15:00 Miðdegisútvarp (Fréttir. — 15:05
Tónleikar.-— 16:00 Fréttir og til
kynningar. — 16:05 Tónleikar. —*
16:30 Veðurfregnir).
18:30 Tónleikar: Lög úr kvikmyndum,
8:55 Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr.
19:30 Fréttir.
20:00 Um daginn og veginn (Thorolf
Smith fréttamaður).
20:20 Einsöngur: Sigurður Skagfield
syngur.
20:35 Krabbameinsfélag íslands 10 áraj
Níels Dungal prófessor og Bjarnl
Bjarnason tala.
21:00 Nútímatónlist:
Sinfónískir dansar xym mjóm-
sveit eftir Hindemith (Fílharm
oníuhljómsveit Berlínar leikur;
höf. stjórnar).
21:30 Utvarpssagan: „Vítahringur" eft
Sigud Hoel; XIV. (Arnheiður Sig
urðardóttir).
22:00 Fréttir og veðurfr. j
22:10 Um fiskinn (Stefán Jónsson). |
22:25 Kammertónleikar:
Strenfejasextett nr. 1 í B-dúr op.
18 eftir Brahms (Isaac Setrn
og Alexander Schneider leika á
fiðlu, Milton Katims og Thom
as á víólu, og Pablo Casals og
Madeline Foley á selló).
22 iAO naookri rlnk