Morgunblaðið - 25.06.1961, Síða 24
Reykjavíkurbréf
Sjá bls. 13.
Hefur leiöangurinn
fundið klukkukopar
Indíafarsins?
LJÓSMYNDARI vl« norska.
stórblaðið Aftenposten, sem)
hér var á vegum blaðsins erj
Ólafur Noregskonungur heim-1
sótti landið, Einar Ingvaldsen,
að nafni sendi Mbl. þessa
mynd í gær, en hún er af kór
Reykjavíkurlögreglunnar, sem
nú er á söngmóti í Osló, en
i því taka þátt 2000 lögregiu-
þjónar frá Norðurlöndum. Er
myndin tekin af Lögreglukórn
um við Ráðhúsið í Osló. Um
leið og þið birtið þessa mynd,
segir Ingvaldsen ljósmyndari,
skilið þið kveðju minni til
þeirra lögregluþjóna sem sýnt
hafa mér margvísiega hjálp
og fyrirgreiðslu í starfi, í sam-
bandi við konungsheimsókn-
ina og í önnur skipti á undan-
förnum árum, er ég hefi verið
sendur til Reykjavíkur á veg-
um Aftenposten.
ila, í því augnamiði að bæta
kjör launþega og auka afköst.
Munu aðilar síðar koma sér
saman um reglur um, hvernig
unnið verði að því að hrinda
þessu í framkvæmd. Loks fylgir
samningunum sérstök yfirlýs*
ing um, að verkakonur í sam-
felldri vinnu skuli fá greitt fast
vikukaup og skulu aðilar koma
sér saman um reglur um fram-
kvæmd þessa atriðis.
Samkomulag þetta er háð sam
þykki félagsfunda verkakvenna
félaganna og framkvæmdanefnd
ar Vinnuveitendasambandsins.
Kirkjubæjarklaustri, 24. juní.
BERGUR LÁRUSSON og aðrir
leiðangursmenn í Gullleitarleið-
angrinum komu hingað að
Klaustri í nótt eftir fimm daga
dvöl á Skeiðarársandi. Létu þeir
hið bezta yfir förinni, enda höfðu
þeii allan tímann ágætt veður,
sólskinsblíðu og næstum logn. í
morgun hafði ég tal af leiðang-
ursstjóranum, Bergi Lárussyni,
og fer hér á eftir hið helzta úr
því samtali.
Sfúlkurnar
starfa í
Stokk-
hólmi
ÞORLEIFUR Thorlacius,
deildastjóri í Stjórnarráðinu
hringdi til- blaðsins í gær
vegna fregnar um tvær stúlk-
ur, er hefðu farið til Ham-
borgar í fylgd með Araba, sem
að sögn Dagens Nyheter í
Stokkhólmi, var á þriðjudag
dæmdur í átta mánaða hegn-
ingarvinnu fyrir ávísanaföls-
un.
Sagði Þorleifur, að utanrík-
isráðuneytinu hefði þá fyrir
nokkrum mínútum borizt
skeyti frá Sendiráði íslands í
Stokkhólmi, þar sem segir, að
hinar tvær íslenzku stúlkur
hafi farið með nefndum manni
til Hamborgar 13. maí sl., en
komið aftur til Stokkhólms 20.
maí. Segir í skeytinu, að Sendi
ráðið hafi haft samband við
stúlkurnar sem báðar séu
starfandi í Stokkhólmi.
30,000 tn.
Itaðar
Á einum stað á sandleir-
unum, um það bil 1,5 km.
vestan við utasta (vestasta)
útfall Skeiðarár, 600 metra
frá sjó, sýndi mælitæki leið-
angursins mikið magn af
málmi niðri í sandinum. Virt
ist það vera á ca. 75 metra
löngu svæði. Ekki gefur mæl
irinn til kynna hve djúpt
þessi málmur er í jörðu.
Staður þessi kemur mjög vél
heim við sagnir um strandstað
skipsins, Indiafarsins Het
Waapen van Amsterdam, sem
strandaði þarná 19. september
1667. Farmur þess var 43 gull-
stengur að dýrleika og það hafði
„item klukkukopar fyrir barlest",
— segir Vatnsfjarðarannáll.
Sjálfsagt hefur allur koparinn
grafist strax niður í sandinn þeg-
ar skipið liðaðist í sundur, en
ekkert verður um það fullyrt á
þessu stigi málsins hvört kopar-
inn sé það sem leiðangursmenn
urðu varir við með mælitækjum
sínum. — Úr því fæst ekki skor-
ið fyrr en þetta hefur verið rann-
sakað nánar.
í þessu samtali okkar Bergs
Lárussonar rómaði hann mjög
hve góð farartæki hinir amerísku
skriðbílar eru. — Þeir fara allar
sandbleytur og fljóta á vatni og
beltin spyrna þeim áfram eftir
vatnsfletinum. Þegar ieiðangur-
in fór austur voru vötnin í
miklum vexti vegna hlaupsins
í Súlu, var breiðasti állinn 16
km, en samt gekk ferðin eins og
í sögu.
Eru þarna fundin framtíðar far
artæki yfir óbrúanleg vötn ís-
lenzkra byggða og óbyggða.
— G. Br.
sa
UM það leyti sem Mbl. var full-
búið til prentunar um nónbil
í gær, barst því skeyti frá frétta-
ritara sínum á Siglufirði. Hafði
hann þá haft samband við skrif-
stofu sildarútvegsnfendar þar í
bænum, og fengið upplýsingar
um heildarsöltun Norðurlands-
síldar eins og hún var á miðnætti
aðfaranótt laugardagsins.
Voru þá uppsaltaðar tunnur
orðnar 30, 000, þar af í hinum
fornfræga síldarbæ 22,2000 tunn
ur. Á föstudaginn nam söltunin
7617 tunnum.
Gífurlegur straumur verka-
fólks er til Siglufjarðar undan-
farna daga og hefur stundum orð
ið að senda fimm stóra rútubíla
að auki til að geta annað þessum
fólksflutningum.
Bræla á miðunum
AÐFARANÓTT laugardagsins
hafði verið bræla á síldarmiðun-
um og afli lítill. Kunnugt var
um 40 skip er höfðu verið alls
með um 7600 tunnur eftir nótt-
ina.Mikii áta var á svæðinu milli
Kolbeinseyjar og Grímseyjar.
Verkakonur semja um
óháðan sjúkrasjóð
Lágmai kstaxti 83% af karlakaupi
Á ÞRIÐJA tímanum í fyrri-1 fundi í dag til þess að ræða
nótt undirrituðu samninga-
nefndir verkakvennafélag-
anna Framsóknar í Reykja-
vík og Framtíðarinnar í Hafn
arfirði annars vegar og Vinnu
veitendasambands íslands og
Vinnuveitendafélags Hafnar-
fjarðar hins vegar nýja kjara
samninga milli þessara aðila.
Eru samningarnir samhljóða
í öllum grundvallaratriðum,
en meðal ákvæða er ákvæði
um 1% framlag af dagvinnu-
kaupi frá vinnuveitendum í
sjúkrasjóði félaganna. Verða
stjórnir þeirra skipaðar 3
mönnum, einum frá hvorum
aðila og oddamanni tilnefnd-
um af sáttasemjara ríkisins.
Verkakvennafélögin halda
samningana.
VERKAKVENNAFÉLAGID
Framsókn heldur í dag fund
til þess að f jalla um samkomu
lagiff viff vinnuveitendur.
Verður fundurinn haldinn í
Alþýffuhúsinu v/ Hverfisgötu
og hefst kl. 2. Verkakonur í.
Reykjavík eru hvattar til þess
að mæta á fundinum.
VERKAKVENNAFÉLAGEÐ
Framtiðin í Hafnarfirði held-
ur fund í dag til þess að ræffa
samkomulagiff viff Vinnuveit-
endur Hafnarfjarðar. Fundur-
inn verður haldinn í Alþýðu-
húsinu í Hafnarfirði og hefst
kl. 4. Verkakonur í Hafnar
firði eru hvattar til aff mæta
á iundinum.
Aðalatriði samninganna eru
þau, að hæsti taxti verka-
kvennavinnu hækkar um 11%,
en lægri taxtar meira og hafi
samningum ekki verið sagt upp
1. júní 1962 hækkar kaup þá
um 4%. Lágmarkstaxti verka-
kvennakaups verður 83% af
karlakaupi. Eftirvinna greiðist á-
fram með 50% álagi á dagvinnu
og næturvinna áfram með 100%
álagi. Orlofsfé verður 6% af
öllu kaupi. Þá hækkar kaup í
ákvæðisvinnu við fiskþvott og
síldarsöltun um 15%, og eins og
áður getur, greiða vinnuveitend
ur 1% af greiddu dagvinnu-
kaupi í sjúkrasjóði félaganna,
en stjómir þeirra verða skip-
aðar á hlutlausan hátt.
Þá lýsa aðilar sig sammála
um að vinna að því sameigin-
lega að koma á ákvæðisvinnu
og „premíu“-vinnu, þar sem því
verður við komið að dómi að-