Morgunblaðið - 28.06.1961, Page 1
20 síður
48. árgangur
141. tbl. — MiSvikudagur 28. júní 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsina
Kuwait nýtur ðflugs
stuðnings
Kröfu Kassems, forsætisráðh'erra íraks,
um yfirráð í furstadæminu vísað á bug
i Kairð, Washington, London,
27. júní (NTB-Reuter-AFP)
BÆÐl Bretland og Banda-
ríkin lýstu yfir í dag, að
þau viðurkenndu sjálfstæði
furstadæmisins Kuwait og
vísuðu þar með óbeint á bug
kröfu íraks til yfirráða í
landinu, sem býr yfir mjög
auðugum olíulindum. Enn-
fremur er ljóst orðið, að
Sameinaða Arabalýðveldið
er andstætt stefnu Kassems,
forsætisráðherra íraks, og
styður Kuwait.
y Arabar styðja Kuwait
Arababandalagið heíur verið
kvatt saman á aukafund til þess
að fjalla um beiðni Kuwait um
aðild að bandalaginu. Hefur
Hussein, konungur Jórdaníu,
skýrt Abdullah, fursta, frá því,
að land sitt muni styðja mála-
leitun hans. Saudi-Arabía hefur
heitið hinu sama. Blöð í Sýr-
landi fordæma einum rómi
kröfu Kassems og segja að hún
sé sett fram með það fyrir aug-
um að styrkja ótrygga aðstöðu
hans heima fyrir Aðrir telja
hann ásælast olíulindir landsins.
Víðtækar mótmælaaðgerðir
I fregnum frá Kuwait er skýrt
frá því, að bæði á mánudag og
þriðjudag' hafi víðtækar mót-
mælaaðgerðir átt sér stað gegn
yfirgangi íraksstjórnar. Gripið
hefur verið til ýmissa varúðar-
ráðstafana og hefur yfirmaður
öryggislögreglu landsins látið
handtaka allmarga írakska
menn, sem réðú yfir prent-
smiðju og dreifðu áróðri til
stuðnings Kassem. Allir þeir,
sem uppvísir verða að fylgis-
spekt við Kassem, fá fyrirmæli
um að hverfa frá Kuwait um-
svifalaust.
Enn varð
I að ryðja
skarðið
SIGLCFIRÐI, 27. júní — Enn
varð hríð t fjllum í nótt og
enn varð að ræsa snjóýtuna
og senda hana upp í Siglu-
fjarðarskarð, svo ekki teppt-
ust samgöngur við síldarbæ-
Er það í f jórða skiptið í júní
mánuði, sem ýtan verður að
ryðja snjó úr Skarðinu vegna
fannkomu.
Hér var landlega í gær og
hinn mesti fjöldi veiðiskipa
hinn mesti fjöldi veiðiskipa
í höfninni.
Tshombe í leyfi
Elísabetville, 27. júnf
' (Reuter).
TSHOMBE, héraðsstjóri í Kat-
anga hélt í dag fyrsta ráðuneyt-
isfund sinn, eftir tveggja mánaða
fangavist sína í Leopoldville.
Eftir fundinn lýsti hann yfir
því, að hann mundi gefa yfir-
lýsingu um stjórnarstefnu sína á
blaðamannafundi á morgun.
Jafnframt var tilkynnt, að
Tshombe Og utanríkisráðherra
hans, Kimba, sem einnig hefur
verið í haldi, mundu taka sér
mánaðarfrí frá störfum. Mun 3ja
manna ráðherranefnd annast
stjórn héraðsins á meðan, en hún
hefur einnig farið með völd að
uhdanförnu.
Loks var skýrt frá því í dag,
að allir fangelsaðir stjórnmála-
menn og hermenn í Katanga yrðu
látnir lausir í tilefni af heim-
komu Tshombes.
Bretar skuldbundnir Kuwait
Sendiherra Breta í Bagdad,
Sir Humphrey Trevelyan, gekk
þegar í gær á fund írakska ut-
anríkisráðherrans, Hashem Ja-
wad, óg greindi honum frá þvi,
að brezka stjórnin viðurkenndi
sjálfstæði Kuwait. Samkvæmt
samkomulagi Bretlands og fursta
dæmisins frá 19. júní, er Bretum
skylt að verða við beiðni þess
um aðstoð, ef fram kemur. —
Af bandarískri hálfu lýsti tals-
maður utanríkisráðuneytisins í
Washington því yfir í dag ,að
stjórn sín hefði viðurkennt
sjálfstæði furstadæmisins. Eru
sumir þeirrar skoðunar, að
Bandaríkin myndu styðja aðild
Kuwait að samtökum Samein-
uðu þjóðanna, ef hennar yrði
æskt.
ORÐINN frjáls ferða sinna á
ný, sést Moise Tshombe, hér-
aðsstjóri í Katanga, faðma að
sér Justin Bomboko, utanríkis
ráðherra Kongó — og báðir
brosa þeir út undir eyru. Hjá
þeim situr Mobutu, hershöfð-
ingi, sem einnig virðist liggja
vel á. Og síðastliðinn föstu-
dag var Tshombe heiðursgest-
ur í Leopoldville — eftir að
hafa verið þar í haldi um
tveggja mánaða skeið, sakað-
ur um landráð.
8®í
Skattar af meðallaunum
hafa lækkað um 6
SAMKVÆMT upplýsingum,
sem Mbl. hefir aflað sér,
sýna skattaframtöl í Reykja-
vík fyrir síðasta ár, að með-
altekjur manna hafa hækkað
verulega frá árinu 1959. —
Meðalatvinnutekjur kvæntra
verkamanna voru þá 75 þús.
kr. samkvæmt framtölum
þeirra sjálfra, iðnaðarmanna
79,500 kr. og sjómanna 93
þús. kr. Við þessar tekjur
bætist svo það, sem kona og
börn afla í mörgum tilfell-
um.
Lækkun sú, sem fram-
kvæmd var á tekjuskatti og
útsvari, hafði einnig veru-
lega þýðingu, eins og eftir-
farandi tafla yfir skatta
2 milij. kr. útsvarshækkun á Akureyri
í kjölfar kaunhækka nanna þar
Vinstra samstarfið rofið, segir fulltrúi kommúnista
AKUREYRI, 27. júní. —
Síðdegis í dag var haldinn
bæjarstjórnarfundur og var
þar tekin fyrir fjárhagsáætl-
un bæjarins. Varð þetta sögu
legur fundur.
Jafnað hafði verið niður á bæj
arbúa alls tæplega 21 milljón
króna í útsvör á yfirstandandi
ári. Sökum fyrirsjáanlegra hækk
unnar á kaupi, sem er afleiðing
hinna nýju kjarasamninga og þar
af leiðandi hækkuðum tilkostn-
aði við rekstur bæjarfélagsins,
hafði bæjarráð á sínum fundi
lagt til að lágt yrði á aukaútsvar
að upphæð tvær milljónir króna.
Miklar og heitar umræður
urðu út af þessu. En að lokum
var tillaga bæjarráðs samþykkt
af meirihluta bæjarstjórnai', 6 at
kvæðum gegn 5.
Björn Jónsson bæjarfulltrúi
kommúnista og alþingismaður
kvaddi sér hljóðs utan dagskrár.
Lýsti hann yfir að með þessari
samþykkt væri vinstra-samstarf-
ið í bæjarstjórn Akureyrar úr sög
unni. Til þess var stofnað af
Framsóknarflokknum, kommún-
istum og Alþýðuflokknum eftir
síðustu bæjarstjórnarkosningar.
Taldi hann fulltrúa Alþýðu-
flokksins hafa svikið þetta sam
starf 6. júní síðastliðinn, er hann
greiddi atkvæði með frávísunar-
tillögu Jónasar Rafnar í bæjar-
stjórn viðvíkjandi tillögu komm
únista um að bæjarstjórn Akur-
Framh. á bls. 19
hjóna með 3 börn og áður-
greindar atvinnutekjur hús-
bónda, ber með sér.
Verkamaður með 75.000.00 króna
atvinnutekjur.
Lækk-
Tekjuskattur Útsvar 1959 2.737 9.361 1960 0 5.882 un 2.737 3.479
Samtals kr. 12.098 5.882 6.216
Iðnaöarmaður með 79.500 króna
atvinnutekjur.
Lækk-
1959 1960 un
Tekjuskattur ........ 3.292 0 3.292
Útsvar 10.415 7.837 2.578
Samtals kr. 13.707 7.837 5.870
Sjómaður með 93.000 króna
atvinnutekjur.
Lækk-
1959 1960 un
Tekjuskattur 5.868 0 5.868
Útsvar 13.615 10.213 3.402
Samtals kr. 19.483 10.213 9.270
Eins og sést af framangreindri
töflu, þá hafa skattar 5 manna
fjölskyldu lækkað um 6—9 þús.
kr. fyrir síðasta ár miðað við
skatta ársins á undan.
Yið þessa skattalækkun bætist
svo það, að slík fjölskylda fær
nú greiddar 7.800 kr. árlega í
fjölskyldubætur. Er rétt að menn
hafi þessar staðreyndir í huga,
þegar því er haldið fram að kjör
manna hafi versnað stórlega við
viðreisnari'áðstafanirnar.