Morgunblaðið - 28.06.1961, Page 2
mt
2
MORCUMtLAÐIÐ
Miðvik'udagur 28. júní 1961
♦
*
*
Hlutlaus sjóðstjórn trygg-
ir hagsmuni verkamanna
HVAÐ tefur samkomulagr í
verkfalli Dagsbrúnar? Á
hvcrju strandar?
Er það ágreiningur um kaup
hækkun? Er það ágreiningur
um greiðslu orlofs eða eftir-
vinnu? Er það ágreiningur um
vinnutíma? Er það ágreining-
ur um greiðslu í styrktarsjóð
félagsins?
Öllum þessum spurningum
er óhætt að svara afdráttar-
laust neitandi. Um hvað er þá
deilt?
Deilan stendur nú um það,
hvort því 1% af kaupi, sem
vinnuveitendur hafa fallizt á
að greiða í styrktarsjóð Dags-
brúnar, skuli varið með hags-
muni verkamanna sjálfra fyr-
ir augum, eða vera til frjálsr
ar ráðstöfunar kommúnista-
stjórnarinnar í félaginu.
Hvort skyldi nú betur
tryggja hagsmuni verka-
manna, hlautlaus stjóm sjóðs-
ins eða flokksstjórn kommún-
ista á honum, og hver skyldi
vera vilji verkamanna í þessu
efni?
Fyrir helgina birti Morgun-
blaðið viðtöl við f jölda verka-
manna hér í Reykjavík og var
m. a. leitað álits þeirra á deil-
unni um skipun sjóðsstjórn-
arinnar. Vilji þeirra var af-
dráttarlaus. Þeir lögðu á-
herzlu á, að bezta tryggingin
fyrir því, að sjóðnum verði
varið í samræmi við tilgang
hans sé sú, að hann lúti hlut-
lausri stjóm. Og það er óhætt
að fullyrða, að óbreyttum
verkamönnum er það ekkert
aðalatriði, að sjóðurinn sé
undir einlitri stjórn kommún-
ista, nema síður væri.
En hver er vilji kommún-
istaforsprakkanna? Hann er
líka afdráttarlaus, ekki síður
en verkamannanna. En hann
er ekki sá, að verkamönnum
komi sjóðurinn að sem mest-
um notum, heldur sá, að þeir
geti sjálfir, hvenær sem þeim
þóknazt gripið til sjóðsins til
áróðurs- og undirórðursstarf-
semi sinnar.
Dylst því eagum, að hérna
rekast hagsmunir verka-
manna og komúnista algerlega
á, og þarf enginn að vera í
vafa um hlutverk Dagsbrún-
arstjórnarinnar í þeim ótök-
um.
Fjölmörg verkalýðsfélög
hafa nú samið um hlutlausar
stjórnir sjúkrasjóða sinna, og
eftirá viðurkenna forystu-
menn þeirra tvímælalausa
kosti þeirrar leiðar. Þá hefur
einnig verið bent á það áður
hér í blaðinu, að stjórnir
flestra lífeyrissjóða launþega
eru annað hvort skipaðar á
hlutlausan hátt eða að vinnu-
veitendur eru þar jafnvel í
meirihluta, og mun þó enginn
treysta sér til að halda því
fram, að þar sitji hagsmunir
launþega ekki í fyrirrúmi.
Þrátt fyrir það, að verka-
menn eigi nú kost á styrktar-
sjóði, sem stæði þeim opinn í
sjúkdóms- og slysatilfellum,
hika kommúnistar ekki við að
halda verkfallsbaráttu sinni
áfram vegna þess eins, að
stjórn hans á að vera skipuð
á hlutlausan hátt. Slík fram-
koma gefur óneitanlega á-
stæðu til að ætla, að ekki séu
fyrirætlanir þeirra með sjóð-
inn, eins sakleysislegar og þeir
sjálfir vilja vera láta. Og ó-
neitanlega er fyrri umgengni
kommúnista um sjóði verka-
lýðsfélaga ekki beint til þess
fallin að draga úr þeim ótta.
i*W»«í
Formsatriði eiga ekki að
hindra lausn deilunnar
— segir B. S. R B., sem telmr launajöfnuð of mikinn
A fundi stjórnar B.S.R.B. 26.
þ.m. var einróma samþykkt eft-
irfarandi ályktun:
Með bréfi dags. 5. þ.m. leitaði
Alþýðusamband íslands eftir fjár
hagslegum stuðningi B.S.R.B.
vegna verkfalla ýmissa verka-
lýðsfélaga. sem þá stóðu yfir.
Fyrst eftir að stjórn B.S.R.B.
barst þetta bréf, virtist okkurt
útlit fyrir að vinnudeilur þessar
myndu bráðlega leysast, og var
því dregið að taka ákvarðanir
um málið.
Á stjórnarfundi hinn 16. þ.m.
var ákveðið að skýra stjórnum
bandalagsfélaganna þegar í stað
frá beiðni Alþýðusambandsins og
biðja þær að vera viðbúnar að
taka afstöðu til málsins, og hefja
aðgerðir í samræmi við það, þeg-
ar eftir 26. þ.m., ef verkföllin
yirðu þá ekki leyst.
Vegna þeirrar stefnu í launa-
baráttunni, sem hefir orðið ráð-
andi í vinnudeilum þessa árs, tel
Ur stjórn B.S.R.B. ríka ástæðu til
að minna á samþykktir síðasta
bandalagsþings, er í samræmi við
skoðanir þess undanfarið árabil,
marka ákveðna stefnu í launa- og
kjaramálum, er stjórnin ítrekaði
með samþykkt á fundi sínum
hinn 24. febr. s.l.
Jafnframt lýsir stjórnin þeirri
skoðun sinni, að hún telur til-
gangslaust, eins og málum er
komið, að eyða tíma í deilur um,
hvort umsamið kaupgjald verka-
lýðsfélaganna muni leiða til
kjarabóta í réttu hlutfalli við
launahækkanir.
í þessu sambandi lýsir banda-
lagsstjórn yfir eindregið og á-
kveðið þeirri skoðun:
að á undanfömum árum hafi
verið of langt gengið í launajöfn-
uði við lausnkjaradeilna og bend
ir á þá þjóðfélagslegu nauðsyn,
að auk þess að tryggja lífvænleg
lágmarkslaun sé tekið tillit til
náms, ábyrgðar og sérhæfni í
starfi.
að áframhaldandi verkföll rýra
mjög þjóðarframleiðsluna og
skerða því möguleika launþega
til að bæta kjör sín í nánustu
framtíð, og er því miður farið
að lausn vinnudeilna sé hindruð
vegna ágreinings um formsatriði.
að rétt sé að opinberir starfs-
menn geri sitt til að bæta úr
þrengingum þeirra, sem nú líða
skor vegna langvarandi verk-
falla, með því að leggja fé af
mörkum til styrktar þeirn,, sem
harðast eru úti, og heitir því á
stjórnir allra bandalagsfélaga að
gangast fyrir söfnun innan sinna
vébanda í því skyni.
Einnig samþykkti stjórnin að
leggja fram úr sjóði bandalagsins
kr. 8,000,—.
Á sama fundi kaus stjóm
bandalagsins eftirtalda menn til
að stjórna fjársöfnuninni: Teit-
ur Þorleifsson, Bræðraborgarstíg
8, sími 15754, Einar Ólafsson Fífu
hvammsvegi 31, sími 23381, Har-
aldur Steinþórsson, Nesvegi 10,
sími 12785.
Akranesi, 26. júní
í MORGUN um ellefu-leytið
voru nokkrir drengir að leika
listir sínar á skellinöðrum inni
á Langasandi. Einn þeirra, Njáll
Helgason, hinn mesti fjörkálfur,
lét framhjólið rísa upp, en það lá
þá óvart spýta á sandinum. Hjól-
ið snerist, knapinn stakkst á höf-
uðið og viðbeinsbrotnaði.
2‘í 4 mt, Kt. tl
Kalt og hráslagalegt er
norðanlands, aðeins 7 stiga
hiti var á Akureyri um há-
degið og slydduél á Grímsstöð
um og í Möðrudal.
Lægðin fyrir suðvestan land
ið færist nær og var gert ráð
fyrir rigningu sunnanlands í
nótt.
Veðurhorfur kl. 10 í gær-
kvöldi:
Suðvesturland til Breiðá-
fjarðar og miðin: Vaxandi A
og SA, víða allhvasst þegar
líður á nóttina.
Vestfirðir til Austfjarða og
miðin: A-kaldi og úrkomu-
laust í kvöld og nótt, stinn-
ingskaldi og sums staðar rign
ing á morgun.
Suðausturland og miðin:
SA gola og síðar kaldi, dá-
lítil rigning, þegar líður á
nóttina.
Gunnar Olafsson
Drengur
missir auga
í GÆRKVÖLDI hafði Morgun-
blaðið spurnir af alvarlegu slysi
er varð vestur í Ólafsvík á mánu
dagskvöldið. Níu ára drengur að
nafni Hörður Eiríksson hafði
borið eld að drasli í ruslatunnu.
Horfði hann síðan ofan í tunn-
una, er byrjað var að loga. ,
Allt í einu sprakk flaska, sem
var í tunnunni og þeyttust gler-
brotin í andlit drengsins. Kom
allstórt glerbrot í auga drengsins
og varð af sár mikið.
Milli kl. 11—12 á miðnætti I
fyrrinótt kom Björn Pálsson flug
maður að vestan með drenginn,
og var Hörður þegar fluttur í
Landspítalann. Svo mjög hafði
auga drengsins skaddast að ó-
gjörningur var að bjarga sjón-
inni á því, og varð að taka au-;-
að úr drengnum.
-----—------------------
Cunnar Olafsson, frv.
alþingismaður látinn
AÐFARANÓTT mánudags sl.
lézt í Vestmannaeyjum hinn
kunni athafnamaður Gunnar
Ólafsson útgerðarmaður og
konsúll þar í bæ, 97 ára að aldri.
Gunnar Ólafsson var um ára-
tuga skeið einn af kunnustu at-
hafnamönnum í Vestmannaeyj-
um. Hann var fæddur 18. febrúar
1864 í Sumarliðabæ í Holtum.
Hann stundaði kvöldskólanám í
verzlunarfræðum í Reykjavík, en
hér var hann verzlunarmaður
1891—’96 en síðan 3 ár í Vík í
Mýrdal og verzlunarstjóri Brydes
verzlunar þar frá 1899 til 1908 en
árið eftir fluttist hann til Vest-
mannaeyja Og þar í bæ átti hann
lengsta Og athafnamesta þátt æfi
sinnar. Skömmu eftir að hann
kom til Eyja stofnaði hann fyr-
irtækið Gunnar Ólafsson & Co.
með þeim Jóhanni Þ. Jósefssyni
og Pétri Thorsteinson, en hinn
síðastnefndi var í félagi þeirra
aðeins skamma hríð. Fyrirtæki
þetta var um áratuga skeið
stærsta Og voldugasta verzlunar-
Og útgerðarfyrirtæki Vestmanna-
eyja. Gunnar kom því mjög við
alla athafnasögu Vestmannaeyja
á þessum árum. Fyrirtæki hans
hafði auk útgerðarinnar og verzl-
unarinnar mikla fiskverkun og
skipti starfsfólkið þá hundruðum.
Þá hafði fyrirtækið einnig af-
greiðslu fyrir Eimskip og Ríkis-
skip.
Gunnar Ólafsson var alþingis-
maður V.-Skaftfellinga 1908—’H
og landskjörin þingmaður 1986.
Þá var hann oddviti Og sýslu-
nefndarmaður í Mýrdal.
Gunnar var vísikonsúll Norð-
manna frá 1916 Og um skeið
var hann konsúll Frakka á staðn-
um. Gunnar Ólafsson helgaði sig
á síðari árum ritstörfum og skrif
aði þá endurminningar sínar.
Hann skrifaði einnig margar
greinar um menn og málefni,
enda vel lesinn og fróður. Gunn-
ar var einn af hinum kjarnmiklu
athafnamönnum á viðreisnarár-
um íslenzks athafnalífs, traustur
og ráðhollur og hjálpsamur er
menn voru í vanda staddir.
Kvæntur var Gunnar Jóhönnu
Eyþórsdóttur kaupmanns i
Reykjavíkur Felixssonar, og eign
uðust þau hjón fimm börn.
Verzlunarmenn
á sáttafundi
SÁTTASEMJARI rikisins hélt
fund í gærkvöldi, fyrsta sátta-
fund með verzlunarmönnum og
vinnuveitendum þeirra. Hófst
hann kl. 9 og lauk laust fyrir
miðnætti. Ekki voru efnisatriði
samninga rædd á þessum fundi,
heldur einungis fyrirkomulag
samningsviðræðna. Kosnar voru
tvær undirnefndir á fundinum,
sem ákveðið var að héldu fundi
með sér n.k. föstudagskvöld.
Af ríkuríkin
Erindi á fundi Stúdentafélags
Reykjavíkur í dag
HINGAÐ er kominn danskur
blaðamaður Jörgen Schleimann.
Hann mun í dag kl. 6 flytja
erindi á vegum Stúdentafélags
Reykjavíkur í félagsheimili V.R.,
Vonarstræti 4, sem hann nefnir:
Um jákvæða og neikvæða hlut-
leysisstefnu, stjórnmálaleg vanda
mál nýju Afríkuríkjanna.
Schleimann hefur ferðazt mik
ið um í Afríku og rætt við
stjórnmálaleiðtoga þar. Meðal
annars átti hann hið fræga við-
tal við Sekou Touré, forseta
Guineu, þar sem hann mælti í
fyrsta skipti opinberlega gegn
heimsveldisstefnu kommúnista.
Schleimann er sérfræðingur í
stjórnmálum Afríkjuríkjanna. —
Allir eru velkomnir að hlýða á
erindið meðan húsrúm leyfir.
Jörgen Schleimann