Morgunblaðið - 28.06.1961, Side 20
Lœknat í dreifbýlinu
Sjá bls. 11.
141. tbl. — Miðvikudagur 28. júní 1961
IÞROTTIR
Sjá bls. 18.
millj. í björgunarlaun
Skozka rannsóknaskipið Sir William Hardy í Reykjavíkurhöfn í g*r. (Ljósm. Markús)
FYRIR nokkru fór Akureyrar-
togarinn Harðbakur dönsku flutn
ingaskipi til aðstoðar er vél þess
bilað í hafi út af Vestfjörðum.
Skipið, sem heitir Stella Daníel-
sen, var dregið hingað til Reykja
víkur, og hér var f jallað um mál
þess fyrir dómi.
Það kom fram þegar málið var
lagt fram, að hið danska skip var
gjörsamlega ósjálfbjarga er tog-
arinn kom að því.
Varð engin ágreiningur um að
hið danska skip var ósjáitbjarga
og Harðbakur hafi bjargað skip-
inu til hanfar. Hér fór frem mat
á því og var það meti-s á 8 millj.
króna. Munu eigendur Harð-
baks, Útgerðarfélag Akureyrar
gera kröfu til björgunarlauna er
nema munu kr. 800,000 til kr.
1,000,000—.
Svo alvarleg er bilunin að ekkl
hefur verið hægt að lagfæra
hana enn sem komið er og óvíst
hvenær vegna ríkjandi verkfalls,
vbgkéj togarinn vbgkéj cmfæypb
EFTA rædd
MARKAÐSBANDALAG Evrópu-
ríkjanna sjö (EFTA) hóf fund
í Lundúnum í gær og sækja
hann ráðherrar bandalagsríkj-
anna. Mun á fundinum einkum
verða rætt um möguleikana á
nánara samstarfi þessara landa
við 6-ríkja bandalagið. Mbl. átti
í gærkvöldi stutt samtal við
Gylfa Þ. Gíslason, viðskiptamála
ráðherra, og innti hann eftír,
hvort aðild íslands að 7-velda
bandalaginu yrði rædd á þessum
fundi. Sagði rá'ðherrann, að svo
myndi verða. 1 framhaldi af fund
um viðskiptamálaráðherra Norð
urlandanna fyrir rúmum mánuði,
hefðu íslendingar verið í stöðugu
sambandi við 7-veldin og fylgzt
vel með því, sem gerzt hefði
milli þeirra og sexveldanna. Hin
Norðurlöndin hefðu tekið að sér
Rússneskt olíu-
skip stöðvast
í GÆRMORGUN kom rússneskt
olíuskip til Hafnarfjarðar, 10
þús. tonna skip. Það losaði gas-
olíu í geyma Esso þar í bænum.
Skipið er einnig emð um 5000
tonn af bílabenzíni. ÞVí fæst ekki
landað.
Ekki á rússneska skipið að
sigla heim aftur með benzínið,
a.m.k. ekki fyrst í stað. Þegar
það hefur lokið löndun olíunnar
í Hafnarfirði átti að sigla því inn
á Kollafjörð og leggja því við
festar og þar beðið átekta.
Tekst þaöj
íkvöld
ÍR-MÓTINU lýkur í kvöld á
Laugardalsvelli. Aðalkeppni
kvöldsins verður í hástökki
þar sem þeir mætast öðru
sinni Evrópumeistarinn Ric-
hard Dahl og Jón Þ. Ólafsson.
í gær stukku þeir báðir 1.95
en Jón átti betri tilraun við
2.01 m. Þeir hafa báðir fullan
Íhug á 2 m í kvöld.
Af öðrum greinum má
nefna stangarstökk en það er
síðasta keppni Valbjörns fyrir
utanför á stórmót. Þá verður
keppt í þrístökki og 3 km.
hlaupi og 8 öðrum greinum.
Sátta-
fundur
í gærkvöldi
SÁTTASEMJARAR héldu
fund með samninganefndum
Dagsbrúnar og vinnuveitenda
í gærkvöldi. Hófst fundurinn
kl. 9 og stóð enn, þegar blað-
ið fór í prentun.
Skotar á togveiðum
á miðjum Faxafiúa
Á MÁNUDAGINN var Iít-
ill skozkur togari að veið-
um inni á miðjum Faxa-
flóa. Þar tók hann þrjú
„höl“, sigldi að því búnu
óhræddur inn í Reykjavík
urhöfn og lagðist upp að
bryggju svo að segja í gini
ljónsins, við hliðina á varð
skipum íslenzku landhelg-
isgæzlunnar við Ingólfs-
garð. Ekki skipti landhelg-
isgæzlan sér hið minnsta
af þessum „landhelgis-
brjót“.
Skiluðu steinbítnum aftur
Skotarnir höfðu líka verið
mjög kurteisir. Þeir höfðu
beðið um sérstakt leyfi ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar til
að veiða fáeina þorska inni
á Faxaflóa. Leyfið fengu þeir
umyrðalaust af því að hér
var um að ræða vísindastarf.
Skotarnir voru meira .að segja
svo kurteisir, að þegar þeir
fengu nokkra steinbíta og
karfa í vörpuna, sögðu þeir
„Sorry“ og köstuðu þeim aft-
ur útbyrðis, þar sem þeir
höfðu ekki fengið leyfi til
að veiða steinbít og karfa.
— Ja, ef þeir hefðu allir ver-
ið svona kurteisir*
Hér var á ferðinni skipið
Sir William Hardy frá Ab-
erdeen, sem er bæði lítill tog
ari og rannsóknarskip. Skip-
stjóri þess heitir Wittleton,
Framh. á bls. 18.
ÞESSA mynd tók Björn Páls- f
son, flugmaður, er hann flaug
yfir Grænalón um helgina. í
fyrri viku varð hlaup úr
Grænalóni, en ekki varð þó
mikið úr því. Virðist lónið
hætt að tæma sig og vatnið að
lyfta brúninni á Skeiðarár-
jökli til að komast leiðar sinn
ar, eins og áður fyrr. í stað-
inn ryður árlega efsta borðið
á vatninu sér leið gegnum
skarð eitt, og fæst afrennsli
fyrir það vatnsmagn, sem
safnazt hefur á árinu. Við
þetta kemur smáhlaup í Súlu,
en ekki svipaðar hamfarir
eins og þegar allt lónið tænjir
sig. Stórir jakar úr jökulbrún
inni fljóta á vatninu, en
Grænalón er umgirt jöklum á
þrjár hliðar.
Togari eltur á haf út
SÍÐASTLIÐINN laugardag kom
gæzluflugvélin Rán að nokkrum
brezkum togurum, sem voru að
veiðum við 6-sjómílna takmörk-
in suður af Hvalbak. Sá þeirra,
sem næstur var landi, virtist
vera nokkuð innan við mörkin,
en svo skammt, að varhugavert
þótti að láta færa hann til hafn-
ar og var ákveðið að aðvara hann
vegna atferlis hans. Við endur-
athugun á stöðu togarans sást úr
flugvélinni, að skipverjar voru
að breiða yfir nafn og númer.
Var þá varðskipið Óðinn, sem
var á þessum slóðum, beðið að
koma á vettvang. H. u. b. einni
klukkustund síðar hafði Óðinn
uppi á togaranum, sem siglt hafði
til hafs. Var þá búið að fjarlægja
yfirbreiðslurnar og reyndist
nafn togarans vera Northern
Spray Gy. 190. Óðinn gaf tog-
aranum stöðvunarmerki, en hann
sinnti því í fyrstu engu Og reyndi
jafnvel að sigla á varðskipið.
Þeirri viðureign lauk þó svo, að
togarinn varð að viðurkenna mót*
töku aðvörunarinnar. ,
Ráðuneytið mun taka til athug*
unar, hverra frekari aðgerða er
þörf, þegar það fær fullnaðar-
skýrslur um málið frá land-
helgisgzlunni.
(Frá dómsmálaráðuneytinu)
Dr. Love: Yes, — við skil-
uðum steinbítnum aftur.
Munu krefjast nær
T að fylgjast með umræðum er
snertu aðild íslands að fundinum.