Morgunblaðið - 04.07.1961, Síða 2
2
MORCVTSBL ifílÐ
Þriðjudagur 4. júlí 1961
— Mikil áta
Framh. af bls. 1
öllu síldarlaust milli þessara
þriggja svæða, en torfurnar
væru þar dreifðar. Síldin norð-
an Rifsbanka virtist heldur
mjakast í suðaustur, en á svæð-
unum tveimur við Kolbeinsey
virtist hún heldur færa sig beint
til suðurs. Á milli síldarinnar
og lands er víðast talsvert átu-
magn og færi hún sig á þær slóð
ir, má búast við því að hún
spekist og grynni á sér.
Leitarskipin tvö skipta með
sér verkum á svæðunum, og er
Fanney á svæðinu við Rifs-
banka, en Ægir við Kolbeinsey.
Ægir var á Akureyri í tvo
daga í síðustu viku, en fann á
laugardagskvöldið þá síld, sem
veiðamar hafa byggzt á síðan.
Héldu veiðiskipin þá þegar á
vettvang og hafa fengið þar
góðan afla af ágætri síld, sem
að langmestu leyti hefur farið
í salt.
Jakob Jakobsson tjáði Mbl.
einnig, að Ægir hefði lóðað á
mjög mikið magn síldar við
Kolbeinsey öðru hverju, en síld-
in væri stygg og stæði djúpt.
Hins vegar mætti fullyrða að
hér væri um að ræða meiri og
stærri torfur en áður.
Félögin samþykktu
UM helgina voru boðaðir fundir
í öllum félögiun iðnsveina og
meistara til þess að fjalla
um samkomulag samninganefnda
þessara aðila á laugardag. Öll fé-
lögin samþykktu samkomulagið,
og var vinnustöðvuninni þar með
aflýst. Hófu iðnaðarmenn því
vinnu að nýju í gær.
í aðalatriðum eru samningam-
ir mjög svipaðir samningi þeim,
sem skýrt var frá hér í blaðinu
sl. sunnudag milli sveina og
meistara í jámiðnaðinum, en
nokkur sérákvæði eru þó í samn-
ingum hinna einstöku féLajgia.
Kaupgjald hækkóir almennt nú
þegar um 1214% og um 4% til
viðbótar 1. júní 1962 hafi samn-
ingum eigi verið sagt upp þá.
Yfirvinna verður greidd með
60% álagi á dagvinnu í stað 50%
áður. Orlof verður óbreytt 18
virkir dagar, auk þess 6% orlofs-
fé á allt kaup sem unnið er fyrir
utan dagvinnu. Laugardagsfrí
verða 4 mánuði á ári í stað 3
áður. Sérákvæði eru einkum um
aukagreiðslur fyrir óþrifaleg og
hættuleg störf og um hækkun
verkfærapeninga hjá sumum fé-
lögum.
Er nú Vömbílstjórafélagið
Þróttur eina félagið hér í Reykja
vík, sem enn er í verkfalli en
einnig standa yfir samningar-
viðræður milli verzlunarmanna
og vinnuveitenda þeirra.
Kort þetta sýnir hvernig
háttaði síldveiðum og afia-
magni, sem borizt hafði á ein-
stakar hafnir og miðast töl-
urnar við miðnætti í fyrrinótt
fsunnudagskvöld). Er þar um
að ræða það magn síldar, sem
saltað hefir verið í hverxS
höfn en það er mikill meiri-
hluti aflamagnsins. Auk þess,
sem á kortinu er nefnt, hefur
verið saltað á Skagaströnd í
1298 tunnur.
Þá sýnir kortið síldarsvæð-
in eins og þau voru í gær.
Norður og norðaustur af Kol-
beinsey eru tvö svæði og er
þar mestur hluti íslenzka flot-
ans. Norður af Rifsbanka er
svo annað svæði en þar eru
norsku skipin og nokkur
íslenzk. Kolbeinseyjarsíldin
virðist vera á leið á grynnra
vatn, en Rifsbankasíldin á suð
urleið. Síldarleitarskipin Æg-
ir og Fanney eru sitt á hvoru
svæði, Ægir vestar.
Samið á Vestfjörðum
Gatnagerð
AKRANESI 3. júU. Lokið er við
að steypa aðra a'kreinina á Hafn-
arbraiut frá Hafnargarði og vest-
ur að Suðurgötu og nú er byrj-
að á að steypa neðsta hluta
Skúla.brautar frá Vesturgötu
upp að Merkureigi,
ÍSAFIRÐI, 3. júlí, — Eins og
kunnugt er, hefur. ekki komið
til neins verkfalls á Vestfjörðum,
en fyrir nokkrum dögum hófust
samningaumleitanir milli Alþýðu
sambands Vestfjarða og Vinnu-
veitendafélags Vestfjarða og
voru samningar undirritaðir 1.
júlí sl.
Aðalbreytingin frá fyrri samn-
ingi er sú, að kaupgjald hækkar
yfirleitt um 12% eftirvinna greið
ist með 55% álagi á dagvinnu.
Ekki greiða vinnuveitendur fram
lag í styrktarsjóð verkamanna.
Kvöldmatartími verður ekki
greiddur, þótt unnið sé eftir
þann tíma, eins og mun vera
víðast hvar á landinu.
Eftir þessum nýja samningi
verður karlmannskaup kr. 23,15
í dagvinnu og kvennakaup kr.
19,00. Ennfremur voru gerðar
nokkrar smábreytingar til sam-
ræmis við samninga annars stað-
ar á landinu. — GK.
Hemingway minnzt um
allan heim í gær
LONDON, 3. júlí. Reuter-NTB —
Nóbelsskáldsins Ernest Heming-
ways hefur í dag verið minnst
um allan heim — og á jafnóiík-
um stöðum sem Páfaríkinu og
Moskvu. Mörg lofsyrði hafa hvar
vetna verið borin á hinn látna.
Blaðið „Osservatore Romano"
í Páfaríkinu lét m. a. svo um
mælt, að Hemingway hefði verið
„nýskapari í listum" og bætti
við, að ,,verk hans, þrungin fjör-
legri list og skáldskap, bæru
með djörfum og innihaldsríkum
blæ vott um viðsjár tímabils, sem
ógnað væri af hörmungum stríðs,
ranglætis og harðstjórnar". —
Málgagn sovézku stjórnarinnar,
„Izvestia", sagði m. a. að Hem-
ingway hefði í senn verið „mikið
skáld og mikill maður“.
Jöfur nútímabókmennta
í Bretlandi sagði „The Guardi-
an“ í ritstjórnargrein, að „áhrif
hans á málfar og jafnvel hegðun
manna beggja megin Atlantsála
kunni að reynast vera gífurleg.“
Náinn vinur skáldsins, gagnrýn-
andinn Cyril Conolly, kvað með
Hemingway genginn einn
„mesta jöfur nútímabókmennta
— einn þeirra, sem í raun og
veru hafi skapað bókmenntirnar,
eins og þær nú eru.“
Nær öll frönsk blöð birtu um-
sagnir um. Hemingway, einnig
útvarpið sem helgaði honum 50
mínútna dagskrá.
. Skálað í hinzta sinn
1 litlum bæ, um 12 mílur aust-
ur af Havana á Kúbu, hittu
fréttamenn Gregorio Fuentes
Betancourt, sem stýrt hefur
snekkju Hemingway í 23 ár og
skálaði nú í hinzta sinn fyrir
skáldinu sem hann dáði mjög —
og rifjaði upp kynni þeirra
hryggur í lund.
E n g i n n
árangur enn
SAMNINGAFUNDIR stóðu í gær
kvöldi með fulltrúum vörubif-
reiðastjóra og vinnuveitenda.
Fundi var slitið laust fyrir kl.
11 og hafði samkomUlag ekki
tekizt.
— Hemingway
Framh. af bls. 1
láts Nóbelsverðlaunaskáldsins
Emests Hemmingways.
— Ég þekkti ekki Hem-
ingway persónulega. En við
skiptumst á skeytum og skila
boðum. Hann vissi af mér og
ég af honum, hélt Halldór
Kiljan Laxness áfram. Yið
vorum í mörg ár taldir sigur-
stranglegastir til að hljóta
bókmenntaverðlaun Nobels.
Þegar hann svo fékk þau á
undan, árið 1954, sendi hann
mér orð. Þau voru einkenn-
andi fyrir hann, því hann
hafði þennan drengilega hátt
íþróttamanna á öllu sem hann
gerði. Hann flýtti sér að fara
í blöðin og segja: Laxness
er ákaflega góður rithöfund-
ur. Segið honum, að ef hann
verði einhvern tíma blankur,
þá skuli ég deila með honum
mínu. Svo sendi hann mér
elskulegt skeyti, þegar ég
hlaut verðlaunin árið eftir.
— Þér hafið þá ekki kynnzt
honum þegar þér voruð í Banda
ríkjunum á yngri árum?
— Nei, ég þekkti hann ekki
þá. Ég las þá fyrstu bókina
hans, sem hét á þeim árum
„The sun also rises“. Síðan las
ég „Vopnin kvödd“, sem mér
finnst alltaf að sé einhver bezta
skáldsaga okkar tíma. Eins og
öll snilldarverk, er hún óþýð-
anleg. Ég gerði einu sinni tilraun
til að þýða hana. En ég er ekki
ánægður með þýðinguna og
mundi þýða "hana allt öðru vísi
núna.
NA /5 hnútor / SV50hnútor K Snjókoma t Ost mm — 4<ww>m> V Stúrír K Þrumur Wz, Kuk/asht Hitsskit H Hm» L' Lctgi
Kominn fram
SÆMUNDUR Magnússon, Berg-
þórugötu 8, sem lýst var eftir í
blöðum og útvarpi fyrir helgina,
er nú kominn fnam heill á húfi.
Hringdi hann heim til sín um
11 leytið á sunniudagskvöldið,
og lét vita af því, að hann væri
á vísum stað í bænum. Hafði
þá ekkert tiil.hans spurzt síðan
á fimmtudag.
— Langar yður þá ekki til að
þýða einhverja aðra af bókum
hans?
— Ekki eins og þessa „Vopn-
in kvödd“ er að mörgu leyti
alveg sérstæð bók.
Hemingway var einhver
mesti meistarinn í hópi rithöf-
unda á okkar dögum. Hann
strikaði út hvert einasta óþarft
orð, þangað til ekkert var eftir
umfram það nauðsynlegasta.
Þessi agi, sem hann beitti sjálf-
an sig, er hárðari en ég hefi
séð nokkurs staðar annars stað-
ar. Markið sem hann setti var
svo hátt, að það hefur gert mik-
ið af öðrum hókmennfuni hlægi-
legar og einskisvirði. Stíl hans
er helzt hægt að líkja við stíl-
inn á íslendingasögunum.
— Ætli hann hafi verið kunn-
ugur íslendingasögunum?
— Nei, hann var einu sinni
spurður um þetta. Og hann svar
aði að hann væri Islendinga-
sögunum alls ókunnugur. Stíll-
inn, sem hann hefði, væri árang
urinn af því að hann strikaði
út'allt ónauðsynlegt. Ég sá bréf-
ið hans.
— Starfsævi hans hefur orðið
styttri en efni stóðu til. Hann
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi.
SV-mið og Faxaflóamið:
NV kaldi og léttskýjað í nótt
en SA gola og skýjað á morg-
un.
SV-land til Norðurlands og
Breiðafj.mið til norðurmiða:
NV gola í nótt, hæg breytileg
átt á morgun, úrkomulaust og
víða léttskýjað.
NA-land til SA-lands og
miðin: NV kaldi í nótt, hæg-
viðri á morgun, léttskýjað.
Halldór K. Laxness
var aðeins 62 ára gamall. A
— J-á, sumir hafa átt styttri
starfsævi og aðrir lengri, án
þess að bæta nokkru við. Hann
átti starfsævi, sem var ákaflega
sterk og áhrifamikil meðan hún
entist. Hann var alveg í mið-
punkti aldarinnar. Og eins og
aðeins maðúr frá stóru ríki get-
ur verið.
Eins og ég sagði áðan mun
ég ekki reyna að telja upp hina
mörgu kosti þessa manns, sagði
Kiljan að lokum. — Þá mundum
við sitja hér langt fram á kvöld
og blaðið aldrei koma út.
— E. Pá.