Morgunblaðið - 04.07.1961, Page 5

Morgunblaðið - 04.07.1961, Page 5
Þriðjudagur 4. júlí 1961 5 MORGVNHLÁÐIÐ li :«ÍtH iHmi ííírííí in íffi pÉS E B f SÍÐTJSTU viku veittu vegfar endur því eftirtekt a3 renni- legt fley sigldi seglum þönd- um um Tjörnina. Fólkið, sem var að spóka í góðvirðinu, hætti að lygna aftur augunum framan í brosandi sólina og staldraði við, og íbúarnir í Tjarnarhólmanum urðu svo hissa að þeir máttu ekki vera að iþví að verða hræddir og fljúga á braut. Þegar seglskipið nálgaðist hólmann ískyggilega mikið þótti kríunni auðvitað nærri sér höggvið og fylkti liði til árásar á „landhelgisbrjótinn“ — án þess að vara hann við eða kanpa málið eftir diplo- matiskum leiðum. Tuttugu kríur hófu sig samtímis til flugs, hnituðu nokkra hringa yfir hinn ókunna árásaraðila og steyptu sér svo niður með viðeigandi stríðsöskri. — Það var siglutoppurinn sem varð að taka út hegninguna fyrir hið meinta afbrot, því í næstu andrá flugu kríurnar fram hver af annarri, gáfu toppin- um eitt vel útilátið högg og lögðu svo til atlögu á ný. Anda steggirnir, sem eru nú frem- ur svifaseinir, undir venjuleg- um kringumstæðum, urðu svo felmlraðir að þeir brutu ó- sjálfrátt blað í ævagamalli og hefðbundinni flugtæknisögu andaættarinnar, því að nú fóru þeir lóðrétt í loftið eins og þyrilvængjur. Þrátt fyrir berserksgang krí unnar komst seglskipið ólask- að norður fyrir hólmann, beygði og sigldi í hringi og tók svo stefnu á tjarnarbakk- ann og sigldi örugglega til lands. Áhorfendur ráku upp stór augu og veltu vöngum yfir því hvort lína væri tengd við skútuna og hvar hún lægi. En það var engin lína tengd við skútuna. Skipið stóð að- eins í radiosambandi við land og á bakkanum fylgdust tveir starfsmenn Landsímans með fcrðum þess, þeir Jón Eiríks- son, loftskeytamaður og Þor- kell Gunnarsson viðgerðamað- ur og höfðu með sér f jarstýri- tæki og þurftu ekki annað en að þrýsta á hnapp á tækinu og þá breytti skútan sam- stundis um stefnu. Við hittum þá Jón og Þor- kel að máli og spurðum þá um skipið. Jón hefur séð um alla smíði þess, Þorkell hefur sett saman stýristækin, bæði senditækið og móttökutækið í skipinu, en það er tengt við sérstakan mótor sem hreyfir stýrið ýmist til hægri eða vinstri, eftir því á hvorn hnappinn stjórnandinn styð- ur. Skipið er 128 sm að lengd, gert úr 5 mm þykkum viði. Siglan er 160 cm að hæð með segli sem er 800 ferþuml. — Er Iangt síðan þið smíð- uðuð skipið? — Það var einhvern tíma á árunum 1942—’43. Þetta var Jón Eiríksson og Þorkell Gunnarsson með fjarstýrðu skút- una og senditækið. (Ljósm.: Sv. Þormóðsson) 25. skipið sem ég smíðaði, seg- ir Jón. Það má segja að ég hafi fengið áhugann á þessu þegar ég var í siglingum fyrr á árum. Ég var í Þýzkalandi og það kom dálítið einkenni- legt atvik fyrir okkur á skip- inu. Við vorum að koma í höfn og sigldum þá á lektu, sem lá þarna Ijóslaus við inn- siglinguna. Við björguðum mannskapnum en höfðum skemmt skiþið, sem varð að fara í slipp, og það tók nokk- urn tíma að gera við það, svo að skipshöfnin varð að finna sér eitthvað til dundurs. Ég hafði keypt seglbát handa syni mínum og rölti með hann niður að höfninni og byrjaði að sigla honum þar. Þegar ég kom heim gerði ég svo helm- ingi stærri eftirlíkingu af lion um og þar með var vírusinn kominn í mig og síðan hefi ég smjðað fjöldann allan af skip- um af öllum gerðum. Þorkell hefur gert stýritæk- in, nema mótorinn sem hreyfir stýrið til. Þorkell sagði okk- ur að allt efni í tækin væri hægt að fá hér heima og kqst- aði um 600 krónur. — Þarf ekki sérstakt Ieyfi til að nota svona stýristæki? — Það þarf að fá samþykki Landssímans. Menn koma bara með tækin til okkar, við athugum tíðnina sem þau senda á, og ef við sjáum að þau geti ekki haft nein trufl- andi álirif á f jarskiptin þá gef um við út leyfisspjald, sem kostar 50 krónur. — Og það er ekkert spurt hver hafi sett tækið saman? — Nei, það kemur okkur ekkert við. Bara að það sé gert á réttan hátt. Þorkell er um þessar mund- ir að ljúka við að smíða stórt fjarstýrt flugvélarlíkan. Til- raunarflugið á að fara fram einhvern tíma á næstunni, á ótilteknum stað utan við bæ- inn. Hann segist hafa mikinn áhuga á flugvélasmíðum og les mikið um þau mál í er- lendum tímaritum. — Þeir eru farnir að fljúga þessum módelum í 13 tíma samfleytt og fara þá upp und- ir 200 mílna vegalengd, segir Þorkell. Annars er ég alveg einn á báti við flugvélasmíð- arnar. Jón hefur ekki fengið „delluna“ enn þá. — Er langt síðan skútan komst á flot? — Það er orðið ærið langt síðan hún var smíðuð, eins og ég sagði áðan, segir Jón. En fjarstýristækin eru alveg ný. Við höfum ekki þorað að sigla henni fyrir almennings- sjónum fyrr en núna. Við er- um eins og Rússarnir í þessum málum. Fyrst fórum við með hana upp á Rauðavatn, og þá geþk það heldur skrykkjótt. En við fundum út hvað að var og svo lögðum við í að fara með hana á Tjörnina og það hefur allt gengið prýðilega. Hún hefur gengið mest um Wi mílu. Það þarf að vera mjög nákvæm smíði á þessum skipum til þess að þau sigli vel. Miklu meiri nákvæmni heldur en við venjulega báta. Öll hlutföll verða að vera hár- nákvæm ef vel á að vera. Það eru mikil þægindi að hafa f jar stýringuna. Tækin draga um 3 mílur, svo að stjórnandinn getur tekið lífinu með ró. — Það er mlfnur eða þegar ég var að sigla henni á Tjörn- inni. Þá varð ég að hlaupa fram og aftur á bakkanum til að taka á móti henni. —^ Áhuginn hefur ekkert dvínað með aldrinum? — Nei, nei. Ég get alltaf Ieikið mér eins og strákur. Alltaf jafn ungur — eða rétt- ar sagt gamall. Ég held nefni lega að ég hafi fæðzt gamall. Ég man fyrst eftir mér þegar ég var 6 vikna. Þetla er ákaf- lcga merkilegt. Þó veit ég um annað mjög líkt. Það var franskur ráðherra eða einhver annar labbabútur, sem fædd- ist gamall, og honum fór eins og mér, hann hefur alltaf drukkið mjólk frá fæðingu. Skútan á siglingu á Tjörninni. 2ja—3ja herbergja íbúð óskast. — Uppl. í síma 35736. Óska eftir 1 til 2 herbergja íbúð sem fyrst. — Sími 36716. Húsbyggjendur Gröfum húsgrunna. — sprengingar. Símar 32889 og 37889. Keflvíkingar Vegna sumarleyfa verður lokað 9.—29. júlí. Efnalaug Keflavíkur. Hjónarúm með amerískum springdýn- um til sölu i verzlun G. Zoega, Vesturgötu 6. Verð 4500. íbúð óskast Óska eftir 2—3 herbergja íbúð, helzt í Kópsvogi eða Hafnarfirði. Góð umgengni. Uppl. í síma 12867. Volkswagen Vil kaupa vel með farinn Volkswagen, ekki eldri en ’56. Tilboð merkt: „Volks- wagen — 118“ sendist fyrir 6. júlí til afgr. Mbl. 13 ára drengur óskar ið komast á gott heimili í sveit í sumar, er vanur. Uppl. í síma 16182 eftir kl. 2 í dag og næstu daga. S amarbústaður Lítill sumaróústaður á fallegum stað í Vatnsenda- lar.di til 'ölu ódýrt. Sími 12982. Trésmíði Vinn allskonar innanhúss trésmíði í húsum og á verk stæði. Hef vélar á vinnu- stað. Get útvegað efni. — Sanngjörn viðskipti. Sími 16805. Óska eftir íbúð 2—4 herb. í Hafnar- firði. Tvennt í heimili. — Uppl. í síma 50518. Bílkrani til Ieigu ' hýfingar, ámokstur og gröftur. — Sími 33318. íbúð — leiga Óska eftir að leigja 4ra herbergja íbúð. Tilboð sendist blaðinu merkt: — „íbúð 1285“. A T H U G I Ð að borið saman 5 útbreióslu er langtum ódýrara að auglýsa i Morgunblaðinu, en öðrum blöðum. — Til leigu íbúð við Miðbæinn, 2 herb., eldhús og bað. — Nokk- ur húshjálp áskilin. — Tilboð merkt: „Kyrrlátt — 1283“, sendist afgr. Mbl. Tjarnarhárgrei^slustofan verður lokuð vegna sumarleyfa dagana 30. til 24. júlí. 4—5 herbergja íbuð eða lítið hús, óskast til kaups, með góðum kjörum. Tilboð með lýsingu og kjörum, leggist inn á afgr. Mbl. fyrir laugardag 8. þ.m. merkt: „1286“. „GUMOUT“ hreinsiefni fyrir bíla blöndunga Hreinsar blöndunginn og allt benzínkerfið. Sam- lagar sig vatni og botnfalli í benzíngeyminum og hjálpar til að brenna það út. — Bætir ræsingu og gang vélarinnar. Smyrill Laugavegi 170 — Sími 1-22-60 Síldarstúlkur Leiðin til fjár liggur til Siglufjarðar. Viljum ráða nokkrar síldarstúlkur til starfa strax. — Fríar ferð- ir, — Kauptrygging — Fyrsta flokks húsnæði. — Upplýsingar í síma 23403 eftir kl. 4 í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.