Morgunblaðið - 04.07.1961, Qupperneq 10
10
MORGVNBLAÐ1Ð
Þriðjudagur 4. 'júlí 1961
Utg.: H.f. Arvakur Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalotræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
VARNIR
C JÁLFSTÆÐISBARÁTTAN'
k-J er ævarandi. Á 19. öld
var hún fólgin í endurreisn
Alþingis, setningu stjórnar-
skrár, afnámi landshöfðingja-
valdsins og sköpun innlendr-
ar stjórnar með ábyrgð gagn
vart Alþingi. Á 20. öldinni
stefnir sjálfstæðisbaráttan að
fullveldisviðurkenningu og
að henni fenginni að afnámi
konungsdæmisins og stofn-
un lýðveldis á íslandi.
En sjálfstæðisbaráttan held
ur áfram. Nú er hún fólgin
í því að varðveita frelsið,
tryggja það sem áunnizt hef-
ur, byggja upp hið unga ís-
lenzka lýðveldi. Lýðveldið
fæddist mitt í hrikalegustu
og blóðugustu átökum ver-
aldarsögunnar. Að þeim lokn
um tók kalda stríðið við.
Tímabil þess hefur einkennzt
framar flestu öðru af við-
leitni friðelskandi þjóða til
þess að koma í veg fyrir að
ný styrjöld hefjist. Merkasta
og örlagaríkasta sporið, sem
stigið hefur verið í þá átt,
er tvímælalaust stofnun At-
lantshafsbandalagsins vorið
1949. Það er Islendingum í
senn sómi og mikil gæfa að
hafa tekið þátt í því allt frá
upphafi.
★
Atlantshafsbandalaginu hef
ur orðið mikið ágengt. Það
hefur stöðvað ofbeldissókn
hins alþjóðlega kommúnisma
vestur Evrópu. r Það hefur
komið í veg fyrir að komm-
únisminn, arftaki nazismans,
rændi fleiri þjóðir Evrópu
frelsi þeirra en hann hafði
þegar gert, áður en banda-
lagið var stofnað.
Frjálsir menn um allan
heim standa í mikilli þakk-
lætisskuld við Atlantshafs-
bandalagið. Framlag okkar
íslendinga til þess er það
eitt, að við höfum heimilað
nokkur afnot af takmörk-
uðum svæðum á landi okk-
ar til sameiginlegs varnarvið
búnaðar. Hér hefur dvalið
örfámennt lið varnarbanda-
lagsins og hér hefur verið
komið upp aðvörunarkerfi
gegn hugsanlegum árásar-
flugvélum.
Allur viðbúnaður hér á
landi er miðaður við varnir
einar. Atlantshafsbandalagið
og þjóðir þess munu aldrei
gera árás á nokkra þjóð.
Hlutverk þess er aðeins að
standa vörð um frelsi og
sjálfstæði þjóðanna og mann
helgi einstaklingsins. Þeir,
sem hatast við þetta banda-
lag geta aðeins haft illt í
huga. Það eru aðeins þeir,
sem hyggja á árásir og yfir-
ÍSLANDS
gang, sem geta haft ástæðu
til þess að hatast við At-
lantshafsbandalagið.
Yfirgnæfandi meirihluti ís
lenzku þjóðarinnar fagnar
samstöðu sinni með vestræn-
um lýðræðisþjóðum. íslend-
ingar vilja ekki að land
þeirra standi opið og óvarið
fyrir hvaða ofbeldissegg, sem
kynni að vilja ásælast það.
í þátttöku íslands í Atlants-
hafsbandalaginu og þeim
varnarviðbúnaði, sem hér
hefur verið gerður, er sjálf-
stæðisbarátta íslendinga fólg
in í dag. I þessari baráttu
verða öll þjóð»holl öfl að sam
einast gegn hinni nýju ný-
lendukúgun og útþenslu-
stefnu hins alþjóðlega komm
únisma.
FORDÆMI
LANDSBANKANS
RÁ því hefur verið skýrt,
að Landsbanki íslands
hafi af tilefni sjötíu og fimm
ára afmælis síns gefið þrjár
rausnarlegar gjafir til menn-
ingar- og mannúðarmála.
Stærst þeirra er gjöf til Há-
skóla íslands. Er hún í því
fólgin að bankinn býðst til
að greiða í 10 ár laun prófess
ors við Háskólann, sem flytji
fyrirlestra um efnahagsmál.
Þá hefur bankinn ákveðið að
gefa myndarlega fjárhæð í
náms- og kynningarsjóð
bankastarfsmanna og loks
hefur hann ákveðið að halda
ekki afmælishóf en gefa í
þess stað 250 þúsund krónur
til barnaspítalasjóðs Hrings-
ins.
Fyllsta ástæða er til þess
að vekja athygli á þessu for-
dæmi Landsbankans. Segja
má að það sé orðinn siður
hér á landi að efna til veizlu-
halda af hvers konar tilefni.
Hefur hið opinbera oft geng-
ið á undan í slíku tildri, er
oft kostar stórfé, sem greitt
er úr sameiginlegum sjóði
borgaranna. Vitanlega getur
verið eðlilegt og sjálfsagt að
menn geri sér dagamun af
ýmsu tilefni. En í því eins
og öðru er hægt að fara út
í öfgar, og sú hefur orðið
raunin á hér á landi í þess-
um efnum. Sú ákvörðun
Landsbankans að gefa 250
þúsund krónur til barna-
spítalasjóðe Hringsins í stað
þess að efna til dýrrar af-
mælisveizlu er til mikillar
fyrirmyndar. Mættu fleiri
opinberar stofnanir, sem af-
mælisdag eiga minnast þess
að það er þjóðinni gagnlegra
Þessi mynd var tekin hinn 14. júlí sl., er nokkrir fulltrúar bandarísku söfnunarnefndar-
innar ræddu við Fidel Castro á Kúbu.
„Dæmafá mannfyrirfitning"
Dónrnr margra suður - amerískra blaða
um Castro vegna brots hans á sam-
komulaginu um skipti á föngum
og jarðvinnsluvélum
riNS og kunnugt er af frétt
^ um, hefir bandaríska
nefndin, sem gekkst fyrir al-
mennri fjársöfnun til kaupa
á dráttarvélum, er skipt
skyldi fyrir um tólf hundruð
fanga á Kúbu, ákveðið að
skila aftur söfnunarfénu til
þeirra, er létu það af hendi.
Orsökin er sú, að nefndin tel-
ur Fidel Castro, forsætisráð-
og þeim sjálfum til meiri
sóma, að minnast mannúðar-
stofnana en efna til dýrra og
innihaldslausra veizluhalda.
MATTHÍASAR-
SAFN
Á AKUREYRI
A KUREYRINGAR hafa opn
að minjasafn Matthíasar
Jochumssonar, hins mikla
skálds og ágæta kennimanns.
Á Sigurhæðum, hinu gamla
húsi skáldsins, hefur verið
safnað saman fjölda muna úr
búi hans og lögð hefur verið
áherzla á að gera þessi húsa-
kynni sem líkust því, er þau
voru þegar skáldið lifði þar
og starfaði.
Akureyringar eiga þakkir
skildar fyrir þessa ræktar-
semi við minningu Matthías-
ar Jochumssonar. — Spor
margra íslendinga mtinu í
framtíðinni liggja að Sigur-
hæðum. Minning Matthíasar
Jochumssonar mun halda á-
fram að lifa með ljóðum
hanns í hugum þjóðarinnar.
herra á Kúbu, hafa gengið á
bak orða sinna og samkomu-
lagið, sem varð um þessi
skipti. Castro bauð það sjálf-
ur upphaflega, að umrædd-
um föngum, sem teknir voru
höndum í hinni misheppnuðu
innrás á Kúbu í apríl sl.,
skyldi gefið frelsi gegn því,
að Bandaríkjamenn útveg-
uðu Kúbustjórn 500 land-
búnaðardráttarvélar. — Fyr-
ir skömmu hækkaði Castro
svo „verð“ fanganna — og
krafðist 28 millj. dollara eða
jafnvirðis í dráttarvélum. Á
þetta neituðu hinir banda-
rísku aðilar að fallast.
— ★ —
Castro hefir víða verið gagn-
rýndur mjög fyrir frekju sína
og ágimd í þessu máii — og
hafa biöð í Suður-Ameríku ekki
hvað sízt verið harðorð í garð
hans. Hafa mörg þeirra látið svo
um mælt, að Castro hafi hér
sýnt dæmafáa mannfyrirlitn-
ingu.
Verður hér á eftir drepið á
ummæli nokkurra suður-amer-
ískra blaða til þess að sýna, hve
köldu andar nú til Castros þar
vegna framkomu hans í fanga-
málinu.
Ar Einn svartasti bletturinn
Blaðið „E1 Diario jUustrado'1
í Santiago í Chile segir m.a. eft-
irfarandi, sem kallast getur eins
konar samnefnari fyrir afstöðu
fjölmargra annarra blaða: —
„Þessi' dráttarvélasaga verður
áreiðanlega talinn einn svartasti
og svívirðilegasti bletturinn á
stjórnarvöldum, sem eru þó fyr-
ir kunnust að margendurteknum
ofstopa og ofbeldisaðgerðum."
Enn fremur segir blaðið, að
þetta misheppnaða samkomulag
„sýni með Ijósum hætti, hversu J
vonlaust sé að reyna að semja
um nokkuð við Castro-sinna“. —
Annað leiðandi blað í Santi-
ago, „E1 Mercurio", segir, að
menn hefðu átt að geta sagt sér
það sjálfir, „að Fidel Castro
mundi sjá svo um, að ekkert
yrði af skiptunum á föngum og
dráttarvélum, sem hann hafði
sjálfur stungið upp á“. Þá talar
blaðið um „kvalalosta" þann,
sem lýsi sér í því, að Castro
skyldi aftur senda hóp fanga til
Florida, „eins og beiningamenn",
til þess að reyna að hefja samn-
inga að nýju.
— ★ —
Dagblaðið „E1 Debate“ í
Montevideo í Uruguay segir, að
„fjárkúgunar-kröfur“ Castros
séu „enn ein sönnunin fyrir því,
„að maðurinn hljóti að teljast
„brjálaður". Umræddar aðgerðir
hans beri líka á sér „öll hin
verstu einkenni kommúnism-
ans.“
★ „Einber fjárkúgun“
Ekvador-blaðið „E1 Tele-
grafo“ bendir á það, að með
því að hafna jarðvinnslutraktor-
um og krefjast þess í stað „stór-
virkra véla til þess að byggja
hernaðarmannvirki" hafi Castro
enn sýnt og sannað, „að hann
lætur sig engu skipta skort þjóð
ar sinnar, því umræddar drátt-
arvélar hefðu getað komið í góð
ar þarfir til þess að auka fram-
leiðslu ýmissa fæðutegunda". —•
Blaðið fordæmir raunar tilboð
Castros um skipti á vélum og
mönnum — nefnir það „svívirði
lega uppástungu“ „einbera fjár-
kúgun“ og annað slikt. Þrátt
fyrir það, segir „E1 Telegrafo“,
var „bandarískt veglyndi reiðu-
búið að bjarga föngunum á
Kúbu“.
★ Til aðstoðar Iandflótta
Kúbumönnum
Öll helztu blöðin í Caracas,
höfuðborg Veriezúela,—hafa tekið
Castro í karphúsið — fyrst fyr-
ir hið upphaflega tilboð, sem
þau telja sýna einstæða fyrir-
litningu á mannlegum tilfinn-
ingum, og síðan fyrir að ganga
á bak orða sinna varðandi skipt-
in. — Dagblaðið „Ultima Hora“
í Caracas, sem skrifar um mál-
ið undir fyrirsögninni „Fjár-
kúgunar-áætlunin", stingur upp
á því, að fénu, sem safnaðist
Framh. á bls. 12.