Morgunblaðið - 20.07.1961, Blaðsíða 2
2
MORGUtyVLAÐlÐ
Fimmtudagur 20. júlí 1961
Veitt í svarta
þoku eystra
í G Æ R var þoka á síldar-
miðunum fyrir austan. Síð-
ari hluta dags fann Fanney
mikla síld um 48 mílur SA
af Glettinganesi og hélt flot-
inn þangað. Skipin eru búin
radar og kasta eftir fisksjá,
svo þokan hindrar ekki veið-
arnar. í gærkvöldi var síld-
arleitin búin að frétta af
nokkrum hátum, sem höfðu
fengið einhverja síld, t. d.
Sæfugli, Friðbert Guðmunds
syni, Guðfinni, Ólafi Tryggva
syni og Jökli og Héðinn var
á leið í land með 400 tunnur.
Síldarflugvélin sá í gær-
kvöldi nokkuð af „augum“
NA af Kolbeinsey.
Á Austfjarðahöfnum er nú
talsverð löndunarbið, svo mik
ið af skipum fer norður fyrir
til Raufarhafnar þar sem
löndunarbið er nú ekki meiri
en sólarhringur, eða þá alla
leið til Siglufjarðar, 14—20
tíma siglingu, en þar er engin
bið.
Tunnur berast.
Flutningaskipin norsku eru nú
að koma í síldarflutningana. —
Aska losaði tunnur á Seyðisfirði
í fyrrinótt og í gær var verið að
koma fyrir skilrúmum til síldar-
flutninganna og var búizt við að
skipið gæti farið að taka við
síld, 3200 málum, í nótt. Hitt
skipið Talis losaði tunnur á
Vopnafirði í gær, fer með fleiri
tunnur til Raufarhafnar og kem
ur svo einnig í síldarflutninga til
Eyjafjarðarhafna. Skipið tekur
5000 mál.
Síldar-
vísur
í GÆR, áður en Morgunblaðið
barst til Siglufjarðar og Siglfirð-
ingar sáu vísur Raufarhafnar-
búa, var þá farið að lengja eftir
vísnasendingu frá þeim. Þá var
siglfirzkum hagyrðingi að orði:
Hvar er þeirra gamla gort,
sem gerðu vísur slyngar?
Geta þeir kannski ekki ort,
Austur-Þingeyingar?
— ★ —
S V A R T :
Síldarverksmiðja ríkisins
Raufarhöfn
ABCHEFGH
HVÍTT :
Síldarverksmiðja ríkisins
Siglufirði
3. d2—d4
Raufarhöfn svaraði um hæl cxd4
Flest skipin
sigla norðurfyrir.
í gær komu til Raufarhafnar
eftirtalin skip: Árni Þorkellsson
með 700 mál, Húni með 800, Jón
Finsson með 600, Skipaskagi með
700, Áskell með 850, Hafþór Guð
jónsson með 700 og Ólafur
Tryggvason og Jökull voru búnir
að biðja um söltun. Er bæði brætt
og saltað ofan af þar.
Til Siglufjarðar komu í gær
mörg skip, og voru fleiri á leið-
inni inn í gærkvöldi. Eftir að bú-
ið var að salta eitthvað ofan af,
fóru eftirtalin mál í bræðslu:
Pétur Jónsson með 700 mál,
Steinunn SH 650, Jón Gunnlaugs
son GK 700, Sigurður SI 1000,
Hafbjörg AK 290, Helgi Helga-
son VE 1500 mál, Jón Garðar GK
700, Björgvin KE 370, Hilmir KE
930, Pétur Sigurðsson 700, Sæfari
AK 550, Faxaborg 800, Ófeigur
II 750 mál, Hrönn II 750, Stapa-
fellið fullfermi, Þorlákur 750,
Reynir AK 560, Hafbjörg VE 500,
Sveinn Guðmundsson AK 500,
Rifsnes RE 754, Höfrungur AK
600, Böðvar AK 700 og Heiðrún
með fullfermi.
Saltað ofan af
og síðan brætt.
Hæstu söltunarstöðvarnar voru
í gærkvöldi: Hafsilfur á Raufar-
höfn með 12.262 tunnur, Óskars-
stöð á Raufarhöfn með 10.924,
Nöf á Siglufirði með 9,288. Á
Ströndinni, hærri söitunarstöð-
inni á Seyðisfirði, voru komnar
6600 tunnur í salt.
Til Seyðisfjarðar komu í gær
4 skip. Var saltað ofan af þeim
200—300 tunnur og síðan brætt.
I gær byrjaði ný söltunarstöð á
Seyðisfirði á vegum Valtýs Þor
steinssonar.
Til Eyjafjarðarhafna komu
Baldvin Þorvaldsson, sem lét í
salt í Grímsey 300 tunnur og fór
síðan með í bræðslu til Hjalteyr
ar. Til Hjalteyrar komu auk þess
Akraborg með 1050 tunnur, Árni
Geir KE með 1000 og til Kross-
ness Snæfell með 1200 og Sigurð
ur Bjarnason með 1200 tunnur.
Veiðin að "læð-
ast í Laxá
HÚSAVÍK: — Laxveiðin í
Laxá í Aðaldal er nú heldur
að glæðast. Einn dag í síðustu
viku fékk Sigurður Samúels-
son, prófessor, 10 laxa í Laxa-
mýrarlandi neðra. Seinnipart-
inn á laugardaginn fékk Jó-
hannes Kristjánsson, bifvéla-
virki á Akureyri 3 laxa í
Hólmavaðslandi, og fyrripart-
inn á sunnudaginn fékk hann
10 laxa í Laxamýrarlandi
neðra. Var sá stærsti 16 pund,
en hinir flestir um 10 pund.
— Silli.
Ingvar hreppstjóri
Jónsson sextugur
SKAGASTRÖND. — Ingvar
Jónsson hreppstjóri frá Brúar-
landi á Skagaströnd er sextugur
í dag. Ingvar hefur verið einn
aðalforvígismaður Sjálfstæðis-
flokksins hér um árabil og er nú
formaður Sjálfstæðisfélagsins
Þróttar. Einnig hefur hann starf-
að mikið fyrir ungmennafélags-
hreyfinguna og er nú formaður
Ungmennasambands Austur-Hún
vetninga. Vinir hans hér senda
honum beztu heillaóskir.
— FréttaritarL
/" NA /5 hnúfar S V 50 hnútar ¥: Snjókomo t 06 i X7 Sltúrír K Þrumur W&S, KuUaskit Hitaski) H Hm» L* Letai
MILLT veður er um allt land
og á hafinu suður og austur
undan. Hlýnað hefur í veðri
og var víða 14 til 17 stig í
innsveitum um hádegið. Um
nónbilið var 19 stiga hiti á
Kirkjubæjarklaustri og 18
stig á Nautabúi í Skagafirði.
Þokuslæðingur er á miðunum
fyrir austan land, en bjart
fyrir norðan.
SV-land til Vestfjarða og ,
miðin: Sunnan gola, skýjað og ]
víða smáskúrir.
Norðurland til SA-lands og|
miðin: Hæg breytileg átt, úr-
komulaust og víða léttskýjað.1
Þjóðverjar fá takmörkuð veibi-
réttindi gegn viðurkenningu
Morgunblaðinu barst í gær svo'
hljóðandi fréttatilkynning frá ut
anríkisráðuneytinu:
„f dag hefur með erinda-
skiptum milli utanríkisráð-
herra og sendiherra Þýzka-
lands í Reykjavík verið geng-
ið frá samkomulagi við ríkis-
stjórn Sambandslýðveldisins
Þýzkalands um viðurkenn-
ingu Sambandslýðveldisins á
12 mílna fiskveiðilögsögu við
fsland, um aðstöðu þýzkra
skipa til veiða við fsland og
fleira.
Samkomulagið, sem gildir
til 10. marz 1964, er efnislega
eins og samkomulag það, sem
gert var í Reykjavík hinn 11.
marz 1961 um lausn fiskveiði-
deilunnar við Breta.
U tanrí kisráðuney tið.
Reykjavík, 19. júl. 1961.“
Eins og skýrt var frá hér í blað
Eitruð
aldin
Varið börn við
að borða Jbau
FYRIR skömmu birtist í Dag-
bók blaðsins þáttur um dýr og
fjróður, var í honum talað um
gullregnið í görðum bæjarins.
Nokkru síðar kom frú ein í
ritstjórnarskrifstofu blaðsins
og sagðist hafa lesið í dönsk-
um blöðum um börn, sem
veikzt hefðu hastarlega af því
að borða aldin gullregns.
Blaðið sneri sér til Ingólfs
Davíðssonar, grasafræðings ogr
spurðist fyrir um, hvort sama
tegund gullregns væri ræktuð
hér og í Danmörku. Kvað
hann svo vera, en sagði að
aldinin yrði ekki eitruð, nema
þau þroskuðust svo að belg-
irnir yrðu brúnir. Þetta kvað
hann ebki mjög algengt hér
á landi, því yfirleitt yrði það
ekki nema á gömlum trjám.
Að lokum sagði Ingólfur,
að víða um heim væri farið að
rækta gullregn annarrar teg-
undar, bæri hún ekki aldin
og væri þar af leíðandi hættu- /
laus. Tilraunir til ræktunar '
þessarar tegundar hefðu ekki
verið gerðar hér á landi, en
sennilega myndi hún þrífast
hér, þar sem hún þrifist norð-
arlega í Noregi.
inu sl. þriðjudag hafði utanríkis-
málanefnd Alþingis samþykkt
það á fundi sínum laugardaginn
16. júlí, að veita Þjóðverjum tak
mörkuð veiðiréttindi hér við
land til þriggja ára gegn því, að
þeir viðurkenndu 12 mílna mörk
in og síðustu útfærslur á grunn
línum. Hafði nefndin samþykkt
þessi málalok með 3 atkvæðum
gegn 2, atkvæðum þeirra Eysteins
Jónssonar og Finnboga R. Valdi-
marssonar.
67
farast
Buenos Ares, 19. júlí. —
í DAG fórst argentínsk far-
þegaflugvél með 67 manns
'nnanborðs. Enginn mun hafa
komizt lífs af.
Slysið varð um 150 mílur suð-
vestur af Buenos Aires. Fregnir
eru mjög óljósar af atburði
þessum, en flugvélin mun hafa
ætlað að nauðlenda þarna. —
Sprenging varð í vélinni áður
en hún nam við jörðu og féll
brakið yfir stórt svæði. Þarna
er mikið mýrlendi og tafði það
björgunarstarf og athuganir á
slysinu.
Heimdall
arferð
NÆSTA ferð Heimdallar, F.U.S.
verður um næstu helgi í Kerling
arfjöll. Lagt verður af stað frá
Valhöll við Suðurgötu ki. 2 e.h.
á laugardag, þá verður ekið í
Kerlingarfjöll. Á sunnudagsmorg
un verður gengið á Snækoll, en
þaðan mun vera einna víðsýnast
af öllu landinu. Komið verður
til Reykjavíkur á sunnudags-
kvöld.
Þátttakendur hafi með sér nesti
og tjöld, ef mögulegt er, en heitt
kaffi verður veitt á tjaldstað.
Allar nánari upplýsingar verða
veittar á skrifstofu Heimdallar í
Valhöll, sími 17102, og til þess
ætlazt að menn hafi skráð sig
til þátttöku og tekið farmiða fyr-
ir kl. 7 á föstudagskvöld.
Mikill afli
til Eyja
Frystihúsin tak-
marka veiðar
bátanna
IVESTMANNAEYJUM, 19/7. -]
Óhemju mikið er að gera hér'
í frystihúsunum, sums staðari
unnið fram yfir miðnætti á
hverju kvöldi og hafa frysti-
húsin síðustu dagana orðið að
fara inn á það að takmarka
veiðar bátanna, einkum á sól-]
kola. {
í sumar stunda hér veiðari
60—70 bátar og hafa aldreij
verið svo margir. Eru þeir
ýmist að dragnótaveiðúm eða|
botnvörpu og hafa fengið miki
inn og góðan afla. i
Hefur því borizt mikill aflil
á land og hann er að auki sein
{unninn, þurft að flaka mikið
af honum. Þetta hefur orðið
|til þess að frystihúsin hafa1
ivarla undan, þó óvenjumikið
sé af aðkomufólki hér í sum-
ar. — Bj. Guðm. 1 j
Landanir togara
í Reykjavík
I GÆR landaði togarinn Askur
200 lestum af fiski í Reykjavík
og Ingólfur Amarson 80 lesturrx
af saltfiski og 40 af nýjumfiski.
Báðir voru á veiðum á heima-
miðum. Hallveig Fróðadóttir var
svo væntanleg í morgun í höfn,
í fyrradag kom Hvalfellið
með 132 lestir og Gylfi með 74
lestir af heimamiðum.
ValdimarV.
Swævarr látinn
í FYRRAKV ÖLD andaðist I
fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri Valdimar V. Snævar, hinn
þjóðkunni skólamaður og sálma-
skáld. Var hann 77 ára 'að aldri.
Valdimar fæddist 22. ágúst 1883
á Þórisstöðum á Svalbarðsströnd,
Suður-Þingeyj asýslu, missti ung-
ur föður sinn en brauzt áfram til
mennta og tók gagnfræðapróf frá
Möðruvallaskóla. Stundaði hann
síðan kennslustörf og varð skóla
stjóri á Húsavík tvítugur að aldri
Árin 1914—1943 var hann svo
skólastjóri barnaskólans í Nes-
kaupstað og jafnframt lengi img-
lingaskólans þar. Ýmsum trúnað-
arstörfum gegndi hann meðfram
skólastjórn. — Valdimar Snævarr
má tvímælalaust telja eitt helzta
sálmaskáld sinnar samtíðar, en
auk þess ritaði hann bæði bækur
og fjölda greina, lét hann sig þar
einkum skipta andieg efni og
uppeldismál.
Kvæntur var Valdimar Stefan-
íu Erlendsdóttur og lifir hún
mann sinn.