Morgunblaðið - 20.07.1961, Blaðsíða 5
Fimmfudagur 20. júlí 1961
MORGVNBLAÐIÐ
5
Karl 6ð yfir á,
bar á baki skyrsá,
nafar og nýtt skip,
naustur og klaustur,
hauk og héra,
hest og sleða,
árar og stýri,
herklæði og skötubarð,
hökul og smérdall,
tólf börn og kerlingu sína.
Hvar sástu þann karl,
sem meira mátti bera?
Meira bar hann Helgi,
ég sá hann á alþingi.
Barn bar hann Helgi
og á svarta,
kú kálffulla,
konu þungaða,
hest hringeygðan,
bola hjálmóttan,
fola járnaðan,
þrjú naut þrevetur,
þrettán geldinga.
Þetta bar hann Helgi
og hundrað lamba,
alsvartan uxann,
öskutrog og ónýtt hrip
og átján barna ruggur.
hökul og smjerdall,
nafnar og nýtt skip,
Þetta bar hann Helgl.
(Gömul þula).
Flugfélag íslands h.f.: — Millilanda-
flug: Gullfaxi fer til Glasg. og Kaup_
mannahafnar kl. 08:00 í dag. Væntan-
legur aftur kl. 22:30 1 kvöld. Fer til
6ömu staða kl. 08:00 í fyrramálið. —
Hrímfaxi fer til Lundúna kl. 10:00 1
fyrramálið. — Innanlandsflug í dag:
Til Akureyrar (3), Egilsstaða, ísafj.,
Kópaskers, Vestmannaeyja (2) og
í>órshafnar. — Á morgun: Til Akureyr-
ar (3), Egilsstaða, Fagurhólsmýrar,
Hornafjarðar, Isafjarðar, Kirkjubæj-
arklausturs og Vestmannaeyja (2).
Loftleiðir h.f.: — Þorfinnur karls-
efni er væntanlegur frá N.Y. kl. 06:30.
Fer til Luxemborgar kl. 08:00. Kemur
aftur til Kvíkur kl. 24:00 og heldur
éfram tU N.Y. kl. 01:30. — Snorri
Sturluson er væntanlegur frá N.Y. kl.
09:00. Fer til Ösló, Kaupmh. og Hamb.
!kl. 10:30. — Leifur Eiríksson er vænt-
anlegur frá Stafangri og Osló kl. 23:00.
Fer til N.Y. kl. 00:30.
Pan American flugvél kom til Kefla-
víkur í morgun frá N.Y., og hélt áleið
ís til Glasg. og London. Flugvélin er
væntanleg aftur í kvöld og heldur þá
éfram til N.Y.
Hafskip h.f.: — Laxá er á leið til
Concarneau.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er á leið til Frakklands. — Askja
er í Riga.
H.f. Jöklar: — Langjökull er á Ak-
lireyri. — Vatnajökull er í Reykjavík.
Eimskipafélag íslands h.f.: — Brúar-
foss er á leið til N.Y. — Dettifoss er á
í GÆRMORGUN lauk hinni
leið til Rvíkur. — Fjallfoss er í London
— Goðafoss fór frá Stykkishólmi 1 gær
til Patreksfjarðar. — Gullfoss kemur
til Rvíkur í dag. — Lagarfoss fór 18.
frá Rvík til ísafjarðar. — Reykjafoss
fór frá Hamborg 18. til Rotterdam. —
Selfoss er í Rvík. — Tröllafoss er á
leið til Ventspils. — Tungufoss fór frá
Rvík í gærkvöldi til Hólmavíkur.
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla er í
Norðurlandaför. — Esja fer frá Rvík
í kvöld austur um land í hringferð.
— Herjólfur er í Rvík. — Þyrill er á
Akureyri. — Skjaldbreið fer frá Rvík
á morgun til Akureyrar. — Herðu-
breið kemur til Rvíkur í dag. — Jón
Trausti fer frá Vestmannaeyjum í dag
til Hornafjarðar.
Skipadeild SÍS: — Hvassafell er í
Onega. — Arnarfell er í Archangelsk.
— Jökulfell er á leið til Rvíkur. —
Dísarfell lestar á Eyjafjarðarhöfnum.
— Litlafell er á leið til Rvíkur frá
Austfjarðahöfnum. — Helgafell fer frá
Gdansk í dag til Rostock. — Hamra-
fell kemur til Rvíkur síðd. í dag.
opinberu heimsókn dr. Stikk-
ers, framkvæmdastj. NAXO,
hér á landi. Hélt Stikker þá
flug-leiðis til Amsterdam, með
ftugvél Loftleiða. Ræðismaður
Hollands, Arent Claessen og
fulltrúar utanrikisráðuneytis-
ins fylgdu honum út á flug-
völl.
Mynd sú er hér birtist var
tekin af Ásgeiri Ásgeirssyni,
forseta íslands, dr. Stikker (í
miðið) og Moore, yfirmanni
varnarliðsins á Keflavíkur-
fhigvelli 18. þ.m., en þá
snæddu forsetinn og dr. Stikk
er miðdegisverð í boði Moor-
es, flotaforingja. Einnig kann
aði forseti íslands heiðurs-
vörð úr varnarliðinu.
ÁHEIT og CJAFIR
Sólheimadrengurinn, afh. Mbl.: —
NN 50 kr.; JH 100; NN 100.
Fjölskyldan Sauðárkróki, afh. Mbl.:
— Þórdís kr. 200; BS 500; Garðar 100;
MS 200; JG 500; Heba 300; Lautey
Björnsd. 100; Halldór Teitsson, Hafn-
arfirði 100; GOS 200; Marg. Símonard.
100; BR 150; Guðl. Bárðard. 100; Frá
bömunum á TJtskálum 500; Kristjana
og Þorbj. 1000; SS 100; Össi 200; SS
100; NN 100; B. Jónsson 1000; GA Mos-
fellssveit 100; Guðl. Jónss. 100; VK og
SK 200.
FYRIR skömmu sagði Ragn-
heiður Jónasdóttir (Christina
Sveinsson), sem nú er stödd
í Danmörku, danska frétta-
manninum Bro Brille, sem
skrifar í Extrabladet og hún
hitti í veizlu, sögu af atviki er
henti móður hennar, frú Ragn
heiði Hafstein Sveinsson, á
ferðalagi. Birtist frásögnin í
Extrabladet og er á þessa leið:
Það væri hægt að skrifa
skemmtilega gamankvikmynd
eftir sögu af raunverulegum
atburði er ég heyði I gær.
Aðalhlutverkin í þessari til-
völdu kvikmyndasögu eru
leikin af danska kvikmynda-
kónginum hr. Henning Kar-
mak og frú Sveinsson, móður
hinnar íslenzku kvikmynda-
leikkonu Christinu.
★
Frú Sveinsson hafði dvalið
nokkurn tíma með dóttur
sinni í Löndon, þegar maður
hennar Jónas Sveinsson, lækn
ir sendi henni símskeyti og
bað hana um að koma strax
til Kaupmannahafnar. Það var
í sambandi við læknaráð-
stefnu, er þar var haldin.
Frú Sveinsson reyndi að fá
miða á ferðamannafarrými í
flugvél flugfélagsins BEA, en
þar var uppselt og ekki hægt
að komast nema á fyrsta far-
rýmL En fyrst að maðurinn
Cristina segir söguna
um töskuskiptin.
vildi endilega fá hana til sín
strax var ekki um annað að
gera, en ganga eftir hinum
rauða dregli inn á fyrsta far-
rými Comet-flugvélarinnar. —
Þar voru aðeins fáir farþegar,
en meðal þeirra danski kvik-
myndakonungurinn Henning
Karmak, en hann og trú
Sveinsson þekktust ekki.
Á Kastrup-flugvelli var
Jónas Sveinsson, læknir til-
búinn til að taka á móti konu
sinni og strax þegar farangur-
inn hafði verið afgreiddur,
keyrðu þau beint til hótels-
ins. Farangurinn samanstóð af
þremur töskum, mismunandi
stórum, sem allar voru keypt-
ar í stórverzlun einni í Kaup-
mannahöfn.
Á hótelinu byrjaði frú
Sveinsson strax að skipta um
föt, því hjónin ætluðu út að
borða. Hún sagði manni sínum
að hún hefði haft það mjög
gott í London og skemmt sér
prýðilega.
— Það myndi ég halda,
sagði yfirlæknirinn, þegar
han hafði opnað stærstu tösku
konu sinnar. í henni var
smoking, dökk föt og nokkrar
hvítar skyrtur. í næstu tösku
var karlmannssloppur og inní-
skór. Og þegar frúin leitaði
að púðri sínu og kremi í
minnstu töskunni kom í Ijós
hárkrem og rakvél . . .
★
Það er hægt að setja sig inn
í andrúmsloftið, sem varð á
heimili Karmaks, þegar kona
hans fann við heimkomu
manns síns í einni tösku hans
nokkra kjóla og herðaslá úr
minkaskinni, snkináttkjól og
kven undirföt í annarri og í
þeirri þriðju varaliti, púður
og önnur kvenleg hergögn.
Frú Sveinsson og hr. Kar-
mak hringdu bæði til BEA og
mistökin voru strax leiðrétt.
Ferðafélagarnir, sem höfðu
aldrei hvort annað augum lit-
ið fyrr höfðu bæði keypt ná-
kvæmlega eins töskur í sömu
verzluninni.
Eldavél
Óska eftir kaupum á not-
aðri eldavél helst Rafha. —
Tilb. leggist inn á afgr.
blaðsins merkt „5470“.
Húseigendur
Lítil notaleg íbúð óskast til
leigu um miðjan sept. —
Uppl. í síma 1-96-87 í dag
og næstu daga.
Ungur maður
óskar eftir atvinnu, hefir
sveinsbréf í rennismíði.
Tilb. sedist afgr. Mbl.
merkt „5462“.
Atvinna
Meiraprófsbílstjóri vanur
akstri í bænum óskar eftir
atvinnu. — Uppl. í síma
33333.
ÖKUKENNSLA
Góð kennslubifreið. Uppl.
í síma 11389.
Dönsk stúlka
17 ára, óskar eftir vizt frá
1. sept., á góðu heimili, —
helzt í nágrenni Klep,ps-
holts. Uppl. í síma 35433.
Til leigu
4ra ’-°rb. íbúð með húsgögn
um frá 1. sept. Tilb. sendist
Mbl. fyrir sunnud. merkt
„Útsýni — 5465“.
Góð 2ja—3ja herb. íbúð
óskast til leigu helzt í Hlíð
unum. Fyrirframgr. Tilboð
sendist afgr. Mbl. fyrir 25.
þ.m. merkt ,,Reglusemi —
5463“.
Austin A 30, model 1954
til sölu eða í skiptum. Til
sýnis hjá Yélaverkstæðinu
Kistufelli í dag og næstu
daga.
Bíll til sölu
Hillmann ’50 í góðu lagi til
sölu. Uppl. í síma 22781.
Bókavörður
óskast til upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna. Um-
sækjendur snúi sér til sendiráðs Bandaríkjanna
Laufásvegi 2L
Útsala — Útsala
hefst í dag.
Hatta- ocj Skermabuðin
Tvœr stúlkur
vanar kápusaum óskast nú þegar.
BEZT
Klapparstíg 44.
Aðalfundur
Félags síldarsaltenda á Suðvesturlandi verður hald-
inn í Tjarnarcafé, Reykjavík, íöstudaginn 21. júlí
n.k. kl. 3 e.h.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
STJÓRNIN.
T I L S Ö L U
Ford Fairlane
model 1955, 6 cyl einkabíll, mjög vel með farinn
og glæsilegur. Keyrður aðeins 67 þús. km. — Tilboð
sendist í Pósthólf 1154 fyrir 22. þ.m. merkt:
„Einkabíll — 5475“.
INNFLYTJENDUR: — Umboðsmaður óskast fyrir
heimsþekkta sænska voru
Við óskum að komast í samband við traust fyrirtæki,
sem er fært um að kynna nýtt sænskt raflækninga-
tæki. Tækið hefir mikla sölumöguleika og er hent-
ugast að selja það beint á heimilin. Vnsamlegast
skrifið til:
AB Svensk Ljudteknig, Östra Promenaden 7 A,
Malmö C, Sweden.