Morgunblaðið - 20.07.1961, Blaðsíða 8
8
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmfudagur 20. júlí 1961
wf>, Mjii.'tí'' ,<.éí«'j? S,
■ % . OSsrCsi»
n „fc.. *? & \ . m
Lœknisráö vikunnar
Practicus ritar um:
ASTHMA gefur sig til kynna
með andarteppu, erfiðum and
ardrætti samfara hvini. Milli
kastanna eru sjúklingarnir
alveg, eða næstum alveg, laus
ir við óþægindi.
t|T' 9ggm4
LUNGA, stækkun 50x. Tvær berkjur, A og B, sjást, og
brjóstplata, E, í sameiginlegum vegg þeirra. Örin C bend-
ir á hringvöðvalagið, sem liggur utan um berkjuna, und-
ir slímhúðinni. 1 asthmaköstunum á sér stað samdráttur
í vöðvala^inu og berkjan þrengist, svo að loftið á erfitt
með að sleppa í gegn. Örin D bendir á siímhúðina.
Asthma
Sjúkdómurinn er algengast
ur í börnum og ungu fólki.
Hann kemur oftar fyrir hjá
karlmönnum en ..kvenfólki.
Loftslagið hefur talsvert að
segja, þar sem rigningasamt
er á láglendi er meira um
asthnaasjúklinga en annars-
staðar. í strandhéruðum Vest
ur-Evrópu er talið að hér um
bil 0,5% íbúanna þjáist af
asthma.
Sjúkdómurinn er arfgeng-
ur, og náið samband er milli
asthmans og heymæði og
bronkítis.
Ofnæmi er stór þáttur í
sjúkdómnum. Efni þau, er
sjúklingurinn þolir ekki eru
fyrst og fremst eggjahvítu-
efni, en einnig geta fjölsykr
imgar og fituefni komið til
greina. Oftast nær komast
þau inn í líkamann (T. d. úr
ryki, mjöli, hárum eða fiðri)
gegnum öndunarfærin, en
einnig geta Þau sloppið inn
um slímhúð meltingarfær-
anna. Þær fæðutegundir, sem
þar koma til greina eru helzt
skeldýr, krabbar, rækjur,
humar, ber. Ýms lyf geta
einnig orsakað asthma, t. d.
penicillin og aspirin. Hjá sum
um geta andleg áhrif leitt til
kasfca. Ennþá hafa menn ekki
fullan skilning á eðli og or-
sökum ofnæmissjúkdóma.
Sjálf andarteppan orsakast
af samdrætt iminnstu pípn-
anna í loftveginum (þær eru
nefndar bronchioli á latínu,
en hafa hlotið nafnið berkjur
á íslenzku.). Samfara þrengsl
unum þykknar og bólgnar
slímhúð berkjanna og fram-
leiðir meira slím.
Köstin gefca komið hvenær
sem er, en eru tíðari á nótt-
unni en á daginn. Þau byrja
venjulega með þyngslum fyr-
ir brjósti, síðan verður and-
ardrátturinn hvíslandi og erf
iður. í minni háttar köstum
er það oftastnær útöndunin,
sem verður erfið, en í alvar-
legri tilfellum koma líka erf-
iðleikar við innöndun. í slæm
um köstum situr sjúklingur-
inn upp í rúminu, beygir sig
áfram og styður höndunum
við rúmbríkina, eða annað,
sem tiltækt er, til að geta
notað alla vöðva við að draga
andann. Sjúklingurinn er iðu
lega sveittur og órólegur.
Köstin vara yfirleitt hálfa til
eina klukustund.
Algengustu afleiðingar
asthma eru bronkitis og víkk
uð lungu. Langvarandi köst
geta haft lungnabólgu í för
með sér. Asthmasjúklingar
þjást oft af æxlum í nefi, og
þarf raunar engann að undra
það, því slík æxli stafa oft
af ofnæmi. Veikt hjarta er
frekar sjaldgæf afleiðing
asthma, og kemur helzt fyrir
eftir mjög langvarandi sjúk-
dóm.
Um það bil 20% barna með
asthma batnar með aldrinum.
Því eldri, sem maður er, þeg
ar asthmað sýnir sig, því al-
varlegri er sjúkdómurinn.
Yfirleitt má vinna bug á
bráðum köstum með adrena-
líni, sem er úðað upp í nef-
ið, og sjúklingurinn andar síð
an að sér. Þetta efni má alls
ekki drekka, það gæti haft
dauðann í för með sér eftir
stutta stund. Adrenalin er
þessvegna selt í flöskum, sem
erfitt er að ná lokinu af.
Efedrintöflur geta fækkað
köstum, og sama má segja
um fjölda ofnæmislyfja, sem
tekin hafa verið í notkun á
undanförnum árum.
Ef vitað er um efnið, sem
sjúklingurinn þolir ekki, má
reyna að minnka næmi hans
fyrir því. Meðferð þessi tek-
ur langan tíma, en árangur-
inn er örruggur. En það er
alls ekki alltaf mögulegt að
finna þetta efni með vissu.
Valdi efni á vinnustað
(mjöl hjá bökurum) asthma-
köstum, verður að ráðleggja
sjúklingnum að skifta um at-
vinnu.
Mikilvægt er að forðast
ryk á heimilum manna. Svefn
herbergi asthmasjúklingsins
ætti að vera vel ræst og loft-
gott, veggir málaðir og engar
ábreiður á gólfinu. í dýnunni
ætti að vera gúmfroða og
ullarteppi í stað yfirsængur
(að sjálfsögðu þó í sængur-
veri).
Sjúklingum léttir oft af
dvöl upp til fjalla, og stund-
um batnar fólki, einkum
börnum, til langframa.
(AKTUEL PRESSE
STUDIO —
Einkaréttur Mbl.).
íslendingar glímdu
á kvikmynd 1909
Á FÖSTUDAGINN höfðum
við það eftir dönsku blaði að
verið væri að leita gamallar
kvikmyndir um íslenzka
glímukappann Jóhannes Jó-
sefsson og og hefði íslenzki
aðalræðismaðurinn í Edin-
borg hafið leitina í þeim til-
gangi að senda hana á kvik-
myndahátíðina í Edinborg.
En myndin fyndist ekki.
í gær náði Mbl. tali af Jó-
hannesi Jósepssyni, sem dvelur í
veiðihúsi sínu á Mýrum. Sagði
Jóhannes það rétt vera að þessi
mynd væri til. Hún hefði verið
tekin árið 1909 í Kaupmanna-
höfn, en ekki hafði hann heyrt
að nú væri verið að leita að
henni eftir 50 ár.
Jóhannes sagði að þetta hefði
verið 5—6 mínútna mynd, þar
sem hann og fleiri íslendingar
sem með honum voru úti sýndlu
sjálfsvörn og glímu. Með honum
voru Jón Pálsson, Jón Helgason
og Kristján Þorgilsson. Kvaðst
Jóhannes hafa séð þessa kvik-
mynd. En líklega ári seinna var
honum skrifað til Ameríku um
að myndin hefði verið sýnd í
Fjalakettinum í Reykjavík og
verið mikil læti í kringum það.
Ekki kvaðst Jóhannes vita um
þessa mynd, en danskiur maður
Paul Neve, sem enn er á lífi og
býr í Kaupmannahöfn ætti að
vita um hana.
Aðalfundur
Félags matvöru-
kaupmanna
Aðalfundur Félags matvörukaup-
manna var haldinn í Tjarnar-
oafé fyrir nokkru.
Guðmundur Ingimundarson var
endurkjörinn formaður félagsins
og meðstjórnendur þeir Einar
Eyjólfsson og Reynir Eyjólfssom.
Fyrir í stjórn voru Lúðvík Þor-
geirsson og Sigurliði Kristjáns-
son.
Fulltrúi félagsins í stjórn Kaup
mannasamtakia'nna var endurkjör
inn Sigurliði Kristjánsson, sömu-
leiðis varamaður, Guðmundur
Ingimundarson.
Jóhamies Jósepsson, glímukappl.
Löngu eftir að þessi kvikmynd
var gerð eða eftir 1920 sagði Jó-
hannes að kunningi sinn hefi tek
ið kvikmynd af sér í glímu, en
hún mundi lika týnd.
Skrifar um KVIKMYNDIR
STJÖRNUBÍÓ:
HÁMARK LÍFSINS
Hingað komu fyrir skömmu
nokkrir mætir menn frá Siðvæð-
ingarhreyfingunni (Moral Re-
armament), og voru þeirra á
meðal James Dickson þingmað-
ur frá Stokkhólmi og Eiliv Skard
prófessor frá Ósló. Höfðu þeir
með sér kvikmynd þá, sem hér er
um að ræða og nú er sýnd í
Stjörnubíói. Margir hér munu
kannast við þessi merku og á-
hrifamiklu samtök, bví að hingað
hafa áður komið menn á þeirra
vegum og kynnt markmið þeirra,
en það er fyrst og fremst að
leitast við að treysta heimsfrið-
inn með því að vekja góðvild og
skilning millj einstaklinga og
þjóða. Meðal forystumanna þess-
ara samtaka eru margir víðkunn
ir og mikilsmetnir vísinda- og
stjórnmálamenn í öllum álfum
heims, enda á boðskapur sam-
takanna vissulega brýnt erindi
til allra þjóða og þá ekki sízt
þeirra stórþjóða, seni mestu ráða
um það hver verða munu örlög
mannkynsins.
Mynd þessi hefur verið sýnd
víða um heim og hvarvetna
hlotið mikla viðurkenningu
hinna dómbærustu manna.
Er það öðru fremur hið áhrifa-
mikla efni myndarinnar og
hinn fagri söngur, ásamt
prýðilegum leik í aðalhlutverk-
unum, sem heillar áhorfendur.
Hins vegar gætir í myndinni
fullmikillar tilfinningasemi, og
er það til nokkurra lýta.
Myndin er byggð á ævistarfi
blökkukonunnar Mary McLeod
Bethuns, er með baráttu sinni
fyrir fegurra mannlífi og betri
heimi, vann sér slíkt traust og
álit, að þeir Bandaríkjaforsetarn-
ir Hoover og F. D. Roosevelt
kölluðu hana sér til ráðuneytis
í ýmsum vandamálum varðandi
blökkumennina þar í landi. For-
eldrar Mary voru þrælar en
öðluðust frelsi skömmu fyrir
fæðingu hennar árið 1875. Var
hún alin upp í sárustu fátækt,
en fyrir frábæran áhuga og at-
orku fékk hún lokið kennara-
prófi. Hún setti sér það markmið
af miðla öðrum blökkumönnum
af þekkingu sinni og því stofn-
aði hún barnaskóla, — undir
berum himni. Varð sá skóli fyrsti
vísirinn að mikilli og frægri
menntastofnun, sem hún veitti
forstöðu um langt skeið og var
við hana kennd. Um þennan
þátt í lífi Mary fjallar kvikmynd
in og er inn í myndina fléttað
boðskap og lífsskoðun Siðvæð-
ingarhreyfingarinnar og þar
deilt þunglega á þær einræðis-
Fjórar vélar
í stað eiimar
AKRANESI, 18. júlí. — Haraldur
Böðvarsson og Co eru nú að
selja stóru, þykku flökunarvél-
ina, sem kostaði á sínum tíma
eina milljón og 200 þús. kr. Er
ætlunin að fá 4 síldarflökunarvél
ar í stað hennar, þar sem vélin
reyndist svo þung í notkun, að
henni hætti til að kremja fiskinn,
einkum trillubátafisk, og sömu-
leiðis að skilja eftir við hrygg-
inn. — Til þess að ná vélinni út,
varð að rjúfa stærðar gat á vegg.
— Oddur.
Viðræður um Alsír
Túnis og París 17. júlí
(NTB-Reuter)
TILKYNNT var í dag samtímis !
TÚNIS og PARÍS að viðræður
frönsku stjórnarinnar og útlaga-
stjórnar Serkja í Alsír hæfust að
nýju á fimmtudag.
Viðræðurnar fara fram 1
Chateau de Lugrin skammt frá
Evian, þar sem fyrri viðræður
fóru fram. Fyrri viðræður um
Alsír hófust í Evian hinn 20. mai
sl., en var slitið 13. júlí að ósk
Frakka.
Formenn viðræðunefndanna
verða hinir sömu og áður, þ. e.
Louis Joxe, Alsírmálaráðherra
Frakka og Belkacem Krmi að-
stoðar forsætisráðherra útlaga-
stjórnarinnar.
stefnur, sem að undanförnu hafa
eitrað samlíf þjóðanna og gera
svo enn 1 dag.
Með aðalhlutverk myndarinn*
ar fara ágætir söngvarar og leik
arar svo sem Mauriel Smith, er
leikur og syngur hlutverk Emmu
Tremaine, en svo nefnist Mary
í myndinni. Er Mauriel Smith
fræg söngkona, lék t. d. Carmen
Jones við frumflutning söng-
leiksins á Broadway, Ann Buckl-
es, þekkt amerísk leikkona og
Louis Byles er leikur Charlia
tengdason Emmu.
Áður en sýningin hófst fluttl
prófessor Skard formálsorð, þar
sem hann gerði grein fyrir Sið-
væðingarhreyfingunni og nakti
helstu æviatriði Mary McLod’s.
Að endingu vil ég tilfæra hér
eftirfarandi erlend ummæli um
rnyndina:
„Það eru kvikmyndir af þessu
tagi sem við, vegna æskunnar
og tímans í dag, verðum að fá.
Þær víkka sjóndeildarhringinn
og hreinsa andrúmsloftið, ekkl
aðeins í kvikmyndahúsinu, held-
ur einnig í heimi æskunnar og
lífi fólksins“. —