Morgunblaðið - 20.07.1961, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 20.07.1961, Qupperneq 3
Fimmtudagur 20. 'júlí 1961 MORGUNBLAÐIÐ 3 ★ VOGA-STAPI eða Stapinn eins og hann er kallaður í dag- legu tali gengur í sjó fram milli Voga og Njarðvíkur. Stapinn er sæbrattur mjög en víða grasigróinn að ofan. Að- djúpt er að Stapanum og mó oft sjá fiskibáta að veiðum nokkra faðma frá landi. Skipa lægi er gott undir Stapa og má oft sjá mikinn fjölda inn- lendra og erlendra skipa leita þar vars þegar suðaustan stormur æðir um Faxaflóa. Stapinn er einnig frægur úr íslenzkum þjóðsögum. Stapa- „Ruslakistan" á Stapanum Mjólkurhyrnur keppa við bldðberg og lambagras draugurinn hefir slegið felmtri í brjóst margra ferðalanga, er leið hafa átt einir liðs yfir Stapann á síðkvöldum eða í skammdegismyrkrum. Jafnvel rómantísk farartæki eins og bifreiðar nútímans hafa orðið staðar eins og örgustu húðar- jálkar og órekstrar og útaf- keyrslur eru sjálfsagt tíðari á Stapanum, heldur en nokkr- um öðrum vegarspotta jafn- löngum á Suðurnesjum. • Útsýn hvergi fegurri Líklega er útsýn hvergi fegurri á Suðurnesjum, held- ur en af Stapanum. Fjalla- hringur Faxaflóa, hraunin, nes in og þorpin við sjávarsíðuna, fiskibátar á Sviði, gjólfur út- hafsöldunnar við klappir og sker. Jafnvel Keflavík er falleg séð af Stapanum. Hvar væri veglegri staður fyrir minnismerki horfinna sæ- garpa af Suðurnesjum, en ein mitt á Voga-Stapa? Oft er minnzt á tómlæti okkar íslendinga í umgengni okkar og meðíerð á fögrum stöðum. Er þess skemmst að minnast að Rauðhólarnir höfðu að mestu verið fluttir í burtu óður en leifar þeirra voru friðaðar. Skemmtiferða- fólk rífur upp runna ög skil- ur eftir rusl á áningarstað. Við kunnum ekki að umgangast landið okkar. Hvergi hefi ég þó séð átak- anlegra dæmi um mannlegan ruddaskap við náttúruna en einmitt á Voga-Stapa. Á stríðsárunum byrjuðu Banda- ríkjamenn að keyra rusli í sjó inn og steypa því fram af Stapanum. Varð Stapinn um tíma frægur fyrir að innfædd- ir leituðu fanga í þeim úr- gangi, sem ekki féll fram af berginu í faðm Ægis. Fyrir allmörgum árum hættu hinir erlendu menn að saurga Stap- ann, en þá tók landinn við. í dag er öllu skarni og skrani, sem hafnar í öskutunnum íbúa þorpanna í nágrenni Stapans ekið á bjargbrúnina, en ekki er því alltaf sökkt í djúpið. Uppi á Stapanum eru rusla- haugar á víð og dreif. Ægir þar saman hinum ólíklegustu hlutum Og bréfaraslið fýkur eins og skæðadrifa um allt. Mjólkurhyrnurnar keppa við blóðberg og lambagras um að auka á litskrúð í lautum og á þúfnakollum. fslenzk ómenn- ing æpir á hvern þann ferða- lang, sem hefir álpast upp á Stapann til að njóta útsýnis. Væri ekki verðugt verkefni fyrir Átthagafélag Suðurnesja manna að fá Stapann friðað- an? Ruslinu þarf að moka í sjóinn, en öldur Faxaflóa munu á skömmum tíma þvo fætur Stapans hreina aftur. Þýzkur lœknir bráð- kvaddur á götu á Akur- eyrr Séð ofan af Stapanum í ruslahrúguna í flæðarmálinu Akureyri, 20. júlí. ÞANN 12. þ.m. kom til Reykja- víkur flokkur ferðamanna frá fé- lagsskap í Þýzkalandi, sem vinn- ur að kynningu milli landa og þjóða. Á þriðjudaginn var flokk- urinn staddur á Akureyri og var Ríkisstarfsmenn krefjast 33,8°/o kauphækkunar að skoða bæinn, m. a. var geng- ið upp að Menntaskólanum. Á leiðinni þangað kenndi einn þátt- takandinn, dr. Anne Oberhaeker, þekktur læknir í Ruhr héraði, skyndilega lasleika og settist nið- ur. Sjúkrabíll var þegar fenginn og var hún flutt á fjórðungs- sjúkrahúsið, en þar andaðist hún stuttu síðar. Er álitið að um heila blóðfall hafi verið að ræða. Anne var þekktur læknir í Huhrhéraði, eins og áður segir, starfaði þar við stórt sjúkrahús. Hún var fimmtug að aldri og ógift. — Stefán. t fyrradag hófust viðræðár milli fulltrúa Bandalags starfs- manna ríkis og bæja annars veg ar og fulltrúa ríkisstjórnarinnar hins vegar um breytingar á kjör um ríkisstarfsmanna. Af hálfu BSRB taka þátt í viðræðunum þeir Kristjan Thorlacius, Guðjón Baldvinsson, Júlíus Björnsson, Magnús Eggertsson og Teitur Þor leifsson en af hálfu ríkisins þeir ráðuneytisstjórarnir Sigtryggur Klemenzson og Gunnlaugur Briem. Að sögn Kristjáns Thorlacius formamxs BSRB byggja ríkis- starfsmenn kröfur sínar á kröf- um þeim, er settar voru fram í febrúar í vetur, en samtals jafn gilda þær 33.8% kauphækkun. Ríkisstarfsmenn fara fram á leiðréttingu, sem nemur 12,5% íkauphækkun vegna skekkju, er þeir telja, að orðið hafi á launum ellt frá 1944, þegar launaskali launalaganna frá 1945 var ákveð inn. Þá telja þeir, að ríkisstarfs menn hafi árið 1958 dregizt aftur úr öðrum stéttum sem nemur 2.3% kauphækkun. Þegar Iauna- lögin frá 1956 voru sett hafi ver- ið dregin frá þeim 2% vegna hlunninda, sem aðrar stéttir ekki höfðu þá, en rikisstarfsmenn telja, að þær hafi nú fengið, og því sé brostin forsenda fyrir þeim frádrætii. Loks byggja þeir kröfur sínar á samanburði við laun opinberra starfsmanna á hin um Norðurlöndunum og að dýrtíð hafi mjög aukizt hér síðan í marz 1960. Ekki héldu fulltrúar BSRB og ríkisins neinn fund í gær, en bú- ist var við fundi enhvern næstu daga. Akranesi, 19. júlí HÉR var Goðafoss í gær og lest- aði freðfisk. Humarbáturinn Fram landaði í gær 9,2 lestum af fiski og 500 kg. af humar. í hálfan annan sólarhring hefur verið hér sunnan og suðvestan rytja. Kl. 5 síðdegis í dag reri fyrsti dragnótabáturinn og munu þeir allir róa í kvöld og nótt því komið er ágætt sjóveður. Loftleiðir kaupa 4. DC6-b LOFTLEIÐIR hafa keypt fjórðu Cloudmaster-vélina. Kemur sú frá Pan American eins og fyrri vélarnar og voru samningar þar að lút- andi undirritaðir í Nw York sl. laugardag og verður flug- vélin afhent félaginu 12. ágúst n. k. Fyrst um sinn verður flug- vélin notuð til aukaferða, sem nauðsynlegar eru í sumar og haust vegna sívaxandi flutninga félagsins. Jafnframt verður hún notuð til þjálfunar áhafna, því með tilkomu nýju vélarinnar verður félagið að þjálfa fimm nýjar áhafnir. Flugvélin er nú í förum á flugleiðum Pan American í Ev- rópu. Kaupverð hennar er svip- að og fyrri véjanna, en þó öllu hagstæðara Loftleiðum. Seljend- ur kröfðust ekki ríkisábyrgðar til tryggingar því, sem ógoldið var af kaupverðinu við undir- ritun samninga. Með þessari flugvél eykst sætafjöldi í Loftleiðavélum um 80 — og geta Loftleiðir þá flutt samtímis 320 farþega. STAKSTEIMAR Varðberg Stofnun hins nýja félags ungra áhugamanna um vestræna sam- vinnu, Varðbergs, hlýtur að vekja óskipta ánægju allra lýð- ræðissinnaðra manna. Stofnend- ur félagsins eru ungir menn úr lýðræðisflokkunum þremur, Sjálf stæðisflokknum, Alþýðuflokkn- um og Framsóknarflokknum. Tilgangi félagsins er svo lýst í lögum þess: „a. Að efla skilning meðal ungs fólks á íslandi á gildi lýðræðis- legra stjómarhátta. b. Að skapa aukinn skilning á mikilvægi samstarfs lýðræðisþjóð anna til verndar friðinum. c. Að vinna gegn öfgastefnum O'g öfgaöflum. d. Að mennta og þjálfa unga áhugamenn í stjórnmálastarf- semi með því að afla glöggra upp lýsinga um samstarf og menningu vestrænna þjóða; um markmið og starf Atlantshafsbandalagsins svo og að aðstoða í þessum efn- um samtök og stjórnmálafélög ungs fólks er starfar á grundvelli lýðræðisreglna". Þess hefur sjaldan gerzt meiri þörf en einmitt nú, að lýðræðis- sinnaðir menn tækju höndum saman til varðveizlu frelsis og sjálfstæðis vestrænna þjóða og til kynningar á þeim hugsjónum, sem það samstarf byggist á. Morgunblaðið vill því taka und ir árnaöarorð Dr. Dirk Stikker framkvæmdastjóra NATO, til hinna nýstofnuðu samtaka: „Ég á þá ósk heitasta, að marg ir muni berjast við hlið ykkar fyrir hugsjónum frelsis og lýð- ræðis, nú þegar hinn vestræni heimur stendur frammi fyrir mjög alvarlegri ógnun einræð- is“. Hvers vegna? í bók sinni „Why NATO?" kemst Paul-Henri Spaak fyrrum framkvæmdastjóri NATO, svo að orði um þær ástæður, er lágu til grundvallar stofnun Atlantshafs- bandalagsins: „Atlantshafsbandalagið var stofnað vegna hinnar knýjandi nauðsynjar okkar á því að taka upp sjálfsvöm; en það Iætur sig ekki aðeins skipta vamir land- svæða gegn pólitískri og hernað- arlegri ógnun; því að það er ekki aöeins að landsvæðum og þjóð- ernislegu sjálfstæði Atlantshafs- rikjanna sé ógnað, heldur einnig og ekki síður þeim grundvallar- kenningum, sem menning þeirra byggist á. 1 nafni framfara og hamingju stefnir kommúnisminn að því að breiða yfir hciminn þjóðfélagskerfi, sem byggist á al- gjörri undirokun einstaklings- ins; hvar sem kommúnisminn rík ir, tortímir hann frelsi í hverri mynd, sem það birtist“. Kaiiphækkun og kjarabætur Gunnar Thoroddsen fjármála- ráðherra, ritar grein í Vísi í gær, os segir m.a.: „Sú skoðun var almenn áður fyrr, að kauphækkun launa- manns þýddi jafnan tilsvarandi kjarabót fyrir hann. Reynslan hef ir sýnt, að þessu fer fjarri. Það er engan veginn öruggt, að kaup hækkun leiöi af sér kjarabætur. Meira að segja hefir komið í ljós, að oft er þessu öfugt farið, svo að kauphækkanir hafa rýrt kjör verkamanna frá því sem áður var. Orsökin er sú, hve þættir efnahagsmálanna eru samtvinn- aðir. Almenn kauphækkun veld- ur venjulega almennri verðhækk un. sem gleypir kauphækkunina í sig. Kauphækkanir umfram þol atvinnuveganna leiða oft til þess, að atvinnuvegir dragast saman, og atvinnuleysi, með öllu sínu böli, heldur innreið."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.