Morgunblaðið - 20.07.1961, Side 18
18
MORGUNBLAÐlh
Fimmtudagur 20. júli 1961
— Fólkið óttasf
Frh. aí bls. 20.
hafi í hyggju aS gefa út per-
sónuskilríki fyrir hvern mann,
er gildi einungis innan þeirr-
ar borgar eða sveitarfélags,
þar sem viðkomandi er heim-
ilisfastur. Hún vildi ekki bíða
slíkra átthagafjötra, en lagði
af stað, ásamt tveim litlum
sonum sínum, til fundar við
mann sinn, sem þegar er kom-
inn til Vestur-Þýzftalands —
„áður en það er um seinan“,
eins og hún sagði við embættis
mennina er taka á móti flótta-
mönnunum.
• „Torschlusspanik“
Af þeim hundruðum flótta-
manna, sem biðu fyrir utan
Marienfeldestöðina á mánu-
dagsmorguninn, virtust flestir
reknir áfram af þessum sama
ótta. — Síðan í byrjun mán-
aðarins hefir flóttamanna-
straumurinn aukizt svo mjög,
að dæmafátt er. Adenauer
kanslari lét svo um mælt á
dögunum, að svo virtist sem
austur-þýzka þjóðin væri nú
gripin skelfingaræði. Og em-
bættismenn þeir, sem sjá um
móttöku flóttafólksins og
flutning þess áfram vestur á
bóginn, taka í sama streng.
Þeir nefna ofsaótta þann, sem
virðist ríkja í Austur-Þýzka-
landi, „Torschlusspanik“ — en
þýtt eftir orðanna hljóðan
merkir það ótta við að „dyr-
unum verði lokað við nefið á
manni“, eins og sagt er í dag-
legu tali.
Þessi ótti leggst ofan ó mat-
væla- og vöruskort, versn-
andi atvinnuskilyrði og sífelld
ar kröfur stjórnvaldanna um
meiri vinnuafköst — oft fyrir
minni laun. — Ungu hjónin,
sem áður var á minnzt, kváð-
ust hafa flúið vegna þess, að
allar aðstæður heima fyrir
hefðu verið orðnar „óþolandi".
— Ég fékk enga vinnu í minni
grein, sagði Metzler. — í stað
þess var mér skipað að vinna
á samyrkjubúi, þar sem ,mín
hefði beðið lægri laun — fyr •
ir meira erfiði.
• „Kommarnir leyfðu mér
ekki að kaupa mótorhjól“
Ungur lögreglumaður kvaðst
hafa yfirgefið heimaborg sína,
Stralsund, vegna þess að hann
hefði lent í rifrildi við yfir-
menn sína út af smjörskortin-
um. — Ég sagði þeim, að lífs-
skilyrðin væru betri í Vestur-
Þýzkalandi. Þá var ég hand-
tekinn, og síðan var mér hót-
að málssókn, sagði hann.
— Þráin eftir meira frelsi og
betri lífsafkomu bergmálaði
af vörum margra flóttamann-
anna í Marienfelde á mánu-
daginn. — Ég gat ekki sagt
það, sem mér bjó í brjósti, og
kommarnir leyfðu mér ekki
að kaupa mér mótorhjól, af
því að ég var talinn „óáreið-
anlegur", sagði tvítugt ung-
menni, sem kvaðst ætla að
setjast að í Ruhrhéraðinu, þar
sem bróðir hans lifði nú þegar
góðu lífi. — Gamall bóndi,
sem tók sig upp ásamt konu
sinni og þrem börnum, talaði
um „óbærileg lífsskilyrði“ eft-
ir að kommúnistar tóku að
leggja allt kapp á að færa land
búnaðinn í form samyrkjubú-
skapar — og embættismenn
flokksins, sem ekkert vit
hefðu á búskap, skipuðu nú
bændum fyrir verkum.
Mikið var af börnum í
flóttamannahópnum, allt nið-
ur í hvítvoðunga. Einn flótta-
mannanna sagði, að það væri
nú almennt máltæki í Austur-
Þýzkalandi, að „þrjú fyrstu
orðin, sem börnin læra að
segja, eru mamma, pabbi og
— Marienfelde“ . . .
(Að mestu stuðzt við frá-
sögn „New York Times“).
35. meistaramót í
„frjálsum" í kvöld
gær heldu utan 32 felagar
ýmissa Ungmennafélaga á
landinu. Halda þeir til mikils
norræns unglingamóts sem
haldið víerður í Vejle í Dan-
mörku. Verða þátttakendur í
^ mótinu um 13 þúsund talsins.
Myndin hér að ofan er af
hópnum er hann steig upp í
sumt af okkar bezta íþrótta-
Meðal þeirra sem fara er
einn af Föxum Flugfélagsins.
fólki. Má þar fyrsta telja Sig-
rúnu Jóhannsdóttir Akranesi
sem nýlega setti ísl met í há-
stökki og vann bezta afrek á
meistaramóti kvenna.
35. MEISTARAMÓT íslands
í frjálsum íþróttum hefst á
Laugardalsleikvanginum í
landsliðsmenn fslands og flestir
aðrir af beztu íþróttamönnum
landsins.
FH vann
í gærkvöldi kepptu dönsku
handknattleiksmennirnir, sem
hér eru staddir í boði Víkings,
við FH og fór leikurinn fram í
Hafnarfirði. FH sigraði með 27
mörkum gegn 23.
Leikurinn fór fram á Hörðu-
völlum og voru áhorfendur marg
ir.
kvöld og stendur á föstudag
og laugardag. í kvöld hefst
keppnin kl. 8,15.
■ár Allir landsleiksmennirnir
50 keppendur eru skráðir í
mótið frá 12 félögum og banda-
lögum. Flestir frá einstöku fé-
lagi eru frá fR eða 20 talsins.
Meðal keppendanna eru allir
Kaupkröfur enskra
atvinnumanna
Ml'KLAR deilur standa nú yfir
í ensku knattspyrnunni milli
nokkurra af beztu spilurunum
annars vegar og félaga þeirra
hins vegar. Forsagan er sú, að á
síðasta keppnistímabili var sam-
þykkt að breyta kjörum atvinnu-
manna þannig, að hámarkslaun
voru afnumin. Geta því leikmenn
í sama liði fengið mishá laun og
er það samkomulagsatriði milli
þeirra og félagsins. Vilji leikmað-
ur ekki samþykkja laun þau er
félag hans býður getur hann kraf
izt að verða seldur og verður fé-
lagið að hlíta því. Hins vegar
ræður félagið nú sem áður hve
hátt þeir verðleggja spilarann.
Þessi breyting hefur haft það í
för með sér að nokkrir af beztu
spilurunum hafa þegar skrifað
undir samninga um mjög há
laun, t.d. fær Haynes 100 pund
á viku hjá Fulham og Springett
hjá Sheffield W. fær 70—90 pund
á viku.
Þetta er í stuttu máli forsagan
að deilum þeim er nú Standa yfir.
Deilan er eins og áður segir
vegna þess að nokkrir af beztu
spilurunum hafa ekki viljað
skrifa undir samninga sem félög
þeirra hafa boðið. Flest félögin
hafa boðið beztu spilurum sín-
um um 40 pund á viku auk við-
bótarþóknunar fyrir sigra og
jafntefli eins og áður. Nokkrir
af spilurum, sem neitað hafa að
skrifa undir samninga eru þessir:
Frá Arsenal: — Mel Charles,
George Eastham og David Herd.
Frá West Ham: — Bobby
Moore og Phil Woosnam.
Frá Wolverhampton: — Ron
Flowers og Peter Broadbent.
Frá Blackburn: — Ronnie Clay
ton, Peter Dobing og Derek Doug
an.
Frá Bolton: — Hopkinson og
Bill McAdams.
Almennt er þó reiknað með að
flestir þessara spilara muni skrifa
undir samninga áður en keppnis-
tímabilið hefst. Þó hafa birzt yf-
irlýsingar frá enska landsliðs-
manninum Flowers að hann muni
aldrei skrifa undir og er því
reiknað með að hann verði seld-
ur. Má reikna með að mörg fé-
lög vilji kaupa Flowers og þar
helzt talað um Chelsea og Arsen-
al.
■k Keppnisgreinar
í kvöld verður keppt í 200,
800, 5000, 400 m grindahlaupi,
kúluvarpi, spjótkasti, hástökki
og langstökki.
Annað kvöld verður keppt i
100, 400 og 1500 m hlaupum, 110
m grindahlaupi, stangarstökki,
þrístökki, kringlukasti og sleggju
kasti.
Á laugardaginn verður keppt
í 4x100 m og 4x400 m boðhlaup-
um, fimmtarþraut og 3000 m.
hindrunarhlaupi.
Úrtökumót
Mót þetta verður helzta úr-
tökumót fyrir landskeppnina við
Austur-Þjóðverja, sem fer fram
í ágústmánuði.
Bondunkín
unnu Vestnr-
Þjóðverjn
í gærkvöldi lauk I Stuttgart í
Þýzkalandi landskeppni í frjáls-
um íþróttum milli Bandaríkjanna
og V-Þjóðverja með 120 stigum
gegn 91.
í keppninni náðist ýmis góður
árangur en þó hvergi nærri eins
og í landskeppni Bandaríkjanna
við Rússa. Boston stökk nú 8.01 m
í langstökki og Thomas 2.15 m í
hástökki. Silvester sigraði Cush-
man 50.4 en Janz náði sama
tíma.
Wisschenmeyer sigraði í þrí-
stökki með 15.48 m en Florke
USA varð annar með 15.28. Boð-
hlaupssveit Bandaríkjanna hljóp
á 39.9.
Akranes Fram 2:1
f GÆR fór fram seinni leikur
Fram og Akraness í fslandsmót-
inu. Leikurinn fór fram á Laug-
ardalsvellinum og sigraði Akra-
nes með 2 mörkum gegn 1. —
Akurnesingar unnu fyrri leikinn
einnig, en hann var leikinn á
Akranesi og hafa því hlotið 4
stig gegn Fram.
** mi- k* 'jjk
IgW %
Goft unglingalið Dana
ÞETTA er knattspyrnulið Lyng-
by Boldklub í Danmörku, annar
aldursflokkur sem hér dvelst nú
í boði Vals vegna 50 ára afmælis
Vals. Er þetta þriðja unglingalið
knattspyrnumanna sem hingað
kemur í sumar og er skipað mjög
góðum leikmönnum, enda er fé-
lag þeirra fjölmennasta knatt-
spyrnufélag Danmerkur. Lið fé-
lagsins sigraði í bikarkeppni Sjá-
lands og unglingalið þess varð
Sjálandsmeistari og komst í und-
anúrslit um Danmerkurmeistara-
titilinn. Það sigraði einnig í vor-
keppni unglingaliða í vor og skor
aði þá 57 mörk gegn 3. Má af
þessu sjá að hér eru engir auk-
visar á ferð.
í kvöld leikur þetta lið gegn
2. flokki Þróttar sem voru vor-
meistarar í Reykjavík nú.