Morgunblaðið - 20.07.1961, Síða 19
Fimmtudagur 20. júlí 1961
MORGUNBLAÐIÐ
19
Helmingur eins spjaldanna, hjartað. — Neðst á myndinni
sést munurinn á heilbrigðu hjarta og hjarta drykkjumanns.
Merkt kennslutæki
um mannslíkamann
Ráðisf á
fisksala?
AÐFARANÓTT laugardags sl.
kom bíll að Slysavarðstofunni kl.
3,20 um nóttina Og út úr honum
stigu tveir menn. Var annar blóð-
ugur á höfði og fékk læknisað-
gerð. Mennirnir í bílnum óku
burt, svo sá slasaði varð einn
eftir.
Hefur maðurinn, sem er fisk-
sali, nú kært til lögreglunnar.
Segir hann að á sig hafi verið ráð
izt og honum veittur þessi áverki
í fiskbúð hans á Grundarstíg 2.
Hafi hann verið þar staddur
ósamt öðrum manni um nóttina.
Er minni mannsins óljóst um
þessa árás og því biður rannsókn
arlögreglan mennina, sem voru
í umræddum bíl, eða aðra, er
kynnu að geta veitt upplýsing-
ar, um að gefa sig fram.
— Kirkjuhátib
Framihald af bls. 1.
ómurinn barst langt inn í A-Ber-
lín. Þar var að sjálfsögðu engum
klukkum 'hringt en messa var í
einni kirkju. Að nafninu til var
það ekki liður í hátíðinni. Þar
ivar geysmikill mannfjöldi saman
kominn, kirkjan þéttsetin — og
hópur utan dyra.
gtormurinn úr austrl.
Hinn áttræði Berlínarbiskup,
Otto Dibelius, réðist harkalega á
kommúnistastjómma í A-Þýzka
landi í ræðu sinni í dag. Sagði
hann að trúleysið og afleiðingar
þess væri helzti ógnvaldu. vorra
tíma, stormurinn úr austri og öll
þau meðul, sem honum fylgdu,
gæti ekki einu sinni látið kirkju
þingið óáreitt.
Xældir úr sæluríkinu.
Samtímis réðist málgagn a-
þýzku stjómarinnar „Neues
■Deutschland“ harkalega á kirkj-
una og þing hennar — og sagði
m.a. í því sambandi, að v-þýzka
stjórnin ræki nú hvíta þrælasölu,
ginnti fólk til þess að yfirgefa
eæluríkið A-Þýzkaland, rændi
vinnuaflinu frá landi friðarins —
itil þess svo að tortíma þessu
fólki í kjarnorkuvítinu.
Godthaab, 19. júlí.
FJÓRIR fjallgöngumenn hafa
farizt í Grænlandi. Þeir voru úr
9 manna belgiskum leiðangri.
Hinir fimm komu til Umanak í
dag og skýrðu svo frá, að uppi í
fjöllunum hefðu hin fjögur, þrír
karlar og kona, orðið viðskila við
þá. Fimmmenningarnir hófu leit,
fundu spor, sem loks enduðu á
þverhnýptri fjallsbrún. Er talið,
að fólkið hafi steypzt þar fram
Barni bjargað
úr Akureyrarhöf n
í FYRRI viku vildi það óhapp til
á Akureyri, að 6 ára gamall dreng
ur, sem var að leik ásamt félög-
um sínum við Torfunefsbryggju,
féll í sjóinn. Ungum pilti, Stefáni
Karlssyni frá Hjalteyri, sem átti
leið um bryggjuna, tókst að
bjarga drengnum. Var Stefán að
vinna við skipið Stjörnuna, og
heyrði hann skelfingaróp og grát.
Fór hann á staðinn, stökk ofan í
Jítinn bát, sem þar var við bryggj
una, Og tókst að ná til drengsins,
sem lítið sem ekkert hafði drukk
ið af sjó. Var drengurinn hinn
hressasti eftir þessa óvæntu sjó-
ferð, og hélt heim á .leið
UT er komið merkilegt kennslu-
gagn í heislufræði og manns-
líkamanum. Hér er um að ræða
myndarlega möppu, sem inni-
heldur 40 spjöld. Öðru meg-
in á þeim eru mjög fróðlegar
skýringarmyndir í litum, en
hinum megin lesmál. Formála og
eftirmála rita þeir Helgi Elías-
son, fræðslumálastjóri og Lúð-
víg Guðmundsson, skólastjóri.
Mappa þessi nefnist: Manns-
líkaminn, heill og vanheill, og
er sérstaklega fjallað um hvern
líkamshluta og líffæri, auk þess
önnur atriði varðandi heilsu-
gæzlu og hollustuhætti, t. d.
líkamsæfingar, matseld, svefn-
inn, klæðnað, híbýlin og hjálp
í viðlögum.
Útgefandi verksins er Hilmir
h.f., en Málfríður Einarsdóttir
af í þoku, en fallið er um þúsund
metrar. — NTB.
— Varðarferð
Frh. af bls. 20.
Kerlingu. Verður síðan ekið
um Uxahryggi vestur með
Hafnarfjalli fyrir Leirárvog og
hringinn í kringum Akrafjall
um Hvalfjörð til Reykjavíkur.
Farseðlar eru seldir í Sjálf-
stæðishúsinu (uppi) og kosta
kr. 225,00, en innifalið í verð-
inu er bæði hádegisverður og
kvöldverður.
og Hallgrímur Lúðvíksson hafa
annazt þýðingar. Auk þess hafa
læknarnir Árni Árnason, Skúli
Thoroddsen, Haukur ICristjáns-
son og próf. Jón Steffensen les-
ið lesmál yfir og endursamið að
einhverju leyti.
Wemer H. Gusovius, stór-
kaupmaður hér í bæ er for-
göngumaður þessarar útgáfu, en
hann höndlar einkum með
kennslutæki. Hefur hann kom-
ið upp sýningu á kennslutækj-
um í náttúrufræðum á skrif-
stofu sinni og er hún mjög fróð-
leg.
— Kennedy
Framhald af bls. 1.
lýðveldi í A.-Þýzkalandi væri
sett á svið af Rússum. Stjórn
A.-Þýzkalands stjórnaði ekki í
umboði fólksins, hún nyti ekki
stuðnings þeirra 17 milljóna
manna, sem á landinu búa. —
Flóttamannastraumurinn til V,-
Berlínar sýndi bezt og sannaði
ástandið í landinu.
★
En íbúar V-Berlínar eru 'frjáls
ir enda þótt ástandið sé óeðli-
legt, þar sem landinu er enn
skipt í tvær andstæður. íbúar
V.-Berlínar nytu réttar til þess
að velja sér forystumenn og
stjórn, nytu þeirra grundvallar-
mannréttinda, sem stofnskrá SÞ
kvæði á um. Þess vegna mundi
„friðarsamningur" Rússa við A.-
Þýzkaland ekki skapa meiri frið
en ríkt hefði. Hann mundi ekki
skapa neinn frið — og ef friðn-
um yrði spillt, þá bæru Ráð-
stjórnarríkin ábyrgðina, gagn-
vart almenningsálitinu í heimin-
um — og sögunni.
Bílslys
SL. LAUGARDAG óku tvær
bifreiðar út af þjóðveginum
vestur á Mýrum. í annarri
bifreiðinni, sem var Volks-
wagenbifreiðin í 553, voru
hjón með tvö börn, og skarst
annað þeirra nokkuð á höfði, '
en ekki alvarlega. í hinni bif-
reiðinni mun aðeins hafa ver-
ið bifreiðastjórinn. Lögregl-
unni í Borgarnesi var til kynnt
um útafkeyrslur þessar, sem
urðu með ca. þriggja kílóm.
millibili á veginum, og er lög-
reglumenn komu á staðinn,
þar sem R 952 var fyrir utan
veginn, var þar fyrir bifreiða-
stjórinn og var hann all drukk
inn. Er mál hans í rannsókn.
Reykjavíkurbíllinn skemmd-
ist lítið sem ekkert, en ísa-
f jarðarbíllinn er nokkuð dæld
aður og framrúða brotin. — H.
Norðmenn ánægðir
með síldveiðina
FLESTIR norsku síldveiðibátarn-
ir með reknet við ísland koma
frá Haugesund og Karmoy, segir
í norskri fréttastofufregn. Hafa
borizt heim fregnir um að marg-
ir bátanna séu komnir með góð-
an afla og að einn, sem hefur
snurpunót og saltar um borð, sé
þegar búinn að fá 1200—1300
tunnur. í gær sagði Haugesund
dagblað frá því að í fyrradag
hafi bátarnir fengið frá 5—90
tunnur, en í gær hafi veiðin aft-
ur farið batnandi og þeir fengið
upp í 300 tunnur.
Segir í fréttinni að síldveiði-
menn sem veiða í bræðslu hafi
þegar farið nokkrar ferðir á mið-
in og síldarverksmiðjurnar feng
ið nokkra farma af hráefni frá
íslandsmiðum.
Ennfremur að síldarbáturinn
Steenevik frá Avaldsnes sé kom-
inn heim í fjórða sinn og hafi nú
fengið alls um 12 þús. tunnur,
sem sé 400 þús. norskra króna
virðL Þetta sé tæplega fjögurra
vikna veiði. Aðrir séu búnir að
koma heim þrisvar.
— Bizerte
Framihald af bls. 1.
Stukku út í fallhlífum
Ekki munu þeir hafa grandað
neinni hervél. Túnismenn höfðu
stórskotalið og sprengjuvörpur
fjær flugvellinum — og hermdu
fregnir, að þetta lið hefði hæft
stöðvar yfirherstjórnarinnar í
flóta'höfninni. — Síðar flugu liðs
flutningavélar yfir flotastöðina
og fallhlífaliðar stukku út. Sagði
fréttamaður Reuters, sem dvelzt
í herbúðum Túnismanna, að
menn hefðu þar horft á fallhlífa-
liða „rigna“ niður á flotastöðina,
en orrustuþotur voru á sveimi
umhverfis.
Látlaus skotliríð
Segja Túnismenn, að Frakkar
hafi beitt orrustuþotum þegar
skotið var á birgðavélamar, en
ekki er getið um mannfall. Um
stund héldu Túnismenn uppi lót
lausri skothríð á flotahöfnina, en
gerðu ekki tilraun til þess að
taka hana herskildi, enda höfðu
Frafckar búizt vel til varnar.
Ekki er þess getið í fréttatil-
kynningum Frakka, hversu mifcl-
ar skemmdir hafa orðið á mann-
virkjunn af völdum skothríðar-
innar.
Orðsending de Gaulle
Kvatt var til skyndifundar
frönsku stjórnarinnar seint í gær
fcvöldi og jafnframt var skýrt
frá því, að de Gaulle hefði sent
Bourgiba orðsendingu, þar sem
hann varaði alvarlega við þeim
ráðum, sem Túnisstjóm beitti nú
til þess að hrekja Frakka frá
Bizerte, eins og komizt var að
orði. — Er ljóst, að Frakkar eru
síður en svo að hugsa um að
yfirgefa flotahöfnina, en þegar
Mbl. fór í prentun var fundi
frönsku stjórnarinnar ekki lok-
ið. — Sem fyrr greinir voru þar
mættir yfirmenn franska hersins
og talið er, að þessi fundur marki
endanlega stefnu Frafcka í deil-
unni við Túnis.
Elisabethville, 19. júlí
KATANGA-stjórn undirritaði i
dag samning við Mobutu hers-
höfðingja í Kongó þess efnis, að
Katanga-her falli undir stjórn
Mobutus. Samkvæmt áreiðanleg-
um heimildum mun herstjórn
Katanga og Suður-Kasai einnig
hafa verið ssimeinuð.
bbbbbbbbbbbbbfcbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb1
b
Harðplastplötur
125 x 244 cm
Off
80 x 175 cm
, . Simi 35697
yggingavorur h.f. Laugaveg 178
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
.b
Mínar beztu þakkir til ykkar allra fyrir skeyti, blóm,
gjafir og heimsóknir á 75 ára afmæli mínu þann 13. júlí
síðastliðinn. — Lifið heil.
Þorbjörn Þorsteinsson.
Konan mín, móðir okkar og tengdamóðir
ÁSTRtoUR ODDSDÓTTIR
er andaðist 13. júlí, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni,
föstudaginn 21. júlí kl. 2. — Athöfnin hefst á heimili
okkar, Hringbraut 88 kl. 1,15.
Þorsteinn Guðlaugsson, börn og tengdabörn
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og
vináttu við andlát og jarðarför móður minnar og ömmu
HALLDÓRU GUÐLAUGSDÖTTUR
Hrefna Sigurðardóttir,
Sigurður Halldór Sverrisson,
og aðrir aðstandendur.
Fósturmóðir mín
INGIBJÖRG JÓHANNSDÓTTIR
andaðist að heimili sínu Skeggjagötu 19, þriðjudag 18.
júlí.
Fyrir hönd vandamanna.
Valgerður Óiafsdóttir.
Maðurinn minn
GUÐMUNDUR EBENEZERSSON
sem andaðist 12. þ.m. verður jarðsunginn frá Eyrar-
bakkakirkju laugardaginn. 22. þ.m. kl. 2.
Pálína Pálsdóttir.
Steyptust í djúpið