Morgunblaðið - 22.07.1961, Blaðsíða 5
Laugardagur 22. júlí 1961
MORGVTSBLAÐlh
5
M/VA/ 06
= AML£FAf/m
HABIB Bomrgiba, forseti Tún-
is, er nú sá þjóSarleiðtogi, sem
augu flestra beinast að þessa
dagana, vegna hins uggvæn-
lega ástands í Túnis — blóð-
ugra átaka Frakka og Túnis-
búa um flotastöðina í Bizerte.
Ekki er unnt að spá fyrir um
hver úrslit þessa máls verða,
en við ramman mótstöðu-
mann er að eiga þar sem er
de Gahlle, Frakklandsforseti.
Þegar Habib Bourguiba var
í heimsókn í Bandaríkjunum
í maí-mánuði sl., kom hann
stjórnmáiamönmum þar fyrir
sem mikilhæfur maður og
stjórnmálaleiðtogi og lýstu
]jeir honum sem hinum mest
virta og dáða leiðtoga þjóð-
ernisstefnunnar í Afríku.
Hvað sem því líður er hann í
Túnis mjög virtur sem skarp-
ur leiðtogi og stjórnmálamað-
ur, frábær mælskumaður og
sterkur persóniuleiki. Fagna
Túnisbúar honum gjarna með
þessum orðum: „Yai-Yah —
Bour-gui-bah. (Lengi lifi
Bourguiba).
★
Bourguiba er gagnktunnugur
Frökkum og Frakklandi.
Hann var í nær tíu ár pólitísk-
«r fangl í Frakklandi, en þó
kvcðst hann aldrei hafa getað
hatað Frakka. Áður hafði
hann stundað laganám í Par-
ís og kvæntist hann þá
franskri kennslukonu. Bæði
Bourguiba og sonur hans,
Habib yngri, sem er sendi-
herra Túnis í Bandaríkjun-
um, mæla betur á franska
tungu en tungu þjóðar sinn-
ar.
Margir aðdáendur Bourgu-
iba hafa hneigzt til að skýra
og jafnvel afsaka vináttu hans
í garð Frakka, en hann dregur
sjálfur enga dul á að hann
sé þeim hlynntur og dáist að
þeim á margan hátt. Hinsveg-
ar er Bourguiba hatrammur
andstæðingur nýlendustefn-
unnar, sem hann segir „flæða
yfir löndin og breyta íbúum
þeirra í útlendinga“.
Bourguiba hefur heldur
aldrei dregið dul á samúð sína
með alsírsku uppreisnarmönn
unum þó er talið að hann og
Farhat Abbas umgangist með
allri varkárni. Bourguiba er
sagðiur lítt hrifinn af skæru-
hernaði eins og uppreisnar-
menn hafa háð hann í Alsír,
þótt Túnisbúar — og hann
sjálfur — hafi beitt honum í
nokkrum mæli sjálfir. En
hann telur öllu heppilegra að
reka nýlendukúgarana af
höndum sér, heldur en slá þá
af.
Þegar Frakkar gerðu loft-
árásina á landamæraþorpið
Sakiet-Sidi-Youssef árið 1958
varð það mikil prófraun á
pólitiska hæfileika Bourguiba.
Hann stóðst þá ramn með
prýði — honum tókst að lægja
öldur reiðinnar með lands-
mönnufn sínum, vinna samúð
umheimsins, og halda aftur
af Frökkum og Alsírmönnum,
sem höfðu herbækistöðvar í
Túnis þaðan sem þeir stjórn-
uðu aðgerðum gegn Frökkum.
Honum tókst þetta þá — en
nú virðist enn ein prófraunin
hafa verið Iögð á hann og
spurning er nú hversu hon-
um tekst að leiða þessa hörmu
legu deilu til lykta.
Sveajur stlnga, skeytin skjalla,
skolast klngaS dreyra elfur,
brennan þvingar Óðins alla,
umgirðingin jarðar skelfur.
Helja ðgöfug helmtar rekka,
hennar kröfum manngi fagnar,
í andköfum dauðann drekka
af dreyra höfum fallnir bragnar.
Örvar bellast, ðgnir brella,
iður vella rauðlitaðar,
sverðin skella fðlk og fella,
feigð um velli köstum raðar.
Skatna tryllist skap ðveila,
skjómar snilli og rð þó spilli,
reykur illi hafið heila
himins milli og jarðar fyllir.
IJr Númarímum
Sigurðar Breiðfjörðs.
ÁHEIT og CJAFIR
Sólheimadrengurínn: NN 250, ónefnd
100.
Flugfélag Islands: — Millxlandaflug:
Gullfaxi fer til Glasg. og Kaupmh. kl.
08:00 i dag. Væntanlegur aftur kl.
22:30 I kvöld. Fer til sömu staða kl.
08:00 i fyrramálið. Hrímfaxi er vænt-
anlegur til Rvíkur kl. 16:40 í dag frá
Hamb., Kaupmannah. og Ósló. — Inn-
onlandsflug í dag: Til Akureyrar (2),
Fagurhólsmýrar, Homafjarðar. ísafj.
og Vestmannaeyja. Á morgun: Til Ak-
ureyrar (3), Egilsstaða, Xsafjarðar,
Kópaskers, Vestmannaeyja (2) og Þórs
bafnar.
Innanlandsflug. — 1 dag er áætlað
«ð fljúga til Akureyrar, Egilsstaða,
Húsavíkur. ísafjarðar. Sauftárkróks,
Skógasands og Vestmannaeyja.
A morgun tjl Akureyrar, Fagurhóls-
mýrar. Hornafjarðar, tsafjarða og
Vestmannaeyja.
Hoftleiðir h.f.: — Haugardag 22. juli
er Þorfinnur karlsefni væntanlegur
frá Hamborg, Kaupmannahöfn og
Gautborg kl. 22,00. Fer til New York
kl. 23,30. .
Eimskipafélag íslands: — Bruarfoss
er á leið til New York. Dettifoss kem-
ur tU Reykjavikur á morgun. Skipjð
kemur að bryggju um kl. 12.00. Fjall-
foss er á leið til Hull. Goðafoss fer
frá Hólmavík í dag til Hofsóss, Siglu-
fjarðar, Akureyrar, Hríseyjar, Húsa-
víkur og Austf jarða og þaðan tU Hull.
Gullfoss fer frá Reykjavík á morgun
til Leith. Lagarfoss fer frá Hólmavik
í dag til Húsavikur, Raufarhafnar,
Halvikur, Sigluf jarðar, Flateyrar,
Hatreksfjarðar og Faxaflóahafna.
Reykjafoss er á leið til Reykjavíkur.
Selfoss er I Reykjavík. Tröllafoss er
i Ventspiis. Tungufoss fór frá Hólma-
vík 20. 7. til Sauðárkróks, Siglufjarð-
»r, Dalvikur, Akureyrar og Húsavík-
ur.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f. —
Katla er á leið tU Frakklands, Askja
er í Riga.
Hafskip h.f. — Laxá er á lið til
Concarneau.
SkipadeUd SlS: — Hvassafell er i
Onega. Arnarfell er i Archangelsk.
Jökulfell er á lejð til Reykjavíkur.
DisarfeU fer frá Siglufjrgi áleiðis til
Finnlands. Litlafell fór I nótt frá
Reykjavík til Vestmannaeyja. Helga-
fell er í Rostock. Hamrafell fer i dag
frá Reykjavík áleiðis tU Aruba.
Skipaútgerð rikisins. — Hekla fer
frá Kristiansand í kvöld tU Færeyja
og Reykjavíkur. Esja er á Austfjörð-
um á norðurleið. Þyrill er á Aust-
fjörðum á suðurleið. Skjaldrbeið fór
frá Reykjavík vestur um land til
Akureyrar. Herðubrejð fer frá Reykja
vík í dag vestur um land í hringferð.
Jón Trausti fer frá Vestmannaeyjum
í dag til Reykjavíkur.
• Gengið •
Sölugengi:
1 Sterlingspund ...... Kr. 106,13
1 Bandaríkjadollar ........ — 38,10
1 Kanadadollar ........ — 36,85
100 Danskar krónur ...... — 549,80
100 Norskar krónur — 531,50
100 Sænskar krónur ...... — 736,95
100 Finnsk mörk ..........— 11,86
100 Franskir frankar... — 776,60
Söfnin
Bæjarbókasafn Reykjavíkur lokað
Vegna sumarleyfa. Opnað aftur 8. ág.
Listasafn fslands er opið daglega frá
kl. 13,30—16.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74 er
opið þriðjud., fimmtud. og sunnudaga
frá kl. 1.30—4 e.h.
Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla
túni 2, opið dag.ega frá kl. 2—4 e.h.
nema mánudaga.
Þjóðminjasafnið er opið daglega frá
kl. 1:30—4 e.h.
Árbæjarsafn er opið daglega kl.
2—6 e.h. nema mánudaga.
Listasafn Einars Jónssonar er opið
daglega kl. 1:30 til 3:30.
Tæknibókasafn IMSÍ (Iðnskólahús-
inu, Skólavörðutorgi, er opið mánu-
daga til föstudags kl. 1—7 e.h.
Ameríska bókasafnið, Laugavegi 13,
er opið kl. 9—12 ng 13—18, lokað laug-
ardaga og sunud^ga.
prestvíJc
einsog verkfall
einsog syndajatt
einsog efrafall
PÁLMAR HJÁLMÁR skáld: vœri ekki staöreynd
í lífi okkar og bílífi
kryddkvæði nr. 0012.
vandkvæði úr borgarfirðinum:
mér er vandkvœöi á túngu
er viö höldum
útúr svörtu Ijósi dagsbrúnar-
innar
fer ég
% taugarnar á vatnsheldum
túnglspekíngum
sem láta á vandkvœöum sínum
bera
% verkföllum
meö afföllum
ferö þú
smjör og kartöflur
uröu á veigi okkar
þaö rigndi ókvæöisoröum
af heiöum himni
meöan vindurinn blés
í lúöra sinfóníunnar
og horniö á bánkanum
— gamált óræktarskegg
þursaskegg meöal fíblanna
í brekkunni heima —
verið þér sœlir mister sjipps
þú ert farin
aö kröftum
þó vítamín molakaffisins
búi t jöxlum þínum
til parxsar
víöa
ég er farinn
í taugarnar
á sjálfum mér
Til sölu Mercury, ógangfær. Uppl. í síma 36642. Húsbyg'gjendur Gröfum húsgrunna, spreng ingar, hífingar. Uppl. í símum 37813 og 32889.
Kærustupar með 1 barn óskar eftir 1—2 herb. íbúð um mánaðarmót in. Tilb. óskast fyrir 25. júlí merkt „Reglusemi — 5484“. Smurt brauð Snittur, brauðtertur. Af- greiðum með litlum fyrir- vara. Smurbrauffstofa Vesturbæjar Hjarðarhaga 47 Sími 16311
Glaheimar, Vogum
Sextett BERTA MÖLLER
leikur og syngur í kvold.
Glaðheimar
Verzlunarhusnœði
TIL LEIGU (HORNBtJÐ)
Fyrir eru í húsinu fiskbúð, kjötbúð og vefnaðar-
vörubúð. Tilboð sendist Morgunblaðinu merkt:
„Verzlunarstaður — 5041“.
Reykvíkingar og ferðnmenn!
Njótið sólskinsins í Viðey. Ferðir eftir kl. 1 á laugar-
dögum og kl. 10 f.h. á sunnudögum frá Loftsbryggju,
Veitingar á staðnum.
SJÓSTANGAVEIÐIN.
Blóm
Mikið úrval af fallegum afskornum
blómum.
T. d. Rósabúnt frá kr, 15.—, Nellikibúnt frá kr. 20.—
BLÖMABOÐIN RUNNI
Hrísateig 1, gegnt Laugarneskirkju Sími 34174.
íbúð ósknsf til koups
Einhleypur maður óskar eftir að kaupa 2—4 her-
bergja íbúð í Austurbænum, Hlíðunum eða Norður-
mýri. Skipti koma einnig til greina á skemmtilegri
íbúð í Heimahverfi. Tilboð leggist inn á afgr.
blaðsins merkt: „Hæð — 5482“ fyrir lok næstu viku.
Kópavogsbuor — Reykvfkingor
húsbyggjendur
Ég mun annast allskonar raflagnir í ný hús, breyt-
ingar á eldri húsum og viðgerðir á tækjum.
Reynið hagkvæma þjónustu. — Sími 3-69-64.
(geymði auglýsinguna).
PÁLL GUÐBJÖRNSSON, Vallargerði 28
lögg. rafv.meistari.