Morgunblaðið - 25.07.1961, Side 6
6
MORGVTSBLAÐIÐ
Þriðjudagur 25. júlí 1961
*p
Mótorhjól lögregluþjónsins og olíubíllinn í baksýn á horninu þar sem slysið varð.
Lögreglumaður á bif-
hjóli stórsiasast
Kaslao'isf 8 metra og skall i götuna i
hörðum árekstri á laugardaginn
Hesti mysþyrmt
í Hafnarfirði
LAUST fyrir klukkan fimm
á laugardaginn stórslasaðist
Ásmundur Sigurðsson, lög-
reglumaður, er bifhjól, sem
hann ók, lenti í árekstri á
mótum Nóatúns og Lauga-
vegar. Slasaðist hann illa og
var enn rænulítill í gær-
kvöldi. Mun hann vera höfuð
kúpubrotinn og mikið slasað
ur á læri.
Á þessum gatnamótum voru
sett upp umferðarljós í vor. —
Olíubíll frá BP var á leið inn
Laugaveginn og ætlaði síðan að
beygja upp Nóatúnið. Þegar
græna Ijósið kviknaði varð
olíubíllinn því að fara yfir ak-
reinarnar.
Kastaðist 8 metra
í þessum svifum bar Ásmund
að á bifhjólinu og stefndi hann
x átt að miðbænum. Rakst bif-
hjólið, eitt af hinum öflugu
Harley-Davidson-hjólum lögregl
unnar, á vinstra afturhjól olíu-
bílsins af miklu afli. Tókst Ás-
mundur á loft, og kastaðist fulla
átta metra og skall síðan í göt-
una. Til marks um höggið má
geta þess, að ytri felgan á tvö-
földu afturhjóli olíubílsins,
bognaði talsvert.
Ásmundur hlaut mjög slæmt
höfuðhögg, enda blæddi úr eyr-
um hans. Hafði hann ekki haft
hlífðarhjálm á höfði. Þá stór-
slasaðist hann á lærL
Ásmundur var fluttur í
Landsspítalann, en ekki hefur
verið hægt að kanna meiðsli
hans til hlítar sökum meðvit-
undarleysis hans. Seinnihlutann
í gær komst hann þó til með-
vitundar.
Ökumaður olíubílsins hefur
skýrt rannsóknarlögreglunni svo
frá, að hann hafi ekki séð til
ferða lögreglumannsins fyrr en
um leið og áreksturinn varð.
* Dómkirkjan er opin
í bréfi frá skrifstofustúlku,
hér í dálkunum fyrir helgi, var
fundið að því að Dómkirkjan
væri ekki opin og kvaðst stúlk-
an hafa séð erlenda ferðamenn
snúa þar frá. í því tilefni hef-
ur séra Jón Auðuns sent mér
eftirfarandi leiðréttingu:
Heiðraði Velvakandi, í um-
mælum í dálkum yðar um
Dómkirkjuna 21. þ.m. gætir
misskilnings, sem ég vil leið-
rétta.
Dómkirkjan er opin þvínær
alla daga ársins frá kl. 10 ár-
degis til 5 síðd. Svo hefir verið
lengi og kirkjuvörðurinn er
daglega í kirkjunni við um-
sjón og störf. Mikill fjöldi
Ljósmynd: Sveinn Þormóðsson.
Y trifelgan á afturhjóli olíu-
bílsins bognaði þar sem mótor
hjólið lenti á henni.
ferðamanna einkum erl., kem-
ur og skoðar kirkjuna, gengur
þar út og inn og fær uppl. um
aldur hennar o. fl. Hinar stóru
vængjahurðir á suðurhlið
kirkjunnar eru daglega opnar
og gefa hverjum sem að þeim
kemur, til kynna, að kirkjan
sé öllum opin. Þetta nota sér
margir ferðamenn. En á hitt
má benda Reykvíkingum, að
kirkjan er öllum opin bæði
yður heiðraði Velvakandi og
öðrum, sem vilja eiga hljóða
stund í hinu helga húsi. Engra
manna hugleiðingar ætti það
að trufla, að tíðum situr dóm-
organistinn eða aðstoðarmaður
hans við orgelið og fyllir kirkj
una fögrum tónum.
Því miður er sá siður víða
í löndum mótmælenda, að hafa
AÐFARANÓTT sunnudagsins
var. unnið ógeðslegt illvirki á
hesti i Hafnarfirði. Hafði hestur-
inn verið króaður uppi við
hænsnahús, og skorið með hnif
undir taglinu á honum, svo af
varð svöðusár. Fannst hann das-
aður af blóðmissi inni í fjárhúsi,
þar sem hann hafði verið lokaður
inni.
Hesturinn, sem er reiðhestur
Ólafs Runólfssonar, var í girð-
ingu við Linnetsstíginn. Sveinn
Björnsson, lögregluþjónn, sem
kom á staðinn um morguninn,
tjáði blaðinu, að hann Hefði sýni-
lega verið króaður inni upp við
hús, illvirkið unnið og síðan
komið inn í fjárhúsið, til að fela
verknaðinn. Fann Ólafur hest
sinn þar um morguninn. Hafði
hann þá misst mikið blóð. Var
kallað á dýralækni, sem deyfði
hestinn, saumaði sárið og gaf hön
pensilín og blóð. Var lögreglan
síðan kvödd á staðinn. Ekki hafa
160 hvalir
komnir á land
160 hvalir eru nú á land komnir
í hval&töðinni í Hvalfirði. 900
tonn af lýsisframleiðslu þessa árs
er þegar farið á markaðinn. .—
Vinnslan gengur ágætlega 1 stöð
inni, eins og jafnan áður. Seinni
nýkeypti hvalbáturinn, Hvalur
VII., kemur hingað til lands um
miðjan ágúst. Hvalveiðin hefur
gengið heldur verr í ár en í fyrra,
enda hefur verið óvenju langt að
sækja hvalinn, eða aldrei styttra
en 200 mílur á haf út. Einnig
kemur það til að óvenjulega mik
ið dimmviðri hefur verið á mið-
unum. Með minna móti veiðist af
reyðarhval á þessari vertíð, en
því kenna sjómenn um, að áta
hefur ekki gengið á hvalamið
bátanna. — Oddur
kirkjur sjaldan opnar, nema
við messugerðir. Síðustu vik-
ur komum við hjónin þrásinnis
að læstum kirkjum í Noregi og
Þýzkalandi og sögðum þá okk-
ar í milli: Hversvegna er þessi
kirkja ekki opin eins og Dóm-
kirkjan okkar heima?
Við því, að Dómkirkjan sé
illa máluð að utan er þetta að
segja: Bæði getur það verið
álitamál hvort aldagamalt hús
á stöðugt að ilma af nýrri
málningu, og svo er hitt, að
örfá ár eru liðin síðan Dóm-
kirkjan var vandlega máluð,
en hinir öldnu veggir hennar
úr hlöðnum, kalklímdum
steini halda málningu mjög
illa. Samt er viðhald Dómkirkj
unnar, að utan sem innan,
sóknarnefndinni til sóma eins
þeir sem þennan ógeðslega verkn
að unnu, fundizt, en frétzt hefur
af mönnum, sem þarna höfðu
verið um kvöldið að maðkatínslu.
Hafði Sveinn Björnsson það eftir
eigandanum, að hestur þessi gæti
verið styggur og erfiður við
ókunnuga.
Biður Jón Guðmundsson yfir-
lögregluþjónn þó, sem kynnu að
geta gefið upplýsingar um manna
ferðir við eða í girðingu Ólafs
Runólfssonar aðfaranótt sunnu-
dagsins, góðfúslega að láta lög-
regluna vita.
Fyrri slægjan
hirt í Reykholti
AKRANESI, 24. júlí. — Ég hitti
greinagóðan mann að máli, sem
fór upp í Reykhóltsdal í gær.
Sagði hann Reykholt vera einu
jörðina, þar sem búið er að hirða
fyrri slægjuna að mestu og eru
öll súgþurrkunartæki í gangi. Á
öðrum bæjum sæist aðeins hey
í smásætum og drýlum og óhemju
mikið flatt hey, sem aldrei hefði
verið hreyft við. Er það hey, sem
bændur rifu niður um daginn,
þegar þeir héldu að þurrkur væri
að koma fyrir alvöru. — Oddur.
Leita aðstoðar
kommúnista
ELISABETHVILLE, 24. júlí —
Það var tilkynnt hér í dag, að
stjórn Katanga muni á næstunni
senda nefnd manna til A-Evrópu
landanna til þess að ræða um
hugsanlega efnahags- og menn-
ingaraðstoð frá kommúnistaríkj-
unum, eins Og komizt er að orði
í tilkynningunni. Er þar fyrst og
fremst átt við Júgóslavíu og
Tékkóslóvakíu.
og raunar ber hinu virðulega,
gamla húsi, sem er ein af fá
um perlum meðal gamalla
bygginga í Reykjavík.
Ég þakka yður fyrir að
birta þessar athugasemdir.
Jón Auðuns.
* Síxd á innanlands-
markað
Daglega flytja blöðin gleði-
legar fréttir um síldarafla bát-
anna fyrir norðan og söltun,
sem er orðin svo mikil að nú
er að verða komin í tunnur
öll sú síld, er við höfum sam-
ið um að selja úr landinu. Er
það nú að verða áhyggjuefni
hvort meiri saltsíld seljist, sé
haldið áfram að salta.
En hvernig er með innan-
landsmarkað. Mér er sagt að
lítið seljist af saltsíld til
neyzlu á heimilum í landinu.
En það er ekki gott við að
eiga. Heil tunna er of stór
vetrarskammtur fyrir flesta.
Ef hægt væri að fá saltsíld 1
áttungum og jafnvel minni
skömmtum væri fyrst von til
þess að fólk geti notfært sér
saltsíldina til matar. Því ætti
einhver góður síldarsaltandi
að taka sér fyrir hendur að
láta salta í minni ílát en tunn-
ur fyrir innanlandsmarkað
eða skipta úr tunnunum i
minni ílát seinna.
Við íslendingar borðum
mjög litla síld og er
það okkur til skammar. í búð-
unum fást að visu alltaf síld-
arflök en þegar þarf að kaupa
stykkið af síldinni þar á 6 kr.
er hún ekki sú ódýra og holla
fæðya sem hægt er að hafa dag
lega á borðum. Væri ’þá mi'kil
búbót að eiga ódýra síld í átt-
ung í kjallaranum.