Morgunblaðið - 03.08.1961, Side 8

Morgunblaðið - 03.08.1961, Side 8
8 MORGVNBLAÐ1Ð Fimmtudagur 3. ágúst 1961 Rússneskur atomkaf- bátur á Eystrasalti STOKKHÓLMI. — Það hefir nú komið á daginn, eftir því sem sænsk leyniþjónusta upplýsir, að Rússar hafi reynt sinn fyrsta atómkafbát á Eystrasalti. Rekur menn vafalaust minni til þess, að fyrir um tveimur vikum stöðvuðu Rússar tvö norræn kaupskip — sænskt og finnskt — þar sem þau voru á siglingu á Eystrasalti. Var þeim skipað á aðrar siglinga- leiðir. Síðar gáfu rússnesk yfir- völd út þá yfirlýsingu, að skipin hefðu orðið að breyta um siglinga leið sökum flotaæfinga á um ræddu svæði. Bendir allt til þess, að á til- teknu svæði hafi átt sér stað flota æfing, sem Rússar vildu ekki að spyrðist út. Um stærð kafbátsins er ekki vitað, en talið víst að hann hafi verið af minni gerð, sem sé heppileg við aðstæður á Eystrasalti. Annars er talið að Rússar eigi yfir 500 kafbáta og af þeim séu margir, er geti skotið eldflaugum allt að 20 þús. km leið. Til ferbalagsins um verzlunarmannahelgina Tannkrem Tannburstar Tannburstahylki Sápur Sápuhylki Sólarolíur Sólkrem Astral er nýtt á nwukaúiium Sólgleraugu Hreinsunarkrem Andlitsþurkur Bómull Handáburður Handkrem Varasalvj Hárburstar Hárgreiður Naglaþjalir Snyrtitöskur til ferðalagsins Bæjarins mesta úrval af snyrti vörum. Góð þjónusta y Bankastræti 7. Ornflnn, sem hngðist kló- festa bráð sína UM SÍOUSTU helgi varð sá at burður í Noregi, að lítil stúlka — hálfs þriðja árs að aldri — hvarf frá heimili sínu og fannst fyrst eftir 32 klukku- stundir meðvitundarlaus hátt uppi í fjöllum. Það sem varð barninu til bjargar var stærðar örn, er sveimaði yfir henni, sennileg- ast með það í huga að klófesta hana, — en háttalag hans leiddi að sér athygli flug- -varðbarni tilbjargar manna, er sérstaklega höfðu verið beðnir að leita í f jöllun um. Flugimönnunum tókst að hræða örninn frá, meðan beð ið var eftir að þyrla kæmi á vettvang. Barnið sem var með vitundarlaust var fyrst flutt heim til sín vafið þar í ullar- teppi — en síðan flogið með það beint í sjúkrahús. Þar börðust læknar heila nótt fyr ir lifi telpunnar — með þeim árangri, að á sunnudag var hún orðin svo brött, að hún gat blaðrað ofurlítið við hjúkr unarkonurnar. ★ Litla telpan heitir Rut-Maj Kristensen og er sem fyrr segir aðeins hálfs þriðja árs. Hún hvarf frá heimili sínu, fjallabænum Akersvatn í Nord-Rana í Norrland, á föstu dag. Hún hafði hlaupið út á móti systkinum sínum tveim, er voru á heimleið með belj- urnar. Rut-Maj hafði aldrei verið látin gæzlulaus út og einnig í þetta sinn átti eldri systir hennar að fara með henni. Hún hafði hinsvegar tafizt smástund inni i bænum og þegar ú. kom, var Rut-Maj horfin. Rut-Maj hafði gengið marga kílómetra upp f fjöllin, áður en hún fannst og sennilega lagt sig af og til og sofnað. Þar, sem hún fannst, sáust merki þess, að hún hefði hnig ið niður örmagna og hrapað niður í smágil. Þegar hún fannst hafði hún verið 32 klst. ein í fjöllunum. Við björgun telpunnar, skall vissulega hurð nærri hælum, því að stundu síðar hafði þétt þoka læsti sig um fjallahlíð- arnar og hulið þann stað er barnið fannst. Ef forsjónin (eða tilviljun eða hverju menn vilja þakka slíkt) hefði ekki gripið í taumana hefðu for- eldrar Rut-Maj misst þarna þriðja barnið sitt. Tvö börn þeirra drukknuðu fyrir nokkr um árum, bæði á barnsaldri. Skrifar um KVIKMYNDIR AUSTURBÆJARBÍÓ: ÁSTARÞORSTI. MÉR FELLUR ekki nafnið á þessari þýzku mynd því að það er beinlínis villandi. Myndin f jall ar ekki um neinar ofsalegar ástar kenndir heldur um eðlilega þrá eiginkonunnar til þess að fá að njóta ástar eiginmannsins, sem hún elskar, og samvistanna við hann. — Ung ekkja, Renate, býr á heimili föður síns, Liboriusar poiagning garða Garðbygging Viðhald, hirðir, Sala Ir,á. og blómaplónt, prófessors, en hann er víðfrægur fyrir rannsóknir sínar og vísinda- rit um kynferðismál Og vanda- mál æskunnar, sem hann fjallar um af víðsýni og skilningi. Og hann nýtur trausts og aðdáunnar nemenda sinna í háskólarium. — Hjónaband Renötu haíð: verið mjög hamingjusamt, en hún missti mann sinn eftir stutta sam búð. Nú vinnur hún á skrifstofu lögfræðingsins dr. Tómasar Alt- hoffs, sem einkaritari hans. Hann stundar störf sín af kappi og hún er áhugasöm og dugandi í starfi sínu. Ungur læknir, Wolf Neu- mann, léttúðugur maður, hei'ur lengi litið Renötu hýru auga og eitt sinn, eftir veizlufagnað, tekst honum að fá hana heim með sér. Hún er ör af kampavíni og telur sér trú um að hún elski Neu- mann og hún er hjá honum um nóttina. Morguninn eftir fer þeim það á milli að henni verður ljóst að hún hefur blekkt sjálfa sig og að Neumann er ekki verður ástar hennar. Vonsvikin fer hún heim til föður síns og segir honum mis tök sín. Þegar frá líður fella þau hugi saman dr. Althoff og Renata og þau giftast. Þau eru mjog hain ingjusöm í fyrstu, en brátt kem ur að því að lögfræðisstörfin taka upp að mestu hug hans og tíma, svo að hann má ekki vera að því að sinna konu sinni sem skyldi Og hún gerir kröfu til. Þetta leiðir til árekstra inilli hjónanna er lýkur með því að Renata vísar manni sinum á dyr. Hann fer á brott í leiði, en iiann elskar konu sína, þratt fyrir allt, og finnur að hann get.ur ekki án hennar verið. Hann kemur því aftur til hennar og þau ræðast við um vandamál sitt. Leiða þær viðræður til fullra sátta þeirra á milli og hafa þau þá mættzt á miðri leið við lausn vandans. Mynd þessi er mjög efnismikil og athyglisverð, og nefur vissu- lega almennt gildi, því að þau hjónabönd eru áreiðanlega fjöl- mörg, sem farið hafa ut um þúf ur af svipuðum ágreiningi hjón- anna og þeim, sem myndin segir frá. Myndin er einnig ágætlega gerð og vel leikin. Einkum er leikur Barböru Rúttir.g í nlut- verki Renötu áhrifamikill. Aðrir leikendur, svo sem Paul Dah'.ke, er leikur Liborius prófessor og Thomas Reiner, sem leikur Alt- hoff lögfræðing, fara emnig mjög vel með hlutverk sin. — Er óhætt að mæla með þessari mynd. ST J ÖRNUBÍÓ: ÁSA-NISSE FER í LOFTINU BAKKABAÆÐURNIR íslenzku, upp að mest hug hans og tínta, sem eru góðkunningjar okkar allra eru hinir skemmtilegustu náungar og sérstæðir um gáfna- far og alla tilburði. Frændur þeirra, hinir sænsku Bakkabræð- ur, eru ekki eins „hreinræktaðir" en vinna það hinsvegar upp með skemmtilegri fjölbreytní í lífi og háttum. í þessari mynd eru þeir miklir uppfinningarm.enn, t.d. finna þeir upp rakettu-bíl og lieij armikla þvottavél, sem er þannig gerð að henni verður ekki með orðum lýst. En þessar uppfinning ar þeirr félaga eiga það sameigin leg að þær eru ónothæfar þegar til á að taka. Þeir vinna iíka fyrstu verðlaun í getraunaþæcti útvarpsins og verðlaunin eru dvöl á fjallahóteli að vetrarlagi. Þar fer annar garpurinn, Ása- Nisse á skíðum og er það skemmtilegasta skíðaferð, sem ég hef séð. Og þá er sama kempa ekki í vandræðum með að ,starta* flugvél og fljúga með félaga sín um upp í háloftin. Gengur það allt eins og í sögu að öðru leyti en því, að þeir komast ekki nið ur aftur . . . Já, þeim er vissulega margt til lista lagt þessum heiðursmönn- um. — Margt fleira skemmtilegt ■ber fyrir aagu áhorfandans í þess ari fjörugu mynd svo sem list dans á skautum, sem ska.uta- drottningin Inga-Britt Hale sýnir af frábærri leikni. Aðalhlutverk in leika nú, sem fyrr, John Elf- ström og Artur Rolén og eru báð ir hinir prýðilegustu karlar að vanda. e«r úlfbr iiicobsek FEROASKRIFSTOFA Austurslríli 0 $1*1: 13490

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.