Morgunblaðið - 13.08.1961, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.08.1961, Blaðsíða 12
12 MORGVNBLAÐ1Ð Sunmídagur 13. ágúst 1961 msfrliifrifr Útgefandi: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók: Árni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: A.ðalstræti 6. Auglýsingar og avgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. ERLENT FJARMAGN OG STORIÐJA ¥ einu þýðingarmiklu stór- máli hafa allir íslenzkir lýðræðisflokkar lýst yfir svipaðri stefnu, þ. e. a. s. að því er varðar hagnýtingu erlends fjármagns til upp- byggingar stóriðju. Samstaða lýðræðisaflanna í þessu stór- máli hefur geysiþýðingu og hana ber að styrkja, þrátt fyrir ólíkar skoðanir í all- flestum málum öðrum. Á það hefur margsinnis verið bent, að innan skamms geti svo farið, að auðæfi þau, sem fólgin eru í fall- vötnum og jarðhita landsins, verði lítils eða einskis virði vegna hinnar öru þróunar kjarnorkuvísinda. Þess vegna ríður á að bráður bugur verði undinn að því að hag- nýta þau tækifæri, sem okk- ur bjóð<ast til stórvirkjana og byggingar iðjuvera. Þróunin í efnahagssam- vinnu Evrópuríkja er líka svo ör, að við hljótum óhjá- kvæmilega í nánustu fram- tíð að taka þátt í þeirri sam- vinnu, ef við ekki eigum að einangrast efnahagslega og dragast aftur úr öllum ná- grannaþjóðunum í lífskjörum og efnahagslegu tilliti yfir- leitt. Rétt er að menn geri sér strax grein fyrir því, að enda þótt við yrðum þátttakendur í Efnahagsbandalaginu, þá höfum við full ráð yfir orku- lindum okkar. Ákvæði Róm- arsamningsins svonefnda gera hvergi ráð fyrir, að er- lendir borgarar geti haft frekari rétt en innlendir. — Þótt við fengjum engin sér- ákvæði samþykkt að því er okkur varðar sem smáþjóð — sem þó er engin ástæða til að óttast — þá er í þessu efni engum réttindum fórn- að. — íslenzka ríkið hefur bein yfirráð yfir öllum orkulind- tun landsins. Þannig gæti enginn íslenzkur borgari, þótt hann hefði fjármagn til þess, ráðizt í virkjun Þjórs- ár eða annarra fallvatna án samþykkis og ákvörðunar ríkisvaldsins. Auðvitað tekur þetta því fremur til er- lendra manna. — Sjálfsagt reyna afturhaldsmenn og kommúnistar að gera tor- tryggilegar tilraunir okkar til að tryggja stórstígustu framfarir, sem þekkzt hafa í Islandssögunni, og þeir munu segja að við ætlum að af- sala okkur réttindum yfir orkulindunum. Þess vegna er rétt að j menn geri sér frá upphafi grein fyrir því, að engu slíku er til að dreifa. Við styrkjum aðeins aðstöðu okkar til að afla fjármagns til að virkja sjálfir, þá og þegar okkur sýnist og fá er- lent fjármagn til að kaupa orkuna til þeirra stóriðju- vera, sem við samþykkjum að hér rísi, því að sjálfir ráðum við auðvitað hvert og hverjum við seljum orku. EINANGRUNAR- STEFNA OG KOMMÚNISMI l|/|eðal stórþjóðanna, t. d. Bandaríkjamanna og Breta, eru til einangrunar- sinnar, menn sem lifa í þeirri gömlu trú að einstök ríki geti einangrað sig frá umheimin- um og þurfi ekki að láta sig neinu skipta, hvað , annars staðar hendir. Þessum mönn- um fer fækkandi og áhrif þeirra eru lítil sem engin orð- in. Þannig er þetta einnig meðal smáríkjanna. En at- hyglisvert er, að kommúnist- ar hafa hvarvetna samstöðu með einangrunarsinnum í lýð ræðisríkjum. Afturhaldsmenn eru þar auðvitað bandamenn kommúnista, alveg eins og þeir hlutleysingjar, sem ekki þora að horfast í augu við raunveruleikann. Þjóðviljinn ræðst í gær að viðskiptamálaráðherra fyrir það, að hann hafi nokkrum sinnum farið utan til að gæta hagsmuna íslendinga í sam- bandi við hina hröðu þróun efnahagsmála nágrannaríkj- anna. Framsýnir menn mundu miklu fremur áfell- ast ríkisstjórnina fyrir að hafa ekki nóg að gert til að tryggja hagsmuni íslands með því að fleiri menn störfuðu að þessum málefnum og við værum í nánari tengslum við nágrannaþjóðirnar. Full ástæða er til að þakka viðskiptamálaráðherra fyrir það að leitast við að fylgjast með þessari þróun, og Morg- unblaðið mundi sannarlega fagna því að meira væri gert í þeim efnum en ekki rninna. Auðvitað er kostnaður þessu samfara en í hann ber ekki að horfa. VEIZLUHÖLD lVIálgagn kommúnista ræðst auk þess að viðskipta- málaráðherra fyrir óhófleg veizluhöld. Ekki veit Morg- unblaðið, hvort sá ráðherra heldur meiri veizlur en aðr- ir, og sjálfsagt eru þær ekki ríkmannlegri en hjá komm- (ITAN UR HEIMI J. Alsír mun rísa úr rdstum — en stríðinu er ekki lokið Gr/p/'ð niður i viðtal i erlendu blaði við Belkacem Krim, sem var aðalfull- trúi Serkja i Evian-viðræðunum við Frakka VIÐRÆÐUR fulltrúaalsírsku útlagastjórnarinnar í Túnis og frönsku stjórnarinnar um sjálfstæði og framtíð Alsír fóru út um þúfur fyrir skömmu — a. m. k. um sinn — svo sem kunnugt er af frétt um. Skömmu áður en ráð- stefnuna rak upp á sker átti blaðamaður frá danska blað- inu „Information“ viðtal við formann alsírsku viðræðu- nefndarinnar, Belkacem Krim, utanríkisráðherra út- lagastjórnarinnar. í þessu við- tali lýsti Krim þeirri skoðun sinni, að Alsírstyrjöldin •— sem nú hefir staðið um sjö ár — muni engan veginn á enda. Hann gaf blaðamannin- um þá þegar í skyn, að við- ræðurnar við Frakka mundu stranda á Sahara, svo sem raun varð á — Sahara „sem Frakkar vilja nú ekki telja til Alsír lengur“. Og blaða- maðurinn bætir við frá eigin brjósti: — Krim og nefndar- menn hans eru ekki fólk, sem er líklegt til að slá af kröfum sínum. Þeir munu halda stríð- inu áfram. Þeir geta beðið. ♦ Hann kveðst hafa komizt að þeirri niðurstöðu við að heim- sækja Krim og meðnefndanmenn hans, „að alsírsku þjóðernissinn- arnir hafi reynt næstum allt, og að þeir hafi til að bera þann styrk, sem ekkert megnar að buga“. 4 „Eg hefi verið heppinn" Belklem Krim er 39 ára gam all. Hann var lengi einn af helztu foringjum neðanj arðarhreyfingar þjóðernissinna í Alsír, hefir setið í útlagastjórn Serkja frá upphafi, 1957 — og er nú utanríkisráð- herra hennar og annar áhrifa- únistaleiðtogunum í vinstri stjórninni. Hinsvegar vill blaðið taka undir það, sem það raunar hefur gert áður, að veizlur hins opinbera þyrftu ekki að vera jafnveglegar og raun ber vitni. Sérstaklega er það ósvinna að veita margar teg- undir áfengis í hádegisverð- arboðum, svo að menn séu hálf- eða alóvinnufærir síð- ari hluta dagsins, ef þeir þurfa að taka þátt í slíkum boðum. Slíkar venjur, sem hér hafa komizt á, að erlendri fyrirmynd, á að afnema, bæði hjá bæ og ríki, og vissu lega er engum betur til þess treystandi en núverandi ríkis stjórn og bæjaryfirvöldum Reykjavíkur. mesti leiðtogi Serkja, við hlið Ferhat Abbas, forsætisráðherra. Krim hefir fimm sinnium verið dæmdur til dauða af frönskum dómstólum — og um árabil lýstu frönsk blöð honurn sem hinum versta og hættulegasta afbrota- manni. Um þrigigja ára skeið lifði Krim „undir jörðinni", þeg- ar Frakkar gengu harðast fram næstum því ofstækisfullri aðdá- un“ um hina alsírsku þjóð. „Það (fólkið) hefir orðið að þola margt Og mikið“, segir hann. „Það hef- ir liðið líkamlegar þjáningar — og það hefir þjáðst á sálinni“. — Hann heldur því fram, að Alsírmenn hafi ekki hug á að hefna sín á Evrópumönnum í landinu. „Alsírmenn hafa þjáðst meira en svo undir frönskuim yf- irráðum, að þá fýsi nú að drottna yfir öðrum - og auk þess munum við fá þjóðinni nó.g að gera við uppbyggingu landsins, en ekki láta hana sóa kröftum sínum í innbyrðis-átök. Við þurfum á lið- sinni Evrópumannanna að halda, því að margt og mikið þarf að byggja upp að nýju eftir sjö ára styrjöld". ,, Blaðamaðurinn spyr, hvort Alsír muni taka ákveðna af- stöðu í alþjóðamálum eða skipa BELKACEM KRIM: — Enginn hefndarhugur í því að hafa hendur í hári for- ingja þjóðernissinna. En alltaf slapp Krim, þegar franska lög- reglan framkvæmdi hinar harð- vítugu skyndirannsóknir sínar — aldrei særðist hann í bardögum og skærum — og alltaf tókst hon um að sleppa gegnum allar hindr anir. Þegar um fimm ára skeið áður en styrjöldin við Frakika brauzt út hafði hann verið á sí- felldum þveitingi milli Kabylíu (þar sem hann er upp runninn) og annarra hluta Alsír og stund- aði pólitíska útbreiðslu- og und- irróðursstarfsemi. Einnig þá virt- ust engar hömlur geta hindrað ferðir hans. Belkacem Krim er nú sá eini hinna sex leiðtoga, er hófu Alsírstyrjöldina 1. nóvem- ber 1954, sem ekki hefir verið fangelsaður — eða líflátinn. Og þrátt fyrir allt, sem á undan var gengið, varð hann foringi Serkja í viðræðunum við Frakka um framtíð Alsír. — Engin furða þótt hann segði við danska blaðamann inn: „Já, víst hefi ég verið hepp- inn“. 4 Hyggja ekki á hefndir „Alsír ntun rísa aftur upp úr rústunum", sagði hann í viðtal- inu — og blaðamaðurinn lýsir því, hvernig hann talar „með sér í sérstakan flokk þar, aö fengnu sjálfstæði. „Nei“, anzar Krim, „ekki að svo stöddu“. „En ef til vill síðar?“ „Við munum hafa samvinnu við hvert það ríki, sem vill hjálpa okkur til að byggja upp land okkar“, segir harm — og bætir við til frekari áherzlu, eft- ir stundarþögn: „Já, við viljum vera vinir allra, sem eru fúsir að leggja okkur lið“. 4 Fáorður um de Gaulle Við lok samtalsins spyr blaða maðurinn um álit Krims á da Gaulle Frakklandsforseta. En hinn alsírski þjóðernisleiðtogi vill ekkert segja um forsetann. „En hann hefir þó fengið Frakka til að viðurkenna rétt Alsír til sjálfstæðis“, segir blaða- maðurinn til þess að reyna að koma Krim af stað. Hann svarar því aðeins stutt og þurrlega: „Það hefir hann aðeins gert til þess að tryggja franska hagsmuni". „Já, en hann hefir nú gert það samrt . . . .?“ Beikacem Krim brosir aðeins — segir ekkert. Hann er örugigur um sjálfan sig og hefir einung. is áhuga -á tvennu: Alsír — og sigri yfir „þessum nýlendusinn- um“, sem hann minnist á í hverri einiustu setningu ... ---

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.