Morgunblaðið - 18.08.1961, Qupperneq 4
4
Faxabar
Heitar pylsur allan daginn.
Gosdrykkir, tóbak, gæl-
gæti Faxabar, Laugavegi 2.
HANDRIÐ — HANDRDE)
Járnhandrið á svalir og
stiga úti, inni, ódýr og fal-
leg.
Járn hf. — Síitii 3-55-55.
Notaðir varahlutir
í Pakard ’37 til sölu, Lang-
eyrarvegi 8, Hafnarfirði.
Herbergi
' %ast sem nsest Lynghaga.
Uppl. í síma 15817.
Tek vélritun heim
Uppl. í síma 13383 og 18105
eftir kl. 6.
Til leigu
2ja herb. íbúð í timburhúsi
við Miðbæinn. Tilboð
merkt: „X-5269", sendist
afgr. Mbl. fyrir 22. þ. m.
Er kaupandi
að rúmgóðri 3ja ^erbergja
íbúð í Vesturbænum. —
Uppl. í síma 24524.
Bíll óskast
Vil kaupa 4—6 manna bíl,
eldri árg. en 1955 kemur
ekki til greina. Uppl. í
síma 50348.
Opel Caravan 1955
til sölu, skipti á yngri bíl
æskileg. Uppl. í síma
50348.
Stúlka eða kona
óskast til afgreiðsluistarfa.
Gott kaup og fæði.
Kjörbarinn, Lækjargötu 8.
Til sölu
6 manna bíll, árg. ’42, ódýr
Símí 18268.
Tannlæknar
Hef opnað vinnustofu mína
aftur.
Eirný Sæmundsdóttir
ta-nnsmiður. Sími 33579.
Mótatimbur óskast
Uppl. í síma 100030 eftir
kl. 7.
2ja—3ja herbergja íbúð
óskast til leigu. Fyrirfram-
greiðsla, ef óskað er. —
Tilboð sendist blaðinu fyr-
ir laugardagskvöld, merkt.
„íbúð — 530K“.
Lán
Óska eftir 60 til 70 kr. láni.
Góð tryggiiig í fasteign. —
Tilboð merkt: „1961 —
5306“, aendist Mbl. fyrir
sunnudag.
MORGVNBL4ÐIÐ
Föstudagur 18. ágúst 1961
f dag er föstudagurinn 18. ásúst.
230. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 10:28.
Síðdegisflæði kl. 22:42.
Slysavarðstofan er opin allan sólar-
hringinn. — Læknavörður L.K. (fyrir
vitjanir) er á sama staS frá kl. 18—8.
Sími 15030.
Næturvörður vikuna 12.—19. ágúst er
í Vesturbæjar-Apóteki.
Holtsapótek og Garðsapótek eru
opin alla virka daga kl. 9—7, laugar-
daga frá kl. 9—4 og helgidaga frá
kl. 1—4.
Kópavogsapötek er opið alla vlrka
daga kl. 9,15—8, laugardaga frá ki.
9:15—4, helgid. frá 1—4 e.h. Sími 23100.
Næturlæknir i Hafnarfirði vikuna
12.—19. ágúst er Garðar Olafsson,
sími 50126.
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt fer í
skemmtiferð í Landmannalaugar mið-
vikudaginn 23. ágúst. Lagt verður af
stað frá Sjálfstæðishúsinu kl. 9,30.
Konur hafi með sér viðleguútbúnað
og nesti. Mega taka með sér gesti.
Farmiðar verða seldir á sunnudag 'og
mánudag hjá Maríu Maack, Pingholts
stræti 25, og Gróu Pétursdóttur, Öldu-
götu 24.
í dag verða gefin saman í
hjónaband af sr. Jóni Auðuns
Ragnhildur Steinbach Birkimel
8 A og stud. polit. Hilmar Sigurðs
son frá Patreksfirði.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af sr. Ingiberg Hann-
essyni, Hvoli í Saurbæ, ungfrú
Ásgerður Ásmundsdóttir Hrúts-
stöðum, Laxárdal, og Hreinn Guð
bjartsson, Miklagarði, Saurbæ,
Dalasýslu.
Sl. laugardag vöru gefin sam-
an í hjónaband af sr. Eggert Ól-
afssyni, prófasti, Kvennabrekku,
ungfrú Hrafnhildur Guðbjarts-
dóttir, Miklagarði, Saurbæ, og
Sigurður Kristján Jakobsson,
Þorbergsstöðum, Laxárdala-
hreppi, Dalasýslu.
ÁHEIT og GJAFIR
Sóllieimadrengiirinn: ÞMG afhent af
Sigríði Guðmundsd. Hafnarfirði 100.
MG 50.
*
—Frú, kallaði nágrannin reið-
ur, litli sonur yðar kastaði steini í
gegnum rúðu hjá mér.
— Vilduð þér gjörasvo vel að
láta mig fá steininn, sagði móð
irin, við geymum allt, sem við
getum náð í til minningar um
prakikarastrik hans.
*
Stúlka var að tala við vintoonu
sína um tvo unga menn.
— Ef ég gæti sameinað kosti
þeirra væri ég hamingjusamasta
stúlka í heimi. Páll er kátur
kurteis, ríkur, fallegur og
skemmtilegur; og Jón vill kvæn
ast mér.
velur að þessu sinni Helgi
Sæmundsson. Um val sitt á
ljóðinu segir hann:
É G vel af þessu tilefni kvæðið Næturkyrrð eftir Heine í
þýðingu Jónasar Hallgrímssonar. Skáldskapur þess er marg-
breytilegrar fegurðar, og tilfinning kvæðisins vekur lesand-
anum eins konar dulskynjun, sem er óháð líkamlegri og
skilgreinanlegri líðan, umhverfinu, veðrinu og afkomunni,
en fær mann til að una stund og stað líkt og í endur-
minningu eða tilhlökkun. Jónas staðsetur þýzka hugsun
Heine austan fjalls, svo að kvæðið speglar töfrabrag Árnes-
þings, en samt gæti það víst átt heima hvar sem væri á
landinu eða jörðinni, ef lesandinn breytti örnefnunum, sem
þýðandinn gerir að íslenzkum táknum. Næturkyrrð lætur
mig nema listrænan galdur og lifa nautn hans og reynslu
eins og ég skoði smáfríða mynd í yndislega samræmdum
litum við kliðmjúkan tónaslátt hæfilega fjarran og þó ná-
lægan. Hinum, sem skilja kvæðið öðru vísi og kannski bet-
ur, geri ég aðeins þá grein fyrir valinu, að mér þykir vænt
um ljóðið, enda er það samvinna tveggja s*illinga og lofar
vissulega meistara sína á fleiri en einn veg:
Ganga gullfætt
um götur bláiar
og læðast léttfætt
ljósin uppsala,
Varast smástjörnur
að vekja sofandi
foldina fögru
faðmi nætur í.
Hlustar hinn dimmi
Dalaskógur,
öll eru lauf hans
eyru grænlituð.
Sefur nú Self jall
og svarta teygir
skuggafingur
af Skeiðum fram.
Hvað er það, er ég heyri? —
Hljómur ástfagur
og blíðmælt bergmál
í brjósti mínu.
Eru það orð
unnustu minnar
eður sælla
söngfugla kvak?
Fjölskyldan á Sauöárkróki: Önefnd
ur 1000
Lamaða stúlkan: NN 100, SG 30
Loftleiðir h.f.: 18. ágúst er Snorri
Sturluson væntanl. frá NY kl. 06:30.
Fer til Luxemborgar kl. 08:00. Kemur
til baka frá Luxemborg kl. 24:00. Fer
til NY kl. 01:30. Leifur Eiríksson er
væntanlegur frá NY kl. 09:00. Fer til
Osló Khafnar og Hamborgar kl. 10:30.
Leiguflugvél Loftleiða er væntanleg
frá NY kl. 12 á hádegi. Fer til Luxem
borgar og Helsingfors kl. 13:30. Þor-
finnur karlsefni er væntanlegur frá
Stafangri og Osló kl. 23:00. Fer tU
NY kl. 00:30.
Flugfélag íslands h.f.: Millilandaflugt
Gullfaxi fer til Glasgow og Khafnar
kl. 08:00 í dag. Kemur aftur til Rvík
ur kl. 22:30 í kvöld. Fer til Oslóar,
Khafnar og Hamborgar kl. 10:00 I
fyrramálið. Hrímfaxi fer til Lundúna
kl. 10:00 í dag Væntanl. aftur til
Rvíkur kl. 23:30 í kvöld. Fer til Glas
gow og Khafnar kl. 08:00 í fyrramáliS
Skýfaxi fer aukaferð til Khafnar kl,
09:00 f fyrramálið. — Innanlandsflug:
1 dag er áætlað að fljúga tii Akureyr
ar (3 ferðir), Egilsstaða, Fagurhóls»
mýrar, Hornafjarðar, Isafjarðar,
Kirkj ubæj arklausturs og Vestmanna.
eyja (2 ferðir). A morgun til Akureyr
ar (2 ferðir), Egilsstaða, Húsavikur,
Isafjarðar, Sauðárkróks, Skógarsanda
og Vestmannaeyja (2 ferðir),
Leigufiug Daníels Péturssonar flýg
ur í dag kl. 10 f.h. til Hellissands. Til
Stykkishólms og Búðardals á morgua
kl. 2 e.h.
JÚMBÖ í EGYPTALANDI
1) Þegar Júmbó og prófessor Forn
vís komu aftur til meðvitundar, ætl-
uðu þeir ekki að trúa sínum eigin
augum. — Úlfur lögreglufulltrúi og
Spori leynilögregluþjónn! Hvað eruð
þið eiginlega að gera hér?
2) — Við erum komnir til þess að
vernda yður og vísindaleiðangur yð-
ar gegn árásum. Lögreglan heima
vildi vera viss um, að engin óhöpp
hentu yður, útskýrði lögreglufulltrú-
inn.
3) — Þetta er þá líka ánægjuleg
vernd, eða hitt þó heldur! hreytti
prófessorinn út úr sér í bræði. — Við
megum þakka klaufaskap ykkar fyr-
ir það, að nú erum við búin að eyða
miklum og dýrmætum tíma til
einskis. Komið, við skulum reyna að
bæta það upp sem fyrst!
>f >f >f
GEISLI GEIMFARI
>f >f >f
— Má ég kynna, Ungfrú Jörð,
Geisli höiuðsmaður?
— Komið þér sælar!
— Svo þér eruð þessi frægi Geisli
geimfari!!
— Hérna .. Já! (Hún kemurmér
kunnuglega fyrir sjónir!)