Morgunblaðið - 23.08.1961, Side 19
Miðvikudagur 23. ágúst 1961
MORGVNBLAÐIÐ
19
ftjý bók ism
Reykjavík
eftir Árna ÖBa
Jk -
J MORGUNBLAÐIð frétti hjá jSÉI
4 Pétri Ólafssyni, framkvæmda-
| stjóra, að á næstunni mundi
/ koma út hjá ísafoldarprent- llplllliffe
smiðju þriðja Reykjavíkur- tt, siHil
bók Árna Óla, ritstjóra. Blað-
ið sneri sér þá til hans og spurði um þessa nýju bók og hvenær hún mundi koma.
— Það var ætlunin, segir Árni, að bókin kæmi út á 175 ! ára afmæli Reykjavíkur, en af ófyrirsjáanlegum ástæðum hef ir það dregizt, svo að hún kem ! ur líklega ekki fyrr en eftir viku.
1 — Þetta er þriðja bók þín 4 um sögu Reykjavíkur? t — Já, hinar tvær eru „För- 7 tíð Reykjavíkur“ og „Gamla
J Reykjavík“. Þessi nýja bók
heitir „Skuggsjá Reykjavíkur“
enn fremur er >ar sérstakur
kafli um nafngiftir gatna í
Reykjavík og þykir mér ekki
ólíklegt að mörgum muni
þykja bæði gagn og gaman að
því að fá hann.
— Hvað er þá þessi Reykja-
víkursaga þín orðin stór?
— Alls eru þessi þrjú bindi
rúmar 60 arkir, eða um þús-
und blaðsíður.
— Hvenær byrjaðir þú á
þv> að safna þessu efni?
— Það eru nú um 30 ár síð-
an. Fyrst í stað byrjaði ég að
safna í sérstakar greinar af
sérstöku tilefni og flestar eru
greinarnar skrifaðar þannig.
En þó hefir margt fleira borizt
upp í hendurnar. Vegna þessa
fylgja greinarnar ekki réttri
tímaröð í sögu bæjarins. Hver
þeirra er sjálfstæð frásögn.
— Er vön á fleiri bókum um
þetta efni?
— Ég veit ekki hvað segja
skal. Líklega á ég efni í fjórðu
bókina, en hamingjan má vita
hvort hún kemur nokkurn
tíma.
Maður milli bíls og húss
Skuggsjá Reykjavíkur"
REYKJUM, Mosfellssveit 22.
ágúst. — Það slys varð hér að
Reykjum í morgun, að starfsmað-
ur við fuglakynbótabúið, Harald
Balling, varð á milli bíls og
húss, og hlaut allmikil meiðsli,
sem ekki eru þó fullkönnuð enn.
Nánari tildrög eru þau, að
mjólkurflutningabíll Mosfellinga
var að búast til að taka egg frá
búinu og ók afturábak í átt að
dyrunum. Mun bíllinn hafa farið
full nærri húsinu, Og Harald ann
að hvort talið sig öruggan, eða
þá ekki gætt sín fyrir bílnum,
þannig að hann varð á milli hans
og hússins. Þetta var um sex-
leytið inn morguninn, Og vOru
engir sjónarvottar að slysinu.
Bílstjórinn fór þegar heim að
bænum og náði sambandi við
Reykjavík. Brugðu starfsstúlkur
stöðvarinnar skjótt við, og gerðu
lögreglu Og sjúkraliði aðvart, sem
kom fljótlega á staðinn. Þá var
Oddur læknir á Reykjalundi
sóttur. Er hann kom á staðinn var
Harald með nokkurri rænu, og
taldi líðan sína' ekki slæma. —
Lögregla tók skýrslu af bústjór-
anum og sjúkrabíllinn flutti hinn
og er með sama hætti og hin-
ar. Það eru sjálfstæðar sögur
um ýmis efni. Meðal annars
er þar frásögn um hve brösu-
lega gekk með kosningu fyrstu
þingmanna Reykjavíkur og
frásögn um fyrstu árin eftir að
Árni Óla er mjög fróður um
fortíð Reykjavíkur, sem
Reykjavík fékk kaupstaðar- gleggst má sjá af skrifum hans
réttindi. Þá er þar sagan af í Lesbók Morgunblaðsins og
Sæfinni á sextán skóm. Og fyrri bókum hans um borgina.
— Enginn er verri
Framh. af bls. 3
strákar?
— Ertu „áðí“, segir bílstjór-
inn.
Æ, ég datt ,,íða“ um dag-
inn, þegar ég kom í land, en
ég er að fara aftur út um
helgina. Nú rignir á norður-
hveli jarðar.
— Og þú ert bara að spás-
séra í rigningunni?
Við erum íslendingar, er það
ekki?
Og svo spyr hann okkur,
hvort við viljum ekki skutla
sér upp á Bryta. Ég ætla að
fá mér pilsner, maður verður
víst að láta sig hafa það gutl.
Nú ættu þau að geta ort, atóm
skáldin, sem yrkja ekki um
annað en rigningu.
Hann segir okkur frá næt-
urævintýri sínu.
— Haldið þið að ég hafi ekki
sofnað í garði I nótt, og þeg-
ar ég vaknaði, þá var búið að
stela af mér öðrum skónum.
Ég fór i morgun til þing-
imanns, sem ég þekki, og hann
gaf mér skó af sér. Ég er á
þingmannSskóm og komiði
ibara, ef þið þorið. Og svo
hverfur hann snöggklæddur
út í rigninguna í Tryggvagöt-
unni, með þeim ummælum, að
það sé ómögulegt að vera full-
ur í Reykjavík í rigningu.
— Halló, er það veðursto>f-
an, þetta er á Morgunblaðinu.
Hvað hefur rignt mikið í dag?
2.5 millimetra. Það er mikið?
Töluvert. Hvernig verður það
á morgun?
— Allhvass suðaustan i
kvöld og rigning, hægari sunn-
an og suðvestan á morgun með
skúrum.
Það er komið frám yfir
kvöldmat, þegar þetta er skrif-
að og rigningin bylur enn á
glugganum. Við verðum samt
að vona það bezta. Sumarið
stingur ekki af svona skyndi-
lega. J. R.
LEIÐRÉTTING
FYRIRSÓON greinar dr. Matthí-
asar Jónassonar, sem birtist í
blaðinu í gær átti að vera „Sýnd-
ardyggð og siðgæði hjartans“, en
ekki „Syndardyggð . , .“ eins og
misritaðist í blaöinu.
Biskup Islands
til Norðurlanda
BISKUPINN yfir íslandi, herra
Sigurbjörn Einarsson, tók sér far
með flugvél til Norðurlanda í
morgun. Er förinni heitið til
Finnlands til þátttöku í norræna
biskupafundinum, sem háður
verður í Larkkula í námunda
við Helsingfors dagana 22. til 28.
þ.m. Eftir fundinn í Lárkkulla
mun biskup fara til Svíþjóðar
og sitja prestafund í Linkjöping
4. til 8. september. Síðan mun
hann dvelja nokkra daga í Nor-
egi og er væntanlegur heim aft-
ur 17. september.
(Frá skrifstofu biskups)
Kirkjuvígsla
að Efra Núpi
SL. sunnudag, hinn 20. þ.m., var
vígð ný sóknarkirkja að Efra-
Núpi í Melstaðarprestakalli í
Húnavatnsprófastsdæmi. Vígslu-
biskup Hólastiptis, séra Sigurður
Stefánsson, framkvæmdi vígsl-
una í umboði biskups. Einnig
tóku þátt í vígsluathöfninni hér-
aðsprófastur, séra Þorsteinn
Gíslason, sóknarprestur staðar-
ins, séra Gísli Kolbeins og fleiri
prestar. — Fjölmenni var mjög
mikið, og athöfnin öll hin hátíð-
legasta og virðulegasta.
(Frétt frá skrifstofu biskups)
Heimtaugar frá
Rey k j askólalínu
STAÐARBAKKA, Húnavatns-
sýslu, 22. ágúst. — Hlýtt, en nokk
uð votviðrasamt hefur verið hér
undanfarið. Heyskapur er orðinn
sæmilegur og sums staðar góður,
þar sem byrjað var snemma og
tún voru ekki skemmd af kali.
Byrjað er að leggja heimtaugar
á bæi út frá Reykjaskólalínu. Eru
á milli 10 og 20 býli, sem þá frá
rafmagn.
Laxveiði hefur verið nokkuð
jöfn og dágóð í Miðfjarðará í
sumar, — Benedikt.
Situr við sama I
kjötdeilunni
ALLT SITUR við sama í deilu
kjötverzlana og sexmannanefnd
arinnar svonefndu. Hefur nefnd
in engan samningafund boðað
með kjötkaupmönnum.
Félág kjötverzlana, sem SÍS,
Sláturfélag Suðurlands, KRON
Og kaupmenn standa að, eru ein-
huga um að álagning sú, sem
nefndin hefur ákveðið í dreifing
arkostnað, sé ekki nægilega há.
— Kjötlítið er nú orðið í bænum.
Guðmundur fer
Miðliálendisferð
A LAUGARDAGINN leggur
Guðmundur Jónasson, fjallabíl-
stjóri, upp í síðustu sumarleyfis
ferðina á áætlun sinni á þessu
sumri. Er það 9 daga ferð um
Miðhálendið og ný ferð í áætl-
un hans. Verður fyrst farið um
Veiðivatnasvæðið og norður á
Sprengisand, en þaðan haldið
að sæluhúsi Ferðafélags Akur-
eyringa að Laugafelli. Þá verð-
ur farið vestur yfir Austari-
Jökulsá og um óbyggðirnar
norðan Hofsjökuls til Skaga-
fjarðar og um Hveravelli suður.
Guðmundur er nú með 30
manna ferðahóp í Öskjuferð.
Sumarleyfisferðir hans í sumar
hafa verið fullskipaðar, yfirleitt
um og yfir 30 manns í hverri.
Nokkrar helgarferðir eru á
haustferðaáætluninni, t.d. ferð á
Hlöðufell, á Tindafjallajökul, í
Reykjadali og Hrafntinnsker og
að Hagavatni.
Einn umsækjandi
í FYRRADAG rann út umsókn-
arfrestur um embætti ráðu-
neytisstjóra við dóms- og
kirkjumálaráðuneytið. — Um-
sækjandi er aðeins einn, Baldur
Möller, deildarstjóri £ ráðuneyt-
inu. — Baldur Möller var skip-
aður fulltrúi í ráðuneytinu 1941.
1945—46 gegndi hann embætti
sendiráðsritara við sendiráð ís-
lands í Kaupmannahöfn, og var
skipaður deildarstjóri við dóms-
og kirkjumálaráðuneytið 1956.
Dagstund
Frh. af bls. 11
ið er á þjóðarheildina. Hinsveg-
ar vita þeir bezt, sem í dreif-
býlinu búa, að bættar samgöng-
ur er eitt brýnasta lífshags-
munamál sveitanna og. um hag-
ræðið af rafmagninu þarf ekki
að hafa mörg orð, það ættu þeir
bezt að skilja sem um fjölda
ára hafa notið þeirra gæða.
Of lágt kjötverð
Að lokum vil ég svo geta
eins hagsmunamáls, sem snertir
okkur bændur hér á Austur-
landi alveg sérstaklega, þar sem
sauðfjárrækt er nánast einasta
grein búskaparins, sem hér er
rekin að nokkru ráði. Þetta
hagsmunamál er hækkun kjöt-
verðsins. Bændur hér telja sig
í því efni mjög afskipta mið-
að við þá sem stunda mjólkur-
framleiðslu £ landinu.
— ★ —
Hér með látum við þessari
stuttu heimsókn að Skriðu-
klaustri lokið að sinni. Eftir
góðan viðurkerning á heimili
tlraunastjórans höldum við úr
hlaði, meðan " síðustu geislar
sólarinnar glampa á fjallseggj-
um, austan Fljótsdals.
— vig.
— Fribrik Ólafsson
Frh. af bls. 20.
sigurinn hafi verið verðskuld
aður og jafnframt ánægju-
Iegur vegna fyrri atburða, en
hann var einnig efstur á svæð
ismótinu í Hollandi, sem trú-
lega verður dæmt ólöglegt.
Friðrik segist aldrei hafa
verið í taphættu og teflt ró-
lega síðustu umferðirnar.
Dr. Filip var öruggur í öðru
sæti, en skákir Uhlmanns
voru mjö'g misjafnar.
Norðmaðurinn Stein Johannes-
sen og Júgóslavinn Ciric hlutu
titilinn „alþjóðlegur meistari"
fyrir frammistöðu sína á mótinu.
Hin lélega frammistaða Szabos
vekur furðu manna, segir
Friðrik.
Friðrik Ólafsson dvelst áfram
í Júgóslavíu um hríð þar sem
hann tekur þátt í stórmóti, sem
haldið er í minningu eins fyrr-
verandi heimsmeistara, dr. Alje-
kin. Hefst það í Bled 2. sept.
slasaða í slysavarðstofuna og
þaðan í Landspítalann. Meiðsli
Haralds eru ekki fullkönnuð, en
ekki er hann talinn í lífshættu.
— J.G.
— Adenauer
Framh. af bls. 1.
Aðspurður hvort hann teldi við
brögð Vesturveldanna við lokun
landamæranna í Berlín hinn 13.
þ.m. hafa verið nógu ákveðin,
svaraði Adenauer: Ef satt skal
segja þá hefði ég óskað að frekari
gagnþviniganir hefðu verið mögu-
legar. í rauninni hefur einn aðil
inn rofið samning fjögurra stór
velda. — Mér finnst viðbrögðin
hafa átt að vera ákveðnari.
Adenauer kvaðst ekki hafa vit
að fyrirfram um lokun landa-
mæranna í Berlín. Austur þýzka
þingið hafi tilkynnt að „eitthvaö
yrði gert“, en sér hafi aldrei kom
ið til hugar að gripið yrði til
slíkra ógnaraðgerða.
Kanzlarinn sagði að lokun
landamæranna væri „leikur á
taflborði“ og að aðrir leiikir
fylgdu á eftir.
VEKUR UMHUGSUN
Ekki taldi Adenauer vænlegt
sem stendur að leggja Berlínar-
málið fyrir Sameinuðu þjóðimar,
en útilokaði þó ekki þann mögu-
leika. Hann fagnaði mjög komu
bandarísku hermannanna 1500,
sem komu til Vestur-Berlínar á
sunnudag. Sagði hann að sú ráð
stöfun hefði mjög mikil stjórn-
málaleg áhrif og yrði áreiðanlega
til að vekja umhugsun í Sovétríkj
unum. Þá hvatti Adenauer til
þess að Atlantshafsbandalagið
yrði eflt eftir föngum, því Rúss
ar semdu ekki við máttlítinn and
stæðing.
Þegar Adenauer var á ferð við
landamærin í Berlín óku austur
þýzkar bifreiðir búnar gjallar-
hornum á eftir honum og útvörp
uðuókvæðis- og háðsyrðum um
kanzlarann. En austur-þýzka lög
reglan gat ekki stöðvað fagnaðar
læti Austur-Berlínarbúa, sem
veifuðu til Adenauers og hylltu
hann.
ADVöRUN
Adenauer fór aftur frá Berlín
til Bonn um átta leytið í kvöld
°g fylgdi Brandt borgarstjóri
honum á flugvöllinn.
Áður en hann hélt heimleiðis
var Adenauer viðstaddur á auka
fundi borgarstjórnarinnar þar
sem samþykkt var aðvörun til
austur-þýzkra yfirvalda við að
hleypa af skotum í áttina að
landsvæði Vestur-Berlínar. Seg-
ir í aðvöruninni að framvegis
geti slíkir atburðir haft alvar-
legar afleiðingar. En það hefur
komið fyrir undanfarið að aust-
ur-þýzkir landamæraverðir hafa
hleypt af skotum á flóttafólk,
sem komið befur verið yfir
landamærin.
Sumarbústaður
til sölu á eignarl., rúml. 1%
ha land við iðivatn, 20 km
frá Rvík. Skipti á góðum 5
manna bíl koma til greina.
Einar Sigurðsson
Ingólfsstræti 4.
Símí 16767 og á kvöldin
kl. 7—8, 35993.
Skipstjórar
Vantar skipstjóra á nýjan 150 tonna bát. — Upplýs-
ingar á Hótel Vík, herbergi nr. 2 frá klukkan 6—8
e.h. í dag og á morgun.