Morgunblaðið - 13.09.1961, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 13.09.1961, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 13. sept. 1961 WORGVNBLAÐIÐ 9 ÍHlhQhQhQHÍhQhQHÍhQhQHQ HINN 24. september n.k. hefst í Torquay í S-Englandi Evrópumót í bridge. Að venju er keppt í tveim flokkum þ.a. annarsvegar í opna flokknum, en þar teflir hver þjóð fram sínu sterkasta bridgefólki, jafnt körlum sem kon ‘um og hins vegar í kvennaflokki. Að þessu sinni taka sveitir frá íslandi þátt í báðum flokkunum. Kvennasveit er nú send í annað sinn, fyrst var sent á Evrópumót ið sem fram fór í Osló árið 1958. ísland sendir nú sveit til keppni Einar Þorfinnsson hefur keppt í 7 Evrópumótum og þar að auki fyrir Evrópu á lieimsmeistara- keppninni 1950. Lárus Karlsson keppir nú í 8. sinn á Evrópumóti. Hið fyrsta opinbera Evrópu- meistaramót var síðan haldið ár ið eftir, 1933, í London. Sjö þjóð ir tóku þótt í mótinu og sigraði Austurríki, Holland varð nr. 2 og Noregur nr. 3 1934 var keppnin háð í Vín og sendu nú 10 þjóðir lið til keppninnar. Ungverjaland sigraði, Holland varð nr. 2 og Austurríki nr. 3. Briissel varð fyrir valinu, sem keppnisstaður 1935 og bættust nú tvær þjóðir í hópinn og voru því þátttakendur tólf. Frakkland sigr aði og Ungverjaland og Júgóslav ía skiptu með sér öðru og þriðja sæti. Þrettán þjóðir sendu lið til Stokkhólms 1936. Austurríki sigr aði. Ungverjaland varð í öðru sæti og Holland í 3. 1937 bættust í hópinn tvö lið frá Bandaríkjunum og var því um að ræða nokkurs konar heims meistarakeppni. Austurríki sigr- aði en sveit Cullbertson frá Bandaríkjunum varð nr. 2. - Síðasta Evrópumeistaramótið fyrir stríð var haldið í Haag. Þar var Svíþjóð í fyrsta sæti, Júgó- Yfirlit um Evrópu- mótið frá byrjun í opna flokknum i níunda sinn, fyrst var send sveit árið 1948. Keppendur fslands eru að þessu sinni: í opna flokknum: Stefán J. Guðjohnsen, Jó- hanri Jónsson, Sveinn Invarsson, Eggert Benonýsson, Guðlaugur Guðmundsson og Lárus Karlsson. Þeir Jóhann, Sveinn og Guðlaug ur keppa nú í fyrsta sinn á Evrópumóti. Eggert og Stefán voru báðir í sveitinni, sem keppti 1958 í Osló og var það í fyrsta sinn, sem þeir kepptu á Evrópu móti. Lárus Karlsson hefur aftur é móti keppt á 7 Evrópumótum, harin hefur með öðrum orðum verið í íslenzku sveitunum frá byrjun að undanskilinni sveitinni sem keppti í Vín árið 1957. Kvennasveitin er þannig skip- uð: Laufey Þorgeirsdóttir, Magn ea Kjartansdóttir, Vigdís Guð- jónsdóttir, Hugborg Hjartardótt- ir, Margrét Jensdóttir og Ósk Kristjánsdóttir. Þær Laufey, Magnea, Vigdís og Hugborg voru allar á mótinu í Osló árið 1958. Fararstjóri ísl. flokksins verður Ólafur Þorsteinsson. ♦ Evrópumeistaramótið frá upphafi Þetta er 21 Evrópumótið, sem fram fer. Árið 1932 var Internat- ional Bridge League stofnað í Scheveningen í Hollandi og í sam Ibandi við þann stofnfund var haldið alþjóðlegt bridgemót, sem Bridgesamband Hollands stóð fyr ir. Þetta mót var upphafið að hinu árlega Evrópumeistaramóti. Á þessu móti varð Austurríki í fyrsta sæti Hollpnd nr. 2 og Nor egur nr. 3. slavía nr. 2 og Þýzkaland í þriðja sæti. ♦ Þátttaka íslands Nú liðu 9 ár, án þess að keppt væri og var ekki fyrr en 1948 að ákveðið var, að keppnin skyldi tekin upp að nýju, og varð Kaup mannahöfn valin sem keppnis- staður. Tíu lönd sendu lið til keppninnar og þar á meðal fs- land, sem sendi nú lið í fyrsta sinn. Þeir, sem kepptu fyrir ís- land, voru: Árni M. Jónsson, Ein ar Þorfinnsson, Lárus Karlsson, Gunnar Pálsson, Torfi Jóhanns- son, Sigurhjörtur Pétursson, Gunngeir Pétursson' og Hörður Þórðarson. England varð í fyrsta sæti og því næst komu Svíar og Norðmenn. fslendingar höfnuðu í níunda sæti. Með þessu móti má segja að brotið hafi verið blað í sögu keppnisbridge hér á landi, því mót þetta varð til þess að á hugi á keppni í bridge erlendis vaknaði hjá íslenzkum bridge- spilurum. Þetta sýndi sig líka á mótinu, sem haldið var áxið eftir, 1949, í París. Þangað sendu ellefu lönd lið til keppni. England varð nr. 1., Svíþjóð nr. 2 og Danmörk nr. 3, en ísland varð í 6. sæti. Fyr ir ísland kepptu þeir Árni M. Jónsson, Jón Guðm.undsson, Ein- ar Þorfinnsson, Lárus Karlsson, Kristinn Bergþórsson og Gunnar Guðmundsson. Á mótinu 1950, sem haldið var í Brighton, náðu f slendingar þeim bezta árangri, sem þeir fram til þessa dags hafa náð. Þeir urðu þriðju í röðinni af ellefu löndum, með England í fyrsta sæti og Svíþjóð nr. 2. Fyrir ísland kepptu þeir Hörður Þórðarson, Stefán Stefánsson, Lárus Karlsson, Krist inn Bergþórsson, Einar Þorfinns son og Gunnar Guðmundsson. — Vegna þessa góða árangurs voru tveir íslendingar, þeir Einar og Gunnar, ásamt fjórum Svíum, valdir til að keppa fyrir Evrópu í heimsmeistarakeppninni, sem haldin var í Bermuda. Stóðu þeir sig mjög vel og hlutu mikið hrós f yrir. , Til mótsins í Feneyjum, árið 1951, kom.u lið frá fjórtán lönd um. Þar varð Ítalía í fyrsta sæti, Austurríki nr. 2 og England í 3. sæti. ísland varð nr. 6, og kepptu þessir fyrir ísland: Árni M. Jóns son, Lárus Karlsson, Einar Þor- finnsson, Gunnar Guðmundsson, Kristirm Bergþórsson og Gunnar Pálsson. Á mótinu árið 1952, sem haldið var á írlandi, varð minni þátttaka en árið áður eða 10 lönd. íslendingum gekk ekki eins vel og oft áður og höfnuðu í 9. sæti. Svíþjóð hreppti fyrsta sætið að þessu sinni, en Frakkland annað Og Holland þriðja. Þátttakendur fslands voru: Gunngeir Péturs- son, Einar Ágústsson, Sigurhjört ur Pétursson, Örn Guðmundsson, Einar Þorfinnsson og Lárus Karls son. ísland sendi ekki lið á mótið í Helsingfors árið 1953. Ellefu lönd sendu lið og sigraði lið Frakk- lands. England varð nr. 2 og ítal ía nr. 3. Sviss var keppnislandið 1954. Fimmtán lönd sendu lið, en ekki var sent lið frá fslandi. Röð efstu landa varð: England, Frakkland og Austurríki. 1955 var keppnin háð í Amster dam og voru þátttökuríkin 13, en fsland sendi ekki lið. Frakkland sigraði, Ítalía nr. 2 og Holland nr. 3. fslendingar tóku þátt í mótinu árið 1956, sem haldið var í Stokk hólmi og urðu sjöttu í röðinni af 16 þátttakendum. Ítalía sigraði, Frakkland nr. 2, Austurríki nr. 3. Þessir kepptu fyrir fsland: Hörð ur Þórðarson, Stefán Stefánsson, Lárus Karlsson, Kristinn Berg- þórsson, Einar Þorfinnsson og Gunnar Guðmundsson. Árið 1957 var mótið haldið í Vínarborg og voru þátttakendur 17. Þar sigr- aði Ítalía, Austurríki varð nr. 2 og England nr. 3. ísland hafnaði í fimmtánda sæti. Þá kepptu fyrir ísland: Árni M. Jónsson, Vilhjálm. ur Sigurðsson, Guðjón Tómasson, Sigurhjörtur Pétursson, Gunnar Pálsson og Þorsteinn Þorsteins- son. ♦ Kvennalið í fyrsta sinn Árið 1958 fór Evrópumeistara mótið fram í Osló. Keppni þessi var að því leyti athyglisverð fyr ir okkur, að nú var send kvenna sveit til keppni í fyrsta sinn. í opna flokknum kepptu 15 lönd og sígruðu ftalir, hlutu 30 stig, Frakkland varð í öðru sæti, en England varð í þriðja sæti. ís- lenzku sveitinni gekk illa og hafði neðsta sætið. Keppendur fs land í opna flokknum voru: Ste- fán Guðjohnsen, Jóhann Jóhanns son, Stefán Stefánsson, Eggert Benónýsson, Einar Þorfinnsson og Lárus Karlsson. Keppendur í kvennaflokknum voru 11 og vann íslenzka sveitin tvo leiki, gerði jafntefli í þrem og hafnaði í 9. sæti. Verður að telja þetta góðan árangur hjá sveitinni, þegar tekið er tillit til þess að þetta var fyrsta Evrópumótið, sem ísl. kvennasveit keppir á. í kvennafl. sigraði Danmörk. Kvennasveitin var þannig sikpuð: Laufey Þorgeirsdóttir, Kristjana Steingrímsdóttir, Egg- rún Arnórsdóttir, Magnea Kjart- ansdóttir, Vigdís Guðjónsdóttir og Hugborg Hjartardóttir. Árið 1959 fór keppnin fram í Palermo á Sikiley. 16 lönd sendu lið til keppninnar, en að þessu sinn voru ekki sendar sveitir frá fslandi. Ítalía sigraði, hlaut 28 st. Frakkland varð í öðru sæti með 25 stig, en England, sem hlaut 23 stig, varð í þriðja sæti. Á móti þessu sigraði England í kvenna- flokki. Árið 1960 fór Evrópumót ekki fram, en í þess stað fór fram á Ítalíu hið svonefnda Olympíu- Nokkur sýnishorn af framleiðsluvörum Leðuriðjunnar. Leður- iðjan 25 ára UIVI þessar mundir eru 25 ár Iiðin síðan verksmiðjan Leður- iðjan var stofnsett af núverandi forstjóra hennar og eiganda, Atla Ólafssyni. Fyrirtækið var löngum til húsa að Vatnsstíg 3, en hefur undanfarin 8 ár verið Neita að bólusetja sendiráðsmenn PEKING, 8. september — Kín- verska kommúnistasjórnin hefur neitað að bólusetja erlenda sendi- ráðsmenn gegm kóleru nema að þeir útvegi sjálfir bóluefnið. Orð rómur er um skæðan kólerufar- aldur í ýmsum héruðum Kína, en opiriberlega bera Kinverjar þær fregnir til baka. f svari til sendiráðsmanna sagði, að ástæð- an fyrir neitun um bólusetningu væri í fyrsta lagi sii, að engin kólera væri í landinu. í öðru lagi, að Kínverjar ættu ekki allt of mikið af bóluefni. Samt sem áður hafa Kínverjar bólusett erlenda sendiráðsmenn sem ferðazt hafa til einstakra staða í landinu þar sem kólerufaraldurinn er sagður hvað skæðastur. mót. fsland sendi sveit til keppni í opna flokknum. Þar sem keppt var í riðlum, er ekki gott að gera sér grein fyrir röð landanna, en árangur ísl. sveitarinnar var all góður. Alls hafa því 20 spilarar keppt á Evrópumeistaramótum fyrir ís land. Hafa þeir samtals spilað 96 leiki í þessum 8 mótum, en því miður liggur ekki fyrr nákvæmt yfirlit yfir sigra og ósigra. Verð ur það vonandi tekið saman á næstunni. Röð íslands á mótunum hefur því verið þessi: 1948 9. sæti af 10 þátttakend- um — 1949 6. sæti af 11 þátttak- endum — 1950 3. sæti af 11 þáttt. 1951 6. sæti af 14 þáttt. — 1952 9. sæti af 10 þáttt. —-1956 6. sæti af 16 þáttt. — 1957 15. sæti af 17 þáttt. — 1958 15. sæti af 15 þátt. Til gaman fylgir hér á eftir listi yfir keppendur íslands í opna flokknum á Evrópumótum frá byrjun. Tölurnar aftan vð nöfnin tákna fjölda móta, er keppandi hefur tekið þátt í: Einar Þorfinnsson 7; Lárus Karlsson 7; Árn M. Jónsson 4; Gunnar Guðmundsson 4; Krist- inn Bergþórsson 4; Gunnar Páls- son 3; Hörður Þórðarson 3; Sigurhjötur Pétursson 3; Stefán Stefánsson 3; Gunngeir Péturs- son 2; Eggert Benónýsson 1; Einar Ágústsson 1; Guðjón Tóm- asson 1; Jóhann Jóhannsson 1; Jón Guðmundsson 1; Stefán J. Guðjónssor 1; Torfi Jóhannsson 1; Vilhjálmur Sigurðsson 1; Þorsteinn Þorsteinsson 1; Örn Guðmundsson 1. starfrækt að Ægisgötu 7, í björt- um og nýendurbættum húsa- kynnum. 1 tilefni 25 ára afmælis Leð- uriðjunnar, boðaði forstjórinn blaðamenn á sinn fund og sýndi þeim starfsemi verksmiðj- unnar. Framleiðsluvörur hennar allskonar leðurvörur, aðallega kvenveski og seðlaveski, en einnig skóla-, skjala-, innkaupa- og skíðatöskur, kven- og karl- mannsbelti, skrifmöppur, minja- gripi úr steinbítsroði og sel skinni og allskonar buddur. — Einnig framleiðir verksmiðjan tékkaveski (úr ekta leðri) fyrir alla bankana í Reykjavík. Atson er hið þekkta vörumerki verk- smiðjunnar. A síðari árum hef- ur Leðuriðjan einnig notað plast efni x framleiðsluvörur sínar, einkum í kventöskur. Þá má geta þess, að fyrir- tækið veitir þá þjónustu að ókeypis nafngylling fylgir hverju seðlaveski úr ekta leðri og er aðeins notað 24 karasta gull í áletranirnar. Sem stendur vinna nú 7 manns við fyrirtækið — þar af nokkrir með langan starfsferil að baki — en fyrirtækið er að auka framleiðsluna til muna, m.a. með útflutning fyrir aug- um. —. Bindindisfclag ökumanna Skrixstofan Laugavegi 133 opin alla daga nema laugar- da-ga kl. 17-19. — SínV 17947. Bindindismenn látið skrá ykk ur sem ftlaga. Bílasala Guðmundar Símar 19032 og 36870. Bergþóru0ötu 3. Góður Chevrolet Station ’53— ’54, helzt 4ra dyra óskast í skiptum fyrir góðan Bred- ford sendiferðabíl. Bílasala Guðmundar Bergþórugötu 3. Símar 19032 og 36870. Bilasala Guðmundar Bergþórugötu 3. Símar 19032 og 36870. Ford Consul ’55 Mercedes Benz 220 góður einkabíll. Bílasala Guðmundar Bergþórugötu 3. Símar 19032 og 36870.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.