Morgunblaðið - 01.10.1961, Side 20
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnuðagur 1. o>t. 19©1
Dorothy Quentin:
Þöqlaev
, Skdldsaga
og nærgætinn við þá, sem gaml-
ir voru og lasburða. Ákafur í sér
greindur og logandi af áhuga á
fyrirætlunum sínum sem læknis
eyjarinnar, var hann óneitanlega
farinn að vaxa nokkuð upp úr
Frankie, enda var hann svo lengi
að heiman í einu, en þegar svo
leyfin komu, tóku þau aftur upp
vináttu sína eins og hún hafði áð
ur verið.
Hún sagði við Sol: Ég veit nú
varla, hvernig hann er orðinn
núna. Hann var tvítugur þegar
þau.. þegar ég sá hann síðast.
En þangað til hann fór í lækna-
skólann, vorum við eins og ég
sagði þér. Hún Iagði saman löngu
grönnu hendurnar, lófana sam-
an og í augum hennar glitruðu
tárin, sem hún vildi ekki láta
falla. Mæður okkar reyndu sitt
bezta til þess að halda okkur í
sundur, en feðurnir skildu okk-
ur betur.. en svo dó pabbi og
mamma giftíst aftur, og þau hjón
in tóku mig með sér til Ameríku.
Mér þótti afskaplega fyrir því að
skilja við André.. og eyna..
I>au tvö voru mér allt.. og svo
Edouad frændi og Laurier!
f>ú hlýtur að hafa fengið bréf
frá honum, góða mín.. , sagði
Sol, sem komst í hálfgerð vand
ræði yfir þessari áköfu beizkju
stúlkunnar.
Ja, ég skrifaði. Það voru bréf
skólastelpu með heimþrá, til æv
intýraprinsins síns. Já, hvort ég
skrifaði ekki mörg bréf úr þess
um andstygglega heimavistar-
skóla! Hún hló, eins og hún
skemmti sér. André svaraði ald-
rei bréfunum mínum þó að hann
hefði altlaf skrifað mér meðan
hann var í París og ég heima.
Svo hætti Edvard frændi líka að
skrifa. Ég hélt, að þau hefðu öll
gleymt mér og ég varð veik. En
mannshjartað getur stundum
verið seigt og ég sagði engum,
að ég væri veik, Sol. Þú ert
fyrsta manneskjan, sem ég hef
sagt frá þessu öllu. Nú getur þú
sagt mér hvaða kjáni ég hafi ver
ið að vera ástfangin af draumi
öll þessi ár, sem nú eru liðin.
Henni varð snöggvast hugsað
til þeirra karlmana, sem höfðu
reynt að hrífa hana burt frá þess
um draumi.. skólastrákar, kaup
sýslumenn ungir starfsbræður
stjúpa hennar, Teds Sanders..
iðjuleysingjar í Miami, Newport,
Rhode Island, þegar hún var í
skólaleyfinu.. prófessorar við
Mayne-stofnunina. En enginn
þeirra hafði vakið neinar slikar
tilfnningar með henni bara af
því að þer voru ekki André. Og
seinast núna var þarna einn ung
ur leikari í kvikmyndahópnum,
Rex Mallory, sem þurfti ekki
mikið til að verða ástfanginn. En
allir þessir voru hégóminn ein-
ber í hennar augum.
Sol ætlaði eitthvað að fara að
segja, þegar skipsbjallan hringdi
og stýrimaðurinn, sem var á
verði, tók á sig krók og kom til
þeirra fram í stafn.
Góðan daginn, ungfrú Laurier,
sagði hann. Við verðum komin
upp að eftír hálftíma. Ég er nú
hræddur um að við fáum ekkert
að borða fyrr en innflutningsyf-
irvöldin eru búin að vera um
borð, en það er verið að bera
kaffi og brauð niður í káetturn-
ar.
Þakka yður fyrir. Frankie
sendi honum bros, án þess að sjá
hann en það nægði samt til þess,
að hann gekk leiðar sinnar stór-
hrifinn. Ég verð að klæða mig
almennilega, sagði hún við Sól.
Nú mátti heyra brimið gnauða
á rifinu, langt í burtu, og það
var eins og hjartað í henni berð-
ist með því og hún skalf. Bráð-
um sseju þau fólk koma niður
á bryggjuna. Litlar, fjarlægar
mannverur. Og meðal þeirra yrði
André.. Hún gat «kki hugsað til
_ Já, nú er bara að koma þessu í samband einhvers staðar!
þess að eiga að biða þessarar
sjónar hérna uppi, hún varð að
komast niður í káetuna sína, þar
sem hún gat verið í næði. í
fyrsta sinn varð hún hrædd .,..
óttalega hrædd, bæði af þránni
eftir að sjá André aftur og ótt-
anum við hitt, að hann væri orð-
inn svo breyttur, að hún gæti
ekki þekkt hann aftur.
Sol sneri við og gekk eftir þil-
farinu með henni, með óræðan
svip á andlitinu. Hann hlýtur að
hafa skrifað að lokum, úr því að
þú ert að koma heim aftur, sagði
hann loksins.
Jú, það vantaði ekki að hann
skrifaði, svaraði hún í háðsleg-
um kjökurtón. Kurteislegt sam-
úðarbréf í tilefni af andláti Ed-
vards frænda, bréf, sem blá-
ókunnugur maður hefði getað
haft hlýlegra! Smávegis fréttir
úr eynni: faðir hans líka dáinn,
höllin þeirra orðin að sjúkrahúsi,
móðir hans við góða heilsu, þrátt
fyrir háan aldur. .o.s.frv....
Sol hélt áfram: Og samt ætl-
arðu til hans aftur?
Stúlkan leit upp ögrandi og
bláu augun leiftruðu, af snöggri,
óskiljanlegri reiði. Já, ég ætla
til Laurier aftur, sagði hún
hreykin, því að frændi minn
arfleiddi mig að eigninni með því
ákveðna skilyrði, að ég dveldi
þar þrjá mánuði samfleytt. Að
öðrum kosti eignast André hana
og notar til þess að stækka sjúkra
húsið sitt. Hún bætti við önug-
lega: Þú skilur hann er ráðamað
ur yfir búi frænda míns, og þess
vegna varð hann að skrifa mér.
Sol-.bætti hún við og sneri sér
allt í einu að honum aftur. Finnst
þér ég vera ógnar bjáni að trúa
því, öll þessi ár, að allt mundi
verða í frægasta lagi þegar ég
kæmi heim aftur?
Hann horfði á hana hugsandi
og hallaði sér að þilinu fyrir ut-
an káetuna hennar. Hún var
merkileg stúlka.. annað veifið
glöð, stillt og full trúnaðar-
trausts. En nú hafði hún sýni-
lega oftekið sig á þessum trún-
aðarmálum sínum og var dauð-
hrædd við veruleikann, sem
fram undan kynni að bíða henn-
ar. Allt í einu brosti hún og
sagði: Fyrirgefðu mér Sol, að
hafa bunað upp úr mér öllum
þessum einkamálum mínum. Þú
ættir ekki að vera svona samúð-
arfullur!
Visna höndin hans lagðist
mjúklega á arm hennar og augna
tillitið var fullt samúðar og vin-
áttu. Mér þykir vænt um, að þú
skulir telja mig vin þinn, sagði
hann blátt áfram, en bægðu ekki
draumnum þínum of snemma frá
þér, Frankie. Stundum finnst mér
draumar vera það eina, sem er
þess virði að barizt sé fyrir því.
Og þú ert fædd bardagamaður,
barnið gött. Svo glotti hann til
hennar og augnatillitið breyttist.
Nú var kominn í það leikstjórinn,
sem var að gagnrýna og meta.
Fáðu þér heitt og sterkt kaffi,
sagði hann þurrlega, og svo bað
á eftir. Farðu svo í fallegustu
fötin þín og sparaðu ekki máln-
inguna.. . .það getur ' stundum
verið gott að grímubúa sig. Já, ..
það var rétt og þú skalt ekki
hengja tilfinningarnar of mikið
utan á þig..ekki enn.
Frankie svaraði þessu með
glettnislegu brosi, en skrítni, litli
maðurinn hafði gefið henni móð-
inn aftur, það eitt var víst.
Þú ert indæll, Sol, sagði hún
og kyssti á örið á kinninni á
honum. Biddu fyrir mér! bætti
hún við.
Það skal ég gera, svaraði litli
Pólverjinn. Ég trúi á mátt bæn-
arinnar, og mundu það, að hvern
ig , sem André þinn kann að hafa
breytzt, og hvað sem hann held-
ur um þig núna, þá hefurðu rétt
til að vera hér. Laurier er þín
eign, ef út í það er farið....
— Já, og ég ætla að láta reka
mig þaðan í annað sinn, trúðu
mér til, svaraði stúlkan innilega.
Frankie var enn í káetunni
sinni, þegar hún heyrði að vél-
arnar stönzuðu og fann ofurlít-
inn dynk þegar Eydrottningin
snerti bakkann. Og í sama bili
fylltist loftið af allskonar smá-
hljóðum — smelum, þegar þungu
trossunum var kastað á þilfarið
og svo suðuna af samtali á
frönsku eyjarmállýzkunni, hlátra
og óp. Inn um opið kýraugað
barst þessi ólýsanlegi þefur smá-
hafnar í hitabeltinu.... af fún-
andi timbrinu úr stólpunum í
skipakvínni, sólbakaðri mold-
inni, blómum, ávöxtum og
Tommi, kókosolíu og sítrónum,
krydduðum mat og kaffi og allt
þetta blandaðist saman við þef-
inn frá skipinu sjálfu og jurta-
ilminn, sem barst með golunni
ofan úr landi.
Þau voru komin. Hún þurfti
ekki annað en ganga upp á þil-
far til þess að sjá Bellefleur og
þekkt andlit og kannske André!
Hún lagði hart að sér að sitja
kyrr við borðið sitt í káetunni og
ljúka við snyrtinguna. Hún
fylgdi ráðum Sols út í yztu æsar.
Kannske var það líka bezta ráðið
til að taka því, sem koma átti:
að haga sér eins og leikkona í
kvikmyndaveri og leyna tilfinn-
ingum sínum þangað til hún
hefði komizt að því, hversvegna
André hafði aldrei skrifað henni.
Það gæti verið stórhættulegt,
eins og harín hafði sagt henni,
að vera að hengja tilfinningarnar
uta á sig. Ég á nægilegt stolt
til þess að leika skrípaleik, hafði
hún hugsaði sér, en þegar André
er viðstaddur, get ég hætt öllum
leikaraskap eftir fyrstu erfiðu
mínúturnar..,..
Hún bar undirsmurningu á
slétt hörund sitt, og virtist niður-
sokkin í það verk, en hugurinn
flögraði á land og til Andrés.
Allir aðrir en Sol mundu kalla
hana heimskingja og segja, að
hún hefði verið að elska draum-
sýn í tíu ár... .að minnsta kosti
mundu amerískir vinir hennar
halda því fram. Hún skoðaði
sjálfa sig vandlega í speglinum
og lagði mat á konuna, sem
André mundi bráðum hitta. Svo
litaði hún varirnar með örugg-
um handtökum. Enginn hefði lát
ið sér detta í hug, að hún væri
að stilla sig um að þjóta upp á
þilfar og leita að elskuðu andliti
í öllum manngrúanum.
Unga konan , sem horfði á hana
úr speglinum með ofurlitlum
hæðnisvip, var nógu stillileg hið
ytra, og duldf nógu vel ólguna,
sem inni fyrir bjó. Vel gat verið,
að André væri hérna alls ekki.
Hann hafði ekki einu sinni svar-
að bréfinu hennar, þar sem hún
sagðist koma þennan dag. Ég er
meiri leikkona en ég hélt sjálf,
hugsaði hún gremjulega, og í dag
er ég amerísk frá hvirfli til ilja!
Föt frá Macey, fegrunarmeðöl
frá Harriet Hubbard Ayer, leik-
stjóti Sol Newman....
Engin kona nýtur sín upp á
það bezta, þegar hún er að
r
L
r
u
ó
MEANWHILtí
AND I HAVE CHERRY...
SHE SURPRISED ME HERE
AT THE TOWER AND I
, TIED HER UP/
THAT MEANS WHILE MARK TRAIL IS
FIGHTING THE FIRE WE'D BETTER
MOVE OUT FOR GOOP...I LL MEET
VOU AT THE FOOT OF THE
_ TOWER / 5
f HAVE
THE 1
CARIBOU,
RUTH t
THIS FIRE'S GETTING
OUT OF HAND FAST
...I'M GOING TO HAVE
TO GO FOR HELP/
*— Ég náði hreindýrinu Rut!
r — Og ég náði Sirrí .... Hún
Jcom að óvörum hingað í turn-
inn og ég batt hana! En það þýð-
ir það að við verðum að koma
okkur héðan fyrir fullt og allt
meðan Markús er að berjast við
eldinn! .... Ég hitti þig fyrir
neðan turninn!
Á meðan
— Eldurinn er að verða óvið-
ráðanlegur .... Ég ve>-ð að fara
eftir hjálp!
Sfflíltvarpiö,
Sunnudagur 1. október
8:30 Lét/t morgiuilög.
9:00 Fréttir.
9:10 Morguntónleikar: — (10:10 Veöuap
fregnir)
a) Orgelkonsert í g-moll op. 4
nr. 1 eftir Hándel (Walter
Kraft og Pro Musica kammer-
hljómsveitin í Stuttgart leika;
Holf Reinhardt stjómar).
b) MMoravan“-kórinn syngur lög
eftir gamla meistara.
c) Sónata í e-moll fyrir flautu
og sembal eftir Bach (Kurt
Hedel og Irmgard Lechner
leika).
d) Tvö tónverk eftir Johannes
Brahms: Rapsódía Tyrir alt-
rödd, karlakór og hljómsveit
op. 53 og Tilbrigði um stef
eftir Haydn op. 56a (Fílharm-
oníusveit Vínarborgar, Lucre-
tia West og karlakór háskól-
ans í Vín flytja. Stjómandi:
Hans Knappertsbusch).
11:00 Messa í Dómkirkjunni (Prestur:
Séra Oskar J. I>orláksson. Organ-
leikari: Dr. Páll Isólfsson). ,
12:15 Hádegisútvarp.
14:00 Miðdegistónleikar: Tónlist fná
Kanada.
a) Glenn Gould leikur á píanó
tvö verk: Partftu nr. 5 eftir
Bach og Fantasíu eftir Oskar
Morawetz.
b) Maureen Forrester syngur lög
eftii C. P. E. Bach, J. W.
Franck, Robert Schumann og
Carl Loewe.
c) Hljómsveit og kór útvarpsing
1 ^lontreal flytja þrjú tón-
verk; Roland Leduc og Neil
Chotem stjórnar. /
1: „Myndir frá franska Kan<
ada“, eftir Claude Cham-
pagne.
2: „Peter Emberley**, gamall
söngur í hljómsveitarbún-
ingi.
3: „Söngvar frá austurströnd-
inni“ eftir Neil Chotem.
15:20 Sunnudagslögin. (16:30 Veð-
urfregnir).
17:00 Færeysk guðsþjónusta (HJjóðrit-
uð í Þórshöfn).
17:30 Barnatími (Anna Snorradóttir):
a) Ný framhaldssaga fyrir yngstu
hlustendurna: „Pip fer á
flakk" eftr Sid Rolland, í þýð-
9 ingu Jónínu Steinþórsdóttur,
(Anna Snorradóttir).
b) Lög úr „Kardimommubæn-
um“.
c) Fimm mínútur með Chopin,
d) Ævintýraskáldið frá Oðins-
véum; þriðja kynning: Stein-
dór Hjörleifsson les eitt aif
ævintýrum skáldsins.
18:30 Miðaftanstónleikar: Capitol srfn-
fóníuhljómsveitin leikur; Carm-
en Dragon stjórnar.
19:00 Tilkynningaí*.
19:20 Veðurfregnir.
19:30 Fréttir.
20:00 Tónleikar: „L’Arleslenne", svíta
nr. 1 eftir Bizet (Lamoureux
hljómsveitin leikur; Antal Doa>
ati stjórnar).
20:15 A förnum vegi i Rangárþingií
Frá Fljótshlíð og Þórsmörk (Jón
R. Hjálmarsson skólastjóri ræðir
við Garðar Jónsson skógarvörð
á Tumastöðum og Sigurð Tóm-
asson bónda á Barkarstöðum).
21:00 Hljómplöturabb: Þorsteinn Hann
esson óperusöngvari kynnir er-
lenda söngvara.
21:40 Fuglar himins: Kjartan Olafsson
brunavörður talar um fuglalífið
á Reyk'javíkurtjöm.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:05 Danslög.
23:30 Dagskrárlok.
Mánudagur 2. október
8:00 Morgunútvarp (Bæn: Séra Jakob
Jónsson. — 8:05 Tónleikar.
8:30 Fréttir. — 8:35 Tónleikar.
10:10 Veðurfregnir).
12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. —
12:25 Fréttir og tilk.). j
12:55 „Við vinnuna": Tónleikair.
15:00 Miðdegisútvarp (Fréttir. — 15:05
Tónleikar. — 16 :00 Fréttir og tilk,
— 16:05 Tónleikar. — 16:30 Veð-
urfregnir).
18:30 Tónleikar: Lög úr kvikmyndum,
18:55 Tilkynningar. ,
19:20 Veðurfregnir.
19:30 Fréttir.
20:00 Um daginn og veginn (Valborg
Bentsdóttir skrifstofustjóri).
20:20 Einsöngur: Guðmundur Jónsso*
syngur.
20:40 Upplestur: Það var 1 Júnf, «r»á
saga eftir Coru Sander í þýðingu
Margrétar Jónsdóttur skáldkomi
(Gísli Halldórsson leikari).
21:00 Tónleikar: „Enigma" — tilbrigðl
eftir Elgar (Hljómsveitin Phil-
harmonia leikur. — George Wel-
don stjómar).
21:30 Utvarpssagan: „Gyðjan og uxt
inn“ eftir Kristmarm Guðmunds-
son; XV. (Höfundur les),
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Búnaðarþáttur: Haustfóðrun og
hýsing kúnna (Jóhannes Eiríks-
son ráðanautur),
22:25 Kammertónleikars
Oktett í F-dúr, op. 166 etftlr
Schubert. (Vínaroktettinn leik-
ur).
22:55 Dagskrárlok.
LOFTUH ht.
LJÖSMYNDASTO FAN
Pantið tíma i sinxa 1- 47-72