Morgunblaðið - 20.10.1961, Side 1
24 síöiir
- með trausti á Guði og göðum málstaö
sagði Bjarni Benediktsson for-
sætisráðherra við setningu
Landsfundar Sjálfstæðisflokks-
ins í gærkvoldi
I GÆRKVÖLDI var Lands-
fundur Sjálfstæðisflokksins
settur í Gamla Bíó. Fund-
inn setti varaformaður
flokksins, Bjarni Benedikts-
son, í fjarveru formanns,
Ólafs Thors, og flutti síðan
yfirgripsmikla ræðu um
Btjórnmálaþróunina síðan á
síðasta Landsfundi og við-
ihorfin í íslenzkum stjórnmál-
um almennt. í upphafi ræðu
sinnar las Bjarni Benedikts-
son bréf frá Ólafi Thors, for-
manni Sjálfstæðisflokksins,
þar sem hann lýsir þeirri
óbifanlegu ákvörðun sinni að
iáta af formennsku flokks-
ins. Síðan mælti forsætis-
ráðherra þau þakkarorð og
árnaðaróskir til Ólafs Thors
og konu hans, sem birt eru
á öðrum stað hér á síðunni,
og fundarmenn tóku undir
þakkirnar og óskirnar með
dynjandi lófaklappi.
Að lokinni ræðu varafor-
manns Sj álfstæðisf lokksins,
mælti Gunnar Thoroddsen,
fjármálaráðherra, sem var
fundarstjóri þessa fyrsta
fundar, nokkur orð og kvaðst
telja sig mæla fyrir munn
allra fundarmanna, er hann
bæri fram þakkir fyrir þessa
snjöllu, fróðlegu og vitur-
legu ræðu. Ræða Bjarna
Benediktssonar, forsætisráð-
herra, birtist í heild á öðr-
um stað í blaðinu.
Landsfundurinn er geysi-
Frh. á bls. 2
Bjarni Benediktsson flftur ræðu sína.
MHMHIilMMMnaMMHHHMiaHWHMnMPHMMNWBMIimM
Ölafur Thors lætur af
flokksformennsku
f UPPHAFI Landsfundar Sjálf
stæðistlokksins í gærkvöldi
mælti varaformaður flokksins
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra á þessa leið:
Ég leyfi mér hér með í for-
föllum formanns Sjálfstæðis-
flokksins að setja 14. Lands-
fund Sjálfstæðisflokksins og
býð alla fulltrúa velkomna til
starfa.
Eins og kunnugt er hefur
formaður flokksins Ólafur
Thors að læknisráði tekið sér
frí frá störfum til næstu ára-
móta. Dvelur hann nú ásamt
frú sinni hjá dóttur þeirra og
tengdasyni í Bandaríkjunum.
Áður en hann hvarf af landi
brott skrifaði hann mér svo-
hljóðandi bréf:
„Góði vinur.
Enda þótt hvíldin sé enn
ekki löng, finn ég að hún
hefir gert mér mjög gott
og auðvitað er ég því feg-
inn og hlakka til að mega
varpa af mér a.m.k. að
mestu leyti daglegu striti
og áhyggjum fram til ára-
móta.
Heilsan er eins og bezt
verður á kosið. En þrátt
fyrir það hefi ég nú tekið
þá óbifanlegu ákvörðun að
mælast undan endurkjöri
sem formaður flokksins.
Treysti ég því, að flokks-
ráðið, landsfundurinn og
aðrir flokksmenn geri sér
ljóst, að það er ærið starf
manni á mínum aldri að
gegna því ábyrgðarmikla
embætti, sem mér hefir ver
ið trúað fyrir.
Traustið, vináttuna og
ástúðina, sem flokksmenn
hafa sýnt mér og sem ég
vona að mega njóta áfram,
fæ ég aldrei full þakkað og
freista þess ekki að lýsa
með orðum, hver styrkur
það hefir verið mér í starfi
mínu.
Ég vona, að nú sem fyrr
svífi andi einingar og vin-
áttu yfir vötnunum og að
stórar og göfugar hugsjón-
ir, samfara raunsæi, marki
störf og stefnu fundarins,
landi og lýð til blessunar.
Með einlægum vinar-
kveðjum til ykkar allra.
Ekkí þarf að eyða orðum að
því, að öllum er okkur það
næst skapi að hafa að engu
þá ákvörun Ölafs Thors, sem í
þessu bréfi greinir. En sjálfur
segir hann, að hún sé óbifan-
leg, enda verðum við að játa,
að hann hefur nú þegar lagt
svo mikið af mörkum fyrir
flokk okkar, að meira verður
ekki krafizt. Hann á'tti manna
mestan hlut að því, að Sjálf-
stæðisflokkurinn var stofnað-
ur með samruna Ihaldsflokks-
ins og Frjálslyndaflokksins.
Frá upphafi hefur hann helg-
að Sjálfstæðisflokknum starfs-
krafta sína og verið formaður
flokksins frá 1934 fram á þenn
an dag. Tilvera flokksins og
viðgangur er Ólafi Thors frem
ur að þakka en nokkrum öðr-
um manni. Þakklæti okkar til
hans er þess vegna meira en
með orðum verði lýst. Hann
hefur ekki aðeins verið ágæt-
ur flokksforingi heldur varpað
ljóma yfir flokkinn sem mikil
hæfasti stjórnmálamaður sinn
ar samtíðar á íslandi. Þó að
hann hætti að vera formaður
heldur hann áfram að vera að
almaður Sjálfstæðisflokksins
og auðvitað kjósum við hann í
miðstjórn nú sem fyrr. Enda
vorum við öll, að hann taki
aftur við starfi forsætisráð-
herra um áramótin og að hann
eigi óunnin mörg afrek í ís-
lenzkum stjórnmálum. Ég veit,
að ekki þarf að bera undir
atkvæði þá tillögu, að fyrsta
verk fundarins verði að senda
honum og hans góðu konu inni
legar þakkir og árnaðaróskir.
Ólafur Thora.