Morgunblaðið - 20.10.1961, Blaðsíða 10
10
Fostudagur 20. okt. 1961
M ORGV* ur AfílÐ
Frá bæjarsfjórn:
Sett verði löggjöf um
bifreiðasölur
Bifreiðasölum verði fengið ákveðið
athafnasvæði
BÆJARSTJÓRN Reykjavík-
ur samþykkti á fundi sín-
um í gær — samkvæmt til-
lögu Einars Thoroddsen bæj-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins — tilmæli til dómsmála-
ráðuneytisins um, að það
beiti sér fyrir setningu lög-
gjafar um réttindi og skyld-
ur bifreiðasala. Áður höfðu
farið fram í bæjarstjórninni
nokkrar umræður um starf-
semi bifreiðasala og voru
bæjarfulltrúar á einu máli
um, að setning reglna um
starfsemi þeirra væri brýn
nauðsyn, en greindi hins veg
ar á um, í hvaða formi þær
reglur skyldu vera.
Fyrir íundinum lá tillaga frá
Guðmundi J. Guðmundssyni (K)
um að bæjarstjórn fæli borgar-
stjóra að semja
drög að regla-
gerð um starf-
semi bifreiða-
sala. f framsögu
ræðu, sem G.J.G.
flutti fyrir til-
lögu sinni, taldi
hann einsýnt,
að bifreiðasalar
þyrftu meira að-
hald til þess að
endir yrði bund-
inn á það ófremdarástand, sem nú
ríkti í þessum efnum.
Guímundur J.
Guðmund^son.
A Dómsmálaráðuneytið
beiti sér fyrir löggjöf
Einar Thoroddsen kvað sér
ekki alveg ljóst, hvað fyrir G.J.G.
vekti. Varðandi staðsetningu bif-
reiðasala, væru fyrir hendi regl-
ur umferðarnefndar og lögreglu
samþykktar, en samkvæmt
þeim yrðu bifreiðarnar, að
vera til sölu innan þeirra
svæða, sem bifreiðasölur fengju
til starfsemi sinnar. Auk þess
Stærsta Húsgagnaverzlun landsins býSur yðurr
9 gerSir svefnherbergissett (5
«
5 gerðir borðstofuhúsgögn
13 gerðir sófasett
1! gerðir sófaborð
= 7 gerðir skrifborð
7 gerðir
eins og tveggja manno sófar
SVEFNSTÓLAR. ALLT I
HANSASAMSTÆÐUNA.
BARNARÚM. BARNAKOJUR.
SKRIFBORÐSSTÓLAR,
STAKIR STÓLAR.
Aktaðí í 99 mismunondi litum
og gcrðum
1111111
■■■■■
nnnnr
^SKEIFAN^
væri samkvæmt lögreglusam-
þykkt óheimilt að leyfa bifreiða-
sölu í öðru húsnæði en því, sem
til þess væri hæft frá umferðar-
sjónarmiði.
Hins vegar yllu tíð fjárhagsleg
skakkaföll þeirra, sem skipta við
bifreiðasölurnar því, að löggjaf-
ar væri þörf um réttindi bifreiða-
sala og skyldur. Mætti t. d. hugsa
sér, að bifreiðasalar þyrftu að
uppfylla ákveðin skilyrði til þess
að fá réttindi til starfsemi sinnar,
eins og nú tíðkast um fasteigna-
sala. Bar E.Th. síðan fram breyt-
ingartiliögu við tillögu G.J.G.,
þar sem því var lýst yfir, að bæj-
arstjórn Reykjavíkur teldi nauð-
synlegt, að sett verði löggjöf um
réttindi og skyldur bifreiðasala
og beind) því til dómsmálaráðu-
neytisins, að það beitti sér fyrir
setningu slíkrar löggjafar.
•fc Hefur bæjarstjórn
lagasetniiiigarvald?
Alfreð Gíslason (K) kvað til-
lögu E. Th. góðra gjalda verða
og vissulega það, sem koma
skyldi. Kvaðst hann styðja tillög-
una, en hann væri þó þeirrar
skoðunar, að
bæjarstjórn geti
með reglugerð
sett sömu skil-
yrði fyrir veit-
ingu leyfa, eins
Og mundu felast
í væntanlegri lög
gjöf. B æ j a r -
stjórn getur sett
hvaða skilyrði
sem henni sýnist, sagði A.G.
Lagði hann til, að tillögur E.Th.
og G.J.G. yrðu báðar samþykkt-
Guðmundur H. Guðmundsson
(S) benti á, að bifreiðasölur væru
víða staðsettar,
þar sem þær yllu
trafala í umferð.
Kvaðst h a n n
hlynntur því, að
bifreiðasölum í
bænum yrði frek
ar fækkað en
fjölgað, en um-
fram allt bæri
þó að leggja
áherzlu á hag-
kvæma staðsetn
ingu þeirra, þannig að þær yllu
ekki umferðartruflunum.
AlfreðGíslason
GUðmunclur
Guömundsson
KJALLARINN
KJALLARINN
KJALLARINN
Hliðstæð löggjöf
um fasteignasala
Þórður Björnsson (F) minnt'i
á, að fyru nokkrum áratugum
tugum hefðu verið upp nokk-
ur vandræði varðandi starf-
semi fasteignasala. Alþingi hefði
því sett löggjöf 1938, þar sem
sett voru skilyrði fyrir því,
hverjir mættu reka þessa starf-
semi, en að þeim fullnægðum
gefur lögreglustjóri nú út leyfi
til hennar. Síðan þessi lög gengu
í gildi, kvaðst
hann ekki minn-
asl 'iess, að
vandrseði
hefðu stofnazt
vegna starfsemi
fasteignasala, og
virtist sér því
einsýnt, að tekið
þóríur1Sörn«on yrði a Þvi vanda
máli, sem nú er
við að glíma varðandi bifreiða-
sölurnar eins og þá var gert.
Hægt væri um vik, því að löggjöf
um starfsemi þeirra mætti að
mörgu leyti vera samhljóða lög-
unum um fasteignasala.
Þá lagði Þ.B. á það áherzlu, að
það væri ekki í valdi bæjar-
stjórnar að setja reglur um bif-
reiðasölur, heldur gerði tillaga
E Th. um löggjöf frá Alþingi, ráð
fyiir hmn. emu raunhæfu lausn.
Bifreiðasölur fái ákveðið
atbafnasvæði
Magnús Ástmarsson (A) kvað
augljóst að ætti bæjarstjórn
Reykjavíkur að gera einhverjar
samþykktir um þetta efni, þá
væri- það í því formi, að hún
gæfi út yfirlýsingu um vilja sinn
til þess að starf-
semi bifreiða-
sala yrði fundinn
ákveðinn staður.
Flutti M.Á. til-
lógu, þar sem
lögð er áherzia
á nauðsyri þess,
að bifreiðasöi-
um sé fengið at-
hafnasvæði, þar
sem þær valdi ekki truflunum
á umferð og að bæjarstjórn feli
umferðarnefnd að vinna að fram
búðarlausn málsins.
★
Þar sem bæjarfulltrúar Alþýðu
bandaiagsins höfðu lýst stuðningi
við tillögu Einars Thoroddsen,
sem var brev tingartillaga við til-
lögu Guðmunds J. Guðmunds-
sonar, en héldu þó tillögu Guð-
munds efnislega til streitu,
drógu þeir tillögu G.J.G. til baka,
en fluttu hana aftur í formi við-
aukatillögu við tillögu E.Th.
Auk ofannefndra bæjarfulltrúa
tóku síðan til máls: Alfreð Gísla-
son, Einar Thoroddsen og Guð-
mundur J. Guðmundsson. Að
loknum þessum umræðum var til
laga E.Th. samþykkt með öllum
atkvæðum og ennfremur tillaga
M Á, en hinsvegar hlaut tillaga
G.J.G. ekki nægan stuðning, að-
eins 3 atkvæði kommúnista.
ifAagnus
Astmarsson
Lögregkn á Ahionesi hefor
látið gera fingrafaraskrá
Nœr til allra á aldrinum 16—50 ára
LÖGREGLAN á Akranesi er nú
langt komin með að lóta gera
fingrafaraskrá yfir alla Akurues
inga á starfsaldri.
Þetta er ,>PETREL“ (4 manna) björgunarbát'
ur, sem sýndur er og notaður er við námsskeið
Slysavarnafélags íslands þessa dagana.
„PETREL“ björgunarbáturinn hentar sérstak-
lega vel fyrir mir.ni fiskiskip (trillur) — ein-
faldur í notkun — ódýrir.
<R-FV£>
FRAMLEIÐSLA
tryggir öryggi á sjónum
Gúmmí-björgunarbátar
Einkaumboðsmenn: 'ÓLAFUR GÍSLASON & Co. hf. Hafnarstræti 10—12 • Símar 18370
Það var Stefán Bjarnason, yf-
irlögregluþjónn, sem átti hug-
myndina að þessu fyrirtæki. —.
Hafizt var handa í byrjun marz-
mánaðar s.l. og er nú búið að taka
fingraför af um 500 roanns á aldr
inum 16—50 ára, en eftir er að
taka fingraför af um 50 manns
á þessum aldri. Verkið er unnið í
Reykjavík og er því tafasamara
en ella, auk þess sem það hefur
tafizt nokkuð í sumar, vegna
sumarleyfa.
A spjaldinu með fingraförunum
er auk fingrafara undirskrift
hvers einstaklings, en það getur
oft komið sér vel fyrir lögreglu
yfirvöld að hafa eiginhandarund
irskriftir manna við hendina til
samanburðar o.s.frv. Væri ósk-
andi að fleiri bæir tækju sér
Akranes til fyrirmyndar í þessu
efni.
A hcimleið
BOSTON, 17. október — Ungfrú
Michelmore, etúlkan í banda-
rísku „Friðarsvéitunum" sem
setti allt á annan endann í Ntger
íu með póstkortinu, sem húu
týndi, kemur heim til Bandaríkj