Morgunblaðið - 20.10.1961, Blaðsíða 8
8
y o tt c rnv n r. 4 ð i ð
Föstudagur 20. okt. 1961
Brt.NDARÍSKI ljósmyndarinn
Weegee stimplar á bakhlið
mynda sinna svohljóðandi á-
letrun: „Weegee, the famous“
— Weegee frægi. Mönnum
kann að þykja áletrunin
skrumkennd en hún er sann-
leikanum samkvæm. Og
frægð sina hefur Weegee ekki
hlotið án erfiðis.
Það var einskær tilviljun að
Weegee gerðist ljósmyndari.
Hann var vinnulaus, peninga-
snauður og átti hvergi húsa-
skjól. Nótt eina svaf hann í
Central Park í New York á-
samt öðrum húsnæðisleysingj-
um. Þá fékk hann þá hugmynd
að ljósmynda fólkið í garðin-
um og selja blöðunum mynd-
irnar. Hann komst yfir ódýra
ljósmyndavél — og fyrr en
varði voru blöðin farin að
birta myndir hans.
Þannig hóf hann ljósmyndara
Weegee tók andtitsmynd af Krúsjeff, sem hann síðan endur-
ljósmyndaði gegnum skínandi nikkelrör. Þessi varð útkoman.
Ljdsmyndarinn brellótti
Elizabeth Taylor
feril sinn. A næstu árum sást
hann iðulega í námunda við
slökkvistöðvar New York
borgar, og í hvert skipti sem
sjúkra- eða brunabíll var kall-
aður út, fór hann í humátt á
eftir. 1 þeim ferðum náði hann
mörgum frábærum raunsæis-
myndum úr daglega lífinu.
Þær myndir tryggðu honum
dágóðar tekjur Og hann hafði
ráð á að fá sér senditæki í bif-
reið sína. Eftir það gat hann
fylgzt með lögreglubílunum
og var oft fyrr kominn á vett-
vang með ljósmyndavél sína,
en lögreglan sjálf.
Myndasafn, sem Weegee tók
á þessum árum, kom út í bók,
Sem bar nafnið: „The Naked
City“. Eftir útkomu þeirrar
bókar fór hann að setja fyrr-
nefndan stimpil aftan á Ijós-
myndir sínar.
önnur Ijósmyndabók hans
hlaut titilinn „The Naked
Hollywood“. Þar dró Weegee
fram í dagsljósið innihalds-
leysi og hnignun kvikmynda-
borgarinnar.
Nýjasta bók Weegees er af
ýmsum frægum mönnum og
konum, sem hann hefur hitt á
lifsleiðinni, og myndirnar,
sem hér birtast, eru úr þeirri
bók.
Weegee er mesti bragðaref-
ur og.finnur upp á mörgu, sem
setur svip á myndir hans.
Hann beitir allskyns brellum
f myrkraherberginu, bæði
þekktum og óþekktum. Og
hann er ánægður með lífið og
tilveruna — enda þarf hann
ekki lengur að sofa í Central
Park.
Weegee ljosmyndari
Félagslíf
Félagslíf
Aðalfundur körfuknattleiks-
deildiair KR verður haldinn
fimmtudaginn 26. okt. kl. 8.30 í
Félagsheimili KR. — Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Ármann, körfuknattleiksdeild
4. flokkur — Æfing verður í
kvöld (föstudag) í fimleikasal
Langholtsskóla kl. 7.40—8.30. —
Mætið allir. Nýir félagar vel-
komnir. Þjálfari.
KFR — KFR
Æfingar verða í vetur sem hér
segir:
4. fl. — sunnud. kl. 11—11.50 í
Háskóla.
fimmtud. kl. 8.30—9.20 í
laugardal.
3. fl. — Mánud. kl. 9.20—10.10
í Laugardal.
fimmtud. kl. 8.30—9.20 Há-
logaland.
Mfl., 1. og 2. fl. — Þriðjud kl.
10.10—11 að Hálogalandi.
fimmtud. kl. 7.40—8.30 í Laug-
ardal.
laugardag kl. 3.30—5.10 að
Hálagalandi.
Þingeyingar — Reykjavík
Spilakvöld verður í Skátaheim
ilinu í kvöld kl. 8.30.
Stjómim.
ÍR drengir
Drengjaleikfimin hjá ÍR er
byrjuð. Æfingar mánud. og föstu
dag kl. 6.10.
Þjálfari.
Knattspyrnufélagið Fram
Knattspyrnudeild
Æfingar innanhúss í vetur
verða sem hér segir: r
Mfl. og 1. fl. laugardögum kl.
4.30 í KR heimilinu.
2. fl. sunnudögum kl. 2.40 í
Valsheimilinu.
3. fl. sunnudögum kl. 3.30 í
Valsheimilinu.
4. fl. sunnudögum kl. 10.50 í
Valsheimilimu.
5. fl. laug-rdögum kl. 8.35 í
KR heimilinu.
Ath. að þeir sem ganga upp, um
áramót, hefji nú þegar æfingar
með viðkomandi flokk.
Knattspyrnunefndin.
Stjórnin.
EASY-ON
LÍNSTERKJAN
sparar yður tíma og fyrirhófn,
er einföld í notkun.
Nauðsynlegt sérhverju heimili.
Reynið „Easy On“ og kostirnir
koma í ljós.
Umboðsmenn:
Agnar Norðfjörð & Co. h.f.
Jón Bjarnason
Akranesi, 70 ára
SJÖTUGUR er í dag Jón Bjarna
son, verkamaður á Akranesi. —
Jón er Norðlendingur að upp-
runa, fæddur að Björgum á
Skagaströnd 20. okt. 1891. Jón
naut skammrar dvalar í for-
eldrahúsum, systkinahópurinn
var stór og fór Jón að heiman
í fóstur til vandalausra, er hann
var á 9. aldursári. Var Jón
fyrsta árið á Hofi, en fór síðan
að Brékkukoti í Húnaþingi og
dvaldi þar til hann var 16 ára.
Það ár fluttist Jón að Hnaus-
um og var þar til ársins 1914,
er hann flutti úr heimabyggð
sinni suður í Borgarfjörð. Var
hann fyrst í Amþórsholti í
Lundarreykjadal en síðar sem
ráðsmaður að Lundi í sömu
sveit. Árið 1921 flutti Jón til
Akraness. Kvæntist hann árið
eftir Jónínu Guðjóninu Jóns-
dóttur frá Garðbæ á Akranesi.
Hófu þau búskap að Garðbæ og
hefur Jón jafnan átt þar heima
síðan, enda við staðinn kennd-
ur. Þau hjónin eignuðust tvær
dætur, eru þær báðar uppkomn-
ar og giftar, önnur búsett á Akra-
nesi, en hin í Ameríku.
Jón missti fyrri konu sína
Jónínu árið 1946. Hann kvæntist
aftur árið 1948 Þórunni Bjarna-
dóttir, ættaðri af Snæfellsnesi.
A uppvaxtarárum Jóns Bjarna
er að skipta. Við lítilmagna og
þá sem minna mega sín í lífinu
hefur hann jafnan reynzt hjálp-
samur og hafa margir slíkir átt
athvarf á heimili hans, eða hann
greitt úr málum þeirra á einn og
annan hátt.
Jón er mikill höfðingi heim að
sækja. Eru þau hjónin Jón og
Þórunn gestrisin svo af ber, glað
vær og ræðin og mjög gott á
heimili þeirra að koma,
Ég vil að lokum færa þessum
góða vini mínum beztu afmælis
og árnaðaróskir á þessum merku
tímamótum í lífi hans, og þakka
honum tryggð og vináttu á liðn-
um árum.
Árni Grétar Finnsson.
★
sonar, voru kjör þjóðarinnar í
flestu ólík þvi sem gerist nú á
dögum, og aðstæður og skilyrði
þau, sem ungum mönnum voru
búinn nokkuð önnur, en við eig-
um við að búa í dag. Uppvaxandi
unglingar voru í þá daga settir
til erfiðrar vinnu, löngu áður en
þeir höfðu tekið út nægilegan
þroska. Bognuðu ýmsir undan
striti bernskuáranna, en þeir sem
unglingar voru í þá daga settir
'hrausbastir voru og stæltastir,
stóðu þá þrekraun af sér. Jón
er einn af þeim mönnum, sem
búin voru þessi kjör í æsku.
Hann hafði sjálfur rí'ka þrá
til mennta, en eins og flestir jafn
aldrar hanis á þeim tímum, átti
hann þess ekki kost.
Jón var þegar á unga aldri hið
mesta karlmenni. Honum hafði
verið gefið mikið þrek og þrótt-
ur, og var snemrna orðlagður fyr
ir dugnað og hreysti, þá tvo eig-
inleika, sem fylgt hafa honum
fram á þennan dag. Enda gengur
hann enn að allri vinnu, sem
ungur væri, og gefur þeim sízt
eftir sem yngri eru.
Jón er maður félagslyndur.
Hefur hann jafnan fylgzt vel með
og haft mikinn áhuga fyrir mál-
efnum sinnar þjóðar. Hann er
einstaklingshyggju maður, vill
að þjóðfélagið skapi einstakling-
unum, óskorað frelsi til eðlilegra
og nauðsynlegra framkvæmda og
athafna. Hann er einlægur verka
lýðssinni og ber hag sinnar stéttar
mjög fyrir brjósti. í landsmálum
hefur Jón ávallt fylgt Sjálfstæð-
isflokknum að málum, og verið
ótrauður baráttumaður fyrir
stefnumálum hans. Hafa störf
hans í þágu Sjálfstæðisflokksins
á Akranesi verið ómetanleg, slík-
an áhuga og vilja hefur Jón jafn
an sýnt í verki.
Jón Bjarnason er maður með
ríka skapgerð. Hann er hreinn og
hirspurslaus í allri framkomu og
segir skoðanir sínar hreint út
við hvern sem hann á, hvort sem
mönnum líkar betur eða verr.
Því miður kunna ekki allir að
meta slíka hreinskilni, en þeir
sem þekkja hann virða einurð
hans og hreinskilni og vita að þar
er mælt af einlægni. Jón er á ytra
borði hrjúfur fyrir þá sem ekki
þekkja hann. En vinir Jóns vita,
að inni fyrir slær hlýtt hjarta, og
að í raun er hann bæði tilfinn-
inganæmur og hlýr. Jón er að
vísu nokkuð seintekinn og ekki
allra vinur. En vinum sínum er
hann með afbrigðum tryggur og
vart þeir hlutir til, sem hann
vill ekki fyrir þá gera. Jón er
þéttur á velli og þéttur í lund og
lætur ekki hlut sinn, ef því
I DAG ER sjötugur einn af mæt-
ustu borgurum Akranesbæjar,
Jón Bjarnason, Vesturgötu 105,
Akranesi. Hann er Húnvetning-
ur að uppruna og ber að ýmsu
leyti einkenni þeSs héraðs. Glað-
ur og hress í anda, hrókur alla
fagnaðar í góðvina hóp, rökfast-
ur og einarður í orðræðum og
getur orðið harður og óvæginn
finnist honum réttu máli hahað
eða gengið á hlut einhvers. Hann
er hverjum manni greiðviknari
er ég hefi kynnst og vill hvers
manns vanda leysa.
Jón ólst upp í Húnavatnssýslu
til fullorðinsára. Hann þurt'íi
mi'kið að vinna á uppvaxtarár-
um eins og títt var um þá kvn-
slóð, sem þá var að vaxa úr
grasi. Ungur að árum lagði hann
leið sína til hinna blómlegu og
víðfeðmu Borgarfjarðarhéraða,
á Akranesi tók hann sér varan-
lega bólfestu og þeim stað hefur
hann helgað öll sín störf. Jón
hefur jöfnum höndum stundað
daglaunastörf og landbúnað.
Hann er einn af þeim Akurnes-
ingum sem tekið hefur virkan
þátt í að rækta blómleg tún í út-
jaðri kaupstaðarins, atorka hans
og dugnaður er af öllum viður-
kennd, og aldrei fellur honura
verk úr hendi.
Ríkan þátt hefur Jón tekið i
landsmálum. Ungur að árum
skipaði hann sér í raðir þeirra
manna, eir studdu Sjlálfstæðis-
flokkinn, því í hans höndum.
taldi hann málefnum einstakl-
inga og þjóðarheildarinnar bezt
borgið. Jón var einn af aðai-
hvatamönnum stofnunar „Njarð
ar“, félags sjálfstæðisverka-
manna og sjómanna og einn af
aðalforustumönnum þess frá
byrjun. Þá hefur hann setið í
stjórn Sjálfstæðisfélags Akra-
ness, formaður fulltrúaráða
sjálfstæðisfélaganna á Akranest
hefur hann verið um nokkuira
ára skeið og er það enn. Oll þau
störtf, sem honum hafa verið fal-
in hefur hann gengt með stakri
samvizkusemi og dugnaði, þvi
Jón tekur ekki loppnum höndum
á neinu máli, heldur er fylgt eft.
ir þar til verkið er leyst af hendi
á þann bezta hátt sem hægt er.
Við Jón höfum átt mikið og gott
samstarf í ýrnsurn mólefnum inn
an Sjálfstæðisflokksins og þá
sérstaklega í verkalýðsmálum og
þess samstarfs mun ég alltaf
minnast með gleði og þakklæti,
því einurð hans og festa samhliða
einlægni í stöffum einkenna ÖU
hans verk.
Þá einu ósk á ég bezta til vin-
ar míns Jóns, að honum megi
enn um langan aldur auðnast að
vinna sem mest að hugðarefnum
sínum, bæjarfélagi sínu og þjóð-
félaginu í heild til heilla.
Að endingu vil ég færa þér og
þínum frá mér og mínum. beztu
þakkir fyrir langa og trygga
vináttu og samstarf. Lifðu heill
'um mörg ókomin ár.
A. Guðmundsson.