Morgunblaðið - 20.10.1961, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 20. okt. 1961
BÖO keppenaur á
handboltamóti
Reykjavíkurmótið hefst á morgun
16. Handknattleiksmeistaramót
Reykjavíkur hefst að Háloga-
landi á morgun, laugardag og
stendur til 10. desember. Verður
þó leikið um hverja helgi, laug-
ardagskvöld og sunnudaga auk
þrigja annarra daga, sem notaðir
eru. Leikkvöld að Hálogalandi
eru samtals 16 en auk þess er leik
ið í KR-húsinu og í Vals-húsinu.
Keppt er í meistaraflokkum
karla og kvenna, en auk þess í
1. fl. karla, 2. fl. karla (tvískipt-
um) og 3. fl. karla (tvískiptum)
og loks í 2. fl. kvenna (tvískipt-
um).
• Svipað fyrirkomulag.
Handknattleiksmót Reykja-
víkur mun vera annað stærsta
mótið og umfangsmesta, sem hér
í Reykjavík er haldið. Húsnæðis
vandræði gera mikla erfiðleika
viðframkvæmd slíkra móta. En
nú fer mútið fram í endurnýjuðu
húsnæði að Hálogalandi og mun
allt hafa verið gert, sem unnt
var til að bæta húsið sem frekast
máttL
Fyrirkomulag mótsins verður
svipað nú og áður. A laugardags
kvöldum leika kvennaflokkarnir
og yngri flokkar. A sunnudags-
kvöldum fara fram 3 meistara-
Sala Víkings
AKRANESI, 19. okt. — Togar.-.n
Víkingur seldi afla sinn í Hull
sl. miðvikudag. Aflamagn var
milli 90 og 100 tonn, sem seld
voru fyrir 7.430 sterlingspund.
Einhver vanhöld munu hafa orð
ið þar ytra, sem ekki er vitað
nákvæmlega um. En þess er þá
að gæta, að þetta er í fyrsta sinn,
sem tilraun er gerð til að flytja
út fisk á markað, ísaðan í 30 kg.
kössum. —
Oddur
flokksleikir karla auk eins þriðja
flokks leiks.
• Fyrstu leikirnir.
Undantekning frá þessari
leikjaniðurröðun er þó fyrsta
helgin, annað kvöld og á sunnu
daginn. Fyrsti leikur mótsins
annað kvöld verður í þriðja fl.
karla A Valur og Armann leika.
Síðan leika í m.flokki karla
Þróttur gegn KR, Valur gegn ÍR
og Fram gegn Armanni.
A sunnudaskvöldið fara fram
3 leikir í meistaraflokki kvenna
og 3 leikir í 2. fl. karla.
Dönsku sérsamböndin fá
alit aö Vi millj. styrk hvert
ÞAÐ ER ekki ófróðlegt að glugga
í skýrslu sem á miðvikudag birt
ist í dönskum blöðum, um það
hve mikinn fjárstyrk einstök í-
þróttasambönd þar í landi fá frá
getraunastarfseminni dönsku. —
Það eru engir smápeningar sem
þar koma til skipta. Að þessu
sinni hefur danska íþróttasam-
bandið úthlutað af þessu fé 1,2
millj. danskra króna — eða á 8.
millj. ísl. króna. Og þessa upp
hæð fá dönsku sérsamböndin til
reksturs síns aðallega — til að
kosta þjálfara og til alls kyns
áhaldakaupa o.fl.
Allt að háilf millj. ísl. kr.
á samband.
Styrkurinn sem sérsamböndin
Frá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Rangæingar — Árnesingar
Hringekjan sýnd á Hvoli, sunnudag'
kl. 3 og Selfossi kl 9.
Húsbyggjendur Byggingameistarar
Nú getum við útvegað vikursand bæði sigtaðan og
ósigtaðan.
Malað vikurgjall í einangrun og steypu.
Vikur-möl í einangrun.
Milliveggja plötur úr vikurgjalli
5 cm, 7 cm. 10 mm.
3ja hólfa holsteinn 20 x 40 x 20 cm.
Verzlið þar sem verðið er hagstæðast. Sendum heim.
*• BRUNASTFYPAN H.F. — Sími 35785
Bifreiðasalan Laugaveg 90-92
Höfum flutt bifreiðasölu vora á Laugaveg 90—92,
af Frakkastíg 6. Rúmgott sýningarsvæði! Ávallt
stærsta úrval alls konar bifreiða.
Salan er ávallt örugg hjá okkur.
BIFREIÐASALAN, Laugavegi 90
Símar: 19092, 18966 og 19168.
Tvo vana beitingamean
vantar á bat frá Ólafsvík. — Upplýsingar á Hótel
Skjaldbreið, herbergi nr. 9, kl. 1—3 í dag.
fengu nú var meiri en nokkru
sinni.
Ef við lítum í skýrsluna og tök
um aðallega þau sérsambönd
sem einnig starfa hér á landi —
en að sjálfsögðu eru mun fleiri
sérsambönd í Danmörku en hér
t.d. íþróttasambönd verkalýðs-
ins, badminton samband, borð-
tennis samband o.fl. o.fl.
Frjálsíþróttasambandið danska
fær 34.200 d. kr. til rekstur síns,
35.000 kr. til þjálfunar og 14.300
til kaupa á ýmsum hlutum eða
samtals 83.500 d. kr. — nær hálf
millj. ísl. kr.
Körfuknattleikssambandið fær
9.600 d. kr. til reksturs síns, 4.200
d. kr. til þjáifunar og 3.250 til
ýmissa kaupa.
Knattspyrnusambandið fær
46.800 d. kr. til rekstursins og
31.200 til kaupa á ýmsum hlutum.
Golfsambandið fær 10.800 d. kr.
til rekstursins, 3000 d. kr. til
þjálfunar og 1950 d. kr. til ýmissa
kaupa.
Handknattleikssambandið fær
38.200 d. kr. til rekstursins,
20.000 d. kr. til þjáifunar og
15.600 d. kr. til ýmissa kaupa.
Skíðasambandið fær 7.800 d. kr.
til rekstursins, 2.800 d. kr. til
þjálfunar og 1300 d. kr. til ýmissa
kaupa.
Sundsambandið fær 34.200 d.
kr. til rekstursins, 15.400 d. kr.
til þjálfunar og 6.500 d. kr. til
ýmissa kaupa.
—★—
Það er ólíkur aðbúnaður fyr
ir danska forystumenn og ís-
lenzka. Það er meira og betur
Félagslíf
Körfuknattleiksdeild Í.R.
Æfingatafla. — f.R. húsið:
Mánud. 5.20—6.10 IV. d. drengir.
Þriðjud. 6.20—7.10 II. fl. b.
stúlkur.
7.10—8.00 IV. fl. b. drengir.
8.00—8.50 II. fl. a. stúlkur.
8.50—9.40 III fl. drengir.
9.40—10.30 II. fl. drengir.
Miðvikud. 8.50—10.30 nafl. karla.
Fimmtud. 7.10—8.00 III. fl. dreng.
8.00—8.50 II. fl. drengir
8.50—9.40 II. fl. b. stúlkur.
9.40— 10.30 II. fl. a. stúlkur.
Laugard. 1.00—2.00 I. fl. karla.
5.20—6.10 IV. fl. b. drengir.
Hálogaland:
Föstud. 6.50—7.40 II. fl. drengir.
7.40— 8.30 mfl. karla.
Sunnud. 4.40—6.20 mfl. karla.
Langholtsskólinn:
Mánud. 6.50—7.40 IV. fl. a dreng.
7.40—8.30 IV. fl a drengir.
Fimmtud. 6.50—7.40 IV. fl. a
drengir.
7.40—8.30 IV. fl. a drengir.
fþróttahús Háskólans:
Sunnud. 10.15—11 III. fl. drengir.
hægt að búa að hinum virku
íþróttamönnum og öllum al-
menningi, sem vill stunda þess
ar greinar. Og við skulum at-
huga, að þessi f járupphæð er
ekki neinn viðburður —
svona eru styrkirnir til sér-
sambandanna ár eftir ár og
eins og fram kemur í upp-
hafi, þá fara þeir heldur stíg-
andi ár hvert.
Goliat
knattspyrnunnar
Cambridge, Massachu-
setts, 19. okt. (AP).
Tuttugu og tveggja ára stúd-
ent frá Nigeríu Chris Ohiri
hefur vakið feikna athygli í
Bandaríkjunum fyrir frammi-
stöðu sína í knattspyrnuliði
Harvard-háskóla. Er hann svo
harðskeyttur að markmenn
andstæðinganna falla hver af
öðrum fyrir skotum hans. Eft
ir keppni Cornell háskóla og
Harvard, þar sem Ohiri skor-
aði fimm mörk, fór markvörð
ur Cornell til læknis til að
láta gegnumlýsa úlnliði beggja
handa. Ottaðist hann að báð
ir úlnliðir væru brotriir. Svo
var þó ekki, heldur voru þeir
aðeins brákaðir.
Þjálfari Harvardliðsins segir
að Ohiri sé að öllum ikind-
um bezti knattspyrnumaður
bandarískra háskóla. „Eitt
sinn skoraði hann mark, sem
dómarinn dæmdi ógilt. Dóm
arinn trúði því nefnilega ekki
að nokkur gæti stokkið svo
hátt til að skalla boltann“,
sagði þjálfarinn.
-Y
Á síðasta álri skoraði Ohiri 36
mörk í níu kappleikjum. Fjór
ir markmenn féllu undan skot
um hans og sá fimmti rotaöist.
í ár hefir Ohiri skorað 14
mörk í 3 Ieikjum. Fyrsti leik
urinn var gegn Tufts háskóla
og þar skoraði Ohiri öll fimm
mörk leiksins. Þá skoraði hann
fimm mörk og aðstoðaði við
þrjú mörk til viðbótar í 9:1
sigri Harvards gegn Cornell.
Loks skoraði hann öll fjögur
mörkin í leik gegn Amherst,
sem Harvard vann 4:2.
Belgía og Frakkland léku lands
leik í gærkvöldi og fór hann fram
í Brussel. Belgía vann með 3
mörkum gegn 0. 1 hálfleik stóð
1:0.
LUNDÚNUM, 18. okt. — Aust-
ur-þýzka liðið Jena vann í dag
stórsigur yfir enska liðinu Svan-
sea. Unnu Þjóðverjar með 5—1.
Leikurinn var liður í keppninni
um Evrópubikarinn (1. umferð).
Fyrri leiknum hafði lyktað 2—2,
svo Þjóðverjarnir komast í 2.
umferð. Leikurinn í dag fór
fram í London.
Sá dökki lengst t.v. er einn
af beztu spretthlaupurum
heimsins, Frank Budd,
Bandarikjunum. Hann er
hér að vinna 100 m hluap
á 10.3 sek í landskeppni
Bandaríkjamnna og Rússa.
Landi hans Drayton (t.h.)
varð annar, en Rússarnir
eru Prokhorovski og Vino-
gradov nr. 2 frá v.).
Bílakvöld
B F Ö og Volkswagenumboðið á
Islandi efna til bílakvölds í sam-
komusalnum að Freyjugötu 27 i
kvöld kl. 20,30.
Þetta er fræðslu- og skemmti-
kvöld þar sem þeir Finnbogi Eyj
ólfsson verzlunarstjóri og Helgi
Hannesson fulltrúi munu kynna
starfsemi Volkswagen umboðsins
og B F Ö.
Einnig yerða sýndar kvikmynd
ir varðandi B F Ö og Volks-
wagen.
Þetta er einn þáttur í auknu
starfi B F Ö, og hyggur það á
fleiri slík fræðslu og skemmti-
kvöld.
En eins og mörgum mun kunn
ugt er fyrir nokkru lokið góð-
aksturkeppni á vegum B F Ö.
S.l. sunnudag fór fram verðlauna
afhending til 8 efstu maixna í
keppninni.
(Fréttartilkyning frá BFO),
Skáldsaga, er
vekur hneykslun
NÝLEGA er kömin út hjá „Det
Schönberske Förlag" í Kaup-
mannahöfn skáldsagan „Pigen
Céleste" eftir sænska rithöfund-
inn Janne Bergquist, ,j
Bókin fjallar um líf bílstjór-w
anna, sem aka dagblöðunum á
næturna frá Stokkhólmi til nær-
liggjandi borga í kapphlaupi við
tímann. Sérstaklega eru þó tekin
til meðferðar skipti þeirra við
stúlkurnar, sem sækjast eftir að
ferðast með þeim — og gera sér
enga rellu út af greiðslunni. —
Céltsle er ein þeirra, en þó
mjög frábrugðin hinum.
Bóain vakti hneykslun margra,
þegar hún kom fyrst út í Svíþjóð
og fjöldi bóksala neitaði að selja
hana. Bókinni hefur verið — og
það ekki að ástæðulausu — líkt
við „Rauða rúbíninn“ eftir
Mykle.