Morgunblaðið - 27.10.1961, Side 1
24 siður
Þetta er engin venjuleg á, heldur rauðglóandi elfur á hraðri ferð. Myndina tók ljósmyndari blaðsins, Ólafur K. Magnússon, yfir Öskju seint i gærkveldi.
w H
Hraunstraumurinn í gærkveldi lengri en í
öllu Heklugosinu
Frásögn og myndir fréttamanna MbL,
sem flugu yfir eldsvæðiö í nótt
12 kílómetra langur hraunstraumur
STÓRKOSTLEGT gos hófst í Öskju í gærdag. Þegar
dr. Sigurður Þórarinsson, og fleiri flugu yfir Öskju
kl. hálf ellefu í gærkvöldi spýttist glóandi hraunið
upp um fjóra gígi á sprungu í hlíð austurf jallanna,
gufustrókurinn stóð 5000—6000 m. upp í Íoftið, og
hraunelfan rann eldrauð og glóandi með ótrúlegum
hraða meðíram fjallshlíðinni í norður út um Öskju-
opið og bcygði þar suður með fjallgarðinum. Var
hraunstraumurinn þegar orðinn a. m. k. 12 km. á
lengd, eða lengri en lengstu hraunstraumarnir
í Heklugosinu á 13 mánuðum. — Svona hef ég ekki
séð síðan í Heklugosinu, varð dr. Sigurði að orði og
Birgir Kjaran sagði.
sem ég hef séð.
Þetta er það stórkostlegasta
„Eldstólparnir eru stórkostlegir66
Fyrstu lýsingar á gosinu bárust Mbl. skömmu eftir
kl. 7 í gærkvöldi frá flugmönnum úr Varnarliðinu.
Þeir höfðu verið á venjulegu eftirlitsfiugi, þegar þeir
allt í einu sáu eldbjarma og glæringar í átt til Öskju.
Það var kl. um 6,30. Við nánari athugun töldu flug-
mennirnir hraunstrauminn 15 mílur á lengd
og tæpar tvær á breidd, en sú ágizkun getur ekki
staðizt eins og að framan greinir. Gufustrókurinn
náði upp í 20. þús feta hæð. Annars staðar hér á síð-
unni er frásögn flugmanna, en fyrstu frásögn ísl.
sjónarvotta af þessum stórkostlegu náttúruhamför-
um, fékk Mbl. um hálfellefu leytið í gærkvöldi. Þá
voru fréttamenn Mbl. á leið til Öskju í flugvél Björns
Pálssonar ásamt dr. Sigurði Þórarinssyni, Agnari
Frh. á bls. 2
Hrikalegt!
— sögðu fyrstu
sjónarvottar
Stutt samtal við einn
bandarísku flugmann-
anna
FYRSTU MENNIRNIR, sem
sáu hið feiknlega hraungos
í Öskju í gær, voru fjórir
flugmenn úr varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli: Lt. Bern-
ard L. Henderson, lt. William
Lemley, capt. Robert Wargo
og lt William Smith. Þeir fé-
lagar voru á venjulegu eftir-
litsflugi í tveim orrustuþot-
um.
Framhald á bls. 3.