Morgunblaðið - 28.10.1961, Page 5
Laugardagur 28. okt. 1961
MORCVlSBLÁÐlh
5
Steinþór Sigurðsson
VIB hittum listamanninn,
Steinþor Sigurðsson, inni í
miðjum sal í Listamanna-
skálanum á fimmtudaginn,
þar sem hann var að gefa
aðstoðarmönnum sinum leið-
beiningar um upphengingu
málverka.
★
— Hvenær ætlarðu að opna
sýninguna? spyrjum við
Steinþór.
— Hinn 27. klukkan 8 e:h.
Þetta er fyrsta sjálfstæða
sýningin, sem ég held hér á
landi.
— Þú hefur tekið þátt í
samsýningum hér?
— Já, tveimur sýningum
Félags íslenzkra myndlistar-
manna. Einnig hélt ég sýn-
ingu og tók þátt í samsýn-
ingum á meðan ég var er-
lendis við nám, og fyrir
skömmu tók ég þátt í sýn-
ingu í París.
— Hvar lærðirðu?
— Ég var fyrst í Handíða-
skólanum, síðan fjögur ár
við Konstfacktskolan í
Stokkhólmi og þá hélt ég
sjálfstæða sýningu þar í
borg, og sýndi einnig með
öðrum á Gevle Museum. Frá
Stokkhólmi fór ég til Spánar
og var tæpt ár við nám við
Akademíuna í Barcelona, síð-
Steinþór Sigurðsson og eiir myndanna á sýningu hans.
(Ljósm.: Oddur Ólafsson).
Fyrsta sýning
an dvaldi ég um tíma á S-
Spáni og sýndi þá á Malaga
ás-amt spænskum málara.
— Hvað verða margar
myndir á sýningunni?
— Um 50, flestar olíumynd
ir, en nokkrar gerðar með
þrykklit á pappír. Þetta eru
allt „sálarlífsstemmningar“,
bætti Steinþór við brosandi.
— Ég vona að aðrir séu með
það svipaða innréttingu, að
þeir geti notið þeirra.
— Hvenær er elzta mynd-
in, sem hér er, máluð?
— Þegar ég var á Spáni,
hinar eru allar^málaðar eftir
að ég kom heim fyrir þrem-
ur árum. Flestar myndanna
eru til sölu.
— Hve lengi verður sýn-
ingin opin?
— Um hálfan mánuð, frá
kl. 2—10 e. h. daglega.
Síðan Steinþór Sigurðsson
kom heim frá námi, hefur
hann kennt við Handíðaskól-
ann og málað leiktjöld fyrir
Leikfélag Reykjavíkur.
Flugfélag íslands h.f.: Millilandaflug:
fírímfaxi fer til Oslóar, Khafnar og
Hamborgar kl. 09:00 í dag. Væntanleg
aftur til Rvíkur kl, 15:40 á morgun.
Innanlandsflug: í dag er áætlað að
fjjúga til Akureyrar (2 ferðir), Egils-
staða, Húsavíkur, ísafjarðar, Sauðár-
króks og Vestm.eyja. Á morgun til
Akureyrar og Vestmannaeyja.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er á leið til Ventspils. Askja er
á leið til íslands frá Spáni.
Loftleiðir h.f.: 28. okt. er Leifur Ei-
ríksson væntanl. frá Hamborg, Khöfn
og Gautaborg kl. 21:00 heldur áfram
til NY kl. 22:30.
Eimskipafélag íslands h.f.: — Brúar-
tfoss fer frá Rotterdam í dag til Ham-
foorgar. — Dettifoss hefur væntanlega
farið frá Dublin 26. til N.Y. — Fjallfoss
fór frá Norðfirði 26. til Lysekil. —
Goðafoss er á leið til N.Y. — Gullfoss
er á leið til Rvíkur. — Lagarfoss fór
frá Leningrad 25. til Rvíkur. — Reykja
foss er á leið til Antwerpen. — Selfoss
fór frá N.Y. í gær til Rvíkur. —
Tröllafoss er á leið til N.Y. — Tungu-
foss fer frá Rvík í dag til ísafjarðar.
Skipadeild S.Í.S.: — Hvassafell fór
26. frá Onega til Stettin. — Arnarfell
er á Húsavík. — Jökulfell er í Rends-
burg. — Dísarfell fór 26. frá Viborg til
Gdynia. — Litlafell er í Rvík. — Helga
fell fer frá Raufarhöfn í dag til Seyð-
isfjarðar. — Hamrafell er væntanlegt
til Rvíkur 31. frá Batumi.
80 ára er í dag Guðný Elíasdótt
ir, Reykjadal, Vestmannaeyjumw
S.l. laugardag voru gefin sam-
an í hjónaband í Stykkishólmi af
sr. Sigurði Ö. Lárussyni, Svein-
laug Valtýsdóttir og Rögnvaldur
Lárusson, vélsm., Jósefína Péturs
dóttir og Sverrir Kristjónsson,
sjómaður og Sigurrós Berg og
Ingknar Ellertsson rafvirki.
Þann 21. þ.m. opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Valgerður
Anna Jónasdóttir Framnesvegi 27
og Elías Hergeirsson bankaritari
Kaplaskjólsvegi 5.
1 dag verða gefin saman í hjóna
band í Dómikirkjunni ungfrú
Anna Garðars (heitins Þorsteins-
sonar, alþm.) og stud. oecon.
Marinó Þorsteinsson (Sigurðsson-
ar,'rafv.m.). Heimili ungu hjón-
anna verður fyrst um sinn að
Vesturgötu 19.
pálmar hjálmár skáld:
hefur sjaldan flotinu neitaö
á vegamótum
þessarar frjálsu samkeppni
— bara hann háldist nú aust-
lægur í nótt —
ósjálfstœöismenn
K R Y D D L J Ó Ð no. 0017 þeysa um framsóknarplaniö
meö mýrarljós
pólitisk dansmelódía frjálsþýöisins í skottinu
skemmtikratar
bregöa sér árla morguns útundir
vegg
meöan sýöur
á rafhavélinni
—-- bara aö sjóöi ekki útúr —
mál og menníng
•—• bara þeir vissu —
að í gervallri umferö
vetrarbrautarinnar
eru skemmtikratar skemmti-
legastir
salt jarðar
pipar lagar og lofts.
21. okt. s.l. voru gefin saman í
hjónaband af séra Þorsteini
Björnssyni ungfrú Fjóla Bryn-
jólfdóttir, bókari hjá Olíuverzlun
Islands og Kári Eysteinsson,
starfsmaður Atvinnudleidar Há-
skólans. Heimili þeirra er að
Langholtsvegi 93.
70 ára er í dag Sigrún Bjarna-
dóttir, Laufásvegi 4S B.
3ja herb. íbúð
til leigu í risi í Vesturbæn
um. Fyrirframgreiðsla. —
Tilb. merkt „íbúð — 7025“
sendist Mbl. sem fyrst.
Austin 10
sem þarfnast boddíviðgerð
ar til sölu. Verð 18 þús. —
Varahluth- fylgja. — Uppl.
Langagerði 76 uppi.
Útvarpstæki
Philips mjög vandað —
stærsta sinnar tegundar og
skápur með innbyggðum
plötuspilara til sölu. Uppl.
í síma 10357 eftir kl. 1.
2ja herb. íbúð
óskast fyrir ung reglusöm
hjón með 2 börn. Nokkur
fyrirframgreiðsla. Vinsam-
legast hringið í síma 24758
eða 18763.
Ráðskona
óskast, tveir fulorðnir f
heimili. Uppl. í síma 1541,
Keflavík kl. 11—3 á morg-
un.
3ja—4ra herb. íbú?5
óskast til leigu sem fyrst.
Sími 36399.
Rússneskur jeppi
árgerð ’58 í góðu lagi til
sýnis og sölu að öldugötu
37 Hafnarfirði í dag og á
morgun.
Húseigendur
Tek að mér dúklagnir,
veggfóðrun og flísalagnir á
gólf og veggi. — Vönduð
vinna. Beinteinn Ásgeirs-
son. Sími 32197. (Geyxnið
auglýsinguna.)
Norska kvikmyndin:
Le/ð/n til baka
sem vakið hefur mikla eftirtekt á Norðurlöndum
og fjallar um áfengisvandamálið og A.A.-samtökin,
verður sýnd á vegum A.A.-samtakanna laugar-
daginn 28. október. kl. 3 og kl. 9.15 e.h. í Tjarnarbíói.
A undan sýningu fara fram þessi atriði:
A.A.-samtökin og starfsemi þeirra:
Jónas Guðmundsson.
Upplestur: Ævar Kvaran leikari.
Aðgöngumiðar að báðum sýningunum verða seldir
í Tjarnarbíói frá kl. 1 á laugardag. — Sími 1-63-73.
A.A.-samtökin í Reykjavík.
Fimleikadeild KR
- ÆFINGATAFLA:
Karlar 16 ára og eldri:
Iþróttahús Háskóians: Mánud., fimmtud., föstud.
kl. 9,15.
Öldungaflokkur (menn á öllum aldri):
Austurbæjarskólanum: Mánud., miðvikud. kl. 7,15.
Drengjaflokkur 14 ára og eldri:
Austurbæjarskólunum: Mánud., miðvikud. kl. 8.
Frúarflokkur:
Miðbæjarskólanum: Mánud., fimmtud. kl. 9,30.
Kennarar eru:
Benedikt Jakobsson, Jónas Jónsson,
Þór Olafsson og Gunnvör Björnsdóttir.
VELKOMIN Á ÆFINGAR!
Til sölu
eru 4ra herb. 111 fermetra íbúðir í húsinu nr. 155
við Hvassaleiti. íbúðirnar seljast í smíðum. Kaup-
endur geta fengið íbúðirnar fokheldar með miðstöð
eða tilbúnar undir tréverk. Sanngjarnt verð. Upp-
lýsingar á staðnum kl. 2—5 í dag og á sunnudag og
hjá undirrituðum.
Málflutningsskrifstofa VAGNS E. JÓNSSONAR
Austurstræti 9 — Sími 1400 og 16766.
Opna lœkningastofu
1. nóvember í Aðalstræti 18. (Uppsölum).
Viðtalstímai kl. 17—18,30 og laugardaga kl. 13—14.
aðrir tímar eftir samkomulagi, símar 14513 og 12993.
( Vit j anabeiðnir ).
sérgrein: kvensjúkdómar og fæðingarhjálp
Andrés Ásmundsson, læknir. sérgrein:
kvensjukdómar og fæðingarhjálp, skurðlækninr.