Morgunblaðið - 28.10.1961, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 28. okt. 1961
ÍTtgefandi: H.f Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Öla, sími 33045.
Auglýsingar: A.rni Garðar Kriptinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Simi 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
ELDUR I ÖSKJU
Tj’í þau tíðindi hefðu fyrr á
öldum verið sögð, að
eldur væri í Öskju, þá lætur
að líkum að þau mundu hafa
vakið ótta. í dag aftur á móti
finnst mönnum stórfrétt þessi
fremur forvitnileg en ógn-
vekjandi.
Fyrrum boðuðu eldsum-
brot oft á tíðum harðrétti og
hallæri. Enn í dag geta þau
vissulega bakað stórfellt tjón,
sérstaklega vegna öskufalls
eða jarðskjálfta, sem þeim
er tfðum samfara, en mönn-
um finnst það engu að síð-
ur svo fjarlægt að ekkiþurfi
að kvíða.
Hlnar gífurlegu framfarir
síðustu áratuga gera það að
verkum, að ógnir eldsum-
brota hérlendis eru aðeins
svipur hjá sjón, miðað við
það sem áður var, eins og
glöggt sást á Heklugosinu.
Engu að síður er enn fjar-
stætt að hafa náttúruham-
farir f flimtingum á þann veg
sem hér hefur verið gert,
þegar góðærum nútímans hef
ur verið líkt við sjálf móðu-
harðindin.
Vonandi verður ekkert
tjón samfara gosi Öskju, en
hamfarlrnar mættu gjaman
minna okkur á, hve van-
máttugir við erum gagnvart
höfuðskepnunum, þrátt fyrir
allar framfarirnar.
ur kommúnistum tekizt með
atbeina Framsóknarflokksins
að ná mjög miklum völdum,
sem þeir hafa óspart notað
til óþurftar alþýðu. Innan
skamms fæst tækifæri til
þess í almennum kosningum
í verkalýðsfélögunum að
heimta vald þetta úr hönd-
um kommúnista. í flestum
eða öllum verkalýðsfélögum
ætti það að vera unnt, ef allir
lýðræðissinnar sameinuðust
og berðust sem einn maður
gegn erindrekum erlends
valds. Brátt kemur því að
því, að Framsóknarflokkur-
inn fær tækifæri til að beita
áhrifum sínum til þess að
mikið þjóðfélagslegt vald
verði heimt úr höndum þeirra
manna, sem Framsóknar-
flokkurinn nú fordæmir rétti
lega.
Tíminn hefur líkt Krúsjeff
við sjálfan Hitler og almennt
virðast Framsóknarmenn um
þessar mundir gera sér grein
fyrir því, að lítill sem eng-
inn munur er á nazistum og
kommúnistum. Að óreyndu
vill Morgunblaðið ekki þurfa
að trúa öðru en að Fram-
sóknarmenn komi til liðs við
aðra lýðræðissinna og heyi
heiðarlega baráttu við hlið
þeirra í þeim kosningum í
verkalýðsfélögunum sem
framundan eru.
HVAÐ GETUM
VIÐ?
Handieggurinn brenndist allur — en aðeins framhandleggnum var stunrgið í vatn Munurinn
er greinilegur. — Og „Time“ segir undir þessari mynd: — Áfram með kalda vatnið!
Sagt frá lækningaaöferð
Öfeigs J. Úfeigssonar í „Time“
brenndu hendi niður í kalt
vatn. Sársaukinn hvarf. Hann.
hélt hendinni í vatni í klukku-
stund. Losnaði alveg við sárs-
aukann — og sárið greri vel.
Síðan hefur hann. beitt þess-
ari aðferð á öðrum nær 200
sinnum. Læknisfræðin gefur
ekki mikið fyrir þessa aðferð,
en Dr. Shulman komst að því,
að þessi aðferð hefur lengi
verið notuð á Islandi.
AÐFER.Ð ÓFEIGS.
Dr. Ófeigur J. Ófeigsson í
Reykjavík gefur skýrar ráð-
leggingar um fyrstu meðferð
á brunasárum.
Dr. Ófegiur segir svo frá,
að eitt sinn hafi tveggja ára
telpa brennzt mikið á hand-
legg. Handlegg barnsins var
stungið niður í kalt vatn, en
aðeins upn að olnboga. Raun-
in varð sú. að framhandlegg-
urinn greri vel, en upphand-
leggurinn ekki. A honum er
mikið af örum. Og ráð Br
Ófeigssonar við brunasárum,
sem þekja minna en 20%
líkamans. eru:
• Kælið brunasárið fljótt
með því að færa allan fatnað
af bví, og, ef hægt er að koma
því við, þá á hinn brenndi að
stinga hinum skaðaða líkams-
hluta niður í kalt vatn (mjólk
eða annan vökva, sem tiltæk-
ur er). Ef brunasárið er stórt,
er óæskilegt að vatnið sé mjög
kalt, því þá kólnar sjúklingn-
um um of.
• Færið hinn slasaða úr
beim flíkum, sem hylja sár-
ið, — en aðeins ef hægt er að
lyfta þeim af sárinu. Annars
á að skera fötin utan af mann-
inum. „Horfið ekki í fötin,
bjargið skinninu“.
• Ef ekki er hægt að koma
því við, að hin slasaði dýfi
hinum brennda líkamshluta
niður í vatn, notið þá kalda
bakstra. <
• Ef hrell setur að sjúkl-
ingnum, gefið honum heita
súpu, ekki áfengi — og bætið
fötum á hina heilu líkams-
hluta.
• Byrjið á þessu öllu áður
en kallað er á lækninn. Haf-
ið síðan samband við lækni
en haldið áfram „vatnskæl-
ingar“-lækningunum.
Stjórn Saiazars „dauövona"
— segir uppreisnarforinginn Galvao, sem
er að hefja fyrirlestraferð um Norðurlond
MOSKVUMENN
Á ISLANDI
í ræðum þeim, sem fluttar
voru á fundi Stúdentafé-
lags Reykjavíkur og Stúd-
entaráðs Háskóla íslands til
að mótmæla ógnarspreng-
ingum Rússa, var fordæmd
afstaða kommúnistadeildar-
innar á íslandi, sem styður
illvirkjana austur í Moskvu
í einu og öllu. Meðal ræðu-
manna var einn af þingmönn
um Framsóknarflokksins,
Jón Skaftason, sem vakti
máls á því, að tímabært væri
að firra kommúnista áhrif-
um hérlendis.
Undir það sjónarmið ættu
allir lýðræðissinnaðir menn
að geta tekið. Það er ekki
vansalaust að talsverður
hluti íslenzku þjóðarinnar
skuli veita mönnum, sem
styðja hin verstu ógnaröfl
nægilegt fylgi til þess að þeir
fáí setið á sjálfu Alþingi ís-
lendinga. En það er á fleiri
sviðum, sem nauðsynlegt er
að rýra vald kommúnista-
deildarinnar.
í verkalýðsfélögunum hef-
Ifið Islendingar erum smæst
* ir allra þjóða og þess
vegna kann okkur stundum
að finnast að það skipti ekki
meginmáli, hver framvindan
verður hérlendis. Úrslitin í
alþjóðamálum séu ráðin af
öðrum og voldugri aðilum.
Sjónarmið þetta er þó rangt.
I fyrsta lagi höfum við at-
kvæði á alþjóðavettvangi til
jafns við miklu stærri þjóð-
ir, en í öðru lagi er baráttan
í heiminum í dag háð um all-
an hnöttinn. Hún stendur
milli afla lýðræðis og frelsis
annars vegar og kommúnist-
ískrar ógnar hins vegar. Þátt
taka í þeirri baráttu er jafn-
mikilvæg hérlendis og ann-
ars staðar.
Ungverski rithöfundurinn
Tibor Meray, sem hér flutti
fyrirlestur fyrir nokkrum
dögum á vegum Frjálsrar
menningar, minnti okkur á
þetta hlutverk. Hann segir
orðrétt:
„Ef þið spyrjið mig, vinir
; S SÍÐASTA hefti banda-
ríska vikuritsins „Time“
’ er sagt nokkuð frá lækn-
ingaaðferð Ófeigs J. Ó-
1 feigssonar við brunasár —
þeirri að kæla binn
brennda líkamshluta þeg-
ar í stað í vatni, en þessi
aðferð hefur vakið at-
hygli, þótt hún muni ekki
hafa hlotið almennt fylgi
meðal lækna enn. „Time“
leiðir bandarískan lækni
til vitnis um ágæti aðferð-
arinnar — og er frásögn
ritsins svohljóðandi:
Dr. Alexander G. Shulman
í Los Angeles er góður skurð-
læknár, en lélegur matsveinn.
Fyrir niu árum var hann eitt
!sinn að fást við mateldun, en
brenndist illa á sjóðandi sósu.
Hann skellti skollaeyrum við
læknisfræðikunnáttu sinoti,
setti því ek'ki umbúðir um
brunasárið, heldur stakk hinni
mínir í Reykjavík, hvað þið
getið gert fyrir Ungverja,
mundi ég segja þetta:
Gleymið okkur ekki, allra
sízt þeim sem sitja í fang-
elsum. Haldið áfram að mót-
mæla meðferðinni á þeim.
Haldið fast við frelsi ykk-
ar, friðarvilja og eflingu
vestrænnar einingar.
Já, mér er það jafnljóst og
ykkur, að þið getið ekki ein-
ir út af fyrir ykkur, haggað
valdajafnvæginu í heiminum;
En trúnaður ykkar við hug-
sjónir frelsis og friðar er eigi
að síður mjög mikilvægur.
Hann er heiminum dæmi um
það, hvernig lítil þjóð getur
varðveitt lýðræði, vináttu og
framfaravilja í yiðsjárverð-
um heimi, og hann örvar
bræður okkar í Ungverja-
landi, sem trúa á dag frels-
isins.“
Þessi orð hins ungverska
höfundar skulum við ætíð
hafa hugföst.
STOKKHÓLMI, 26. okt. (NTB).
— Sú stund kemur, að hin lýð-
ræðislega stjórnarandstaða í
Portúgal steypir Salazar af stóli.
Hvenær það verður, get ég ekki
sagt — ef til vill á morgun, e.t.v.
eftir ár. Á þessa leið mælti
portúgalski uppreisnarforinginn
Henrique Galvao m.a. á blaða-
mannafundi, er hann kom til
Stokkhólms í dag, en hann er að
hefja fyrirlestraferð um Svíþjóð,
Noreg og Finnland. Hann réðst
hörðum orðum á stjórn Salazars
í Portúgal og kvað nýlendu-
stefnu stjómarinnar nú hafa leitt
til algerrar ringulreiðar í Ang-
óla —. Annars hélt hann því
fram, að leiðtogar uppreisnar-
manna væru kommúnistar, sem
nytu aðstoðar frá Rússum. Hann
kvaðst ekki vera ánægður með
baráttuaðferðir uppreisnarmanna
— en þeir berjast fyrir frelsi og
verðskulda hjálp, sagði hann.
Galvao varð frægur í janúar
sl., er hann tók portúgalska lysti-
skipið „Santa Maria“ herskildi úti
á rúmsjó og sigldi því fram og
aftur um sunnanvert Atlantshaf
um nökkurra daga skeið — unz
hann neyddist til að skila skip-
inu í höfn í Brasilíu. — Hann
sagði á blaðaimannaíundinuirn í
dag, að hann hefði brugðið á
þetta ráð til þess að „vekja at-
hygli heimsins á einræðisstjórn
Salazars". — „Santa Maria-mál-
inu er ekki lokið“, sagði Galvao
og kvað dag reikninggskilanna
mundu renna upp fyrir einræðis-
herrann, eins og segir hér að
framan. — Ekkert vildi Galvao
segja um framtíðaráform sín —-
en lét svo um miælt, að stjórn
Salazars væri „dauðvona".
VEL HEPPNUÐ TILRAUN
VESTRA
Canaveralhöfði — Bandaríski
flugherinn sendi á fimmtudag
upp flugskeyti af Atlas-gerð og
fór hún um 14.400 km vegalengd,
áður en hún kom niður á tilsett
um slóðum á Indlandshafi. Heppn
aðist tilraunin í hvívetna vel.
Hylki frá skeytinu, sem sveif
niður í fall'hlíf, fannst eftir
nokkra leit skipa og flugvéla.