Morgunblaðið - 28.10.1961, Page 15
Laugardagur 28. okt. 1961
MOnCVKBLAÐiÐ
15
Frá Hæstarétti:
Auður, Richard og Elín, rétt áður en Opal-pakkinn var keyptur.
Askja
Framh. af bis. 10.
„Eg var forvitinn að sjá
hvernig eldgos væru,“ sagði
Leo Löve, strákur á að gizka
12—14 ára. „Eg hafði séð
Heklugosið á kvikmynd, en
þetta var ekkert líkt því. Nei,
ég var ekki vitund smeykur,“
sagði hann mannalega og
stakk höndunum í buxnavas-
ann. Þetta var bara gaman.“
„Þetta er einstakt tæki-
færi, að sjá hraungos, sem eng
inn Islendingur ætti að láta
sér úr greipum ganga,“ sagði
frú Rannveig Löve, móðir Le-
ós litla. Skyggni var gott mest-
an hluta leiðarinnar og okkur
gafst tækifæri til að virða fyr-
ir okkur þann hluta landsins,
sem við flugum yfir. Við sá-
um m. a. Gullfoss úr lofti.
Það var dýrðleg sjón að sjá
eldtungurnar úr öskju bera
við himininn og snjóinn í
kríng. Eg sé ekki eftir að hafa
farið í þessa för með son minn.
Það voru nokkuð margir for-
eldrar í flugvélinni með börn
sín og er ég viss um að þau
haía haft gagn og gaman að.“
♦ * *
3úna Bína Sigtryggsdóttir,
flugfreyja, sat að snæðingi á-
samt óhöfninni, í afgreiðsiu-
sal Flugfélagsins, góðri stundu
eftir að flugvélin hafði lent.
„Jú, ég var eina flugfreyjan
með vébnni,“ sagði hún og
hressti sig á kaffi og snæddi
teboliu. „Það er sama sem
ekkert að gera í svona ferð-
um,“ bætti hún við, „farþeg-
unum aðeins boðinn brjósts-
sykur og búið heilagur."
Því ber ek'ki að neita, að
fólkið var býsna flugveikt,
meðan flugvélin sveimaði yf-
ir öskju. Hitinn frá gosinu
var að sjálfsögðu gífurlegur
og orsakaði allskyns titring og
Rúna Bína: — Flugveikj um
borð yfir Öskju.
Rannveig og Leo Löve: — Ekkert líkt Heklugosiiru.
velting á flugvélinni, sem kom
innyflum farþeganna á hreyf-
ingu. Eg var á þöwum fram og
aftur með poka og þess háttar,
og mátti naumast vera að því
að kíkja út. Það er mikið að
gera hjá flugfreyjunum þeg-
ar loftveiki er um borð. Eg
má segja að þetta sé eftirminni
legasta útsýnisferða-lagið, sem
ég hef farið L
* * *
Nú var mikill fjöldi fólks
kominn út á flugvöll. Farþeg-
arnir, sem áttu far með Sól-
fáxa aðra ferðina létu ekki á
sér standa. Viscount var líka
á heknleið úr fyrstu ferðinni
— og farþegar í næstu ferð
voru farnir að bíða. Þarna
voru ungir og gamlir, karlar
og konur. Einn pabbi var mætt
ur með tvö börn, sem ljómuðu
af eftirvæntingu. Þetta voru
Richard og Elín, sem aldrei
sögðust hafa séð eldgos. Ric-
hard sagði, að eldgos væru
aldrei 1 Kópavogi þar sem
hann ætti heima — og þá
Ikímdi systir hans og gaut til
hans augunum, enda er hún
fyrir löngu farin að ganga í
skóla og veit allt um eldgos.
Skólasystir hennar, Auður
Sigurjónsdóttir, var mieð þeim
og hún sagði, að eldgos væru
víst voða spennandL
Ók á rjðandi mann,
dæmdur til bótagreiðslna
A MIÐVIKUDAG var kveðinn
upp í Hæstarétti dómur í skaða-
bótamáli, er reis út af því, að
ekið var á mann, sem var ríð-
andi á ferð hér í bænum. Lyktir
málsins urðu þær, að bifreiða-
stjórinn var dæmdur til að
greiða stefnanda í málinu all-
verulegar skaðabætur.
Málavextir eru á þessa leið:
Föstudaginn 6. marz 1959 var
stefnandi í málinu á ferð ríð-
andi sunnan úr Skerjafirði. Var
með honum stúlka, sem sömu-
leiðir var á hestbaki, og voru
hvort um sig einhesta. Snjór
var á jörðu og hált. Riðu þau á
hægri vegarbrún, en allháir
snjóruðningar voru á báðum
jöðrum götunnar.
Fjöldi fólks
olþokkar
Rússaboð
Kaupmannahöfn, 27. okt,
(Frá Páli Jónssyni)
SENDIHERRA Sovétríkjanna
hefir sent út hundruð boðs-
korta fyrir veizlu í sendiráðinu
hér hinn 7. nóvember — á af-
mæli rússnesku byltingarinn-
Nú hefir brugðið svo við —
eflaust vegna kjarnorkutil-
raana Rússa — að sentdiherr-
ann hefir nú þegar fengið
f jölda boðskorta send til baka,
með kurteislegri afþökkun.
Hér er um að ræða bæði ó-
nafngreinda einstaklinga og
stjórnmálamenn úr nær öll-
um stjórnmálaflokkunum, sem
ekki hafa talið sér samboðið
að sitja fagnað hjá Rússunum
eins og nú stendur á.
Er þau voru stödd á Suður-
götu, skammt frá mótum henn-
ar og Hörpugötu, bar þar að
leigubifreið og skipti það eng-
um togum, að bifreiðin lenti á
hesti stefnanda, svo að hann
féll af baki og slasaðist nokkuð.
Sá, er fyrir slysinu varð,
höfðaði mál á hendur leigubif-
reiðarstjóranum og krafði hann
skaðabóta vegna slyssins. Taldi
hann, að sér yrði á engan hátt
um slysið kennt. Hann hafi riðið
á hægri vegarbrún, eins og þá
þá var skylt að gera samkv.
umferðarlögum.
Stefndi, leigubifreiðarstjórinn,
krafðist hins vegar sýknu og
taldi, að reiðmaðurinn hefði með
gáleysi sínu einn átt sök á slys-
inu.
Héraðsdómur komst að þeirri
niðurstöðu, að hinn slasaði hefði
hegðað sér eins og honum bar
samkvæmt umferðarlögum með
því að halda sig á hægri vegar-
brún og ekki hefði verið sýnt
fram á, að hann hefði að öðru
leyti verið meðvaldur að slys-
inu. Því bæri að leggja á leigu-
bifreiðastjórann óskoraða fébóta
ábyrgð á tjóni stefnanda af völd
um slyssins.
1 Ijós kom, að reiðmaðurinn
hafði hlotið slæmt fótbrot, sem
greri seint og olli varanlegum
skemmdum á fætinum.
Niðurstöður héraðsdóms og
Hæstaréttar voru samhlhljóða
bæði að því er snertir fébóta-
ábyrgðina, svo og upphæðina og
var leigubifreiðarstjórinn endan-
lega dæmdur til að greiða kr.
135.879.05 í skaðabætur. Hann
var og dæmdur til að greiða
málskostnað og viðurkennt lög-
veð stefnanda í bifreiðinni til
tryggingar framangreindum upp-
hæðum.
Þess skal að lokum getið, að
nú hefur því ákvæði umferðar-
laganna, er fjallar um ríðandi
menn, verið breytt á þann veg,
að þeir skulu nú halda sig á
vinstri vegarbrún, en ekki á
hægri vegarhelmingi.
Þetta er ein af myndum Guðmunrdu Andrésdóttur, listmálara,
er hún sýnir í Bogasalnum um þessar mundir. Myndina nefn-
ir hún Leysingu. Á sýningunni eru 26 málverk og vatnslita-
myndir. Hún var vel sótt um síðustu helgi og eru nokkrar
myndir seldar. Sýningunni lýkur á sunmudagskvöld.
Þorstelnn flugstjóri fékk sér hressingu.
Þá var þögnin rofin í far-
þegasalnum. Tilkynnt var í
hátalara, að því miður yrði
að fresta förinni. Askja væri
hulin skýjum og lítið hægt að
sjá. Viscount var þá rétt ó-
kominn og hafði flugstjórinn,
Jóhannes Snorrason, ráðið frá
að lagt yrði strax af stað, held i
ur beðið betra skyggnis.
Þetta urðu mikil vonbrigði,
sérstaklega Richard, Elínu og
Auði. Pabbi gaf Richard Opal- I
pakka í sárabætur og það hýrn (
aði heldur en ekki yfir pilti.
í gærkvöldi létti til yfir gos
stöðvunum. Douglasvél á leið
til Egilsstaða tilkynnti klukík-
an 8, að heiðskírt væri nú
orðið við öskju og Fluigfélagið '
boðaði farþegana þegar í stað
út á flugvöll. Richard, Auður
og Elín sluppu nú við að fara
í rúmið á réttum tíma hreint
eins og á jólunum, því þau
voru mætt með pabba á flug-
vellinum klukkan hálf tíu. Nú
þurfti smáfólkið ekkert Opal,
því þau sáu líka öskju í gær-
kvöldi.