Morgunblaðið - 08.11.1961, Blaðsíða 1
24 stður
48. árgangur
253. tbl. — Miðvikudagur 8. nóvember 1961
Prentsmiðja Morgunhlaösins
Tilraunír Rússa hættulegar
segir Krusjeff á byltingarafmæliim
„Við hættum tilraunum
á kvöldin. A morgnana
byrjum við að nýju“
Moskvu, 7. nóv. (AP-NTB)
í DAG var mikið um hátíða-
höld í tilefni af 44 ára af-
mæli rússnesku byltingarinn-
ar. Krúsjeff forsætisráðherra
ræddi við erlenda frétta-
menn í Kreml í tilefni dags-
ins. Viðurkenndi hann þar
að kjarnorkutilraunir Rússa
væru skaðlegar heilsu manna,
en bætti því við að kjarn-
orkustyrjöld væri enn hættu-
legri.
Sagði hann að tilraunir
neðanjarðar væru of kostn-
aðarsamar fyrir Sovétríkin,
tilraunir í gufuhvolfinu betri
og kostnaðarminni.
Ekki vildi Krúsjeff svara
því hvort tilraunum Rússa
væri lokið, en sagði: — Við
hættum á kvöldin. Á morgn-
ana byrjum við að nýju.. —
Hann sagði þó að ekki yrðu
sprengdar fleiri 50 megalesta
sprengjur.
Það vakti athygli í sam-
bandi við hátíðahöld á Rauða
torginu, að Voroshilov, fyrr-
verandi forseta Sovétríkj-
anna, var vísað frá er hann
ætlaði að ganga til sætis í
Kaldar
kveöjur
T.ondon, 7. nóv. (AP)
ÞA® voru misjafnar kveðjur,
sem Sovétrikjunum bárust á
44 ára aimæli byltingarinnar.
Hoxa, lciðtogi albanskra
kommúnista ásakaði Krúsjeff
um unúirróður og árásir á
kommúmsta í Albaniu og sagði
að hann ætti sök á versnandi
sambandi ríkjanna.
„Yið etum ekki sammáta
gagn/ýninni, sem beint var
gegn Staiin og stefiuu hans á
siöusta flokksþingi, sagði
Hoxa Sovétleiðtogarnir segja
að allir flokkar, sem ekki við -
urkenna ákvarðanir þeirra cg
skoðanir, séu and-marxistisk-
ir. En það er ekki Níkiía
Krúsjeff eða fylgisveinar
hans, sem ákveða hvað er rétt
og hvað rangt — það er lífið
sem gerir út um það. Þessi
tilraun til að gera ákvarðanár
eins flokks að lögum allra
flokka er gróft brot á grund-
vallarregium alþjóðakommún-
ismans. Það er ekki okkar
flokkur, heldur Nikita Krús-
jeff og aðrir leiðtogar Sovét-
rikjanna, sem eru að villast
af hinni réttu braut Marx-
Leninismans, sagði Hoxa.
heiðursstúkunni, þar sem
hann hefur verið fastur gest-
ur undanfarin ár.
Voroshilov vísað frá
Hátíðahöldin hófust með her-
sýningu á Rauða torginu klukk-
an rúmlega 10 í morgun. Á svöl-
unum ofan á grafhýsi Lenins
voru flestir leiðtogar Sovétríkj-
anna mættir auk erlendra gesta,
þeirra á meðal Janos Kadar frá
Ungverjalandi og Ho Chi Minh
frá Norður-Vietnam.
Klimenti Voroshilov, fyrrver-
andi forseti, ætlaði að ganga til
heiðursstúkunnar, þar sem hann
hefur átt sæti undanfarið, en
hervörður vísaði honum frá. —
Varð hann að standa fyrir fram-
an grafhýsið við hlið konu,
sem seldi rjómaís. A nýafstöðnu
flokksþingi sætti Voroshilov
gagnrýni fyrir flokksandstöðu
og viðurkenndi hann þar syndir
sínar.
Þúsundir manna voru mættar
til að sjá hersýninguna og
hylltu þær Krúsjeff og aðra
leiðtoga, er þeir tóku sér stöðu
á grafhýsinu.
, Malinovsky varnarmálaráð-
herra flutti aðalræðuna á úti-
hátíðinni og ávarpaði herinn.
Sagði hann að Sovétríkin ættu
nú vopn, sem væru hin öflug-
ustu í heimi og gætu ráðið nið-
urlögum sérhvers árásaraðila.
Tilraunirnar skaðlegar
Seinna í dag var opinber mót-
taka I nýju fundarhöllinni í
Kreml þar sem 22. flokksþingið
var haldið. Þar flutti Nikita
Krúsjeff forsætisráðherra ræðu
og ræddi við fréttamenn. Viður-
kenndi hann þar að tilraunir,
eins og þær, sem Rússar hafa
gert undanfarið, „væru skaðleg-
ar heilsu manna“. En hann
bætti því við að eina lausnin á
þessu vandamáli væri almenn
afvopnun.
„Það er talað um skaðleg á-
hrif tilrauna með kjarnorku-
sprengingar á heilsu manna'
sagði Krúsjeff, að því er Tass-
fréttastofan skýrir frá. „Já, það
hefur verið vísindalega staðfest
að þær eru skaðlegar heilsunni.
En notkun kjarnorkuvopna í
manna, heldur beinlínis lífi
þjóða, því það er auðséð að
þessi vopn eru ekki smíðuð til
að setja þau í geymslu".
Framh. á bls. 23.
Ljósm. Mbl. Sveinn Þormóðsson, tók þessa mynd í fyrrakvöld af brunanum í Fífuhvammi. Mik-
inn eld og reyk lagði upp af skemmunni, en innviðir hennar voru allir úr tré. Mikið tjón varð
í brunanum á veiðarfærum og fiski. (Sjá frétt á bls. 24).
Saiazar áfram einræðisherra
Stjómarandstæðingai' í Portugal telja
þýðingarlaust að bjóða fram, þvi atkvæð-
in verði hvort eð er skrdð d stjórnina
Lissabon, 7. nóv. (AP)
ANTONIO de Oliveira Sal-
azar, forsætisráðherra Portú-
gals, sem ríkt hefur í landinu
undanfarin 32 ár, vann í dag
„kosningasigur“ fimm dögum
áður en þingkosningar fara
fram. Sigur hans er í því
fólginn að stjórnarandstæð-
ingar ákváðu í dag að draga
Skógareldar við Hollywood
Los Angéles, 7. nóv. (AP)
SKÓGAR- og kjarreldar
geisuðu enn í dag í nánd við
Hollywood, og hafa að
minnsta kosti 250 íbúðarhús
orðið eldinum að bráð. Eld-
arnir kveiknuðu í gær á
styrjöld er milljón smnum tveim stöSum og breiddust
hættulegri, ekki aðeins heilsu
óðfluga út. — Hafa eldarnir
gengið yfir 3.200 hektara
svæði og valdið gífurlegu
tjóni.
Adenauer enn kanzlari
Margar Hollywood-stjörnur
hafa misst heimili sín, þeirra á
meðal Burt Lancaster, Zsa Zsa
Gabor, Joe E. Brown og Red
Skelton. Richard M. Nixon,
fyrrverandi varaforseti Banda-
ríkjanna, varð að yfirgefa hús
sitt í gær vegna eldhættu.
Stefnir til sjávar
2.000 manna slökkvilið berst
gegn eldinum, en hefur enn ekki
ráðið við hann. Stefnir eldurinn
til sjávar og ef ekki tekst að
hefta útbreiðslu hans er talið að
hverfinu Pacific Palisades sé
hætta búin.
Þetta mimu vera verstu skóg-
areldar í sögu Suður-Kaliforníu.
Bonn, 7. nóv. (AP-NTB)
V-ÞÝZKA þingið endurkaus
í dag Konrad Adenauer
kanzlara Vestur-Þýzkalands
í fjórða sinn. Hlaut Adenau-
er 258 atkvæði gegn 206 við
fyrstu atkvæðagreiðslu. — Á
þingi eiga sæti 499 þingmenn
og þurfti Adenauer meiri
hluta, eða 250 atkvæði til sig-
urs. Var hann því löglega
kjörinn við fyrstu atkvæða-
greiðsluna.
Væntanleg ríkisstjórn Aden-
auers verður skipuð fulltrúum
frá Kristilegum demókrötum og
Frjálsum demókrötum, en flokk-
ar þessir skipa 3Ó9 þingsæti. —
Stjórnarandstaðan, Sósíaldemó-
kratar, hafa 190 fulltrúa á þingi.
Adenauer, sem verið hefur
kanzlari frá 1949, er nú 85 ára.
Hann hefur þegar lýst því
yfir að hann muni ekki gegna
kanzlaraembættinu allt kjörtíma
bilið, sem er fjögur ár, heldur
segja af sér í tæka tíð, svo eft-
irmaður hans, sem ekki hefur
verið tilnefndur, geti sett sig
inn í embættið áður en næstu
kosningar fara fram, 1965.
Forsætisráð-
herra til Finn-
lands
BJARNI Benediktsson, for-
sætisráðherra, hélt fiug-
leiðis utan í morgun, en
hann mun sitja fund for-
sætisráðherra Norðurlanda
í Helsingfors laugardag og
sunnudag.
framboð sin til baka, þar
sem Salazar hafi neitað að
láta kosningarnar fara lög-
lega fram. Verður þetta til
þess að fylgismenn Salazars
hljóta öll 130 þingsætin við
kosningarnar á sunnudag, en
kosið er til fjögra ára.
Búizt er við einhverjum óeirð-
um í Portúgal vegna þessarar
yfirlýsingar stjórnarandstæðinga.
Það var leiðtogi stjórnarand-
stæðinga Mario de Azvedo Gom-
es prófessor sem skýrði frá þess-
Framhald á bls. 23.
Bylting
Quito, Ecuador, 7. nóv. (AP)
I DAG var gerð tilraun til að
steypa Ibarra, forseta Ecuador,
af stóli. Að byltingartilrauninni
stóðu sveitir úr hernum, sem
fylgja varaforsetanum, Carlos
Arosemena, að málum. Hersveit
ir stjórnarinnar tilkynntu að
þær hefðu bælt niður bylting-
una eftir sjö klukkustunda bar-
daga. En seinna í dag bárust
fréttir um að byltingarsveitim-
ar væru í sókn í áttina til höf-
uðborgarinnar, Quito, og að kom
ið hafi til bardaga milli stúd-
enta og lögreglu í Guayaquil,
næststærstu borg Ecuador.
Byltingin hófst skömmu eftir
miðnætti, eftir að Ibarra forseti
fyrirskipaði handtöku Arosmena
varaforseta. Sakaði forsetinn
varaforsetann um tilraun til að
taka sér alræðisvald í landinu.
En á þingi hafði varaforsetinn
krafizt þess að forsetinn segði
af sér, því hann stefndi fjármál-
um landsins í voða. Arosemena
var handtekinn, er hann yfix-gaf
þinghúsið.