Morgunblaðið - 08.11.1961, Page 11
Miðvikudagur 8. nóv. 1961
MORGVNfír. 4 ÐIÐ
11
bækur
Guðrún frá Lundi.
frá
Prentsmiðjunni
LEIFTUR
Sigurbjörn Sveinsson.
Siýfðar f jaSrir efíir Guðrúnu frá Lundi.
Þetta er nýjasta bók Guðrúnar. Um hana segir Þorsteinn M.
Jónsson rithöfundur og bókaútgefandi frá Akureyri: Guðrún frá
Lundi kann þá list að gera alla atburði jafnt smáa sem stóra,
sögulega. Og hún er jafnan snillingUr í mannlýsingum. Hún
hefur óþrjótandi söguefni úr hinu daglega lifi, án þess að
tvinna inn í sögur sínar reyfaraatburðum. Sögur hennar eru
réttar lýsingar á mönnum og þjóðlífi. Síðari sögur Guðrúnar
hafa ekki verið eins svipmiklar eða risháar og tvœr þær fyrstu,
Dalalíf og Tengdadóttirin — fyrr en nú hin nýjasta saga
hennar. Mér finnst hún vera meðal beztu bóka hennar.
Bókin er með sama lága verðinu og í fyrra — kr. 145,00.
A ÖRÆFVM
eftir Hallgrim Jónasson. Þorsteinn Jónsson (Þórir Bergsson rit-
höfundur) segir m.a. um þessa bók i Mbl.: „Þessar frásögur
Hallgríms Jónassonar tel ég alveg hiklaust í flokki allra beztu
frásagna um ferðalög, sem ég hef lesið.... Þetta eru ekki þurr-
ar leiðarlýsingar, heldur lifandi frásagnir um náttúru landsins,
samferðafólkið og atburðina, sem gerðust á ferðalaginu. Bókin
er 272 bls., prentuð á góðan pappir. Margar myndir prýða bók-
ina, vei prentaðar á myndapappír. — Vandað band. Kr. 190,00.
Kvæði frá Holti
eftir sr. Sigurð Einarsson. — Ljóðabækur Sigurðar hafa notið
mikilla vinsælda á undanförnum árum og hlotið lof vandfýs-
inna gagnrýnenda. Þessi nýja Ijóðabók Sigurðar Einarssonar er
líkleg til að verða ljóðaviðburður haustsins.
Heiðbjörly
saga fyrir telpur eftir Frances Duncombe. — Þórunn Rafnar
þýddi. — Skáldkonan Hugrún segir um bókina: „Þessa bók
væri gaman að gefa I jólagjöf“. — Sagan er af litilli telpu,
sem vill helzt ráða gerðum sínum sjálf, án þess að mamma
hennar eigi að vera þar þátttakandi eða ráðandi. Það er ævin-
týrablær yfir allri Sögunni, og ég trúi ekki öðru en að hún
verði lesin með eftirvæntingu. — Bókin er 138 bls. í stóru broti,
með fjölda mynda og kostar aðeins 45 krónur.
T Ó L F unglingabækur.
Unglingabækur LEIFTURS eru fyrir löngu viðurkenndar. —
Þær eru skemmtilegar og þær eru ódýrar. Nú í haust eru
komnar 12 nýjar og fleiri koma fyrir jól.
Þessar eru komnar í bókaverzlanir:
Bemskan I—XI
eftir Sigurbjörn Sveinsson. Þær eru ekki margar Islenzku bæk-
urnar, fyrr eða síðar, sem hafa átt meiri og almennari vin-
sældum að fagna en BERNSKAN eftir Sigurbjörn Sveinsson,
þessar fögru og yfirlætislausu barna- og unglingasögur, sem
lesnar voru á svo til hverju heimili í landinu fyrir tveimur til
þremur áratugum. Þá þekktu allir Bernskuna. — Nú er hún
komin I nýjum og fallegum búningi, ásamt öllum öðrum skrif-
um Sigurbjarnar, skreytt miklum fjölda mynda, eftir okkar
beztu listamenn. Tvö falleg bindi í vönduðu hylki. Kr. 180,00.
Pílagrimsför til heilsuliitdanxia
í Lourdes
eftir Guðrúnu Jacobsen. Jóhannes Gunnarsson Hólabiskup segir
I formála fyrir bókinni: „Víðsvegar um heim, þar sem kristinn
Siður hefur náð að festa rætur og þróast, fyrirfinnast staðir,
sem tengdir eru nöfnum helgra manna, ýmist vegna jarðneskrar
sögu þeirra, vitrana að þeim burtkvöddum úr þessum heimi eða
jarteina fyrir þeirra tilstilli, llfs eða liðinna. Víðfrægastur slíkra
staða, þegar frá eru skildir sögustaðir Landsins helga, er án
efa Lourdes I Suður-Frakklandi, bær lækningaundranna....
Bókin er einlæg frásögn ungrar konu af þvi, er hún sá fyrir
Sér saman komnar á einum stað þjáningar mannkynsins, hinn
þunga kross, er varð svo miklu léttbærari, er kropið hafði verið
með hann að fótum heilagrar Guðsmóður.... Bókinni óska ég
góðs gengis og vænti þess að sem flestir lesi hana og fari um
leið I huganum í andlega pílagrímsför til Lourdes. — 1 bókinni
eru margar fallegar myndir. — Kostar kr. 85,00.
Matta-Maja í menntaskóla.
Hanna og hvíta kanínan.
Baldur og boðhlaupssveitin.
Konni er kaldur snáði.
Græna vítið (Bob Moran HI).
KIM og dularfulla húsið.
Stína flugfreyja.
Maríanna, telpusaga handa 8—12 ára telpum.
Fríða, Kútur og Kata í heimsókn hjá ömmu,
bók yngstu lesendanna, 6—9 ára.
Róbínson Krúsó í hinni vinsælu þýðingu Stein-
gríms Thorsteinssonar skálds.
Dansi, dansi dúkkan mín, handa 6—9 ára.
Með eldflaug til annarra hnatta, drengjasaga.
Þessar bækur eru flestar í hinum vinsælu bókaflokk-
um Leifturs. I’ær eru ódýrar og þær eru skemmtilegar.
Kosta aðeins 45—55 krónur.
Leiftur-bækur eru skemmtilegastar og ódýrastar