Morgunblaðið - 08.11.1961, Page 22
22
MORGVISBLAÐIÐ
Miðvikudagur 8. nðv. 1961
IMú lá^u Diiirjr í því
* x * «
sigraoi
18-10 í svitabaði
I FYRRAKVÖLD lék danska
liðið Efterslægten sinn síð-
asta leik í heimsókninni, og
þvílík var aðsóknin inni á
Hálogalandi, að þegar leik-
urinn hófst, hafði verið troð-
ið meira í húsið en nokkru
sinni fyrr. Fjöldi manns varð
frá að hverfa, sennilega yfir
tvö hundruð manns.
Og þeir sem inn kormust sáu
ekki eftir því, þrátt fyrir mikil
þrengsli og hitasvækju, því leik-
urinn var góður og skemmtileg-
ur allan tímann. Úrvalsliðið
mætti til leiks ákveðið í að sýna
góðan handknattleik og sigra
Danina. Okkar menn byrjuðu
með knöttinn, hófu mikla sókn
af leifturhraða Og áður en mínúta
með stuttu millibili, 2:1 og þeirra
eina forskot í leiknum.
Urvalið lék mjög vel, vörnin
var þétt og sóknin þung og já-
kvæð. Að vísu var munurinn
aldrei nema tvö mörk í fyrri
hálfleik, en enginn var í vafa um
hvort liðið var betra. Hjalti sýndi
nú mjög góðan leik í markinu,
mun betri en í Keflavík á sunnu-
daginn. Aftur á móti kom Mort-
hensen ekki inn á völlinn fyrr en
í síðari hálfleik. Danirnir léku
mjög fast og ólöglega og á 26.
mínútu kom að því, að einum
þeirra, Hansen, var vísað útaf í
tvær mínútur. Skömmu áður
hafði Birgir skorað fallegt mark
(8:6), en við brottvikninguna dró
úr hraðanum og ekki voru fleiri
mörk skoruð fyrir hié.
• Vitaköst og einstefnuakstur
Ragnar skoraði einnig fyrsta
• Samstillt úrvalslið
Þetta fyrsta val hinnar ný-
kjörnu landsliðsnefndar H.S.I.
tókst mjög vel. Liðið var sam-
stillt og sterkt, bæði í sókn og
vörn. Aberandi styrkur er af
Ragnari, sem einhverra hluta
vegna lék ekki með sínu liði í
Keflavík. Samihliða því að vera
bezta skytta liðsins, hefur hann
gott auga fyrir eyðum í vörninni
og lék oft skemmtilega inn á
línuna. Einn ljóður var samt á
leik hans, en það voru nokkrar
kæruleysislegar sendingar, sum-
ar með óþarfa tilburðum. 1 jafn
þýðingarmiklum lei'k sem þess-
um, eiga leikmenn að sleppa
prívat sýningaratriðum, sem
enga þýðingu hafa. Hermann átti
áberandi góðan varnarleik og
sama er að segja um Einar, en
Örn hefur oft leikið betur.
Liðsmenn Efterslægten voru
Enrrþá getur þetta skeð — en vonandi verða þeir fáir stór-
leikirnir til viðbótar þar sem formenn félaga, formaður IBR
og formenn erlendra liða (eins og hér sjást lengst til hægri á
bekkjum) þurfa að horfa á dómara og fyrirliða ísl. landsliðs-
ins Ieita að pollum á gólfinu og þurrka þá upp. Ótrúlegur við-
burður en því miður sannur. Það er von að handknattleiks-
unnendur fylgist vel með gangi mála við byggingu nýja
hússins í Laugardal.
var liðin hafði „atomskytta“ F.H.
Ragnar Jónsson, skorað með
snöggu og föstu skoti. Þetta
kunnu áhorfendur vel að meta og
allt ætlaði um koll að keyra. En
Efterslægten svaraði fljótt fyrir
sig og Baun skoraði tvö mörk
Fyrsta sund-
mótiö 5. des
F Y R S T A sundmót vetrarins,
sundmót KR, verður haldið í
Sundhöll Reykjavíkur þriðjudag
inn 5. desember nk.
Keppt verður í þessum grein-
um:
200 m baksundi karla, 100 m
bringsúndi (Sindrabikarinn), 100
m baksundi, 50 flugsundi, 100
m skriðsundi kvenna (Flug-
freyjubikarinn), 100 m bringu-
sundi, 100 m bringusundi ungl-
inga, 50 m baksundi, 50 metra
bringusundi telpna, 50 m bringu
sundi drengja, 50 m bringusundi
sveina, 4x50 m bringusundi ungl
inga og 3x50 m þrísundi karla.
Afreksbikar SSÍ vinnst fyrir
bezta afrek mótsins samkvæmt
stigatöflunni.
Þátttaka tilkynnist Jóni Otta
Jónssyni, Vesturgötu 36 A. í síð
asta lagi 28. nóv. nk.
markið í síðari hálfleik og aftur
svaraði Baun. Örn breytti tölunni
í 10:7 úr vítakasti eftir að gróf-
lega hafði verið brotið á hann á
línu. Hansen minnkaði bilið aft-
ur, Og enn kom vítakast á Dan-
ina, sem Gunnlaugur skoraði úr.
Nú voru liðnar 10 mínútur af
síðari hálfleik og hitasvækjan í
húsinu farin að hafa áhrif á leik-
mennina. Ekkert mark var skor-
að næstu 7 mínútur, en þá komst
aftur líf í tuskurnar við fallegt
mark frá Hermanni. Og á sömu
mínútu bætti Einar stöðuna í
13:8. Houman og Vigh skoruðu
næstu tvö mörk og voru það síð-
ustu mörk Efterslægten.
Þegar sex mínútur voru til
leiksloka var engu líkara en
að aðeins eitt lið væri á vell-
inum. Úrvalið skoraði hvert
markið á fætur öðru og sér-
stakan fögnuð vakti Birgir,
sem skoraði tvö mörk beint úr
aukaköstum. Það er vel af sér
vikið, þegar þess er gætt, að
vörnin stendur þétt fyrir fram
an og fylgist með hverri hreyf
ingu skotmannsins. Þrátt fyrir
hæfileika sína tókst Morthen-
sen ekki að forða stórtapi í
þetta sinn. 18:10 urðu endan-
leg úrslit og ánægðir en kóf-
sveittir áhorfendur þyrptust
út í hreina loftið.
sýnilega farnir að þreytast, en
þeir hafa leiikið fjóra leiki á sex
dögum, alla mjög eríiða. En lið
þeirra kemur hingað í mun betri
æfingu en okkar menn hafa nú.
F.H. hefur t.d. ekkert leikið síð-
an í vor og sáust þess áberandi
Eitt af átján. Pétur brýzt i gegn og jafnvel Morthensen fékk
ekki bjargað. — Myndirnar tók Sveinn Þormóðsson.
merki á sunnudaginn. Morthen-
sen og Baun voru þeirra beztu
menn í síðasta leiknum, en
Bernth var aðeins með nokkrar
mínútur fyrri hálfleiks. Hann
varð að hætta vegna meiðsla í
hné.
• Góð heimsókn
Þessj heimsókn er, þegar á
allt er litið, mjög miikill fengur
fyrir íslenzkan handknattleik, en
okkur er nauðsynlegt að taka
heim góð erlend lið a. m. k. tvisv-
ar á ári til þess að halda við
hinni mi'klu grósku, sem nú ríkir
í þessari vinsælu íþróttagrein.
Hin vaxandi aðsókn, sem fram
kom í þessari heimsókn sýnir
okkur einnig, að almenningur
kann vel að meta góðan hand-
knattleik og við borð liggur, að
hið litla og gamla Hálogaland
springi utan af fjöldanum.
Mönk úrvalsins skóruðu: Ragn-
ar, Birgir og Pétur S hver, Einar,
Gunnlaugur og Karl 2 hver, Her-
mann, Matthías og örn 1 hver.
Mörk Efterslægten: Baun 4,
Nielsen 2, Bernth, Hansen, Hou-
man og Vigh 1 hver.
Dómari leiksins var Hannes Þ.
Sigurðsson og gerði hann stöð-
unni góð skil, en tvívegis varð
hann að stöðva leikinn til að
þurrka burtu af gólfinu, sem
myndazt hafði vegna svita af leik
mönnum og leka úr þakinu.
K o r m á k r .
Róðrar
æfingar
inni
RÓÐRAÍÞRÓTTIN hefur verið
undarlega lítið stunduð hér á
landi. Af og til hafa þó komið
sæmilegir sprettir í iðkun þess-
arar íþróttagreinar.
Nú hefur Róðrafélag Reykja-
víkur ákveðið að gera tilraun
til að halda uppi inniæfingum'
í vetur með útiæfingum um
helgar, ef til þess viðrar.
Æfing verður í kvöld hjá fé-
Iaginu í Miðbæjarskólanum og
hefst kl. 8.45. Þangað er öllum
heimilt að koma sem vilja æfa
róður. Æft er innanhúss í sér-
stökum róðrar-„vélum“, sem eru
líkastar því að róið sé á bát á
sjó.
Ef þátttaka fæst verður æf-
ingum fjölgað.
„Það er maxinlegt að skjátlast" segir gamalt orðtak. Og með það í huga mættu dómarar
skoða þessa mynd. Ragnar er kominn í gott færi. En Danirnir gera síðustu ólöglegu hindr.
unina og breyta með lögbroti (vörzlu innan við línu) góðu tækifæri í saklaust aukakast, utan
við varnarmúr.