Morgunblaðið - 30.11.1961, Blaðsíða 1
24 slður
48. árgangur
272. tbl. — Fimmtudagur 30. nóvember 1961
PrentsmiSja H"srgunblaSsina
Apinn Enos
stóð sig vel
fór tvær ferðir
umhverfis jörðu
Canaveralhöföa, Florida,
29. nóv. — (NTB-AP) —
BANDARÍKJAMENN skutu
í dag á loft 125 lesta Atlas
eldflaug, er flutti geimskip
með simpans-apa á braut
umhverfis jörðu. Geimskipið,
Bcm var af Mercury-gerð, fór
tvær umferðir umhverfis
jörðu, en lenti svo á fyrir-
fram ákveðnum stað á At-
iantshafinu. Þar var apinn,
sem nefnist Enos, tekinn um
borð í bandarískan tundur-
spilli, og virtist hann við
beztu heilsu.
Enos er 5% árs og hafði
honum verið kennd meðferð
þriggja stjórntækja í geim-
skipinu.
BILUN
Ætlunin var að apinn færi
þrjár umferðir umhverfis jörðu
og var þetta lokatilraun áður
en maður verður sendur sömu
leið, sennilega milli jóla og nýj-
árs. En í annari hringferðinni
kom í ljós, þegar geimskipið var
yfir austanverðu Kyrrahafi, að
eitthvað var athugavert við
straumbreytir í skipinu. Ákváðu
þá vísindamennirnir á Canaver-
alhöfða að láta Mercury-skipið
flenda eftir tvær umferðir á fyr-
árfram ákveðnum stað. Lend-
ingin gekk eðlilega og kom
geimskipið í sjóinn ekki langt
frá tveim bandarískum tundur-
spillum. Þyrlur voru sendar á
vettvang og Enos fluttur um
borð í tundurspillinn Stormes.
Enos er nú í læknisrannsókn.
Þar verður athugað hvaða hárif
ferðin hafði á hann, en honum
virðist ekkert hafa orðið meint
af.
Tilraun þessi gekk mjög vel
í upphafi. Að vísu varð að fresta
skotinu um þrjá tíma vegna
smávægis bilunar, en svo var
eldflauginni skotið á loft kl.
15,09 (ísl. timi). Geimskipið
komst strax á rétta braut og
fylgdust 18 hlustunarstöðvar
með ferð þess og viðbrögðum
Enos. — Enos hafði í marga
mánuði verið æfður í meðferð
þriggja stjórntækja geimskÍDS-
ins og stóðst nú prófið.
GERÐI A L L T RÉTT
Geimskipið fór með 27.200 km
hraða á klst. á braut, sem lá
næst jörðu í 140 km fjarlægð
en fjarst í 200 km hæð. Enos
stýrði skipinu eftir mismunandi
litum ljósmerkjum. Ef hann
gerði eitthvað rangt fékk hann
lágspennu rafstraum í fótinn,
sem minnti hann á það, sem
hann hafði lært. 1 skipinu voru
mælitæki, sem fylgdust með líð
an apans, mældu viðbragðsflýti
hans, árvekni, hjartslátt, anda-
drátt og líkamshita.
Það kom í ljós að Enos gerði
allt rétt, sem fyrir hann var
lagt. Og senditæki geimskipsins
skýrðu frá því að hjarta hans
sló 105—120 sinnum á mínútu í
hringferðunum, en 150 sinnum á
mínútu í flugtaki. Fyrir góða
frammistöðu fékk Enos að laun
um tvær töflur með banana-
bragði.
í lok annarar hringferðarinn-
ar kom svo í ljós bilun á raf-
kerfinu. Hitinn jókst inni í geim
skipinu og hæðarstýrið lét ekki
Framhald á bls. 23.
f I.V7IT4I ivm wai* cíXoctí I líinrl oKfniiÍViict
í ÞÝZKALANDI var síðasti I
sunnudagur sérstaklega helgað-
ur minningu látinna ættingja, |
Totensonntag, eins og Þjóðverj-
ar nefna hann. Víða um Þýzka-
land söfnuðust ættingjar saman
við grafir látinna með blóm og
blómvendi. í Vestúr-Berlín urðu
þeir, sem áttu látna sttingja aust
an megin múrsins að láta sér
nægja að koma saman við vegg
Ifiiiiríat* comati I inn milrlo á\ir Iniro-ia lvit* n
inn mikla og leggja þar blóm-
sveiga sína. Og jafnvel þetta var
ekki leyft, þvi sumsstaðar
fleygði austur-þýzka alþýðulög-
reglan grjóti og tómum flöskum
að syrgjendum.
Berlínarmiírinn burt
segir v-þýzka stjórnin
Bonn, 29. nóv. — (NTB) —
VESTUR-ÞÝZKA stjórnin
tilkynnti í dag að allt yrði
gert til að bæta ástandið í
Berlín og koma á samninga-
viðræðum milli stórveldanna
fjögurra. Tilkynning þessi
kom fram í yfirlýsingu, er
Ludwig Erhard aðstoðar-for-
sætisráðherra Ias upp í fjar-
veru Adenauers við valda-
töku hinnar nýju ríkisstjórn-
ar Vestur-Þýzkalands.
1 tilkynningunni er lýst yfir
Fer ekki til Sovétríkjanna
en eí til vill til Evrópu, segir Kennedy
Washington, 29. nóv. (NTB-AP)
KENNEDY Bandaríkjaforseti
hélt í dag blaðamannafund í
Vítur á 8-Afríku
SÞ, New York, 29. nóv. (AP)
ALLSHERJARÞING Sam-
einuðu þjóðanna samþykkti í
dag með 97 atkvæðum gegn
2 harðorða fordæmingu á
kynþáttastefnu SuðurAfríku.
Suður-Afríka og Portúgal
greiddu atkvæði gegn for-
dæmingunni. Tillögur um
viðskiptabann á Suður-Af-
ríku náðu ekki % atkvæða
meirihluta og voru því felld-
ar. —
Felldu tillögumar voru flutt-
er af Sovétríkj unym og Pakist-
an. I tillögu Sovétríkjanna er
svo til ætlazt að bannað verði
að selja vopn til Suður-Afríku.
Tillaga þessi hlaut 50 atkvæði,
en 33 voru á móti og 17 sátu
hjá. Pakistan leggur til að bann
að verði að selja olíur til Suð-
ur-Afríku. 47 greiddu þeirri til-
lögu atkvæði, 32 á móti og 21
sátu hjá. Hvorug tillagan hlaut
% atkvæða.
í tillögunni, sem samþykkt
var með 97 atkv. gegn 2, segir
að SÞ harmi að Suður-Afríka
hafi enn ekki breytt eftir ósk-
um Allsherjarþingsins og virði
einskis almenningsálitið í heim-
inum með því að neita að taka
kynþáttastefnu sina til endur-
skoðunar eða hlíta skuldbind-
ingum stofnskrár SÞ.
Hvíta húsinu. Gaf hann þar
í skyn að ekki væri útilokaðað
hann færi í ferðalag fyrir árs
lok, en sagði hins vegar ekk-
erí um það hvaða land hann
mundi heimsækja, ef úr yrði.
Forsetinn tók það skýrt fram
að hann tæki ekki þátt í ráð-
herrafundi Atlantshafsbanda
lagsins, sem hefjast á í Par-
ís 13. des. n. k. Varðandi
samninga um Berlín sagði
hann að einna mest áríðandi
væri að ná samkomulagi um
einhvers konar alþjóðlegt eft
irlit með akbrautinni milli
Vestur-Þýzkalands og Vest-
ur-Berlínar. En hann viður-
kenndi að erfitt gæti reynzt
að ná samkomulagi um eftir-
lit, sem báðir aðilar gætu
sætt sig við.
EFTIRLIT
Kennedy var beðinn að gefa
nánari skýringar á hugmyndum
þeim er fram komu í viðtali hans
við aðalritstjóra Izvestia. Sér
staklega var óskað eftir nánari
skýringum varðandi alþjóðlegt
eftirlit með akbrautinni til og
frá Vestur-Berlín. Forsetinn
sagði að heppilegra væri að skýr
Frh. á bls. 23
Verkf all
LONDON, 29. nóv. (NTB): —
Leigubílstjórar i London hafa
samþykkt að gera 48 tíma verk-
fall til að mótmæla samkeppni
frá „smábílum“. En litlir leigubíl
ar, aðallega Reneult Og Fiat, hafa
náð miklum vinsældum í London
undanfarið, enda ódýrara að ferð
ast með þeim. Um 1000 bifreiða-
stjórar komu saman á fund í
Hyde Park og samþykktu verk-
fallsboðunina. Bifreiðastj óradeild
flutningaverkamanna sambands-
ins hefur hins vegar skorað á
meðlimi sína að taka ekki þátt
í verkfallinu.
að þrjú grundvallaratriði megi
ekki undir neinum kringumstæð
um skerða með væntanleguna
samningum, en þau eru:
1. Öryggi Vestur-Þýzkalands.
2. Viðhald núverandi stjórn-
mála, dómsmála og fjár-
málatengsla Berlínar við
Vestur-Þýzkaland, þar með
talið ferðafrelsi borgaranna.
3. Sameiningarstefna varðandi
Þýzkaland. Það er að segja
landið sameinist í frið og
frelsi, landsvæði það, sem
hernumið er af Rússum og
ríkisstjórnin, sem þar rik-
ir, verði ekki viðurkennd
og landamæradeilurnar verði
leystar með friðarsamningi
gerðum við stjórn allsÞýzka
Iands.
í tilkynningunni segir að
ástæður Krúsjeffs fyrir því að
vilja semja sérfrið við Austur-
Þýzkaland séu ekki aðeins að
vilja tryggja eigin áhrif þar,
heldur vonar hann einnig að
með því geti han á einn eða
annan hátt spillt samvinnu Vest
ur-Þjóðverja og bandamanna
þeirra.
Krúsjeff reynir að grafa und-
an frelsi Berlínarbúa og öryggi,
segir í tilkynningunni. Hann
reynir að fá Austur-Þýzkaland
viðurkennt til að geta haldið
áfram útþenslustefnu sinni það-
an. Og hann gerir allt hvað
hann getur til að koma Vest-
ur-Þýzkalandi úr Atlantshafs-
bandalaginu. En það yrði til
þess að veikja báða aðila.
NIÐUR MEÐ MÚRINN
Varðandi atburðina eftir 13.
ágúst sl., þegar Austur-Þjóðverj
ar hófu að reisa múrinn milli
Austur- og Vestur-Berlínar, seg-
ir í yfirlýsingunni að vestur-
þýzka stjórnin krefjist þess að
lög og réttur ráði um allt
Þýzkaland. Sérstaklega verði að
afnema slagbrandsstefnuna, sem
rekin er í Berlín, múrinn hataði
Frh. á bls. 23