Morgunblaðið - 10.12.1961, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 10.12.1961, Qupperneq 15
j Sunnudagur 10. des. 1961 MORGUNBLAÐIÐ 15 jjve EDINBORG Daglega koma nýjar vörur með lága verffinu í verzlun okkar. Ullarefni í kápur og kjóla. t. Nælon-undirfatnaður, nýjasta tízka. Nælonsokkar frá hinu heimsfræga Dior í París BUSÁHÖLD í miklu úrvali. ___ Finnska leirtauið með bláu röndinni nýkomið. — Vönduð barnaleikföng — Hentugar, ódýrar og smekk- legar jólagjafir fyrir yngri sem eldri. Gjöriff svo vel aff líta inn meffan úr nógu er að velja. kökuform og áhöld FYRIR JÓLABAKSTURINN. ALLS KONAR ^ aiT.jMfa Orðsending trá Coca-Cola verksmiðjunni Einstaklingar og heimili. sem eiga COCA-COLA um- búðir (flöskur og kassa) ættu SEM ALLBA FYRSX að gera jólakaup sín hjá þeirri verzlun sem þeir skipta við, eða beint frá verksmiðjunni, til þes að tryggja sér Coca-Cola til hátíðarinnar Því nær sem dregur að jólum aukast erfiðleikar verksmiðjunnar að fullnægja eftirspurninni. 4 LESBÖK BARNANNA 193. Þessi saga kom um haustiö austur til Túnsbergs. Og er Þorsteinn drómundur frétti vígin, varð hann mjög hljóður við, því að honum var sagt, að Öngull væri mjög gildur og harðfengur. Minnt- ist Þorsteinn ummæla þeirra, sem hann hafði, þá er þeir Grettir töluðust við endur fyrir löngu um handleggina. Þorsteinn hélt nú fréttum til um ferðir Öngulá. Voru þeir báðir í Noregi um veturinn, og hafði hvorugur séð ann an. En þó varð Þorbjörn þess vís, að Grettir átti bróður í Noregi. 194. f 'þennan tíma fór margt Norðmanna út í Mikla garð og gengu þar á mála. Af því þótti Þorbirni iýsilegt að fara þangað og afla sér fjár og frægðar, en hafa sig eigi í Norðurlöndum fyrir frænd um Grettis. Bjó hann uú ferð sína úr Noregi og fór út 1 lönd og létti eigi, fyrr en hann kom út í Miklagarð og gekk þar á mála. Dvaldist hann þar um hríð. 1 195. Þorsteinn drómundur ■purði nú, að Öngull var far inn úr landi og út I Mikla- garð. Brá hann skjótt við og réðst tii ferðar og leitaði eftir Öngli og fór jafnan þar eftir, sem hann fór undan. Vissi Öngull ekki til hans ferða. Þorsteinn vildi fyrir hvern mun drepa Öngul, en hvorug ur kenndi annan. Komu þeir sér nú í sveit með Væringj- um. Þorsteinn lá jafnan vakandi og undi lítt við sinn hag. Þóttist hann mikils háfa misst. 196. Það var siður Væringa að eiga vopnaþing áður en þeir héldu í hernað. Þar skyldu allir Væringjar koma og svo þeir, sem þá ætluðu að ráðast til ferðar með þeim, og sýna vopn sín. Hér komu þeir báðir. Þor- steinn og Öngull. Bar Þor- björn fyrr fram sín vopn. Hann hafði þá saxið Grettis- naut. En er hann sýndi það, þá dáðust margir að og sögðu að það væri allgott vopn, og kváðu það mikið lýti á, að skarðið var í miðri egginni, og spurðu hann, hvað til hefði borið. / 5. árg. 4 Ritstjóri: Kristján J. Gunnarsson if 10. des. lOöl Þorsteinn Erlingsson; VETUEt Ef þú átt, vinur, þrek í stríð, og þér ei heilsa dvínar, og treystir vel, þó versni tíð, á vetrarbirgðir þínar, og veizt þig geyima húsin hlý, er hret á þaki dynur: þá gengur vetur þinn í sem gamall tryggðavinur. Sá væntir minna á vinahót, er veit sig skorta fæði, og þrammar vetri þungt á mót með þunn og slitin klæði. Ég veit að Frón og fleiri lönd við fátækt hörðu beita; það á þó marga örva hönd, sem að í nauð má leita. Ég veit það líka, að hjörð er hríð og hestum gestur skæður, en hjörtun mildar mýkri tíð, er mannúð lögum ræður, og þegar hola hjúkrar mús og hjörð- er víðast inni, þá eiga flestir hestar hús og hey í jötu sinhi. En því er verr, að éinn er enn, Sem ekki þarfnast síður, en bæði gleyma guð og menn og grátleg æfi bíður; þú þekkir hann, sem lipurt lag með léttum róm og hreinum um margan sælan sumardag þér söng frá þúst og steinum. Nú veit hann engan vin í þraut, um vetrarhjarnið hvíta; hann var þó fyrri vorsins skraut, nú vill hann enginn líta, og vængi smáa hrekur hríð, en hungrið er þó sárast, og ef þú þekkir allt hans stríð, þér yrði það að tárast. Er húmið byrgir hæðir lands hann hniprar sig í leyni og minnstu, að eina húsið hans er hlé hjá freðnum steini, og ekkert fis hjá fönnum var að friða vininn svanga, sem komu dauðans kvíðir þar . um kaida nótt og langa. Hann leitar því að líkn í nauð að létta þrautum sínum, og þú átt, vinur, ærinn auð í öllum jötum þínum, ef mylsnusáld og salla þan» þú seðja fuglinn lætur, þá gleymir sínu hungri hanr og hörmung kaldrar nætur. >á sér hann, vinur, sælustund, er saklaus þolir pínu, og öðrum hörð mun linast luní af líknarverki þínu, og máski einhver muni þér , og manndyggð launi slíka. — Ég veit hvað svöngum vetur er, þú veizt það kannski líka.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.