Morgunblaðið - 10.12.1961, Qupperneq 16
16
MORCVNnTAÐiB
Sunnudagur 10. des. 1961
Trésmíðavélar
Utvegum frá AHTEX, Ungverjalandi allskonar
trésmíðavélar, með stuttum afgreiðslufresti.
Meðal annars utvegum við:
Bandsagir
Þykktarhefla
Hjólsagir
Kombineraðar
vélar
Slípivélar
Borvélar
Afréttarar
Fræsarar
Kynnið yður verð og fáið myndalista ásamt tækni-
legum upplysingum hjá umboðsmönnum,
EVEBEST TRADING COMPANY
Garðastræti 4 — Sími 10090
Sœkoptinn
er ný bók um uppfinningamanninn unga,
Tom Swift og vin hans, Bud Barclay, sem
kunnir eru orðnir af afrekum sínum í áður
út komnum bókum um „Ævintýri Tom
Swift“. Ein þeirra, Geimstöðin, varð met-
sölubók síðastliðið ár.
dýr eða blóm muni vera í háska stödd eða
fuglar, sem. eiga bágt. Verði álfarnir varir
við einhvern, sem í vanda er staddur reyna
þeir að hjálpa þeim. — Þið hafið áreiðan-
legan gaman af að lesa um öll ævintýrin
hennar Snarráðar.
Verð kr. 48,00 + 1,45.
SÆKOPTINN
er ein þeirra drengjabóka, sem ekki verður
lögð frá sér fyrr en iiún er fulllesin.
Ný ævintýri kjarnorkualdarinnar heilla
alla drengi, sem gaman hafa af viðburða-
hröðum og spennandi sögum.
Verð kr. 63,00 + 1,90.
Snarráð
er ný barnabók sem gerist í heimi álfanna.
Álfarnir eru yndislega góðar verur. Þeir eru
á sífelldu flögri og hyggja að, hvort lítil
Kjarnorkukafbáturinn
kemur hér út í annarri útgáfu og er ekki
að efa að bókinni verður vel tekið.
Til gamans má geta þess, að þegar bókin
kom fyrst út, var hún uppseld viku fyrir
jól, eða sem sagt áður en aðal jólasalan byrj-
aði. Óhætt er að fullyrða, að fáar söguhetjur
hfa náð jafn mikilli og skjótri hylli íslenzkra
pilta og hinn snjalli, ungi vísindamaður, Tom
Swift og vinur hans, Bud Barclay.
Verð kr. 63,00 + 1,90.
Bókaútgáfan Snæfell
Tjarnarbraut 29. Hafnarfirði. Sími 60738.
2
LESBÓK BARNANNA
LESBÓK BARNANNA
3
Nokkrar
tölur úr
dýra-
ríkinu
„Pabbi“, sagði Pétur
litli, „hvað eru til marg
ar dýrategundir í öllum
heiminum?"
Því gat faðir Péturs
litla ekki svarað, og í
raun og veru getur enginn
svarað því nákvæmlega.
Dýrafræðingar telja, að
lauslega áætlað, séu til
um það bil tvær milljónir
dýrategunda. Af þessum
fjölda er helmingurinn
skordýr, eða um ein
milljón.
í samanburði við þenn
an ógnarfjölda, eru spen
dýrin ótrúlega fá, eða að
eins 3800 tegundir.
Hérna eru nokkrar töl
ur í viðbót: Lindýrin í
sjónum eru til í 100 þús.
tegundum, en fiskarnir í
40 þúsund.
Af fuglum eru til 8000
tegundir. Auk þess eru
árlega fundnar riýjar dýra
tegundir í þúsundatali,
sem áður var ekki vitað
um, og þeim gefið nafn.
En lang flestar þeirra eru
skordýr, eða um 10 þús.
á ári.
Utileikur;
VALUR OG HÆNA
Einn leikandinn er val-
ur, og annar hæna, en aft
an við hænuna standa
kjúklipgar í röð, bver aft
ur af öðrum og halda utan
um mittið hver a öðrum.
Hænan gengur með alla
kjúklingana í kring um
valinn, sem situr á hækj
um sínum, og rótar í jó’rð
inni.
Hænan segir:
•— Að hverju 'ebar þú?
Valurinn: — Að ryðg-
aðri saumnál.
Hænan: — Til hvers
ætlar þú að nota hana?
Valurinn: — Til að gera
við ketilinn minn.
Hænan: — rtvað ætlar
þú að gera við ketilinn?
Valurinn: — Eg ætla
að sjóða kjúklinga í non
um.
Hænan: — Hvar ætlar
þú að fá þá?
Valurinn: — Hjá þér.
Hænan: — Þá skulum
við berjast um þá.
Þvá næst hleypur vaíur
inn af stað og reynir að
ná í kjúkling, en hann
má aðeins ná þeim aft-
asta.
Hænan má hlauþa 1
veg fyrir hann til hvorrar
handar sem hann hlevp-
ur, og kjúklingarmr
fylgja eftir hreyfingum
hænunnar. Þeir, sem val-
urinn nær, raða ser upp
á ákveðnum stað, og eru
„dauðir“, en ef hænunni
tekst að snerta við þeim,
eru þeir lifandi a ný, og
raða sér aftur á smn stað
í halarófunni aftan við
hænuna. Þegar allir eru
veiddir, er leikurin.n bú-
inn, og nýr valur og uý
hæna eru valin.
J. F. Cooper
SÍÐASTI MðHlKAMNN
46. Faðir Uncasar og
herflokkur hans sótti
hratt fram og húronarn-
ir lögðu alls staðar á
flótta. Eftir nokkra stund
voru fáir eftir aðrir en
Uncas og Magúa. Þegar
Magúa sá, að orrustan
var töpuð, lagði hann
líka á flótta. Hann gaf
þeim fáu af mönnum sín-
um, sem eftir voru, merki
um að fylgja sér. Þeir
hurfu inn í klettaskúta
og að vörmu spori komu
þeir aftur í ljós og höfðu
Córu með sér. Magúa
hljóp í broddi fylkingar,
en hinir fylgdu fast eftir.
Córu drógu þeir með
sér. Fálkaauga, Uncas og
fleiri ráku flóttann.
„Eg vil ekki fylgja ykk
ur lengur“, hrópaði Córa.
„Þá verður þú að ver|a“,
svaraði Magúa, „veiia
milli stríðsoxi minnar eða
hnífsins".
Varla hafði Magúa
sleppt orðina. þegar Lnc-
as kastaði sér yfir hann.
Þeir börðust upp á líf og
dauða, en Magúa var
sterkari og honum tókst
að ná yfirtökunúm. Eítir
að hafa lagt Uncas að
velli flúði iiann eins og
fætur toguða, en í saraa
bili lyfti Fálkacuga byssu
sinni. SkothvellUr kvað
Við, Magúa snerist í loft-
inu og kastaðist fram sf
bjargbrúninni niður 1
Viltu
skrifa
mér
Gylfi Hauksson, Grettis
götu 69, Reykjavík, óskar
eftir að skrifast á við pilt
eða stúlku, 11—13 ára. —
Áhugamál: frímerkjasöfn
un, gosmyndir. — Sól-
veig Vignisdóttir, Brúar-
landi, Fellum, N-Múl., pr.
Egilsstaðir óskar að'skrif
ast á við stelpur 12—13
ára. (P.S. Þú skrifar
prýðilega, Sólveig).
Kæra Lesbók!
Ég sendi þér hérna
nokkrar gátur:
1. Ég skrifa tólf, tek tvo
af og þá eru tveir eftir.
Hvernig er það hœgt?
2. Hver á flest spor á
íslandi?
3. Svartur gumpur situr
við eld og ornar sér. —
Veiztu hver hann er?
Vertu blessuð og sæl.
Trausti Jónsson, 10 ára.
Borgarnesi.
Skrítlur
Bónda nokkrum varð
það á að stíga á kjólfald
hefðarkonu í kaupstað.
Hefur þú ekki augu í
hausnum, nautið þitt,
sagði konan.
Eg varaði mig ekki á
þessu, svaraði bóndinn,
því að í sveitinni hafa
kýrnar ekki svona lang
an hala.
Faðirinn: Eg skal gefa
þér fimm aura, Georg
litli, ef þú verður góður
drengur í dag.
Georg: Nei: pabbi! Fyr
ír svo lítið geri ég það
ekki.
I