Morgunblaðið - 10.12.1961, Side 21

Morgunblaðið - 10.12.1961, Side 21
Sunnudagur 10. des. 1961 M n R C V iv n 1. 4 *> 1 Ð 21 iFoMoCo „Gildran" er sakamálaleikrit, er byggist á dularfullu hvarfi ungrar og nýgiftrar konu, Elísa- bet Corban. Gerist leikurinn í fjallakofa í frönsku Ölpunum, þar sem Elísabet og eiginmaður ihennar, Daniel Corban hafa dval izt um hríð. Efni leiksins verður hér ekki rakið, en spenna hans er mikil frá upphafi til enda og ieikslokin koma áhorfendum mjög á óvart. Er leikurinn prýði- lega saminn og ber það að höf- undurinn kann vel til verka. Aðalpersónur leiksins eru sex og tvær aukapersónur (lögreglu- íþjónar). Veigamesta hlutverkið, Daniel Corban, leikur Pétur Sveinsson. Hlutverkið er mikið og vanda- samt og ekki á annara færi, en jnikilhæfra leikara að gera því full skil. Pétur Sveinsson er að vísu ekki nýliði á leiksviði, en hann hefur ekki þá kunnáttu og þjálfun er hlutverkið krefst, enda var leikur hans mjög við- vaningslegur skorti festu og ör- yggi bæði í framkomu og fram- sögn. Lögregluforingjann leikur Sveinn Halldórsson. Einnig það er mikið hlutverk. Sveinn hefur gefið sig að leiklíst meira og minna um áratugi. enda mátti sjá það á leik hans að hann er enginn viðvaningur. Leikurinn var ekki tilþrifamikill, en þó á- ferðargóður í stíl „gamla skól- ans“ eins og við minnumst hans Leikfélag Kópavogs leikgáfu, enda gerði hann þarna ærið mikið úr fremur litlu hlut- verki. „Gildran44 Leikrit ettir Robert Thomas Leikstjóri Benedikt Arnason Frá vinstri: Bróðir Maximin (Magnús B. Kristinsson), Florence (Sigr. G. Sandholt), Lögregluforinginn (Sveinn Halldórsson) og Daniel Corban (Pétur Sveinsson). Brissard „listamann" og um- renning leikur Gestur Gíslason. Gerfi Gests er ágætt og leikur hans öruggur og skemmtilegur og framsögn hans prýðisgóð. Hygg ég að iiann búi yfir góðri Auður Jónsdóttir leikur Berton hjúkrunarkonu. Hlutverkið er ekki mikið. en leikur Auðar er öruggur og hressilegúr og fram sögn hennar og látbragð með á- gætum. Sverrir Guðmundsson og Gunn ar Harðarson leika lögregluþjóna Eru það lítil hlutverk, er ekki gefa tilefni til sérstakrar umsagn ar. Leikstjórn Benedikts Arnason- ar hefur tekist mjög vel. enda hefur Benedikt sýnt það oft áð- ur að hann er snjall og hug- kvæmur leikstjóri. Þó hygg ég að einstaka atriði leiksins hefðu þarfnast meiri æfingar. Leiktjöldin hefur Sigr. Soffía Sandolt gert. Eru þau smekkleg og skapa leiknum eðlilegt um- hverfi með Alpana í baksýn. Þýðingu leiksins hefir Gunn- vör Braga Sigurðardóttir gert. Er þýðingin þjál á tungu en ekki hnökralaus. Áhorfendur tóku leiknum af- burðavel. enda er hann bráð skemmtilegur. Sigurður Grímsson. • Leikfélag Kópavogs eflist með ári hverju undir dugmikilli for- ustu ágætra manna og frábærum éhuga allra félagsmanna, enda kann hið unga bæjarfélag að xneta starfsemi þess, sem marka má af því, að á þessu ári hefur félagið eignazt 250 styrktarfé- laga. Og árangurinn hefur einnig orðið furðumikill. Á síðasta leik- ári sýndi félagið tvö leikrit og voru sýningar alls 72 og allar mjög vel sóttar. Að þessu sinni hóf félagið leik árið með sýningu á leikritinu „Gildran" eftir Robert Thomas og fór frumsýningin fram s.l. uniðvikudagskvöld fyrir þéttskip- uðu húsi. Engin deili kann ég á ihöfundi leiksins önnur en þau, sem getið er í leikskránni. Hann er ungur maður, aðeins þrjátíu og eins árs, og er einnig leikari. Hefur hann samið all mörg leik- rit en leikrit það sem hér ræðir um, er fyrsta leikrit hans, sem sýnt var í París (1060). Leið ekki á löngu þar til leikhús helztu borga Evrópu tryggðu sér sýn- ingarréttinn á því og Hitchöock, liinn frægi ameríski leikstjóri (hefur tryggt sér kvikmyndarétt- inn. fyrr á árum. Nokkuð gætti þess að hann ræki 1 vörðurnar um meðferð textans, en það stendur vitanlega til bóta. Magnús B. Kristinsson leikur „prestinn" bróður Maxinin. Leik brögð hans eru ekki mikil, enda hæfir það ekki hlutverkinu, en hann er öruggur í leik sínum og túlkar persónuna af hófsemi og næmum- skilningi. Sigríður G. Sandholt fer með hlutverk Florence, ungrar konu, sem mjög kemur þarna við sögu. Er þetta eitt af þremur veiga- mestu hlutverkum leiksins. Leik ur Sigríðar er að vísu ekki blæ- brigðaríkur. en þó viðfeldin og eðlilegur og oft með góðum og skemmtilegum tilþrifum. VARAHLUTIR ESTRELLA Það er um þrennt að velja: Notio aðeins SKYRTAN STANDARD Tord varahluti FORD - untboðiS • er DE LUXE y. KRISTJÁIUSSON H.F. Suðurlandibraut 2 — Sfmí; 35-300 jólaskyrtan WASH'N WEAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.